Morgunblaðið - 17.01.1958, Síða 15
Föstudagur 17. jan. 1958
MORCUNBLAÐIÐ
15
Jón Karl Sigurðsson
ísfirðingar byggja nœr
eingöngu á fluginu í
samgöngumálum
INGÓLFSCAFÉ INGÓLFSCAFÉ
Eldri dansarnir
í Ingólfscafé í kvöld klukkan 9.
Aðgöngumiöar seldir frá kl. 8. Sími 12826
Eitf helzta framfaramál Vestfirðinga
er, oð flugvallabyggingum verbi
hra&að, segir Jón Karl Sigurbsson
umboósmabur F.í. á Isafirði
Félagsvistin i G.T.-húsinu
í kvöld klukkan 9. —
Góð kvöldverðlaun hverju sinni
auk heildarverðlauna
Dansinn hefst klukkan 10.30.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 1-33-55
★ ★ ★
SAMGÖNGUMÁL hafa löngum
verið ofarlega á baugi á Vest-
fjörðum. Vestfirðingar hafa jafn-
an átt í erfiðleikum með sam-
göngur við aðra landshluta, en
segja má, að mikið hafi rætzt úr,
þegar flugsamgöngur til Vest-
fjarða hófust. Nú horfir hins
vegar báglega í þessum efnum.
Framkvæmdastjóri Flugfélags
íslands hefur nýlega skýrt frá
því í blaðaviðtali, að flugbátar
félagsins gangi óðum úr sér og
erfiðleikar á starfrækslu þeirra
fari sívxandi, Megi jafnvel búast
við því, að félagið verði að leggja
þá á hilluna fyrir fullt og allt
innan tíðar.
Þetta eru slæm tíðindi fyrir
Vestfirðinga. Þar eru engir flug-
vellir, sem aðrar flutningaflug-
vélar Flugfélagsins geta athafnað
sig á — og segja má, að á undan-
förnum árum hafi flugbátarnir
verið einu samgöngutækin við
Vestfirði, sem hægt hefur verið
að treysta á.
★ ★ ★
Jón Karl Sigurðsson hefur um
margra ára skeið verið umboðs-
maður Flugfélags Xslands á ísa-
firði og er óhælt að segja, að
enginn sé jafnkunnugur fluginu
vestur og viðhorfum þeim, sem
breyttar aðstæður í samgöngu-
málunum skapa vestra. Frétta-
maður blaðsins hitti hann að máli
á dögunum og innti hann eftir
skoðun hans á málunum.
— Eitt helzta nauðsynjamál
ísfirðinga nú er, að komið verði
upp flugvelli við bæinn, sagði
Jón Karl. Á undanförnum árum
höfum við í vaxandi mséli orðið
að treysta á flugsamgöngurnar.
Skipaferðum hefur fækkað til
muna — og líða oft vikur á milli
þess sem hægt er að fá sjóferð
suður til Reykjavíkur. Enn erum
við ekki komin í samband við
akvegakerfi landsins. Yfir sum-
arið er samt haldið uppi bílferð-
um að Djúpi, en til þess að kom-
ast í bilana verðum við ísfirðing-
ar fyrst að fara margra stunda
ferð með báti inn Djúp. Vart
hefur því verið um annað að
ræða en flugsamgöngurnar — og
má segja, að ísafjörður svo og
önnur kauptún á Vestfjörðum
hafi verið einangruð, þegar flug-
ferðir hafa fallið niður um
nokkurn tíma.
★ ★ ★
Til marks um það hve ísfirð-
ingar hafa notað flugsamgöngurn
ar mikið má benda á það, að á
árinu, sem leið, ferðuðust hátt
á 7. þúsund manns flugleiðis
milli ísafjarðar og Reykjavíkur.
f bænum búa hins vegar ekki
nema nokkuð á 3. þús. manns.
Vöruflutningar hafa einnig verið
mjög miklir — og hefðu orðið
mun meiri, ef flugbátarnir hefðu
getað annað flutningaþörfinni.
★ ★ ★
Það er langt síðan farið var að
gera athuganir á heppilegu flug-
vallarstæði í nágrenni kaupstað-
arins. Ekki fyrst og fremst vegna
þess að Flugfélaginu reyndist
erfitt að starfrækja sjóflugvélarn
ar, heldur vegna þess, að flugið
vestur yrði Vestfirðingum mun
tryggara, ef flugvöllur væri fyrir
hendi. Einnig vegna þess, að oft
reynist erfitt að afgreiða sjóflug-
vélarnar — sérstaklega að vetr-
inum. Oft er það, að flugveður
er hið bezta, en illt í sjóinn — og
ólendandi. Þá kemur það einnig
oft fyrir að vetrinum, að firði legg
ur og flugvélin verður að lenda
langt utan við bæinn. Er þá ekki
um annað að ræða en að sigla út
að flugvélinni — oft langa leið.
Fyrst og fremst veldur þetta far-
þegum miklum óþæindum og í
öðru lagi tefur þetta flugvélina
oft og veldur því, að flugveður
nýtist mun minna en ella.
Þá má ekki gleyma því, að
sjóflugvélar mega hvorki lenda
né hefja sig til flugs af sjó eftir
ljósaskipti. í umhleypingasömu
skammdegisveðrinu eru samgöng
ur því oft erfiðar.
Flugvöllur er ísfirðingum mik-
il nauðsyn enda þótt engir fyrir-
sjáanlegir örðugleikar væru í
rekstri sjóflugvélanna. Flugvöll-
ur mun tryggja samgöngurnar að
miklum mun og efla kaupstaðinn.
Rætt hefur verið um að byggja
flugvöll á Skipeyri þar sem nú
er flugbraut fyrir sjúkraflugvél.
Það yrði okkur mikill ávinningur
að fá flugvöll þar, enda þótt okk-
ur finnist hálft í hvoru hann
verða of langt frá bænum, stað
settur þar. En hér er ekki margra
kosta völ, því að undirlendi er
lítið í firðinum. Flugvöllur er
í byggingu í Bolungavík og hefur
verið rætt um að sá völlur yrði
einnig fyrir ísafjörð. Ég tel samt
fráleitt að ætla það. Bolvíkingum
verður flugvöllur ómetanlegur,
en sá flugvöllur kæmi ísfirðing-
um að harla litlum notum.
Flugmálastjórnin hefur að und
anförnu gert athuganir á heppi-
legu flugvallarstæði hér — og
eins og ég sagði áður, þá yirðist
Skipeyri einna helzt koma til
gi'eina. Hins vegar er þorri bæjar
búa þeirrar skoðunar, að bæjar-
félaginu mundi koma bezt, að
flugvöllurinn yrði byggður með
hlíðinni, innan við bæinn. Að
vísu yrði flugbrautin þar senni-
lega dýrari í byggingu en hún
yrði á Skipeyri. En flugvöllurinn
yrði bæjarbúum mun notadrýgri
rétt við bæinn — og það, sem
mikilvægara er: Á þeim stað yrði
hægt að gera flugbrautina lengri
en á Skipeyri — og nothæfa fyrir
stærstu flugvélar okkar. Á Skip-
eyri mundu hins vegar aldrei
geta lent stæi'ri flugvélar en
Douglas.
Samgöngubót sem þessi mun
efla bæinn og aðstöðu hans til
muna og laða að. Ef ekkert verð-
ur hins vegar aðhafzt og fer sem
nú horfir, að sjóflugvélarnar anni
ekki flutningaþörfinni, mun óvið
unandi ástand skapast hér. Sama
ástand mun einnig skapast í öðr-
um byggðarlögum hér vestra, ef
flugsamgöngurnar gerast erfiðar,
eða falla niðui’. Þingmenn ís-
firðinga og N-ísfirðinga hafa unn
ið að því með ráði og dáð að
koma skriði á flugvallbyggingarn
ar — og við hér vestra tengjum
miklar vonir við að úr rætist.
Það er oft selnlegt og erfitt að afgreiða sjóflugvélarnar, sérstaklega ef illt er í sjóinn. Myndin
er tekin á Pollinum við ísafjarðarkaupstað fyrir skenunstu. Farþegar gánga upp úr flugbátnum,
út í flugfélagsbátinn.
SJÓMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Aðalfundur
Sjómannafélags Reykjavíkur verður haldinn sunnu-
daginn 19. janúar 1958 í Alþýðuhúsinu við Hverfis.
götu og hefst klukkan 13.30 (1.30 e.h.).
Fundarefni:
1. Félagsmál
2. Venjuleg aðalfundarstörf
3. Önnur mál.
Fundurinn er aðeins fyrir félagsmenn, er sýni skír-
teini við innganginn. —
Stjórnin.
Rockhátíðin mikla
Vegna fjölda áskorana verður Rockhátíðin mikla end-
urtekin í Silfurtunglinu í kvöld kl. 9. Rocksöngvararnir
Óli Ágústsson Prestley, Sigurður Þórðarson Johnny Boy,
Sigurdór Sigurdórsson, Bjarni Guðmundsson o. fl. o. fi.
syngja vinsælustu rock- og calypsolögin: Diana, Freight
Train, Long Tall Sally, Calypso Rock, Hound Dog, Tutty
Frutty, Lagið hans Guðjóns, We’re gonna teach you to
rock, See you later alligator, Just run, Tammy, Around
the world og margt fleira.
Kl. 11 danslag kvöldsins: Cocanut woman leikið og
sungið af hljómsveitinni og öllum söngvurunum.
Kl. 11.15 nýtt atriði: Barrelhouse Blackie syngur nýj-
ustu rocklögin með eigin píanóundirleik.
Albezta rockatriði, er fram hefur komið síðustu mánuði.
Riba og hljómsveit aðstoða á liátíðinni af mikluin krafti
Sala aðgöngumiða og borðpantanir frá kl. 2. — Simi 19611
Komið tímanlega og forðist þrengsli.
Síðast seldist strax upp
SILFURTUNGLIÐ.
Vanti yður skemmtikrafta, þá hringið
í síma 19965, 19G11 og 11378.