Morgunblaðið - 06.02.1958, Page 4
4
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 6. febrúar 1958
I dag er 37. dagur ársins.
Fimmtudagur 6. febrúar.
ÁrdegisflæSi kl. 6.38.
Síðdegisflæði kl. 19.04.
Slysavarðstoía Keykjavíkur í
Heilsuverndarstöðinni er opin all-
an sólarhringmn. Læknavörður L
R (fyrir vitjaniri er á sama stað,
frr kl. 18—8. Sími 15030. *
Næturvörður er í Ingólfs-apó-
teki, sími 11330. Laugavegs-apó-
tek, Lyfjabúðin Iðunn og Reykja-
vlkur-apótek fylgja öll lokunar-
tíma sölubúða. Apótek Austurbæj-
ar, Garðs _pótek, Holts-apótek og
Vestui-bæjar-apótek eru öll opin
til kl. 8 daglega nema á laugar-
dögum til kl. 4. Þessi apótek eru
öll opin á sunnudögum milli
kl. 1 og 4.
Kópa' ogs-apótek, Alfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl 13—16. Sími 23100.
Hafnarfjarðar-apótek er opið
alla virka daga ki. 9 -21. Laugar
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
daga kl. 13—16 og 19—21.
Næturlæknir er Kristján Jó-
hannesson.
Keflavíkur-apótek er opið alla
Virka daga kl. 9—19, laugardaga
frá kl. 9—16 og helga daga frá
kl. 13—16. —
RMR Föstud. 7.2.20. Kynd. H.tb.
Helgafell 5958277
IV/V
A2-
I.O.O.F. 5 = 13926814 == Spilakv.
|Hjönaefni
Nýl*ga hafa opinberað trú-
lofun sína ungfrú Björg Bjarna-
dóttir Hvoli Aðaldal, S-Þing. og
Friðrik Olgeirsson, Kleppsvegi
52, Rvík.
«
Flugvélar
Flugfélag íslands h.f.: — Milli-
landaflug. Hrímfaxi er væntan-
legur til Reykjavíkur í dag kl.
16.30. Flugvélin fer til Glagow
og Kaupmanahafnar kl. 08,00 á
morgun. — Innanlandsflug. I
dag er ráðgert að fljúga til Akur-
eyrar (2 ferðir), Bíldudals, Egils
staða, fsafjarðar, Kopaskers, Pat
reksfjarðar og Vestmannaeyja.
— Á morgun er ráðgert að fljúga
til Akureyrar, Fagurhólsmýrar,
Hólmavíkur, Hornafjarðar. ísa-
fjaðar, Kirkjubæjarkiausturs og
Vestmannaeyja.
Loftleiðir: — Saga er væntan-
Ieg til Reykjavíkur kl. 18,30 í dag
frá London og Glasgow. Fer til
New York kl. 20,00. Edda er einn
ig væntanleg tii Rvíkur, frá Ham
bcrg, Kaupmannahöfn og Osló kl.
18.30. —
Skipin
Eimskipafélag íslands h.f.: —
Dettifoss hefur væntanlega farið
frá Ventspils 4. þ.m. til Reykja-
víkur. Fjallfoss kom til Rotter-
dam 28. f.m. fer þaðan til Ant-
werpen, Hull og Reykjavíkur.
Goðafoss fór frá Reykjavík 31.
f.m. til New York. Gullfoss fer
frá Reykjavík 7. þ.m. til Ham-
borgar og Kaupmannahafnar.
Lagarfoss fór frá Norðfirði 2. þ.m
til Hamborgar, Gautaborgar,
Kaupmannahafnar, Ventspils og
Turku. Reykjafoss kom til Ham-
borgar 2. þ.m. fer þaðan til
Reykjavíkur. Tröllafoss fór frá
New York 29. f.m. til Reykja-
víkur. Tungufoss fór frá Eski-
firði 1. þ.m. til Rotterdam og
Hamborgar.
Eimskipafélag R.-víkur h.f.: —
Katla er væntanleg til Reykja-
víkur í dag (fimmtudag) frá
Spáni. Askja er á leið til Brazi-
líu.
Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell
er á Raufarhöfn. Arnarfell er á
Akranesi. Jökulfell fór í gær frá
Newcastle til Grimsby, London,
Boulogne og Rotterdam. Dísar-
fell kemur til Reykjavíkur í dag.
Litlafell er í Rendsburg. Helga-
fell er í Keflavík. Hamrafell
væntanlegt til Batum 11. þ.m.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla
kom til Reykjavíkur í gær að
vestan úr hringferð. Esja er á
Austfjörðum á suðurleið. Herðu-
breið er á Austfjörðum á leið tii
Þórshafnar. Skjaldbreið fór frá
Reykjavík í gær vestur um land
til Akureyrar. Þyrill er í olíu-
flutningum á Faxaflóa. Skaftfell-
ingur fer frá Reykjavík á morgun
til Vestmannaeyja. Baldur fór frá
Reykjavík í gær til Sands og
Gilsfj arðarhaf na.
Félagsstörf
OrtS lífsins: — Komið, vér sfcul-
um hverfa aftur til Drotiins, því
að lumn hefur sundurrifið og mun
lækna oss, hann hefur lostið g
mun hinda um sár vor. (Hós. 6, 1)
Æskulýðsfélag Laugarnessókn
ar. Fundur í Kirkjukjallaranum
í kvöld kl. 8,30. Fjölbreytt fundar
efni. — Séra Garðar Svavarsson.*
ÍR. — Körfuknattleiksdömur.
Mætið allar á æfinguna kl. 8 í
kvöld.
Múrarar. — Árshátíðin er
Sjálfstæðishúsinu föstud. 7. þ.m.
Fjallarekkafundur verður hald
mn í Hagaskóla kl. 8,30 í kvöld.
Völsungadeildin stendur fyrir
fundinum.
Enginn ætlar að verða of-
drykkjumaður. Þeir voru allir
hófsmenn í fyrstu. Varið yður á
áfengum drykkjum. — Umdæmis-
stúkan.
y^gjAheit&samskot
Peningagjafir, sem bárust til
Rauða Krossins til fjölskyld-
unnar í Múlakamp 1B. — Steinar
100,00; E M 50; Ónefndur 500;
Sigrún 200; D M 100; Ó Þ 500;
P G 100; Valgerður 50; A E og
S J 100; Þ M 50; D M G 100;
G G 100; Helga og Beta 100;
Samborgari 100; G H J 250; H S
100; Þ H 25; J H 500; N N
100; A B 100; Ó E 100; J T 100;
N N 100; Ónefndur 100; Lyfja-
búðin Iðunn 1000; B H 100; M J
100; H J 100; Ingibjörg 500;
Kona 50; Sigrún 100; Jón Jóns-
son 200; Áheit 100; A og S
Zoega 200; Kristján 100; A E 100;
N G 100; B 50; Þórdís 500; E K
Vetrardagur 1 Reykjavlk
Snjórinn liggur nú eins og mjúk voð yfir öllu og veðurstófan spáir fyrir marga daga í einu, að
frostið muni haldast. Það er því kuldalegt yfir Reykjavík eins og þessi mynd frá Tjörninni sýnir
50; S S 100; J G 300; B 100;
M og G 100; W 50; T T 300;
Þ A 25; N N 50; H F 50; J B
100; G Ó 100; E B 300; P S 100;
A B 50; í Á 100; B Ó 500; B J
100; B 100; Vigfús og kona 100;
G D 100; Runólfur og Þorgeir
200; Bryndís og Sigurbjörg 100;
Sigrún 100; Jórunn 100; O H
100; J H 150; J J 500; P J G
100; P G 50; E B 100; N 100;
N 50; Á J 100; M S 100; J K
100; N B 500; Systkinin í Ási
300; G H 100; B O G 100; Kona
500; K G H 1000; Þ G 100;
S T 100; J V 50; E B 500; O
100; P Finnbogason 200; G 100;
K K 200; B 100; I G 100; N 500;
A Þ 35; G G 200; S V 100; G
100; R 100; J F 500; H F 500;
Hanna og Dísa 100; Bjarni 100;
Framhald síðar.
HYmislegt
Leiðréttingar. — Prófarkalest-
ur á greinarkorni mínu í Morg-
unblaðinu í dag, 4. febr. hefir far
ið mjög í handaskolum og vildi
ég mega biðja fyrir þessar leið-
réttingar:
Fyrirsögnin átti að vera „Óvið-
feldnar ýfingar“, og munu að
vísu allir lesa í málið. Framar-
lega í annarri málsgrein átti að
standa: „lnnar mjög svo óviður-
kvæmilegu ýfingar okkar við
Dani“. Nær miðri þriðju máls-
grein hafði ég skrifað: „sé ég
naumast hvers vegna við ættum
ekki að geta krafizt allrar Vest-
urálfu“. Framarlega í fjórðu
málsgrein skrifaði ég: „Enda þótt
við værum orðnir menn til að
stjórna Grænlandi — en því fer
vitaskuld órafjarri — þá vitum
við ofurvel". Og síðast í sömu
málsgrein var tilvitnun í Haag-
dómin lokað með gæsarlöpp á eft
ir „Grænlandi“ næst á undan
sviga, en í staðinn hefir verið sett
þar upphrópunarmerki, sem ekki
er frá mér komið og á þar alls
ekki heima. — Sn. J.
Sólveig Steiánsdótlir
Kveðjuorð
em
í DAG er til moldar borin
af konum eldri kynslóðarinnar,
Sólveig Stefánsdóttir. Hún var
fædd á Stóru-Vatnsleysu á Vatns-
leysuströnd, 29. marz 1879, og
var þvi orðin tæpra 79 ára að
aldri, er hún lézt. Andlát henn-
ar bar að með skjótum hætti, því
hún varð bráðkvödd aðfaranótt
sunnudagsins 26. janúar. Síðustu
árin hafði hún kennt sjúkleika,
en hún virtist hafa komizt yfir
hann og mátti segja, að hún væri
við allgóða heilsu til síðustu
stundar.
Sólveig var búin að vera ekkja
um langt árabil, því hún missti
mann sinn, Guðmund Bjarnason,
FERDIMAIMD
Gerið svo vel herra minn
reynið sjáflfur
árið 1928, en hann var m. a.
stýrimaður á togaranum „Nirði“,
en síðast var hann skipstjóri á
togaranum „Júpíter“. Hann var
mikill dugnaðarmaður og ágæt-
ur sjómaður, sem orð fór af. Það
var því mikið skarð fyrir skildi,
er hann lézt og Sólveig stóð ein
uppi með drengjahópinn. Þá voru
og aðrir tímar en nú og hefur
sem betur fer orðið mikil breyt-
ing til batnaðar, því þá var sú
hjálp, sem ekkja varð aðnjót-
andi eftir fráfall eiginmanns
hennar oftast mjög takmörkuð
og óviss. Það reyndi Sólveig í
ríkum mæli, því hún varð að
taka til að vinna við það sem
bauðst, til þess að sjá sonum sín-
um fimm farborða. Hún varð að
leggja mikið á sig, einkum þó
framan af meðan hún var að
koma yngstu sonum sínum upp.
Hún var því að sjálfsögðu engin
efnamanneskja, en undi þó vel
hag sínum og bjó yfir lífsgleði,
sem margur virðist ekki hafa,
er við betri hag á að búa. Ýmis-
legt í fari hennar kom og öllum
til að verða hlýtt til hennar, sem
henni kynntust. Hún var afar
trygg í lund og vinföst og kunm
vel að stilla skap sitt.
Með dugnaði sínum og fórn-
fýsi hjálpaði hún sonum sínum
áfram eftir beztu getu meðan
þeir þurftu á aðstoð hennar að
halda, en þeir eru: Axel, verka-
maður, Guðmundur, forstj. Út-
gerðarfél. Akureyringa, Stefán sjó
maður, Njáll, skólastjóri á Akra-
nesi og Bjarni, starfsmaður hjá
Landssímanum. Þeir endurguldu
henni umhyggju hennar í ellinni.
Fyrir skömmu lét hún í ljós
á glaðri stund í vinahópi, að
helzt vildi hún að andlát sitt
bæri að fyrirvaralaust, þar sem
hún kaus-það heldur en að liggja
á sóttarsæng. Henni varð að ósk
sinni, því tveim sólarhringum
síðar hafði hún kvatt þennan
heim, án þess að dauðinn gerði
boð á, undan sér.
Að leiðarlokum læt ég í Ijós,
fyrir hönd móður minnar og
fjölskyldu hennar, hinztu kveðju
og þakkir fyrir tryggð Sólveig-
ar við hana og okkur öll um
áratugi. Við munum ætíð minn-
ast hennar með hlýjum hug.
Fáll Þorgeirsson.