Morgunblaðið - 05.03.1958, Page 14

Morgunblaðið - 05.03.1958, Page 14
14 MORGVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 5. marz 1958 - Framsókn Frh. af bls. 1 Ástandinu lýst f ályktuninni segir svo um efna hagsmálin að miðstjórn Fram- sóknarflokksins telji „nauðsyn bera til að vekja athygli þjóðar- innar á því, að almennar fram- kvæmdir í landinu hafa nú um sinn verið byggðar meira á er- lendu lánsfé en hægt er að búast við að unnt verði á næstunni, auk þess að framkvæmdirnar hafa stundum verið svo miklar, að þær hafa dregið til sín vinnu- afl frá aðalatvinnuvegum þjóðar- innar og þar með skert gjaldeyr- istekjurnar. Verð á neyzluvörum hefir orðið að greiða niður með ríkisfé í stærri stíl en áður til þess að kaup og þar með tilkostn aður framleiðenda hækkaði ekki, en hinsvegar hefir ekki komið tilsvarandi tekjuöflun til ríkis- ins á móti. Verulegur greiðslu- halli á ríkisbúskapnum hefir orð ið sl. ár og allmikið skortir á, að tekjur útflutningssjóðs hafi hrokkið til uppbótanna. Afleið- ing alls þessa er óhjákvæmilega sú, að enn er hættuleg verðbólgu þróun fyrir dyrum í landinu og tilfinnanlegur gjaldeyrisskortur, ef ekki er að gert. Að ób'reyttu eru því framundan óleyst stór- felld ný fjáröflunarvandamál". Staðfesting á gagnrýni Sjálfstæðismanna Sjálfstæðismenn hafa stöðugt bent á þessa óheillaþróun, sem. nú er loks viðurkennd í ályktun Framsóknarfiokksins. Má í því sambandi minna á þær stað- reyndir sem Bjarni Benediktsson dró fram fyrir skömmu í ræðu, sem birt var hér í blaðinu. Þar er upplýst að á árinu 1957 hafi aðstaðan út á við versnað um 230 millj. króna auk þess sem ríkis- stjórnin hefur á hálfu öðru ári meira en tvöfaldað skuldirnar með því að taka erlend lán sem nema 386 millj. kr. Fjárhagsað- staðan hefnr því samtals á 1V4 ári versnað um 616 millj. króna. Þá er hér staðfest gagnrýni Sjálfstæðismanna í sambandi við það, er Eysteinn Jónsson lagði fram fjárlagafrumvarp með stór- kostlegum tekjuhalla og lagði engar tillögur fram um lausn málsins heldur skaut því á frest að finna þau úrræði, sem nú sýn- ast enn vera ófundin. í hinum tilfærða kafla er enn fremur staðfest, það sem Sjálf- stæðismenn hafa sagt um vand- ræði útflutningssjóðs en nú ný- lega reyndi sjávarútvegsmálaráð- herrann, Lúðvík Jósefsson að láta líta svo út sem hér væri ekki um neitt vandamál að ræða og ekkert stjórnarblað°rma hefur gert neina athugasemd við um- mæli hans. Loks er svo játað að gjaldeyris skortur sé tilfinnanlegur en yfir þá staðreynd hafa stjór-narflokk- arnir reynt að breiða i''mist með þögn eða röngum staðhæfingum. Tvöföldun ríkis“,<'",'1''*’na Sjálfstæðismenn hafa bent á þá tvöföldun ríkisskuldanna, sem átt hefur sér “stað á 1 M> ári, eins og vikið er að hér að framan, en nú játar flokkur fjármálaráð herrans, að ekki sé fært að halda svo hratt áfram í skuldasöfnun „á næstunni". En meff þessari ^'•-kostlegu skuldasöfnun og hHlarekstrin- um um 230 millj. á sl. ári hefur ríkisstjórnin haldið í sér lífinu. Nú tekur miðstjórn Framsókn- ar svo til orða að þ=>ð sé „nauð- synlegt að leitað verði annarra úrræða“. En ekke>-t e>- sagt um hver þau úrræði eiga að vera. „Styrkjafo-’UÍ ‘ Þegar stjórnarflokkarnir lögðu fram loforðaskrá sína í öndverðu var eitt aðalatriðið að nú skyldi „kippa atvinnuvegunum upp úr styrkjafeninu", eins og það var orðað en eins og kunnugt er hafa atvinnuvegirnir sokkið sífeilt dýpra í það „fen ‘ undir hand- leiðslu vinstri stjórnarinnar. Um þetta segir svo í ályktun Fram- sóknar: „Miðstjórnin leggur áherzlu á, að slíkt niðurgreiðslu- og upp- bótakerfi, sem hér hefir verið bú ið við, er því aðeins framkvæm- anlegt að samkomulag geti tek- izt um að afla þess fjár, sem til þess þarf“. Ekkert er hér fremur en endra- nær, sagt um úrræði til þess að losa atvinnuvegina úr „styrkja- feninu“ en helzta áhyggjan virð- ist vera að „samkomulag" geti tekizt um það innan stjórnar- flokkanna um að afla fjár til að viðhalda þessu „feni“. Jafnframt er svo viðurkennt að allt þetta fyrirkomulag leiði til „vaxandi erfiðleika". Árangurinn er þá sá af núverandi stjórnarsamstarfi að erfiðleikarnir fara vaxandi! Þegar htið er til þess, sem sagt er í ályktuninni um að svo hröð skuldaaukning sem verið hefur erlendis sé ekki fær „á næst- unni“, sýnist ekkert annað blasa við en enn þyngri álögur á al menning til fjáröflunar en eins og kunnugt er hefir ríkisstjórnin lagt þyngri gjaldabagga á almenn ing en dæmi eru til áður. Þjóðin á að fá að kveða upp sinn dóm Sú mynd, sem dregin er upp í ályktun miðstjórnar Framsóknar af vandræðum ríkissjóðs og at- vinnuveganna jafnframt því, sem það kemur skýrt fram að engin úrræði séu enn fundin, staðfestir svo greinilega sem verða má þá kröfu Sjálfstæðis- manna að ríkisstjórnin efni nú þegar til nýrra kosninga og leggi málefnin undir dóm þjóðarinnar. Slíkt er skylda ríkisstjórnarinn ar, eins og málum er háttað og þjóðin á skýlausa heimtingu á því að fá tækifæri til að láta sitt álit í ljós við kjörborðið. Þessi krafa hlýtur að verða sí- fellt ákveðnari en svo virðist sem hin úrræðalausa ríkisstjórn vildi skella skollaeyrum við þeirri kröfu og freista þess enn um sinn að halda rangfengnum völdum sínum. Flugfreyjur bera bréf FYRIR nokkru voru gerðir samn- ingar um gagnkvæma fyrir- greiðslu milli Loftleiða og írska flugfélagsins B.K.S. í því tilefni héldu Loftleiðir nýlega síðdegis- boð í Belfast, en þar var saman komið margt fyrirmanna Belfast- borgar. Meðal þess starfsfólks Loftleiða, sem gisti Belfast um þessar mundir voru flugfreyjur tvær, en þær komu þar m. a. fram í sjónvarpi. Héðan höfðu þær meðferðis bréf frá Gunnavi Thoroddsen til borgarstjórans í Belfast og afhenti Stefanía Guð- mundsdóttir það. en í gær af- henti Ingveldur Dagbiartsdóttir borgarstjóranum í Revkjavík svarbréf það, sem stúlkurne.r höfðu verið beðnar fyrir til hans frá borgarstjóranum í Belfast. Frumvarp til farsóttalaga Á FUNDI í neðri deild Alþingis í gær fór fram 2. umr. frumv. til farsóttalaga. Kjartan J. Jólianns- son hafði framsögu fyrir nefnd- ina, sem athugaði frumv. Lagði hún til, að það yrði samþykkt. —. Frumv. er samið af landlækni. Læknafélögin, tryggingastofnun- in og borgarlæknirinn í Reykja- vík höfðu fjallað um það, áður en það var lagt fram, og taldi enginn þessara aðila ástæðu til að gera athugasemdir, að því er efni þess varðar. Eins og áður hefur verið sagt frá í Mbl., felst það í frumv. þessu, að farsótta- lögin eru samræmd sóttvarnalög- uhum frá 1954 og að sett eru fyllri ákvæði um nokkur atriði. Fjöltefli AKRANESI, 4. marz — Gunnar Gunnarsson, sem er kunnur lands liðsmaður í knattspyrnu tefldi fjöltefli hér í bænum s. 1. sunnu- dag. Tefldi hann á 19 borð- um og vann á 17, en gerði jafn- tefli á hinum borðunum tveim. Það má nú seeia að hér er vissu- lega fjölbreytni í íþróttinni. —Oddur. Hægt að hafa hát á floti við Grímsey í aiEan vetur GRÍMSEY, 4. marz. — Vetu rinn hefir verið með harðara móti í Grímsey. Frá því um miðjan des- ember hefir verið snjókoma öðru hverju og meira en oft áður. Á sl. sumri var gert við hafn- argarðinn hér, sem skemmdist í fyrravetur, og hefir hann staðizt allan sjógang í vetur án þess að láta á sjá. Hefir því verið hægt að hafa bát á floti við eyjuna, en það er nýlunda. Þegar það hefir verið reynt áður, hafa þeir sokkið vegna sjógangs. Því hefir nú verið róið til fiskj- ar, þegar gefið hefir í vetur. — Veitt er á handfæri, og hefir afli verið sæmilegur. en gæftir mjög stopular, þó að stutt sé að róa. Hrognkelsaveiði er byrjuð og grásleppa er farin að veiðast, og er það óvenjusnemmt. Þessa dagana dvelst söngkenn- ari í Grimsey. Er það Kjartan Jóhannesson, og æfir hann lcirkju kór Grímseyjar. Þykir Gríms- eyingum eðlilega mikill fengur að Norrænir íþrottafréttamenn hittast hér sennilega á móti 1960 Frá aðalfundi Samfaka íþrófta- fréttamanna NÝLEGA var haldinn aðal- fundur Samtaka íþróttafrétta- manna. Voru þau samtök stofn uð fyrir um það bil tveimur ápum að fordæmi íþrótta- fréttamanna á Norðurlöndum. Starfa ísl. samtökin á sama grurxtvelli oir í samstarfi við klúbbana á Norðurlöndum. Á norrænum grundvelli Formaður samtakanna gerði grein fyrir aðdraganda að stofn- uninni og starfinu á iiðnum 2 árum, en það hefur að veruleeu leyti beinzt að þvi að bæta að- stöðu ibróttafréttamanna hér við störf þeirra á iþróttaleikvöng- um. Hafa samtökin notið góðs skilnings og velvilia fle'jtra for- ystumanna íþróttahreyfingarinn- arv fsi. íþróttafréttaimenn hafa tek- ið þátt í 3 mótum norrænna fréttamanna, sem haldin eru á Norðurlöndum árlega og til skiptis í löndunum. Er í ráði að slíkt mót verði haldið hér árið 1960. Vonast ísl. iþróttafrétta- menn til að geta gert mótið hér vel úr garði «g eftir- minnilegt þáttakendum frá hin- um Norðurlöndunum, sem hafa mikinn áhuga á að kynnast fs- ,landi.- Mót norrænna blaðamanna hér fsl. íþróttafréttamenn hafa þeg- ar hafið undirbúning að mótinu, en það er von þeirra að það geti orðið ísl. íþróttahreyfingu til mikils gagns hvað kynningu snertir á Norðurlöndum og til eflingar norrænni samvinnu á iþróttasviðinu. Til þess að svo megi verða er íþróttafréttamönn- um nauðsvnlegur stuðningur íþróttahreyfingarinnar, enda mun vart á honum standa, sé mönn- um ljós sú þýðing er slikt mót norrænna íþróttofréttamanna getur haft fyrir ísl. íþróttahreyf- ingu. Þá ráðgera íþróttafréttamenn sameiginlega fundi með íþrótta- leiðtogum og íþróttamönnum um ýmis mál. Stjórnarkjör f stjórn Samtaka íþróttamanna voru kjörnir Atli Steinarsson, formaður, Frímann Helgason og Örn Eiðsson. unnu Norðmenn 21:10 BERLÍN, 4. marz. — Á heims- meistaramótinu í handknattleik í Austur-Berlín i dag töpuðu Norð menn fyrir Tékkum með 21:10 mörkum. Danir unnu Pólverja með 22:15 mörkum og Þ.ióðverjar unnu Ungverja með 22:15 mörk- um. Hjálmar Stefánsson s*^kkmeistari Akureyrar 1Q5S STÖKKKF.PPNI Skiðamóts Ak- ureyrar fór fram s. 1. sunnudag við Miðhúsaklannir. Var veður gott og fagurt. Úrslit urðu sem hér segir: A-flokkur 1. Hiálmar Stefánsson, KA, 225,5 stig. 2. Kristinn Steinsson, í»ór, 220,9 stig. 3 Einar Helff^ison KA. 211,1 stig. 17—19 ára 1. Bragi Hiartarson, Þór, 217,5 stig. 2. Hreinn Ragnarsson, MA, 190.1 stig. 15—16 ára 1. Vignir Kárason, KA, 211,0 stig. 2 ívar Sigmundsson, KA, 207,5 stig. 3 Júlíus Björnsson, KA, 187,3 stig. Drengjaflokkur 1. Stefán Guðmundsson, KA. slíkum gesti, því að yfir veturinn vill hver dagurinn verða öðrum líkur. En Grímseyingar hafa, eins og áður hefir verið getið, endurbyggt kirkju sína og eru nú að efla kirkjusöng sinn. íbúum eyjarinnar hefir frekar farið fiölgandi, og ungt f.iöl- skyldufó'k setzt þar að. Er mik- ill framfarahugur meðal eyjar- skeggja. — Fréttaritari. + KVÍKMYNDIR + „írskt blób" ÞETTA er amerísk CinemaScope- mynd tekin í litum og er hún nú sýnd í Nýja Bíói. Myndin er gerð eftir samnefndri skáldsögu, sem komið hefur út í íslenzkri þýðingu, — Myndin gerist í Suður-Afríku á þeim tímum er Búarnir börðust fyrir því að stofna þar friríki. — Foringi Búanna. Paul Van Riebeck, kem- ur til Irlands og kynnist þar ungri og fríðri stúlku og fella þau hugi saman. Hún vill fara með honum til Afríku, en hann vill ekki leggja hana i þá hættu á þeim ófriðartímum sem þar ríkja. Skilur þá leiðir þeirra um sinn. Óáran dynur yfir írland og unga stúlkan, sem nú er gift írskum manni, fer ásamt manni sínum til Suður-Afríku til að setjast þar að. Maðurinn feilur í bardaga við blökkumenn en konan heldur áfram á áfanga- staðinn og sezt þar að. Gerast nú margir atburðir í senn. Paul hafði borið að þegar bardaginn við blökkumennina stóð sem hæst og tókst honum með liði sínu að stökkva blökkumönnunum á flótta. Virðist nú allt leika í lyndi fyrir Pauli og hinni fögru konu, en þá verður hann að fara frá henni til að berjast með Búunum. Verður hún þá bæði sár og reið. Hún og Paul hittast svo eigi aftur fyrr en í Höfðaborg tveimur árum síðor. Er hún þá sezt þar að og er orðin auðug kona. — En aftur skilja þau í reiði. — En loks liggja leiðir aftur saman og þá fyrir fullt og allt. — Hér hefur aðeins verið rakið lítið eitt af efni myndar- innar, sem er mjög viðburði>rík og gædd geysimikilli spennu. Til- finningarnar eru örar, ástríðurn- ar heitar, ástin brennandi og hatrið sterkt meðal þessa fólks, sem heyr þarna harða lífsbaráttu á róstusömum tímum. Mynd þessi er stór í sniðum, ágætlega gerð og leikurinn af- bragð. Einkum er frábær leikur Susan Hayward í hlutverki binn- ar ungu konu, Kathie O’Neill, með hið ólgandi „írska blóð“ í æðum. Tyrone Power fer einnig mjög vel með hlutverk Pauls Van Riebeck’s, en athyglisverðari er þó leikur Richards Egan’s í hlut- verki Kurts Hout, sem brennur af ást til Kathie. Ego.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.