Morgunblaðið - 17.01.1958, Blaðsíða 19
Föstudagur 17. jan. 195:
MORGH1SBLAÐ1Ð
19
Rússar ætla að sanna,
hvernig líf kviknaði
jörði
nni
MOSKVU, 16. jan. — Vísindameim í Sovétríkjunum vonast
til þess að geta sannað, hvernig hið fyrsta líf kviknaði á
jörðinni. í þessu skyni ætla þeir að nota gervitungl. Rúss-
arnir ætla með aðstoð geimgeisla að breyta ólífrænum efn-
um í lífræn. — Frá þessu var skýrt í Moskvu í kvöld.
Rússarnir ætla að senda með
gervitungli ólífrænt efni, sem
samsett er úr metan, vatnsefni
og gufu, en menn vita, að þessi
efnablanda var fyrir hendi hér á
jörðinni fyrir milljónum ára.
Gera vísindamennirmir ráð fyrir,
að þegar þetta efni verður fyrir
áhrifum geimgeisla, þá breytist
það í líf eins og átti sér stað hér
á jörðinni, þegar fyrsta lífveran
kviknaði.
Áður em hægt verður að gera
athugun þessa, verður að leysa
það vandamál, hvernig hægt sé
að ná gervitunglinu óskemmdu
aftur til jarðar.
Dr. Fuch vœntanlegur til
suðurpólsins á laugardag
WELLINGTON, 16. jan. —
(Reuter). — Dr. Fuch á nú
ekki nema um 100 km leið til
suðurpólsins og er gert ráð
fyrir því, að hann og félag-
ar hans komist þangað á
laugardaginn.
Gert er ráð fyrir, að þeir
leggi af stað í 1200 mílna
ferðalagið til Scottstöðvar-
innar á mánudaginn. Út-
varpið í Wellington segir, að
förin eftir skriðbíla Hillarys
geti auðveldað þeim félögum
ferðina, enda sjáist þau enn
mjög greinilega þrátt fyrir
talsverðan vind og snjókomu.
Fuch hefur beðið Banda-
ríkjamennina á suðurpólnum
Nýir rússneskir
bílar sýndir
í ILLVIÐRINU í gær öslaði hóp
ur manna yfir fannir vestur við
KR-húsið, til þess að skoða þar
nýja gerð rússneskra fólksbíla,
en þeir hafa hlotið nafnið: Volga.
Meðal gesta var sendiherra
Rússa hér og nokkrir starfsmenn
hans. Þar voru og nokkrir em-
bættismenn og einnig leigubíl-
stjórar. Þeir kváðu bílinn líta vel
út, minnir á Ford 1950 sagði einn.
Annar sagði: Minnir mig á Willys
fólksbílana. En útlínurnar eru
ekki aðalatriðið heldur það hvern
ig vélin er.
Vélin er 4 cyl. toppventlavél.
Reynslan hefur sýnt, sagði einn
leigubílstjóranna, að hinir rúss-
nesku bílar, sem virðast vera
traustlega byggðir og um margt
henta vel okkar vegum, eru ekki
búnir nægilega sterkum vélum
miðað við þunga. Volga-billinn,
er nær 1400 kg., ætlaður fyrir
bílstjóra og fimm farþega. Hann
kostar 113,000 þús. til almennings
en til atvinnubílstjóra 105,000
þúsund krónur.
Þá er á sýningu þessarl rúss-
neskur Pobeda á jeppaundirvagni
með drifi á öllum hjólum en
venjulegri fólksbíls yfirbyggingu,
Er þetta að sjá mjög sterklegur
ferðabíll. Hann er dýr, um 125.000
þús. kr. Gestir bentu á að slíkir
bílar myndu henta vel embættis-
mönnum í sveit, svo sem læknum,
því það er að sjá sem þessi
bíll komist yfir torfærur. Um-
boðsmenn kalla hann „Hálegg",
að senda 18 hunda þeirra fé-
laga heim í flugvél. Hann
vonast til þess að fá góðan
byr til Scottstöðvarinnar og
gerir ekki ráð fyrir, að hund-
knúnu farartækjum, sem þeir
félagar nota.
Erlendar
í stuttu
Iréttir
múli
LUNDÚNIR: — 16. jan. (Reuter,
NTB). — Að minnsta kosti 13
menn fórust í landskjálfta í borg-
inni Arequipa, sem er um 500
mílur suður af Lima í Perú. Sjö
af hverjum tíu húsum borgarinn
ar skemmdust og eitt hverfið lagð
ist alveg í rúst. — Reykský hvílir
nú yfir borginni.
38 skipverjum af norska olíu-
skipinu, sem brotnaði í óveðri á
Miðjarðarhafi, hefir verið bjarg-
að. Enn er þriggja skipverja leit-
að, en þeim skolaði út. Er vonazt
til, að þeir hafi komizt á flak,
en þó þykir það heldur ósenni-
legt, eins og sjógangurinn var. —
Skipverjar þessir eru: skipstjór-
inn og tvær þernur. — Olíuskipið
var tæpl. 10 þúsund tonn.
Hammarskjöld er í 'Lundúnum
og ræðir við Lloyd utanríkisráð-
herra um ástandið í löndum fyrir
Miðjarðarhafsbotni og ráð til að
draga úr kalda stríðinu. — Dag-
ens Nyheter segir í dag, að hann
muni fara til Moskvu í vor.
•—o--
Dulles sagði í dag, að í svari
arnir hafi þá við hinum vél- sínu við bréfi Bulganins hafi
Eienhower Bandaríkjaforseti
lagt áherzlu á tvennt: að utanrik
isráðherrar stórveldanna undir-
Lárus Pálsson — minning
SÆLIR eru hjartahreinir því að
þeir munu Guð sjá. (Matt. 5, 8->
Þessi orð heilagrar ritningar
eru mér ofarlega í huga er ég
minnist vinar míns, Lárusar
Pálssonar og trúi fastlega að
fyrirheit þeirra hafi nú rætzt á
honum. Lárus andaðist í sjúkra-
deild Elliheimilisins 20. des. sl.
Þar haði hann dvalið mörg und-
anfarin ár, þrotinn að kröftum
Hann var fæddur að Mágskeldu
í Saurbæjarhreppi 28. ágúst 1870,
sonur hjónanna Helgu Loftsdótt-
ur og Páls Sigurðssonar, er voru
velgefin sæmdarhjón, og á ég um
þau kærar minningar frá því er
þau dvöldu stundum tíma og
tíma á heimili foreldra minna á
Dröngum, en þar var Lárus
vinnumaður þegar ’ég var lítil
Ekki man ég fyrr eftir mér en ég
minnist hans. Það var sem hann
byggi yfir þeim töfrum að eign-
ast sérstöðu í barnshjörtunum
Ef til vill var það sökum þess, að
hann var einn af þeim fáu, sem
alltaf tókst að varðveita barnið
I eigin sál þótt árunum fjölgaði,
og því skildi hann börnin svo vel.
Fórn og þjónusta voru sterkir
þættir í lífi hans. Hann vann
oftast öðrum, og alltaf af stakri
trúmennsku. Þá var vinnudagur-
inn langur, öll vinnuskilyrði erf-
ið og kaupið lágt. Kröftum hafði
hann ekki miklum yfir að ráða
því hann var að eðlisfari fingerð
ur, en alla sína orku lagði hanr
fram og dró ekki af, húsbændum
sínum og vinum til blessunar. Oít
fórnaði hann nætursvefni sínum
til að hugga óvært eða veikt
barn, þegar hann var hjá okkur
enda minntist mamma mín hans
oft með þakklátum huga, því
margt erfiðið tók hann af henni
í þá daga var það lítt heppileg
leið til vegsauka fyrir karlmann
að vinna hin kvenlegri störf,
hversu mikil sem annars þörfin
var fyrir það. En algeng sjón var
að sjá konur krjúpa við fætur
karlmannanna og draga af þeim
böslin, jafnvel í matartíma, sen
bæði höfðu jafnlangan. Á þessa
hluti lagði Lárus áreiðanlega
rétt mat. Það sýndi hann í verk-
inu. Eftir að hann fór frá okkur
kom hann stundum í heimsókn
Alltaf hafði hann eitthvað með-
ferðis til að gleðja okkur með og
við krakkarnir stóðum í kringum
hann og hann hélt í hendur okk-
ar. Þá var hátíð. Lárus hafði
næmt eyra fyrir músík og lék
vel á harmonikku.
Mörgum árum seinna eða eftir
að við og hann fluttum suðui,
kom hann oft á heimili mitt, og
dvaldi stundum hjá mér um
skeið, alltaf mér til gleði og hjálp
ar. í umsjá hans skildi ég börnin
mín eftir örugg þótt ung væru,
því hann var trúr í smáu sem
stóru. Eitt sinn var ég í sveit
með börnin, en Lárus var á með-
an í íbúðinni minni. Þegar ég
kom heim var þar allt fágað og
prýtt, því hann var snyrtimenni
svo af bar. Svo leiddi hann mig
að glugganum og sýndi mér blóm
in, þau höfðu vaxið heil býsn.
„Ég vökvaði þau og bar þau allt-
af í þann gluggann, sem sólin
skein á“, sagði hann og brosti.
Þetta var táknrænt fyrir hani'
því hans hamingja var í því fólg
in að bera öðrum birtu, þótt
sjálfur sæti hann oft í skugga.
Svo margs er að minnast og
margt að þakka. •
Hann trúði á Drottin sinn og
frelsara, Jesú Krist. í trúnni var
hann sem annars staðar barns-
lega einlægúr og sannur.
Lárus var giftur góðri konu er
Jakobína hét, en missti hana á
bezta aldri. Þau eignuðust eina
dóttur, Helgu, sem gift er Lofti
Helgasyni, bókara hér í bæ. Húr.
var yndi og augasteinn föður síns
og fyrir hana hefði hann fórnað
öllu með gleði.
Lárus var jarðsunginn frá Frl-
kirkjunni 30. des. sl.
„Aldrei mætzt í síðsta sinni
sannir Jesúvinir fá.
Hrellda sál, það haf í minni
harmakveðju stundum á“.
Kæri, látni vinur, hjartans
þökk fyrir allt, sem þú varst
mér og mínum.
Sigurborg Eyjólfsðóttir.
byggju ríkisleiðtogafund og hann
yrði ekki haldinn nema vissa
væri fyrir því, að einhver árang-
ur næðist á honum.
Sendiherra Breta í Moskvu af-
henti Gromyko í dag svar Mac-
millans við bréfi Bulganins. — í
svarinu er m.a. tekið fram, hvaða
skilyrðum griðasáttmáli milli
Austurs og Vesturs yrði að vera
háður.
í dag fékk stjórn Gaillards
„níunda traustið”, þegar þingið
samþykkti að kippa til baka fram
kominni tillögu um launahækkun
til uppgjafahermanna. Forsætis-
ráðherrann sagði, að allar slíkar
hækkanir gengju í berhögg við
stefnu stjórnarinnar í efnahags-
málum og kvaðst munu gera það
að fráfararatriði, ef fyrrnefnd
tillaga ýrði ekki felld.
■—o—
í dag lauk fundum OEEC í
París án þess að niðurstaða feng-
ist á því, hvaða reglur ættu að
gilda um sölu landbúnaðarafurða
innan samtakanna. Tillögur
Breta voru harðlega gagnrýndar
eins og getið hefir verið í frétt-
um.
—o—■
Vafalaust er mikið kolamagn á
Nugssuakskaganum í Grænlandi,
sagði Eske Brun skrifstofustjóri
Grænlandsmálaráðuneytisins í
dag, en það kostar sennilega um
100 millj. d. kr. að vinna kolin.
Danir bíða nú eftir niðurstöðum
enskrar rannsóknarnefndar, sem
unnið hefir að því að athuga sýn-
ishorn.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 10.
var það vegalagning, bygginga-
vinna og skurðgröftur. Að löng-
um vinnutíma loknum hópast
unga fólkið til íþróttaiðkana,
segir hann.
„Ég yfirgaf Rússland — ég ef-
aðist og undraðist. Þessi þjóð
hefur náð langt á tæknisviðun-
um, en hefur maðurinn sjálfur
ekxi gleymzt“?
Ekki minnzt á olíu-
kyndingu
Og nú ók Multani aftur til
Bonn — og hlaut góðar móttök-
ur. Hann giftist þýzku stúlkunni
nokkru síðar, fór með hana til
Finnlands — og hefur um skeið
verið kennari þar í badminton.
Hún ætlar að fara með honum
það sem eftir er af ferðinni um-
hverfis jörðu — og nú eru þau
á leið til Hollands. Þaðan fara
þau til Bandaríkjanna, Kanada,
Mexico og síðan yfir Kyrrahaf, til
A-Asíu. Það er mikið starf, sem
bíður mín heima í Indlandi, seg-
ir hann. Ég ætla að reyna að nota
menntun mína og þroska til þess
að hjálpa æsku Indlands. Það er
takmark mitt. Við ætlum að læra
það á 40 árum, sem Evrópa hefur
verið 400 ár að læra — svo að þið
sjáið, að við eigum annríkt.
PILTAR.
EFPIO EICIP UNMUSTDNA
ÞÁ Á t(r HRIN&ANA /
fóárfán l [? -
A&árrflri € V L"~=
PÁLL 5. PÁL5SON
hæstaréttarlögmaður.
Bankastræti 7. — Sími 24-200.
Skjaldarglíma
Armanns
SKJALDARGLÍMA Ármanns fer
fram að Hálogalandi, sunnudag-
inn 2. febrúar n.k. kl. 16,30.
Keppt verður um skjöld sem
Eggert Kristjánsson, stórkaup-
maður, hefur gefið. Núverandi
handhafi skjaldarins er Trausti
Ólafsson, Ármanni.
Þeir, sem ætla að taka þátt í
glímunni, þurfa að gefa sig fram
við Hörð Gunnarsson, íormann
glimudeildar Ármanns, eða Guð-
mund Ágústsson, glímukennara, l
Mindszenty —
„til himna“
BÚDAPEST, 16. jan. — Ferenc
Miinnicli, varaforsætisráðherra
Ungverjalands, sagði í dag, að
„Mindszenty gæti verið í banda-
ríska sendiráðinu eins lengi og
hann vildi og siðan gæti hann far
ið til himna".
Ráðherrann sagði þetta á fundi
með bandarískum blaðamönnum
og ritstjórum, sem heimsækja
um þessar mundir nokkur lönd í
Austur-Evrópu, þ. á m. Rússland.
— Laugarnesskóli
Framh. af bls. 6.
vandræði, og klögumálin ganga
á víxl, ef þau taka sælgætismola
hvert frá öðru. Foreldrarnir eiga
erfitt með að skilja ástæðurnar
til þess, að þau mega helzt ekki
víkja peningum að börnum sín-
um, er þau fara að heiman til
okkar. Þetta er ef til vill eðlilegt
skilningsleysi, en veldur okkur
oft vandræðum að óþörfu.
Ánægjulegast — þegar börnin
una sér vel
En starfið hefir líka sínar
skemmtilegu hliðar. Ánægjuleg-
ast er það, þegar börnin una sér
vel og vilja gjarna koma aftur,
þegar þau taka framförum and-
lega og líkamlega og foreldrar
hafa orð á því, að þau læri góða
siði og þeim fari fram í skólanum.
★ ★ ★
Þó að heimavistin í Laugar-
nesskólanum láti lítið yfir sér,
er hér um að ræða mjög merkan
þátt í skólastarfinu — viðleitni
til að koma í veg fyrir, að örð-
ugar aðstæður verði börnunum
að fótakefli í námi og skólastarfi.
Félagslíf
Slúlkur! - Munið!
að æfingin er í kvöld kl. 7 e.h.
í Háskólanum. — Greiðið árs-
gjaldið í kvöld.
Körfuknattleiksdeild K.R.
KnattspyrnufélagiS Þróttur
3. f 1.: Félagsvist í bragganum
í kvöld, föstudag, 17. jan. 1958 kL
8,30. Mætum allir. — Nefndút.
Frá Guðspekifélaginu
Fundur í stúkunni Septimu 1
kvöld kl. 8,30, í Ingólfsstræti 22.
Grétar Fells flytur erindi: „And-
lit drottins". Gestir velkomnir. —
Kaffi — _______________
Kennsla
KENNSIA
Enska, danska. — Örfáir tímar
Iausir. — Kristín Óladóttir, Berg-
staðastræti 9B. — Simi 14263.
Betri sjón og betra útlit
með nýtízku-gleraugum frá
TÝLI h.í
Ég færi öllum samstarfsmönnum, ættingjum og vinum,
mínar innilegustu þakkir fyrir mér auðsýnda vináttu og
sæmd á sextugsafmæli mínu.
Sigm. Halldórsson.