Morgunblaðið - 06.02.1958, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 6. febrúar 195S
MORGVNBLAÐIÐ
15
Borgfirðinga-
kvikmynd
AÐ undanförnu hefur Borgfirð-
ingafélagið í Reykjavík látið
vinna við töku á kvikmynd, er
lýsi landsháttum og lífi fólksins
í hinu víða Borgarfjarðar-héraði.
Verður frumsýning slíkrar kvik-
myndar á fundi félagsins í Iðnó
á föstudaginn.
Það er Guðni Þórðarson, sem
hefur tekið þessa kvikmynd. Er
hún tekin hingað og þangað ýmist
suður á Akranesi eða uppi á
Mýrum. Hún lýsir m. a. búnað-
arháttum að fornu og nýju, bæj-
um og fólki. Kvikmyndin er ekki
fullgerð í sjálfu sér, því að hald-
ið verður áfram að taka kvik-
myndaþætti sem bætzt geta inn
í hana. í því formi sem hún er
nú tekur sýning hennar nokkuð
á aðra klukkustund.
Frummyndin að þessari kvik-
— Tvö glötuð ár
Framh. af bls. 6
sons feykt út í veður og vind.
Dr. Killian var gerður að sér-
stökum ráðunaut Eisenhowers í
eldflaugamálum og nú fengu
Wernher von Braun og samstarfs
menn hans tækifæri til þess að
nota Júpiter-eldflaugina. Það tók
þá 3 mánuði að búa eldflaugina
undir fyrsta geimskotið, sem þeir
hefðu annars getað framkvæmt
fyrir tveimur árum síðan.
Mikið er nú rætt um eldflaug-
ar og geimferðir. Margar spár
eru uppi um það, hvað verði í
þessum efnum. Vísindamenn um
allan heim keppast við að skýra
frá, hvaða möguleikar séu fólgn-
ir í geimferðunum og útmála
fyrir almenningi, hve mikla
blessun þessi tækni geti haft í
för með sér, ef hún fái að þróast
í friði. Á annan bóginn er því
líka lýst með skuggalegum drátt-
um, hvað verða mundi, ef þessar
eldflaugar yrðu útbúnar með
kjarnorkuvopnum og sendar til
þess að dreifa dauða og eyðilegg-
ingu yfir allt sem lifir á jörðinni.
Allur almúgi hlustar á þessar
spár og þessar frásagnir og vonar
það eitt að stjórnmálamenn
heimsins hafi það vit og þá fyrir-
hyggju, sem til þess þarf að koma
í veg fyrir að eldflaugunum
verði beitt til manndrápa og eyði
leggingar. Það þurfti mikil efni.
og mikið hugvit til þess að byggja
eldflaugarnar og koma Spútnink
unum og Könnuðinum á loft. En
vafalaust þarf enn meira vit og
fyrirhyggju til að koma í veg
fyrir að þessari tækniþróun verði
að lokum beitt gegn manninum
sjálfum og koma því til vegar að
hún verði notuð til þess að auðga
og fegra lífið á jörðinni.
Kristján Guðlaugssor
hæsturcttarlöginuður.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5.
Austurstræti 1, — Símj 13400
Gís/f Einarsson
héradsd'mislögtnajur.
Málfluinhigsskrifstofa.
Iiaugavegi 20B. — Sími 19631.
Hurðarnaínspjöld
Bréíalokur
Skiltagerðin. Skólavörðustig 8.
RAGNAK JÓNSSON
hæstarcttariogmaður.
Laugaveg, 8. — Sími 17752.
l.ögfræðistörf. — Eignaumsýsla.
Þorvalöur Arl Arason, tidl.
LÖGMANNSSKRIFSTOPA
SkólavörSustic 38
t/o Pdll Jóh~Jujrlcttsson h.l. - Pósth 621
SirruiT H4I6 og lfi/7 ~ Simnrlm f»»
mynd verður geymd í byggða-
safni Borgarfjarðar og verður
hún aðeins notuð til að gera
sýningareintök eftir. Borgfirð-
ingafélagið hefur styrkt byggða-
safn Borgarfjarðar með ýmsu
móti. T. d. hefur félagið kostað
söfnun örnefna í báðum sýslun-
um, Borgarfjarðar- og Mýrasýslu.
Byggðasafni hefur ekki enn verið
komið upp, þó ýmsir gripir séu
geymdir í barnaskólanum að
Varmalandi og á Hvanneyri. Er
það áhugamál Borgfirðingafélags
ins, að slíku safni verði komið
upp hið fyrsta.
— Stúdenta
ráöstefna
Framh. af bls. 9
Að ráðstefnunni lokinni er gert
ráð íyrir að hinir erlendu þátt-
takendur dveljist hérlendis í
nokkra daga og skoði það, sem
markverðast þykir í höfuðstaðn-
um svo og nágrenni hans eftir
því sem færð leyfir.
Erlendu þátttakendurnir eru
væntanlegir til landsins með flug
vél Loftleiða í kvöld (fimmtu-
dag).
Unglinga
vantar til blaðburðar við
Lindargötu
Laugav. III.
Fjólugötu
Tunguveg
Sími 2-24-80
Hestamannafélagið
FÁKUR
Skemmtifundur á morgyn, föstudag, 7. febrúar kl.
8,00 í Skátaheimilinu. \
Skemmtiatriði: Félagsvist, — kvikmynd frá fjórð-
ungsmótinu á Egilsstöðum sl. sumar.
D a n s .
Félagar, fjölmennið og takið með ykkur gesti.
ATH. Aðalfundur félagsins verður haldinn í Tjarn-
arcafé fimmtudaginn 20. þ. m. Reikningar liggja
frammi á skrifstofu félagsins alla mánudaga og
kl. 5—7 e. h. næstu daga fyrir fundinn.
Hestamannafélagið FÁKUB.
N ý k o m i ð
nælongluggntjaldaefni
Gardínubúbin
LAUGAVEG 28.
Góður 20—25 rúmlesta
vélbátur
óskast til kaups.
Allar nánari upplýsingar gefur Landssamband ísl.
útvegsmanna, Tryggvagötu 8, Reykjavík.
Bílsfjóri
Fyrirtæki, sem hefur mikla útkeyrslu óskar að ráða
duglegan reglusaman bílstjóra.
Umsóknir með uppl. um fyrri störf sendist Mbl.
fyrir 8. febrúar merkt: „Bílstjóri -—8540“.
íbúð óskast
Efnuð eldri hjón, tvö í heimili, vantar íbúð í rólegu
húsi á hitaveitusvæði 2—3 herbergi og eldhús nú þegar
eða fyrir 14. maí. Kjallari kemur ekki til greina.
Tilboðum sé skilað á afgreiðslu blaðsins merkt:
„Rólegt —8548“.
ÚTSALA
Nýjar vörur á útsöluverði
Kápur frá kr. 300.00
Ódýrar poplinkápur komnar aftur.
Kvenpeysur frá kr. 65.00
Kjólar frá kr. 275.00
Sokkabuxur frá kr. 50.00
Kápu- og dömubúðin
, 15 Laugavegi 15
Lokað
vegna jarðarfarar föstudag 7. þ. m.
Verzlun Haraldar Kristinssonar,
Mánagötu 18.
Faðir okkar
BENJAMIN JÓNSSON
vélsmiður,
Iézt í Landakotsspítala 4. þ. m.
Fyrir hönd bræðranna,
Sigurður Benjamínsson.
Kveðjuathöfn um eiginmann minn
SIGURÐ PÉTUBSSON
vitabyggingarverkstjóra frá Sauðárkróki, fer fram í Dóm-
kirkjunni föstud. 7. febr. kl. 5 e.h.
Kveðjuathöfninni verður útvarpað. Jarðsett verður á
Sauðárkróki.
Margrét Björnsdóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum, sem vottuðu okkur
samúð við fráfall og jarðarför
GUÐLAUGAR VIGFtí SDÓTTUR
frá Hjallanesi
Börn og tengdabörn.
Við þökkum innilega samúð og hluttekningu við andlát
ÞÓRU ANDERSEN
Franz A. Andersen,
Ebba L. Andersen, Kristinn Einarsson,
Hans G. Andersen, Ásta Andersen.
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur hluttekningu
og hlýhug vegna andláts og jarðarfarar
ELISABETAR JÓNSDÓTTUR
frá Dysjum
Guðjón Hallgrímsson,
Hallgrímur Guðjónsson,
Jón Guðjónsson,
Seselía Jósafatsdóttir,
Sesselía Guðinundsdóttir
Hannes Guðmundsson,
Matthías Guðmundsson.