Morgunblaðið - 17.01.1958, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 17. jan. 1958
Æ
FRA S. U. S.
RITSTJÓRAR: JÓSEF H. ÞORGEIRSSON OG ÓLAFUR EGILSSON
//
rr
Við kjósum góða bæjcrstjóm
og fellum slæma ríkisstjóm
Ræba Geirs Hallgrimssonar,
hæstaréttarlögmanns, á fundi
Sjálfstæðisfélaganna i fyrrakvöld
Hitaveifusfjári getir
grein tyrir vélanofkun
stofnunarinnar
Á 40 ÁRA afmæli kommúnista-
byltingarinnar sl. haust í
Moskvu, sem Einar Olgeirsson og
Hannibal Valdemarsson tóku
þátt í, voru gefnar út tvær yfir-
lýsingar.
Önnur þeirra var yfirlýsing
valdamanna í kommúnistaríkj-
um, leppríkjunum, þar sem því
var slegið föstu, að kommúnista-
flokkur Ráðstjórnarríkjanna
ætti að vera og væri forustu-
flokkur kommúnistaflokkanna
alls staðar í heiminum.
Hin yfirlýsingin var gefin út
af 64 kommúnistaleiðtogum víða
um heim þess efnis, að kommún-
istar í ríkjum, þar sem yfirráð
þeirra væru ekki eftn að fullu
tryggð, ættu að leggja áherzlu á
alþýðubandalög, samvinnu við
socialdemokra^a og miðflokka.
Það dylst engum, að þessi ítrek
un á stefnu hins alþjóðlega
kommúnisma, sem áður hafði
reyndar verið mörkuð, er aðal-
stoðin undir stjórnarsamstarfi
vinstri flokkanna. Án þessara
fyrirmæla frá Moskvu, væru
kommúnistar fyrir löngu farnir
úr stjórn.
StjórnarsamstarfiS sýnir
sundrungu vinstri flokkanna
í nánu samræmi við þetta er
og viðhorf stjórnarflokkanna til
Sj álf stæðisf lokksins.
Rétt eftir síðustu alþingiskosn-
ingar, sumarið 1956, hitti ég að
máli einn forvígismann vinstrí
flokkanna.
„Vinstri stjórnarmyndun verð-
ur að takast", sagði hann. „Ann-
ars haldið þið íhaldsmenn áfram
að lifa og nærast á sundrungar-
kenningunni“.
Stjórnarmyndunin tókst, en
svo kaldhæðnislega hefur viljað
til, að einmitt 3 missera valda-
ferill stjórnarinnar hefur framar
öllu öðru afhjúpað sundrungu, ó-
samkomulag og stefnuleysi
vinstri flokkanna.
Stjómarsamstarfið sýnir, að
stjórnarflokkarnir eru klofn-
ir bæði langsum og þversum.
Stefnu- og skoðanamunur rík-
ir í þjóðmálunum, ekki ein-
göngu milli stjórnarflokk-
anna sem flokka, heldur og
innbyrðis innan hvers stjórn-
arflokks um sig.
Það er erfitt að segja nú, hvort
það er stefna ríkisstjórnarinnar
að hafa varnir í landinu eða
hvort það skuli veia varnarlaust.
Forsætisráðherrann segir, að
herinn skuli vera hér „að svo
stöddu“, og viku seinna tilkynnir
fjármálaráðherra lántöku í vest-
urvegi.
Kommúnistar segja herinn
verða að fara tafarlaust og bjóða
langtum stærra og hagkvæmara
lán úr austurvegi.
Forsætisráðherra boðar gengis-
lækkun.
Kommúnistar segja hana ekki
koma til mála — í pað minnsta
ekki núna fyrir kosningar.
Varnir landsins, lánsútveganir
og efnahagsmál eru tengd saman
á niðurlægjandi hátt, og allir
hlutar ríkisstjórnarinnar keppast
um áð halda nokkurs konar upp-
boð á íslendingum erlendis.
Lánsútveganirnar hafa verið
nauðsynlegar til að fleyta vinstri
stjórninni fram yfir tvenn ára-
mót, og þá ekki sízt þau síðustu
— fram yfir kosningar.
Fyrst eftir kosningar þykir svo
aftur óhætt að koma fram í dags-
ljósið með hin svokölluðu úrræði.
Það er því vonlaust verk fyrir
vinstri flokkana að benda á
stjórnarsamstarfið sem sönnun
þess, að þeir geti myndað sam-
hentan, æskilegan meirihluta til
að stjórna Reykjavík.
Til stjórnarsamstarfsins og af-
reka vinstri stjórnarinnar heyr-
ist heldur ekki viínað í þessari
Geir Hallgrímsson,
hæstaréttarlögmaður
kosningabaráttu — og víst er um
það, að enginn stjórnarflokkanna
hefur talið það sér til framdrátt-
ar að fá ráðherra sína til að taka
heiðurssæti á framboðslista eins
og hingað til hefur þó tíðkast.
Meginmunur er á stefnu
Sjálfstæðismanna og and-
stæðinganna
Vinstri flokkarnir reyna nú að
leyna samábyrgð sinni á svikun-
um við kosningaloforðin 1956 og
sækja að Sjálfstæðisflokknum
hver með sínu lagi og hver í sínu
líki.
En hvort heldur við litumst
um á sviði þjóðmálanna eða bæj -
armálanna, þá er meginmunur á
stefnu Sjálfstæðismanna annars
vegar og allra vinstri flokkanna
hins vegar.
Sjálfstæðismenn vilja
byggja bæjarfélagið upp af
sjálfstæðum, óháðum einstakl
ingum, sem án íhlutunar ráða
og nefnda, hafta og banna,
geta skapað sér starfssvið, lífs
viðurværi, húsnæði og mynd-
að sér skoðanir án ótta við
valdhafa eða yfirboðara.
Þannig á bæjarfélagið að vera
rammi um líf og starf borgar-
anna, sinna sameiginlegum þörf-
um þeirra og sérstökum þörfum,
þar sem skortur og sjúkdómar
hafa lamað.
Vinstri flokkarnir vilja, að
sambandsvald, bæjarfélögin eða
þjóðfélagið reki öll atvinnutæk-
in, veiti mönnum atvinnu og hús-
næði, sé forsjá einstaklinganna
og hafi þannig ráð þeirra í hendi
sér.
Þessi stefnumunur kemur ljós-
lega fram í viðhorfi Sjálfstæðis-
flokksins annars vegar og vinstri
flokkanna hins vegar í húsnæðis-
málum.
Það hefur verið stefna Sjálf-
stæðismanna, að hver fjölskylda
byggi í eigin húsnæði, og hefur
mikið áunnizt í þeim efnum hér
í Reykjavík undir forustu Sjálf-
stæðismanna, þótt betur megi ef
duga skal.
En vinstri flokkarnir leggja
áherzlu á, að ríki og bær byggi
íbúðir og leigi þær, að einstakl-
ingarnir séu leiguliðar hins opin-
bera, háðir valdhöfunum.
Sjálfstæðismenn vilja bygg-
ingafrelsi og bera virðingu fyrir
eignaréttinum og ráðstöfunar-
rétti einstaklinga á eigin verð-
mætum.
En vinstri flokkarnir vilja inn-
leiða á ný og herða bygginga-
höft og virðing þeirra fyrir eign-
arréttinum og ráðstöfunarrétti
einstaklinga á eigin verðmætum
er slík, að þeir gerðu það að til-
lögu sinni á sl. kjörtímabili '
bæjarstjórn, að skora á ríkis-
stjórnina að gefa út bráðabirgða-
lög, er heimiluðu að ráðstafa
„því húsnæði einstaklinga, sem
umfram er eðlilega íbúðastærð,
miðað við fjölda heimilismanna"
Bæjarstjórn felldi þessa tillögu
en lagafrumvarp var prentað,
þar sem ein allsherjarríkisnefnd
skyldi ráðstafa öllu húsnæði,
hvort heldur til leigu eða sölu,
skammta mönnum húsnæði til
íbúðar og hirða leigugjald og
söluverð.
Sjálfstæðismenn vilja leysa úr
húsnæðisskortinum með því að
byggja meira og auka framboðið
á húsnæði.
Vinstri flokkarnir eygja að-
eins úrræði eins og skömmt-
un, höft og hömlnr og alls-
herjar ríkisíhlutun með þar
afleiðandi frelsisskerðingu.
Sigur Sjálfstæðisflokksins
tryggir áframhaldandi þróun,
vöxt og viðgang.
Þetta eru þau úrræði, sem
bíða okkar eftir kosningarnar,
bæði á sviði húsnæðismála og
efnahagsmála, bæði á sviði bæj-
armála og þjóðmála, ef svo
skyldi fara, að Sjálfstæðismenn
misstu meirihlutann í bæjar-
stjórn Reykjavíkur. Þá væri
vígi einstaklingsfrelsisins,
Reykjavík, fallið. Þá væru stjórn
arherrunum lítil takmörk sett, og
úrræði þeirra eftir kosningarnar
yrðu harðræði.
Gætum að því, að kommúnist-
ar yrðu þá áhrifamestir um
stjórn bæjarmálefnanna, við það
mundu ítök þeirra í ríkisstjórn
enn aukast í samræmi við til-
gang yfirlýsingarinnar á .40 ára
byltingarafmælinu í Moskvu,
um samstarf við socialdemo-
krata og miðflokka og forustu-
hlutverk rússneskra kommúnista.
Þá leysir alræði kommún-
ismans sundrungu og stefnuleysi
stjórnarflokkanna af hólmi.
En með glæsilegum sigri Sjálf-
stæðisflokksins tryggjum við í
senn borginni okkar, Reykjavík,
góða, samhenta stjórn, áfram-
haldandi þróun, vöxt og viðgang,
og um leið getum við á áhrifa-
mikinn hátt lýst vantrausti á
ríkisstjórn landsins og stuðlað að
falli hennar.
Það eru 10 dagar til kosninga.
Enginn má liggja á liði sínu.
Þessar kosningar eru ef til vill
örlagaríkari en flestar þær aðrar
kosningar, sem við höfum gengið
til.
Atkvæði okkar 26. jan. er í
raun og veru tvígilt:
Við kjósum góða bæjarstjórn
og fellum slæma ríkisstjórn.
A BÆJARSTJÓRNARFUNDI í
gær var lagt fram bréf frá hita-
veitustjóra út af grein í Þjóð-
viljanum 1. des. sl., sem fjallar
um vélanotkun Hitaveitunnar.
í bréfinu segir m. a.:
„Frá upphafi byggingar Hlíða-
hitahitaveitunnar hafa verið
leigðar vinnuvélar frá ýmsum
fyrirtækjum, sem annast rekstur
vinnuvéla og eru þau þessi
(vinnuvélar í svigum);
Almenna Byggingafélagið h.f.
(loftpressur með og án bíls o.fl.)
Gunnar Guðmundsson h.f.
(skurðgröfur).
Gustur h.f. (loftpressur á bíl og
lítill bílkrani).
Jarðýtan s.f. (jarðýtur, kranar
og „scraper").
Kol & Salt h.f. (ámokstursvél).
Landssmiðjan (stór bílkrani).
Pétur Jónsson o. fl. (ámokst-
ursvél og krani).
Pétur Snæland h.f. (loftpress-
ur, kranar).
Þungavinnuvélar h.f. (loft-
pressur, kranar).
Goði h.f. (skurðgrafa).
Vélaeign Hitaveitunnar er að-
allega miðuð við að get'a annað
daglegum rekstri eins og við-
gerðum og lagningum á pípum
inn í hús o. fl.
Þegar ráðist er í stórvirki sem
byggingu hitaveitukerfis í heil
bæjarhverfi er vélaeign fyrir-
tækisins ekki fullnægjandi og
þar sem Hitaveitan annast mik-
inn hluta framkvæmdanna sjálf,
hefur hún orðið að ráða til sín
vélar annarra aðila, sem eru tald-
ir að ofan.
Viðvíkjandi leigu á tækjum
YKefln-
víh
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðismanna á Suðurnesjum er
í Sjáifstæðishúsinu í Keflavík og
er hún opin daglega frá kl. 10 til
10. — Sími 21.
Sjálfstæðismenn á Suðurnesj-
um er hvattir til að hafa sam-
band við skrifstofuna og gefa
henni upplýsingar varðandi kosn
ingarnar.
Kosningaskrifstofa Sjáifstæðis- (
manna fyrir Nes- og Melahverfi
hefur verið opnuð í KR-húsinu,
með inngangi frá Granaskjóli.
Síminn þar er 13-0-97, og er
skrifstofan opin kl. 5—10 e.h.
dag hvern.
Sjálfstæðismenn, sem búsettir
eru í Miðbænum (frá Óðinsgötu
vestur að Aðalstræti), hafa kosn-
ingaskrifstofu að Laufásvegi 58.
Hún verður opin daglega kl. 2—
10 e.h., sími 1-27-43.
Sjálfstæðismenn í Vesturbæn-
um hafa skrifstofu að Ægisgötu
10. Hún er einnig opin daglega
kl. 2—10, sími 1-12-88.
Sjálfstæðismenn í Austurbæn-
um hafa opnað skrifstofu að
Hverfisgötu 42 (2. hæð). Þar er
opið daglega kl. 5—10 e.h. Sím-
inn er 1-47-22.
Kosningaskrifstofa fyrir Hlíða-
og Holtahverfi er á Miklubraut
50. Sími þar er 1-17-79. Skrif-
stofan er opin kl. 5—10 síðdegis.
Kosningaskrifstofa fyrir Norð-
urmýrarhverfi er að Miklubraut
15 (Rauðárstígsmegin). Sími þar
er 1-48-69. Skrifstofan er opin
kl. 5—10 síðdegis.
Kosningaskrifsofa fyrir Lang-
holts- og Vogahverfi er að Siglu-
vogi 15. Skrifstofan er opin kl.
10—12 f.h. 2—6 síðd. og á kvöldin
kl. 8—10. Sími skrifstofunnar er
3-31-59.
Gusts h.f. skal það tekið fram,
að vélaeign þess fyrirtækis er
tveir bílar með óbyggðum loft-
pressum og litlum (ca % tonns)
vökva-lyftikrönum og slík tæki
á Hitaveitan ekki til. Hitt er að
Hitaveitan á loftpressur og krana
bíl o. fl. tæki, og er ekkert
óeðlilegt við notkun þeirra, þar
sem loftpressa á bíl er alltaf
notuð og höfð til taks til við-
gerða, önnur er t. d. 1 vinnu í
grunni dælistöðvar við Fúlu-
tjörn, kranabíllinn í að setja lok
á stokka í Hlíðahverfi o. s. frv.
Af allri vélavinnu Gusts h.f.
er gefinn afsláttur, tíu af hundr-
aði, og eru þær langódýrasta
þjónustan af þessu tagi, sera
hægt er að fá, því að auk loft-
pressu er þægilegt að geta haft
krana til notkunar við byrging-
ar, lyftingu á grjóti og aðra til-
færslu.
Það hefur hingað til aldrei ver-
ið bannað að opinberir starfs-
menn ættu hlutabréf í félögum,
og það jafnvel þótt þeir ynnu
hjá opinberum aðilum, sem hefðu
samskipti við hlutafélag, sem
starfsmaður ætti hlut í.
Til viðbótar má geta þess aS
samhliða vinnu við hitaveitu í
Hlíðahverfi, hefur verið unnið
að ýmsum öðrum framkvæmd-
um auk hin daglega reksturs.
Má t. d. nefna byggingu dæli-
stöðvar hjá Höfða, lagningu
leiðslu þaðan að Rauðarárholu
og yfir Skúlagötu. Bygging vél-
stjórahúss að Reykjum, lagfær-
ing lóðarinnar hjá aðaldæli-
stöðinni o. fl. Það kemur því oft
fyrir að nota þurfi loftpressur
og krana á mörgum stöðum á
sama tíma og var því óhjákvæmi
legt að fá tæki að láni. Til við-
bótar því sem áður er talið má
geta þess að loftpressa og stór
krani hefur verið fenginn frá
Reykjavíkurhöfn, að ýta hefur
verið fengin frá Ræktunarsam-
bandi Kjalarneshrepps, bíll með
grafkló hefur verið fenginn frá
Jóni Hjálmarssyni og ámokstur
hefur verið fenginn hjá Vegagerð
ríkisins. Ólíkum verkfærum og
aðstæðum henta ólík tæki og
Hitaveitan hefur ávallt valið það
sem hagkvæmast var í hverju
tilfelli, og þá að sjálfsögðu not-
að fyrst og fremst sín eigin
tæki.“
Loks hafa Sjálfstæðismenn, er
búa í Smáíbúða- og Bústaðahverf
unum og í Biesgróf, opnað skrif-
stofu á Sogavegi 94. Fyrst um
sinn verður hún opin kl. 8—10
e.h dag hvern. Síminn er 1-86-47.
í skrifstofunni iiggja frammi
kjörskrár, og þar eru gefnar all-
ar upplýsingar, sem kosningarn-
ar varða. Sjálfstæðisfólk er
hvatt til að hafa samband við
skrifstofurnar í hverfum sínura
hið fyrsta.
YSe/-
foss
SJALFSTÆÐISMENN á Sel-
fossi hafa opnað kosningaskrif
stofu í verzlunarhúsi S. Ó.
Ólafssonar & Co. (2. hæð).
Skrifstofan er opin daglega
frá kl. 10 árdegis til kl. 10 síð
degis. Sími skrifstofunnar er
119. Stuðningsfólk D-Iistans á
Selfossi er beðið að hafa sam-
band við skrifstofuna.
8 kosiiingaskrifstofur Sjálf-
stæðismanna víðs vegar um bæinn