Morgunblaðið - 22.03.1958, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.03.1958, Qupperneq 14
14 MORGVNBLAÐIÐ Láugardagur 22. marz 1958 Þýzkir laganemar Framh. af bls. 13 essorana að skapa persónuleg tengsl við nemendurna alla, þeg- ar fjöldi þeirra er slíkur, og veld- ur þetta að vonum talsverðum erfiðleikum. Mikill trúmálaáhugi —Hvað er að segja um áhuga stúdenta fyrir félagsmálum? — Stjórnmál láta þeir sig al- mennt litlu skipta. t.d. hafa þau enga þýðingu í kosningum hlið- stæðum stúdentaráðskosningum hér hjá ykkur. Þó fylgjast þeir allvel með gangi mála. Ekki alls fyrir löngu sóttu til dæmis um 3500 stúdentar fyrirlestra, sem þeir Erhard, efnahagsmálaráð- herra, og von Brentano, utanríkis ráðherra fluttu við háskólann í Múnchen. Hins vegar er áhugi stúdenta fyrir trúmálum og íþróttum mjög mikill, og taka þeir virkan þátt í starfsemi félaga, er slík mál hafa á stefnuskrá sinni. ★ * Þrátt fyrir það, að hinir þýzku laganemar gerðu lítið úr áhuga og afskiptum stúdenta almennt af stjórnmálum, var greinilegt að þeir hafa velt þeim málum talsvert fyrir sér. Einkum var þeim annt um, að sameining Þýzkalands yrði að veruleika, eins fljótt og mögu- legt er — og án blóðsúthellinga. Flóttamaður Einn stúdentanna er fæddur og uppalin í Austur-Þýzkalandi. Var honum meinuð háskóla- ganga þar eystra af pólitískum ástæðum. Hann sætti því færis að flýja til Vestur-Þýzkalands, þótt hann yrði með því að segja skil- ið við foreldra sína og systkini. Reyndar kvað hann háskóla- nám austur þar ekki vera fýsi- legt, því að stúdentum væri þröngvað til að sækja ótrúlegan fjölda aukatima í kommúnískum fræðum og rússnesku jafnhliða sínu reglulega námi. Endurhervæðing nauðsynleg Síðan uppreisnin varð í Aust- ur-Berlín 17. júní 1953 töldu þeir félagar að harðræði og ógnanir í þeim hluta Þýzkalands, sem hið kommúníska stjórnar- kerfi er ríkjandi, hefðu færzt mjög í aukana. Ætti fólkið því mun erfiðara um vik í baráttu sinni fyrir endurheimt frelsis. Þetta, ásamt ofbeldi kommún- ista víðar um heim, kváðu hinir þýzku laganemar hafa gerbreytt viðhorfi almennings í Vestur- Þýzkalandi til endurhervæðingar, enda væri nú svo komið, að allur þorri Vestur-Þjóðverja teldi hana blátt áfram nauðsynlega, til þess að sporna gegn heims- valdastefnu kommúnismans. — Vinna og fjármagn Framh. af bls. 13 hvern hluta af arðinum. í öðru lagi að þeim gefist kost- ur á að safna arðhluta sínum, eða einhverjum hluta hans, til þess með honum að eignast hluta í atvinnufyrirtækjunum. í þriðja lagi að þeir fái hlut- deild í stjórn fyrirtækjanna, annað hvort með því að eignast svokölluð vinnuhlutabréf og verða á þann hátt aðnjótandi rétt inda venjulegra hluthafa, eða með þvi að nefnd verkamanna hvers fyrirtækis hafi íhlutun um rekstur þess. Tillögur Sjálfstæðismanna í þessum málum miða fyrst og fremst að því, að einskis verði látið ófreistað til þess að leysa þennan vanda á þann hátt, að all ir aðilar megi vel við una. enda byggist framtíðargengi þjóðar- innar i þvi að takast megi að leysa vandamálin hverju sinni af sáttfýsi og bróðerni. Er Magnús Jónsson hafði lokið máli sínu, hófust fjörugar umra'ö ur, og tóku til máls þeir Eyjólíur K. Jónsson, Sigurður Helgason, Arni Ragnarsson, Sverrir Bjarna son og Geir Hallgrímsson. Að lokum tók frummælandi aftur til máís og svaraði nokKr- um fyrirspurnum, en að svo búnu var fundi slitið. Aðaldalsvöllur opn- aður á fimmlud. ÁRNESI, S-Þing, 18. marz: Und- anfarna 3 daga hefur verið þíð- viðri og snjór nokkuð sigið. En hagar eru enn hvergi komnir upp fyrir sauðfé og enn eru samgöng- ur mjög erfiðar. Stærstu flutn- ingabílar, „10-hjóla trukkar“ hafa þó brotizt til Húsavíkur úr Reykjadal. Um Aðaldal er mjólk in enn flutt á heimilisdráttarvél- um í veg fyrir stóra ýtu sem dregur sleða. Úr Kinn er mjólkin einnig flutt á stórum dráttarvél- um. I dag er byrjað að ryðja veginn frá Húsavík og fram á flugvöllinn í Aðaldal og gert ráð fyrir að hann verði aftur opnaður til um- ferðar á fimmtudaginn. Er það vissulega fagnaðarefni m. a. fyrir þá sök að þá berast dagbiöðin hingað sem nýjust í stað þess að nú um skeið hafa þau verið viku til hálfsmánaðar gömul er þau hafa borizt lesendum. j Firmakeppni í bridge í Keflavík NÝLEGA er hafin í Keflavík firmakeppni í bridge á vegum Bridgefélags Keflavíkur. — í keppninni taka þátt 23 firmu í Keflavík. Spiluð er einmennings- keppni. Keppnisstjóri er Eiríkur Baldvinsson frá Rvík. Keppt er þessi. Verzl. Edda 85 stig, Hrað- frystihúsið Jökull 84, Hraðfrysti- hús Keflavíkur 82, Efnalaug Suð- uj-nesja 77, Verzl. Nonni og Bubbi 76, Verzl. Stapafell 74, Verzlun Danívals Danivalssonar 74 og Sérleyfisbifreiðir Kefla- víkur 70. Önnur umferð verður spiluð á I sunnudaginn í Sjálfstæðishúsinu. um bikar sem Úra- og skartgripa- Eftir fyrstu umferð er staðan I verzlunin hefur gefið. Nýjung Nýjung „MINERVA” POPLIN BLÚ5SUR í mörgum litum úr „sísléttu“ poplini sem ekki þarf að straua LÍTIÐ í glugga nn. ' Sími 12725 PÓLLANDSVIÐÍ 5KIPTI Útvegum frá Póllandi eftirtaldar vörutegundir s Frá „MOTOIMPORT" VARIMEX ELEKTRIM Vörufhitningabifreiðar „Star“ Vatnsmælar Ljósaperur Fólksbifreiðar „Warszawa" Ljósmyndavélar Rafhlöður margar teg. Landbúnaðarvélar ,,Ursus“ Stækkunargler Rafmagnsvírar Sendi f erðabif r eiðar Kíkjar Utvarpstæki Diesel og ben/.ínvélar „VoIa“ Saumavélar Símatól í öllum stærðum Kvikmyndavélar 35—16 og 8 mm Símstöðvar Reiðhjól Læknaáhöld og m.fl. Mótorhjól Fjölritara Vökvalyftur Vigtir Slökkvidælur Slökkvitæki PAGED Rafstöðvar Flugvéiar o.m.fl. MINEX Veggfóður og ýmsar tegundir af pappír Sement Finangrunarefni Timbur MET ALEXPORT COOPEXIM CENTROMOR Þungavinnuvélar Lásar í mörgum gerðum Skipabyggingar Járn og trésmíðavélar Blokkir Bátabyggingar Rafmagnslyftitæki Skrúfur Vegagerðavélar Búsáhöld Netakúlur Krókar SKORIMPEX •JU. o. m.fl. Hjoibarðar Allar upplýsingar gefur POLTRADE Ægisgövu 10. Simi 1 17 40.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.