Morgunblaðið - 05.03.1958, Blaðsíða 15
Miðvilcudagur 5. marz 1958
MORGUNBLÁÐIÐ
15
Pietro-málið gefur haft áhrif
á kosningar á Ítalíu
RÓMABORG, 4. marz. — Eins og
skýrt liefur verið frá í fréttum.
hefur ítalskur dómstóll dæmt
biskupinn af Prato, monsignor
Pietro Fiordelli, í 40 þús. líra
sekt fyrir meiðyrði um Mauro
Bellanid og kona hans hefðu hlot-
konu hans. Ilöfðu þau verið gefin
saman í borgaralegt hjónaband
og biskup sagt, að þau lifðu í liór-
dómi. Fyrir þau ummæli var
hann sektaður. — Þetta er í fyrsta
skipti siðan 1929, sem kaþólskur
biskup er dæmdur af ítölskum
dómstóli, en það ár samdi Musso-
lini frið við Vatikanið með sér-
stökum samningi.
Dómurinn yfir monsignor
Pietro var þó skilorðsbundinn og
þarf hann ekki að greiða selctina
nema hann hljóti nýjan dóm.
Hins vegar var biskupi gert að
greiða hjónum 420 þús. lírur
(urn £240) í skaðabætur og
einnig ber honum að greiða móð-
ur brúðarinnar skaðabætur fyrir
ummælin.
Don Danilio Aiazzi, sóknar-
prestur, sem einnig var eitthvað
við málið riðinn, var sýknaður af
öllum ákærum. — Þeir biskup
neituðu að vera viðstaddir yf’r-
heyrslurnar. — Verjandi þeiria
krafðist sýknunar og skírskotaði
til þess, að þeir hefðu verið í fult-
um rétti frá kirkjunnar sjónar-
miði, þegar þeir lýstu vanþóknun
sinni á giftingunni, þar sem bæði
Bellandi og kona hans hefðu hlot-
ið kaþólska slcírn. Vatíkanið
studdi biskupinn og málstað hans
af mikilli festu og páfi varð svo
reiður, þegar hann frétti niður-
stöður dómsins, að hann lét út
ganga boð um það, að öllum há-
tíðahöldum í sambandi við krýn-
ingarafmæli hans yrði aflýst.
Mál þetta hefur vakið mikla
athygli á Ítalíu og komið af
stað harðvítugum deilum. Það
hefur enn einu sinni beint at -
hygli manna að samskiptum
ríkis og kirkju og undirstrik-
að þá staðreynd, að lítið má út
af bera, ef allt á ekki að fara
í bál og brand. Sumir frétta-
menn benda á, að Pietro-mál-
ið geti jafnvel haft áhrif á úr-
slit næstu þingkosninga. —
Kristilegir demókratar náðu
völdum með stuðningi kirk]-
unnar og fullvíst má telja, að
þeir geti ekki haldið pólitísk-
um áhrifum sínum nema með
fullum stuðningi kirkjunnar.
Vildu sumir forystumenn
flokksins, að réttarhöldunum
yfir biskupnum væri frestað
þangað til að afstöðnum þing-
kosningum.
Rússar vilja, að Ausfur og Vestur-
Þýzkaland eigi aðild að friðarsamningi
’ *WiSja ekki ræða um sameiningu
ÞýzkaEands
Kvikmynda-
sýiiingar Gideons
félagsins
HINAR gullfögru og stórfróðlegu
kvikmyndir Gideonfélagsins —
einu nafni nefndar Dáscmðir
sköpunarverksins — hafa undan
farna vetur verið sýndar í fram-
haldsskólum víða um land og ver
ið mjög vel tekið. Almenningi
í Reykjavík mun nú gefast kostur
á a'ð sjá nokkrar þessara mynda.
í kvöld og annað kvöld — kl.8.30
.— verða sýndar i húsi KFUM og
K. við Amtmannsstíg þessar
myndir: Náttúran er náminu rík-
ari, — Fiskurinn hefur fögur
bljóð, — Verkin lofa Meistarann
— og Upprisan, eða tvær myndir
hvort kvöld.
Gideonfélagið hefur á þessum
vetri úthlutað Nýja testamentum
í sjötta bekk allra barnaskóla
landsins. Er það í fjórða skipti
að það gefur hina helgu bók heil-
um aldursflokki allra íslendinga.
Sá hópur stækkar með ári hverju
og er nú talsvert á fjórða þúsund.
Bækurnar eru keyptar frá Eng-
landi, venjulega árinu áður en
úthlutun fer fram. Nú eru komin
til landsins þau Nýja testamenti,
sem úthluta á að vetri (1958—’59)
og kosta þau um 40 þús. krónur.
Þar sem félagsmenn eru ekki
margir og njóta einskis styrks
er því fólki, sem nokkurs metur
starf þeirra að útbreiðslu Guðs
heilaga orðs með þjóðinni, gef-
inn kostur á að styðja það með
fjárframlögum. Verður gjöfum
veitt viðtaka í lok sýninganna.
Gideonfélagið hefur, eins og
kunnugt er, úthlutað Nýa testa-
mentinu í sjúkrahúsum og Biblí-
um í gistihúsum og farþegaskip-
um. Einnig hafa á 4. hundrað
hjúkrunarkonum verið gefin
Nýja testamenti. Er nú orðin föst
venja að er hjúkrunarkonur út-
skrifast fái þær Nýja testamenti
um leið og skírteini eru þeim af-
hent.
Fullyrða má að þessi starfsemi
hefur mælzt vel fyrir og á vax-
andi vinsældum að fagna. Er ekki
ólíklegt að Reykvikingar sýni nú
hug sinn til Gideonfélagsins og
fjölmenni á sýningarnar minn-
ugir þess, að bara á þessum vetri
hafa 1174 tólf ára börn reykvísk
orðið hinnar góðu gjafar aðnjót-
andi.
Ólafur Ólafsson.
WASHINGTON, 4. marz—Stjórn-
málafréttaritarar í Lundúnum
sögðu i dag, að í síðustu orð-
sendingu Sovétstjórnarinnar um
fund æðstu manna stórveldanna
væri stungið upp á því, að rætt
yrði um friðarsamning, sem bæði
Austur- og Vestur-Þýzkaland
verði aðilar að. Sovétríkin gera
það einnig að uppástungu sinni,
að fulltrúar beggja landshlut-
anna taki þátt í viðræðum um
slikan friðarsamning, en hins
vegar hafa Sovétríkin lagt
áherzlu á, að ekki komi til mála,
að rætt verði um sameiningu
Þýzkalands á væntanlegum stór-
veldafundi. — í fréttinni segir
cnnfremur, að aðaltilgangurinn
PARÍS, 4. marz—f kvöld áttu
málamiðlunarmenn í Túnisdeil-
unni, þeir Murphy, varautanríkis
ráðherra Bandaríkj anna og að-
stoðarmaður hans, Bretinn Beel-
ey, að ræða við Gaillard, for-
sætisráðherra Frakklands. Stjórn
málamenn í París segja, að það
bendi til þess, að samkomulags-
viðræðurnar gangi að óskum.
Eftir að Murphy hafði rætt við
Bourguiba, forseta Túnis, sagði
hann, að öll deilumálin mætti
leiða til lykta, ef góður vilji væri
fyrir hendi. Hann var mjög
ánægður með viðræður sínar við
Bourguiba.
í dag sagði Murphy, að hann
vonaðist til þess, að viðræðurnar
við Gaillard í kvöld leiddu til
með friðarsamningi við þýzku
landshlutana sé að ákveða
landamæri Þýzkalands við Oder-
Neisse-Iínuna.
Þá hefur Sovétstjórnin fallizt
á, að rætt verði um þá tillögu
Eisenliowers Bandaríkaforseta,
að gervihnettir og geimferðir
skuli aðeins vera í þágu vísinda
og friðar, en þó skuli þetta
atriði rætt í sambandi við her-
stöðvar Bandaríkjanna erlendis.
Fréttamenn segja, að litlar líkur
séu til þess, að samkomulag geti
náðst um þetta atriði. — Aftur
á móti neita Rússar því algjör-
lega, að rætt verði um stjórnar-
farið í Austur-Evrópu löndun-
þess, að Frakkar og Túnismenn
tækju upp beinar samkomulags-
viðræður.
Samkomur
Almennar snuikontur.
Boðun fagnaðarerinilisins
Hörgshlíð 12, Reykjavík, í kvöld
miðvikudagskvöld kk 8.
Fíladelfía
Almenn samkoma að Herjólfs-
götu 8, Hafnarfirði kl. 8,30. Allir
velkomnir!
Kristniboðshúsið Betanía,
Laufásvegi 13
Fórnarsamkoma í kvöld kl.
8,30. Reidar Albertsson kennari
talar. Allir eru hjartanlega vel-
komnir. —
Vonduð 4ra herb. ibúð
T I L S Ö L U
íbúðin hefur sér inngang, sér geymslur, bílskúrs-
réttindi.
Stór ræktuð og girt lóð.
INGI INGIMUNDARSON hdl.
Vonarstræti 4 — sími 24753.
Heima: 24995.
nm.
Murphy bjartsýnn - ræddi
við Gaíllard í gærkvöldi
Unglinga
vanfar til blaBhurðar við
Bráðræðisholf
Sírni 2-24-80
íbúð
GóS 3—4 herbergja íbúð óskast til kaups, helzt á hita-
veitusvæði. Til greina kemur greiðsla með nýjum fólks-
bíl ’58 (þýzkum) upp í útborgun.
Tilboð sendist afgr. Morgunblaðsins fyrir 10. þ. mán.
merkt: Nýr bíll til sölu —7949.
Skipfafundur
í þrotabúi Sæbergsbúðar hf., Langholtsvegi 89, hér í bæn-
um, verður haldinn í skrifstofu borgarfógeta í Tjarnar-
götu 4, fimmtudaginn 6. marz 1958, kl. 2 síðdegis.
Ákvarðanir verða teknar um ráðstöfun eigna búsins.
Skiptaráðandinn í Reykjavík, 4. marz 1958.
Kr. Kristjánsson.
Afgreiðslufólk
óskast nú þegar til starfa hjá Kaupfélagi
V estmannaeyja.
Nánari upplýsingar hjá kaupfélagsstjóranum og
Starfsmannahaldi S.l.S.
Sambandshúsinu
Sími 17080.
Deildarstjóri
við matvöruverzlun, getur fengið
atvinnu strax.
Tilboð leggist inn á afgr. Morgunbl.
fyril 10. marz,
merkt: „Framtíð —8778”.
! Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
i og jarðarför
BIRGIS ÞORGRÍMSSONAR
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfélögum hans að
Bifreiðastöðinni Bifröst svo og félögum í Karlakórnum Fóst-
bræður.
Anna Kristmundsdóttir, börn, foreldrar og systkini.