Morgunblaðið - 30.01.1958, Page 8

Morgunblaðið - 30.01.1958, Page 8
8 MORCT’W PT 4 Ðlb Fimmtudagur 30. jan. 1958 WðiuiiMaMfr Utg.: H.l. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðaintstjorar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arm Ola, sími 33045 Auglýsingar: Arnj Garðar Kristmsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjaid ki. 30.00 á mánuði innaniands. I lausasölu kr. 1.50 eintakið. VANTRAUST A VINSTRI STEFNU I-^FTIR að talningu á Skaga- j strönd var lokið, treystu formenn stjórnarflokk- anna sér ekki lengur til að skjót- ast undan því loforði, að segja í útvarpinu álit sitt á kosninga- úrslitunum. Með fyrirslætti Hannibals um, að hann gæti ekk- ert sagt fyrr, höfðu stjórn- arherrarnir aflað sér nokkurs frests til hugsunar um, hvernig þeir ættu að skýra hinn hraklega ósigur sinn. Skýringarnar voru svo vand- ræðalegar, þegar þær komu, að auðsjáanlega hafði hinum háu herrum ekki veitt af fresti, þótt lengri hefði verið. M.a. sagði Hannibal: „Það er í rauninni þung og réttmæt reiðialda fólksms yfir sundrung vinstri manna í Reykja vík, sem færir Sjálfstæðismönn- um í höfuðborginni sigurinn heim í þetta sinn“. ★ Þessi fulyrðing er svo fjarri sanni sem fremst má vera. X fyrsta lagi er hið eftirtekt- arverðasta við úrslit kosning- anna nú, að sigur Sjálfstæðis- manna er ekki takmarkaður við neinn einn ákveðinn stað, hvcrki Reykjavík né annan, heldur nær um allt landið. Straumur kjós- endanna liggur að þessu sinni óumdeilanlega til Sjálfstæðis- flokksins. Undantekningarnar á einstökum stöðum staðfesta ein- ungis meginregluna. I öðru lagi er það slík öfugmæli, að sigur Sjálfstæðismanna sé að þakka sundrungu vinstri manna, að það er einmitt andúð þúsunda nafnlaúsra kjósenda á vinstri samvinnunni svokölluðu, sem gerir sigur Sjálfstæðismanna jafn glæsilegan og raun ber vitni. Vantrúin á svokallaðri vinstri samvinnu birtist strax í fylgis- tapi Alþýðuflokks og Framsókn- ar í kosningunum 1956. Þá töp- uðu þessir flokkar Hræðslu- bandalagsins 10% af fylgi sínu. Enginn efi er á, að 1956 kusu margir fyrri kjósendur þessara flokka Sjálfstæðisflokkinn ein- mitt til þess að lýsa mótstöðu sinni við fyrirhugaða samstjórn þeirra. Þá lofuðu forystumenn flokkanna þó og lýstu hátíðlega yfir í útvarpi og á mannfundum hvarvetna um landið, að sam- stórn með kommúnistum kæmi ekki til greina. Þau heit voru svikin og úrslitin nú eru m. a. svar við þeim svikum. ★ Tölurnar nú sýna svo ljóst, að ekki verður um deilt, að þúsund- ir kjósenda, sem áður kusu Al- þýðuflokk, Alþýðubandalag og Þjóðvörn víðs vegar um landið hafa nú brugðið fylgi sínu við þessa flokka og gengið í lið með Sjálfstæðismönnum fyrst og fremst til að mótmæla núverandi stjórnarsamvinnu. Það er ekki nánara vinstra samstarf sem kjósendur nú heimta, heldur taf- arlaus slit þeirrar óheilla sam- bræðslu, sem nú ræður ríkjum. Frá Alþingiskosningunum hafa stjórnarflokkarnir tapað 11,47% af fylgi sinu en Sjálfstæðismenn bætt við sig 13,84% í þeim kaup- stöðum, sem eru sérstök kjör- dæmi til Alþingis, og saman- burði verður því komið við. Það er að vísu rétt, að fylgis- tap Alþýðuflokksins er útbreidd- ast. Fyrri kjósendur hans hafa auðsjáanlega verið staðráðnir í að gefa forystumönnunum þá að- vörun, sem þeir kæmust ekki hjá að taka eftir. Töluvert er þó til í þvi, sem segir í Alþýðublað- inu í gær, að fylgistap flokks- ins varð strax við kosningarnar 1956. Ástæðan fyrir því tapi var sú, að verulegur hluti flokks- manna. var Hræðslubandalaginu andvígur frá upphafi. Við kosningarnar 1956 unnu kommúnistar hins vegar nokkuð á vegna Alþýðubandalagsgær- unnar, sem þeir breiddu yfir sig. Nú dugar sú gæra ekki lengur. Atlcvæðamissir þeirra í þeim kjör j dæmum, þar sem hægt er að koma samanburði við nálgast hrun eða svo mundi þykja flest- um öðrum, er misstu í einu fimmta hvern fylgismann sinn. Það er fyrst og fremst forystu- mönnum Alþýðuflokks og Fram- sóknar að kenna, að kommúnista- flokknum skuli nú ekki að öllu hafa verið eytt eða dregið úr áhrifum hans niður í það, sem er í nálægum löndum. ★ Hermann Jónasson hlakkaði yfir því í útvarpinu, að fyrir Framsóknarflokkinn væru kosn- ingaúrslitin hagstæð í heild. Þessa yfirlýsingu prentar Tíminn svo fagnandi með stórum stöf- um, á forsíðu í gær. Hér er Fram- sóknarmönnum rétt lýst. Vitað er, að allmargir Fram- sóknarmenn víðs vegar um land hafa nú kosið Sjálfstæðisflokk- inn í mótmælaskyni við ríkis- stjórnina. Flokkurinn hefur að vísu fengið það atkvæðatap bætt upp og meira en það. En hann hefur ekki unnið atkvæðin af Sjálfstæðismönnum heldur af samstarfsflokkunum, einkanlega þó Alþýðuflokknum. Það eru þessi úrslit, sem Hermann Jónas- son með gleðihreim segir, að séu Framsóknarflokknum hagstæð. Til frekari áherzlu bætti Her- mann því við, að stjórnarliðar þyrftu „að finna leiðir til að þoka okkur saman til nánara samstarfs". Ósvífnina kórónar svo Tíminn í gær, með því að bjóða að gleypa Alþýðuflokkinn með húð og hári og jafnframt upp á „samfylkingu“ í ómeng- uðum kommúnista-stíl. Þetta er gert eftir að opið stendur fyrir öllum landslýð, hvernig kjósendum Alþýðu- flokksins raunverulega líkar sam starfið við Framsókn og komm- únista. Og eftir að Framsóknar- menn hafa sýnt heilindi sín í garð Alþýðuflokksins með því að ganga í bandalag við komm- únista á móti þeim í kosningum innan verkalýðssamtakanna. Alþýðuflokksmenn láta að vísu bjóða sér margt, en þó verður yfirlýsing Emils Jónssonar um, að ekki væri ástæðá' til að ætla að kosningarnar hefðu áhrif nema í bæjar- og sveitarstjórn- unum, ekki skilin á annan veg, en þann, að nú þyki jafnvel for- ráðamönnunum í þeim hóp of langt gengið í samfylkingartil- boðunum. Úr þessu mun reynslan skera. En óhagganlegt er það, sem for- maður Þjóðvarnar viðurkenndi berum orðum, að úrslit kosning- anna er ótvíræð vantraustsyfir- lýsing á vinstri stefnuna. Tveir söngvarar heyja einvígi í fullri alvöru á sviði óperunnar í Róm í ANNAÐ SINN á skömmum tíma hefir orðið hneyksli í söng- leikahúsinu í Rómaborg. Ennþá tala menn um, er María Callas stöðvaði sýningu þar skömmu eftir áramótin, og nú hafa tveir söngvarar dregið sverð úr slíðr- um og barizt í fullri alvöru á sviðinu, meðan verið var að sýna „Don Carlos“ eftir Verdi. Sá munur var þó á, að síðara at- vikið gerðist á síðustu æfingunni á óperunni, sem sýna átti síðastl. fimmtudagskvöld, en María Call- as stöðvaði frumsýninguna. í „Don Carlos“ fer búlgarski söngvarinn Boris Christoff með hlutverk Filippusar konungs á Spáni, og tenórsöngvarinn Franco Corelli er í hlutverki kon- ungssonarins, Don Carlos. ★ ★ Konungurinn hafði einmitt neitað að verða við bón Don Carlos, sem reikar inn á mitt sviðið til að svara föður sínum. Skyndilega skiptast þeir á eftir- farandi orðum, sem hvergi voru sjáanleg í handritinu: Konungurinn: Hörfaðu aftur á bak, svínið þitt. Þú átt að standa til hliðar. Don Carlos: Eigi mun ég gera svo! Konungurinn: Þú stelur „sýn- ingunni" frá mér. Don Carlos: Þetta er ekki þin „sýning“, og þú ert lélegur leik- ari. Konungurinn (æpir): Þú móðgar mig- Hörfaðu aftur á bak eða þú skalt gjalda ósvífni þinnar . . . Einhverjum hlut er skotið upp á sviðið. Það er tónsproti hljóm- upp óp. Blóð, raunverulegt blóð streymir úr sári á handarbaki konungsins. Konungurinn (hleypur út af sviðinu): Lækni, náið fljótt í lækni! Ég er særður! (Tjaldið fellur). Konungurinn: —. llörfaðu aft- ur á bak, svm- ið þitt. Þú átt að standa til lilið'ar .. sveitarstjórans. Hljómsveitarstjórinn (dapur- legri röddu): Mama mia! Hvers vegna á slíkt að henda mig? — (Hann hefir vafalaust verið að hugsa um Callas). Söngvararnir líta hvorki til hægri né vinstri. Þeir draga sverð sín úr slíðrum — raunveru leg sverð — og hefja einvígið. Kórinn hrópar og reynir að að- skilja þá. Og nú rekur Don Carlos ★ ★ Hefði söngleiknum lokið á rétt- an hátt, hefði konungurinn sent Don Carlos í fangelsi og látið dæma hann til dauða. Boris Christoff varð að láta sér nægja að snúa sér næsta morgun til lögfræðings síns og fela hon- um málið. Bretar reyna að fá Fuchs fil að vera um kyrrt Klaus Fuchs fyrtist, er hann var sviptur brezkum ríkisborgara- rétti. Að 18 mánuðum liðnum hefur njósnarinn Klaus Fuchs afplánað fangelsisdóm sinn í Englandi, og Englendingar eru þegar farnir að hafa áhyggjur af því, hvert kjarn orkufræðingurinn muni halda, er hann verður látinn laus. Reynt hefir verið að telja hann á að dveljast áfram í Englandi, og hefir honum verið boðin góð staða í brezka kjarnorkuiðnaðin- um eða við háskóla. Verður hon- um þá heimilt að taka sér upp annað nafn. Sannleikurinn er sá, að kjarnorkustöðin í Harwell hef- ir lengi notað útreikninga (m. a. um Sputnik),sem Fuchs hefirgert í fangelsinu. Hefir hann einnig fengizt við að fræða fangana, svo að þeir geti tekið að sér ýmiss konar störf, þegar þeir eru látnir iausir. Þegar Fuchs var dæmdur, varð Bretum sú skyssa á að svipta hann jafnframt brezkum borgara rétti, og því er Fuchs nú í dag þýzkur ríkisborgari. Faðir hans hefir verið guðfræðidósent við háskólann í Leipzig, og nú óttast Bretar, að Fuchs haldi til Austur- Þýzkalands. Fuchs þóttist illa leik inn, er brezki ríkisborgararétt- urinn var tekinn af honum, þar sem hann lofaði þegar eftir hand tökuna að skýra frá öllum stað- reyndum. Vestur-Þjóðverja vilja gjarna fá Fuchs, en Bretar vilja helzt ekki sjá af honum, jafnvel þó að hann fari til Vestur-Þýzka- lands, en engar lagaheimildir eru ti! fyrir því, að hindra þýzkan ríkisborgara í að yfirgefa Eng- land, er hann hefir afplánað refs- ingu sína. Ef til vill er ein leið til: Að sýna Fuchs fram á, að honum stafi hætta af því að fara til Þýzkalands, þar sem framburður hans hafi haft úrslitaáhrif i máli Rosenberg hjónanna og annarra atómnjósnara, sem dæmdir hafa verið í Bandaríkjunum. Ef til vill nægir þetta ásamt loforði um góða stöðu til að halda Fuchs —- og leyndarmálum hans í Eng- landi. Það kvað vera siður í Englandi á jólunum að hengja mistil- tein upp í loftið. Standi maður og kona undir mistilteininum, mega þau kyssast. Hér hittast Cary Grant og Ingrid Bergman undir mistilteini. Astæða er til að geta þess, að hér er aðeins um að ræða atriði í nýrri kvikinynd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.