Morgunblaðið - 06.02.1958, Blaðsíða 1
/
45 árgangur.
31. tbl. — Fimmtudagur 6. febrúar 1958
Prentsmiðja Morg’inblaðsin*
Hammarskjöld vill oð Öryggisráðið undirhúi
nýja sfórveldaráBsfefnu
Eisenhower felur bréf Bulganins fánýt
í GÆR rak hver yfirlýsingin aðra úti í heimi varðandi hugsanlegan viðræðufund æðstu
manna stórveldanna um lausn heimsvandamálanna.
Merkust þessara yfirlýsinga var tillaga Dags Hammarskjölds, þar sem hann stingur
upp á því, að utanríkisráðherrar stórveldanna komi saman á lokaðan fund í Öryggisráði
S. Þ., þar sem þeim muni gefast næði til að undirbúa umræðuefni fyrir hina æðstu inenii
stórveldanna.
Eisenhower lýsti því yfir á fundi blaðamanna að Bandaríkjastjórn teldi tilgangslaust
með öllu að hefja fund æðstu manna, ef dagskrá hans væri ekkert undirbúin. Hann hafn-
aði einnig að hefja viðræður við Rússa um atómvopnalaust svæði í Evrópu, nema áður
væri búið að semja við NATO-ríkin um það.
Erlander, forsætisráðherra Svía, svaraði í dag bréfum Bulganins. Hann er hlynntur
alþjóðlegri ráðstefnu um heimsvandamálin en telur að hún ætti að fara fram í söluiu
Sameinuðu þjóðanna og að það ætti að takmarka hana við ákveðin mál, sem líkur eru á
samkomulagi um.
Nasser — Forseti sambandslýð-
veldis Araba.
Bræla tefur
síldveiði
Norðmanna
ÁLASUNDI, 5. febr. — Lítil síld-
veiði var í dag vegna brælu á
miðunum út af Mæri. Herpinóta-
bátar gátu ekki athafnað sig
vegna veðurs. í dag komu á land
í Noregi 55 þús. hektólítrar, sem
þykir lítið. Er það mest afli
reknetjabáta.
í kvöld er veður batnandi svo
herpinótaflotinn lagði úr höfn. »
Hammarskjöld
ATHENS, Ohio, 5. febrúar —
Hammarskjöld, framkvæmdastj.
S. Þ., flutti í dag ræðu á fjöi-
mennum fundi stúdenta við ríkis-
háskólann í Ohio.
Iiann stakk upp á því, að
efnt yrði til sérstaks fundar
í Öryggisráði S. 1»., þar sem
utanríkisráðherrar stórveld-
anna mættu og ynnu að því
að undirbúa ráðstefnu æðstu
manna stórveldanna um lausn
alþjóðlegra deilumáia.
Hammarskjöld minnti á það,
að síðari hluta árs 1956 hefði
náðst mikilvægur árangur á lok-
uðum fundi í Öryggisráðinu, þar
sem utanríkisráðherrar stórveld-
anna sátu. Fundur sá fjallaði um
Suez-málið og náðist þar sam
komulag og grundvallarreglur,
sem fylgja skyldi við lausn þess.
Þarna sýndi það sig, að Ör-
yggisráðið var megnugt ann-
ars en að útvarpa stjórnmála-
deilum út um víða veröld. Það
stuðiaði og mjög að árangri,
að fundir þess voru þá lokað-
ir, svo að deiluaðiljar notuðu
tækifærið síður til áróðurs.
í ræðu sinni yfir bandarísku
stúdentunum skoraði Hammar-
skjöld á menn að veita því at-
hygli, að innan vébanda Sam-
einuðu þjóðanna væri frábær
aðstaða til að ná samkomulagi
í alþjóðadeilum. Það er hægt að
gera fleira á fundum Sameinuðu
þjóðanna en að halda langar
æsinga og áróðursræður. Þar
geta háttsettir fulltrúar allra
ríkja heims mætzt á lokuðum
fundum og rætt deilumálin í
fullri einlægni.
Erlander
AMMAN 5. febrúar — Hussein
Jórdaníu-konungur hefur nú
sætzt við brezka hershöfðingjann
Sir John Glubb, sem hann rak
frá yfirstjórn Arabaherdeildar-
innar 1955. Glubb viðurkennir nú
að brottreksturinn hafi þá verið
nauðsynlegur til að tryggja að-
stöðu Husseins. Nú hefur Glubb
verið boðið til Amman.
STOKKHOLMUR, 5. febr. (NTB)
—- Sænska ríkisstjórnin lýsti sig
í dag reiðubúna að taka þátt í
alþjóðaráðstefnu, forsætisráð-
herra og æðstu leiðtoga margra
ríkja, þó að því tilskildu, að
stórveldin hefðu náð samkomu-
lagi um hverjir tækju þátt í ráð-
stefnunni og hvert skyldi vera
viðfangsefni hennar. Kemur þetta
fram í bréfi Tage Erlanders for-
sætisráðherra Svia til Búlganins,
sem birt var í dag.
Erlander segir í bréfi sínu,
að ef einhver árangur eigi að
nást á slíkri ráðstefnu, þá virð
ist það ekki raunhæft, að taka
öll deilumál upp á henni. Hitt
væri miklu vænlegra að
ákvarða og takmarka dagskiá
ráðstefnunnar. Sænska stjórn-
in telur og æskilegast að þessi
ráðstefna færi fram á veg-
um S. Þ.
Erlander telur, að slík ráð-
stefna eigi rétt á sér ef von sé
um lausn einhverra deilumála og
þannig yrði hægt að draga úr
kalda stríðinu og spennunni í al-
þjóðamálum.
Hann telur að ráðstefnan ætti
sérstaklega að taka til meðferð-
ar tillögu um að stöðva um sinn
allar tilraunir með kjarnorku- og
vetnissprengjur, um atómvopna-
laust svæði í Mið-Evrópu og um
vígbúnaðareftirlit úr lofti.
Þá telur hann að slík ráðstefna
ætti að taka til meðferðar ákvæði
um að geimskeyti verði aðeins
notuð í friðsamlegum tilgangi.
Erlander kveðst vona, að með
slíkri alþjóðaráðstefnu mætti
leysa deilumálin úr þeirri sjálf-
heldu sem þau eru nú komin í.
Kveður hann Svía áhyggjufulla
vegna þeirrar tortryggni sem ein-
kennir samskipti stórveldanna.
Því eru Svíar fúsir til að gera
allt, sem í þeirra valdi stendur
til að hættunni verði bægt frá.
Eisenhower
WASHINGTON, 5. febr. (Reuter)
Eisenhower forseti sagði á fundi
með fréttamönnum í dag, að hann
sæi ekki neitt í bréfum Búlgan-
ins, sem yki líkiurnar fyrir að
fundur æðstu manna stórveld-
anna yrði árangursríkur. Þar sé
heldur ekkert að finna sem
stefni að auknum skilningi eða
samkomulagi milli Austurs og
Vesturs.
Forsetinn taldi, að einkanlega
hefði síðasta bréf Bulganins
beinlínis verið skaðlegt, því að
samkvæmt því virtust strandað-
ar tilraunir til að koma á nýj-
um samkomulagsumræðum milli
Austurs og Vesturs.
Eisenhower liafnaði með öllu
tillögu Búlganins um að Rúss-
land og Bandarikin gerðu út um
það sín á milli hvort bann væri
sett við eldflaugastöðvum og
atómvopnum á stóru svæði í Mið-
Evrópu. Um slíkt geta Banda-
ríkin ekki samið, heldur verða
hin einstöku NATO-ríki, sem
málið snertir, að taka tillöguna
til meðferðar.
Þá kvaðst Eisenhower hafa
falið vísindaráðunauti sínum dr.
Killian að rannsaka, hvaða þýð-
ingu geimferðir hefðu m. a. í
hernaðar- og varnarmálum. Hai n
játaði að bandarískir vísinda-
menn ræddu í fullri alvöru um
ferðir til tunglsins. Ekki væri
þó enn hægt að spá hvenær fyrstu
menn legðu upp í slíkan leiðang-
ur.
Nosser verðœr forseti
ný;a Arabaríkislns
Stjórnarskráruppkast lagt fram um
samemmguna
KAIRÓ og Damaskus, 5. febr
í dag samþykktu þjóðþing
Egyptalands og Sýrlands ein
róma að tilnefna Nasser, for
seta Egyptalands, sem forseta
efni hins nýja sameinaða
Arabaríkis. Það var sjálf'ir
Shukri el Kouwatly, forseti
Sýrlands, sem bar tillöguua
fram í sýrlenzka þinginu.
Nasser forseti lagði stjórnar-
skráruppkast Arabaríkisins í dag
fram fyrir egypzka þingið. Upp-
kastið er í 17 greinum. I þeim
er gert ráð fyrir að samningar,
sem Egyptaland eða Sýrland
hafa gert við önnur ríki haldizt
óbreyttir í samræmi við alþjóða-
lög.
Einn forseti og eitt þjóðþing
I tillögunum er gert ráð fyrir
að hið sameinaða Arabaríki hafi
sameiginlegan forseta og eitt
þjóðþing. Forsetinn er samtímis
þjóðhöfðingi og forseti ráðu-
neytisins. Hann útnefnir sjálfur
meðráðherra, sem verða ábyrgir
gagnvart honum. Ríkið hefur
sameiginlegan her og einn
þjóðfána. Allir borgarar eru jafn
réttháir. Fyrsta þjóðþing Araba
ríkisins verður myndað þannig
að helmingur fulltrúanna verð-
ur skipaður af þjóðþingum
beggja landa. Hinn helming.
inn mun forsetinn skipa.
Auk hinnar sameiginlegu ríkis-
stjórnar Arabaríkisins mun for-
setinn skipa framkvæmdaráð í
hvoru landi Egyptalandi og Sýr-
landi.
Samkvæmt tillögunum eiga
forsetakosningar að fara fram í
báðum ríkjunum þann 21. febr.
Þá fer einnig fram þjóðaratkvæða
greiðsla um sameiningu land-
anna.
Hafnbann
á Súmatra
DJAKARTA, 5. febrúar. — Her-
skip úr flota Indónesíu hafa lagt
hafnbann á Riouw-eyjarnar, sem
eru skammt suður af Singapore.
Tilgangurinn er að stöðva beina
vöruflutninga og viðskipti milli
Sumatra og Singapore, en þar
sem flotinn hefur ekki bolmagn
til að halda uppi hafnbanni á alla
Sumatra eyju, hefur hann nú tek
ið það ráð að setja eins konar
hafnbann á Singapore. Er það
ætlun herskipanna að stöðva öll
skip sem stefna þangað frá Sum-
atra. f nótt var t. d. stöðvað rétt
við Singapore, brezkt skip Moon
Breeze, sem skráð er í Singapore.
Vanguard-flugskeytið sveigði af
réttri leið og varð að eyða því
UtanríkismáloneSnd Dono
ræðir svarbréi tii Búlgnnins
KAUPMANNAHÖFN, 5. febr. (NTB) — H. C. Hansen, for-
sætisráðherra Dana, mun svara bréfum Bulganins á mánu-
daginn kemur. Uppkast að svari forsætisráðherrans var í
kvöld lagt fyrir utanríkismálancind danska þingsins, en
utanríkisráðuneytið mun ganga frá endanlegu orðalagi svar-
bréfsins. Þá er eftir að þýða bréfið á russnesku og mun
sendiherra Dana í Moskvu loks afhenda Bulganin bréfið.
Önnutr gervihnattar-tilraun bandaríska
flotans mistekst
Canaveral-höfða í Flórída, 5. febr. (Reuter)
UM KLUKKAN 7 í morgun eftir íslenzkum tíma Iét bandariski
flotinn skjóta upp þriggja þrepa eldflaug af gerðinni Vanguard.
Atti hún að bera- gervitungl upp í háloftin. í fyrstu virtist tilraunin
ætla að ganga ágætlega, en þegar skeytið hafði hækkað sig í lofti
i eina mínútu, urðu vísindamcnnirnir þess varir, að það sveigði ut
af réttri stefnu. Þeir voru því tilneyddir að styðja á rafmagnshnapp,
sem sundraði skeytinu, áður en það færi lengra.
rauna flotans, dr. John Hagen,
lýsti því yfir í dag, að flotinn
mundi skjóta nýrri Vanguard-
eldflaug upp með gervihnött eins
fljótt og hægt væri. Ekki vildi
hann svara því ákveðið, hvort
óhapp þetta tefði fyrir því að
gervitungl með öllum nauðsyn-
Ætla að reyna oftar
Vísindamenn bandaríska flot-
ans eru mjög niðurdregnir og
sárir yfir þessum mistökum, ekki
sizt þar sem keppinautum þeirra
í landhernum heppnaðist nýlega
að skjóta gervitungli á loft með
Júpíter-eldflaug. Yfirmaður til-
legum mælitækjum yrði sent
upp í háloftin.
Dr. Hagen sagði, að megin-
áherzla yrði lögð á að fá upp-
lýst hvað bilaði í flugskeytinu.
Eftir öll u að dæma virtist hér
hafa verið um tæknilegan galla
að ræða. Allar aðstæður til að
skjóta flugskeytinu voru mjög
hagstæðar. Vindhraðinn í 7 km
hæð var undir 35 sekúndumetr-
um.
Öngþveiti í tilraunastöðinni
Sjónarvouar í nágrenni (Jana-
veral-höfða greina frá því að
eldflaugin hafi stigið hratt og
örugglega Allt í einu sáu þeir
að hún hallaði sér á hliðina,
Framh. á bls. 2