Morgunblaðið - 17.01.1958, Blaðsíða 20
13. tbl. — Föstudagur 17. janúar 1958.
Mestu óveður vetrarins
■Á MESTA óveður sem komið hefur á þessum vetri geisaði um
mikinn hluta landsins í gær. Hér í Reykjavík var stormur allan
daginn og rak á svo dimm hríðarél að vart sá út úr augum.
-Á Óveður þetta hafði í för með sér ýmsar truflanir. Rafmagnið
tók af, ferðir strætisvagna um bæinn töfðust mjög vegna ófærðar
•— Slys varð ekki á fólki. — Á Lækjartorgi hné kona niður og
var hún örend er að var komið.
■^r Á bls. 18 er sagt nánar frá óveðri þessu. Veðurfræðingarnir
spáðu í gærkvöldi áframhaldandi stormi og snjókomu í dag.
Ekkerf bann við að gefa
upplýsingar í sambandi
við kosningarnar
Sjálfstæbisfólk, hafib samband við
hverfisskrifstofur flokksins
Úr hinni „gulu bók“ „sérfræðinga“ ríkisstjórnarinnar: „Athygli
skal vakin á því, að ekki er ætlazt til, að húsaleigunefnd geti
leigt út húsnæði, sem er hluti af íbúð leigusala, t.d. liefur sam-
eiginlegan umgang um W. C. og bað“.
Almennur kjósendafund
ur D-listans í Hafnarfirði
nœstkomandi mánudag
Þ E G A R ríkisstjórnin lagði
' frumvarp sitt um kosninga-
hömlur fyrir Alþingi var í
því það furðulega ákvæði, að
refsivert væri að segja frá
því, hvort maður sjálfur eða
aðrir hefðu kosið.
Stjórnarliðið á Alþingi
neyddist til að viðurkenna
VAkra-
nes
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á Akra
nesi halda kvöldskemmtun á
laugardagskvöldið. Skemmtunin
verður í Sjálfstæðishúsinu og
hefst klukkan 9.
Á skemmtuninni verða m.a.
flutt stutt ávörp og þeir Kristinn
Hallsön og Guðmundur Guðjóns
son syngja. Einnig verða sungn-
ar gamanvísur og eru skemmti-
kraftarnir frá Akranesi.
Allir stuðningsmenn Sjáif-
stæðisflokksins eru velkomnii á
skemmtun þessa.
UM HÁDEGISBILIÐ í gær var
ákveðið, að varðskipið Þór skyldi
fara togaranum Gerpi til hjálpar,
en hann er með bilaða vél í hafi,
sem kunnugt er af fréttum. Mun
Foráttubrim
AKRANESI, 16. jan. — Hér var
ofsaveður í alla nótt og í allan
dag. Er þetta með verstu veðr-
um, sem komið hafa og fylgir
því foráttubrim. Moldbylur allt-
af með köflum og stundum él
á él ofan. Menn voru í bátunum
hér í nótt, en ekkert mun hafa
orðið að þeim. Hér er enn vest-
anstormur harðhvass. Nokkru
fyrir jólin gerði hér útsynning
og gekk þá efri endi fremsta
bryggjukersir.s í aðalhafnargarð-
inum inn um 16 sm. Þá rétt á
eftir var kerið fyllt með möl,
sem kyngt var ofan í það. Veðurs
vegna hefir ekki verið hægt að
mæla núna hvort kerið hefir
gengið meira inn í þessu ösku-
roki og sjógangi.
Nokkrar rafmagnstruflanir
hafa verið hér í dag, og er orsök-
in sú, að strengir hafa slegizt
saman á háspennulínunni hjá
Fiskilæk. Þar liggur línan hátt,
og þar er hún mjög áveðra fyrir
vestanroki. — Oddur.
réttmæti þeirrar gagnrýni
Sjálfstæðismanna, að hér
væri um svo freklega rétt-
arskerðingu að ræða, að hún
samrýmdist ekki lýðræðisleg-
um stjórnarháttum. Var því
ákvæði þetta fellt niður.
Fólki er bví fullkomlega
heimilt að gefa allar upplýs-
ingar i sambandi við kosning-
arnar á sama hátt og verið
hefir.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
nú opnað kosningaskrifstofur
í hinum ýmsu bæjarhverfum.
Er allt Sjálfstæðisfólk og aðr-
ir stuðningsmenn D-listans
hvatt til þess að hafa samband
við kosningaskrifstofuna í við
komandi hverfi og veita allar
þær upplýsingar, sem að gagni
mega koma við undirbúning
kosninganna.
Reykvíkingar munu á verð-
ugan hátt svara tilraunum
ríkisstjórnarinnar til þess að
koma glundroðaliði sínu til
valda í Reykjavik með kosn-
ingahömlum og brellum. Með
samstilltu átaki munu Reyk-
víkingar hrinda áhlaupi and-
stæðinga höfuðborgarinnar og
tryggja Sjálfstæðisflokknum
glæsilegan sigur.
varðskipið draga togarann til
hafnar á Seyðisfirði.
Um hádegisbilið í gær, sneru
vátryggjendur og útgerðarstjórn
Gerpis sér til Landhelgisgæzl-
unnar og óskuðu að skip yrði
sent til þess að draga Gerpi til
hafnar. Hafði varðskipið Þór
verið um 70 mílur frá Gerpi er
hann bað um hjálp í fyrradag, og
ákveðið var að togarinn ísborg
frá ísafirði skyldi sendur á vett-
vang. Isborg var, þegar þetta
gerðist á leið til Reykjavíkur, en
hélt héðan til Færeyjar. Um há-
degisbilið í gær var fsborg út af
Stafnesi í stormi og stórsjó og
sóttist ferðin seint.
Varðskipið Þór var væntanlegt
Gerpi til hjálpar um klukkan 8
í gærkvöldi.
HAFNARFIRÐI. — Sjálfstæðis-
félögin halda almennan kjósenda
fund í Hafnarfjarðarbíói n.k.
mánudagskvöld og hefst hann
kl. 8,30.
Á fundinum flytja ávörp og
ræður, Vaigarð Thoroddsen, Elín
Jósepsdóttir, Helgi S. Guðmunds-
son, Eggert ísaksson, Hulda Sig-
urjónsdóttir, Páll V. Daníelsson,
Ólafur Elísson, Þorgrímur Hall-
dórsson, Árni Grétar Finnsson
og Stefán Jónsson.
Fyrir Cnndinn leikur hljóm-
sveit Carls Billich létt lög, og
einnig syngja þau Þuríður Páls-
dóttir og Guðmundur Jónsson,
óperusöngvarar, einsöng og tví-
söng með undirleik F. Weiss-
happel.
í Hafnarfirði er nú háð mjög
hörð kosningabarátta. Er það mál
manna, að möguleikar Sjálfstæð-
isflokksins til þess að ná hrein-
um meirihluta í bæjarstjórn Hafn
AKRANESI, 15. janúar. — Ösku
þreifandi bilur og versta rok
hefur verið hér í allan dag. Akra-
borg varð að fella niður síðari
áætlunarferðina hingað í dag
vegna veðursins.
Sex línubátar voru á sjó héðan
í nótt. Aflinn var 1—3,5 lestir á
bát. — Oddur.
arfjarðar, hafi aldrei verið jafn-
miklir síðan í bæjarstjórnarkosn-
ingunum 1938, en þá hélt Alþýðu
flokkurinn meirihluta sínum með
aðstoð kommúnista með aðeins
14 atkvæða mun.
SjálfstæðiSmenn og aðrir kjós-
endur D-listans í Hafnarfirði
nminu því fjölmenna á fundinn
á mánudaginn og halda áfram
þeirri markvissu baráttu, að
tryggja Ilafnfirðingum trausta
stjórn Sjálfstæðismanna næsta
kjörtímabil. — G.E.
Sjálf-
stæðisfólk
SJÁLFSTÆÐISPÓLK er vildl
aðstoða við skriftir er vinsam-
lega beðið að hafa samband við
skrifstofuna í Sjálfstæðishúsinu.
Verkamenn munu
leita réttar síns
ÞJÓÐVILJINN heimtar með
miklu yfirlæti í gær, að nöfn
þeirra verkamanna verði birt, er
kommúnistar hafi neitað um fé-
lagsréttindi í Dagsbrún og hótáð
ofbeldi í skrifstofu félagsins. —
Þessi krafa kommúnistanna í
Dagsbrún er eitt það furðulegasta
sem fram hefir komið úr þeirri
átt, því bezt ættu þeir að vita
nöfn þeirra mörgu verkamanna,
sem þeir hafa neitað um félags-
réttindi þvert ofan í lög og regl-
ur. En þó að kommúnistum hafi
,nú tekizt vegna valdaaðstöðu
sinnar í stjórn félagsins að níðast
þannig á verkamönnum, skulu
þeir vita það, að slík framkoma
verður ekki þoluð og munu þeir
verkamenn sem þessari meðferð
hafa sætt, leita réttar síns á ann-
an hátt.
Austurrískur
námsstyrkur
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTI
Austurríkis býður íslenzkum
stúdent styrk til náms við austur
■ískan háskóla skólaárið 1958—59.
Námsstyrkur þessi er að fjárhæð
13.800 austurrískir schillingar, og
greiðist styrkþega með jöfnum
mánaðarlegum greiðslum á átta
mánuðum. Tilskilinn námstími er
frá 1. nóvember 1958 til 30. júní
1959. Þeir einir umsækjendur
koma til greina, sem þegar hafa
stundað háskólanám a.m.k. í tvö
ár.
Umsóknir sendist menntamála
ráðuneytinu, stjórnarráðshúsinu
við Lækjartorg, fyrir 15. apríl
n.k.
(Frá menntamálaráðuneytinu)
Japanir ráðgera að smíða 65
þúsund tonna olíuskip og hefst
smíðin innan árs.
Vinnið oð sigrí Sjóli-
stæðisflohhsins
ALLT Sjálfstæðisfólk í Reyltjavík er livatt til að starfa
fyrir Sjálfstæðisflokkinn bæði á kjördegi og fyrir kjördag.
Skrásetning á sjálfboðaliðum fer fram í skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu daglega kl. 9—12 ag
13—19.
Fólk er áminnt að láta skrá sig til starfa sem fyrst.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Heimdallur, F.U.S.
efnir til almenns fundar
Æskan og Reykjavík
i Sjálfstæbishúsinu á sunnudag kl. 2 e.h.
HEIMDALLUR, félag ungra Sjálfstæðismanna efnir til almenns
fundar í tilefni af bæjarstjórnarkosningunum um umræðuefnið
„Æskan og Reykjavík“. Fundurinn verður haldinn í Sjálfstæðis-
húsinu kl. 2 á sunnudaginn.
Á fundinum flytja ræður:
Geir Hallgrímsson, bæjarfulltrúi.
Höskuldur Ólafsson, sparisjóðsstjóri.
Hörður Einarsson, menntaskólanemi.
Guðjón Sigurðsson, formaður Iðju.
Ragnhildur Helgadóttir, alþm.
Birgir Gunnarsson, form. Stúdentaráðs og
Guðmundur H. Garðars, formaður V. R.
Æska Reykjavíkur hefur við undanfarnar bæjarstjórnarkosn-
ingar veitt Sjálfstæðisflokknum, öruggt brautargengi, enda hefur
bæjarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokksins ávallt haft opin augun
fyrir þörfum og áhugamálum æskunnar í bænum. Heimdellingar
hafa undanfarið unnið af alefli að undirbúningi kosninganna og
er þess að vænta að þeir og annað æskufólk, sem vill stuðla að
sigri Sjálfstæðisflokksins fjölmenni á fundinn, en að sjálfsögðu er
öllum Sjálfstæðismönnum heimill aðgangur.
Þór á leið fiil landls
með fiagasranii Gerpi