Morgunblaðið - 22.03.1958, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.03.1958, Blaðsíða 16
VEÐRIÐ Austan gola, léttskýjað |Wi0röiwn§W 69. tbl. — Laugardagur 22. marz 1958 s. u. s. er á bls. 13. HJáEp til norsks selfangara undirbúin í Reykjavík Brezkt herskip flyfur þyrilvœngju á veftvang Gatnaviðhaldið mun verða æði kostnaðarsamt á þessu vori, því svo mjög hefur mætt á malbiki hinna mestu umferðar- gatna, og það gefið sig nú í hlákunni. Eru slíkar holur, sem bíllinn er að fara ofan í, víða í bænum þessa dagana. Eru þetta mjög slæmar holur því brúnir þeirra eru svo skarpar, að þær geta stórskemmf hjólbarða, sé ekki ekið með aðgætni yfir þær, þegar ekki er mögulegt hjá þeim að krækja (Ljósm. Mbl.) Skákkeppni milli Austur- og Vesturbæjar á morgun 1 GÆR fór ein af flugvélum varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli í könnunarleiðangur all- langt inn í ísbreiðuna fyrir norð an Vestfirði. Þar er norskt sel- veiðiskip, sem „Drott“ heitir og bað það um að send yrði hjálp því að einn skipverjanna hafði slasazt illa á fæti. Það var aðal- Óðinsfundiir á sunnndag Á MORGUN heldur Málfunda- félagið Óðinn félagsfund í Sjálf- stæðishúsinu (Iitla salnum) kl. 2 e. h. — Félagsmenn eru hvatt- ir til að fjölmenna. Miklir snióar og frosiliörkur í Mývatnssveit MÝVATNSSVEIT, 11. marz. — Tíðarfar hefur verið óhagstætt það 'sem af er þessu ári. Miklir snjóar og frosthörkur, en engar hlákur. Jarðbönn eru nú alls stað ar og engar samgöngur nema með snjóbílum og þegar mikið liggur við, er Björn Pálsson fenginn, með skíðavélina sína. Síðustu dagana í febrúar og fyrstu dagana í marz, voru skotn- ar hér 6 tófur. Virðist vera tölu- vert mikið af þeim, og hefur nokkurn veginn tekizt að hreinsa lönd Mývetninga á vorin þegar legið er á grenjum. A haustin streyma svo tófur að Mývatni. Má vel vera að sumar séu langt að komnar, en mörg er „matar- holan“ fyrir þær við Mývatn og því von að þær sæki þangað sem matarvonin er mest. Illa gengur með minkana síð- an snjórinn varð mikill. Þá má heita að ómögulegt sé að sigra þá. — Nokkrir menn fóru héðan úr sveitinni á vertíðina í Vest- mannaeyjum. — — Jóliannes. Heimdellingar! Aðsteðið við hlntoveltnnn HEIMDALLUR F. U. S. hefur ákveðið að efna til hlutaveltu í Listamannaskálanum kl. 2 e. h. á morgun. Þeir Heimdellingar, sem geta hjálpað við undirbúning að hluta veltiunni og vilja starfa á morg- un, eru vinsamlega beðnir að gefa sig fram í skrifstofu félags- ins í Valhöll við Suðurgötu. Op- ið allan daginn frá kl. 9 að morgni fram á kvöld. Einnig eru þeir sem geta gefið muni á hlutaveltuna beðnir að hafa samband við skrifstofuna í Valhöll. Símar: 17100 — 17102. Stjórn Iieiindallar F. U. S. tilgangurinn með könnunarflug- inu að athuga hvernig ísalögin eru á þessum slóðum því norska eftirlitsskipíð Draug er nú á leið inni og mun freista þess að kom- ast að selveiðiskipinu. Þá var hin bandaríska herflugvél með lyf sem hugmyndin var að varpa niður við skipið. Síðustu fréttir Bandaríska flugvélin sem flaug norður yfir til norska selfangar- ans í gær, til þess að kasta niður lyfjum og vísa skipinu leið út nr ísnum ef unnt væri, sneri við án þess að finna það. Er hún kom á þessar slóðir, sá hún milli 100 og 200 norsk selveiðiskip og gat ekki áttað sig á hvert hið rétta skip var. í gærdag var byrjað á að smíða lendingarpall fyrir þynilvængju, sem reyndur verður í dag hér úti á Flóanum. Ef það kemur í ljós, að þyrilvængja geti lent á pall- inum, mun brezka eftir- litsskipið H.M.S. Russell, sem er rrjjög hraðskreitt, eða gengur um 30 sjómílur á klukkustunj, leggja af stað héðan með lend- ingarpallinn og þyrilvængju inn- anborðs og flytja hvort tveggja eins langt og unnt er, í áttina til hins nauðstadda selfangara. Ársþing Fél. ísl. jðnrekenda HÉR í Reykjavík hefst í dag klukkan 2 síðdegis ársþing Fé- lags íslenzkra iðnrekenda, en það er jafnframt aðalfundur félags- ins. Þessi fyrsti fundur þess hefst með setningarræðu formanns F. í. I., Sveins B. Valfells, sem flytur skýrslu félagsstjórnar og jafnframt mun þá gera að um- talsefni ástand og horfur í iðn- aðinum. Ársþingið mun látá til sín taka ýmis mál og eru þetta hin helztu þeirra: Skattamál, gjaldeyrismál svo og verðlagsmál. Einnig mun verða rætt um fríverzlunarmálið svonefnda og rætt mun verða um nauðsyn þess að taka upp rann- sóknarstörf í þágu iðnaðarins í landinu. Ársþingið og aðalfundurinn fer fram í Þjóðleikhússkjallaranum. Bíldudalsbátar BÍLDUDAL, 22. marz. — Bát- arnir héðan. reru allan febrúar- mánuð, og voru gæftir þá ágæt- ar. Afli var sæmilegur, 5—6 lest- ír í róðri. Fyrir nokkru fengu bátarnir frysta loðnu til beitu, frá Reykjavík og öfluðu þeir betur eftir það. Þennan mimuð hefur einnig verið róið að heita má stöðugt, og hefur aflinn verið góður. í gær var einn af beztu afladögun- um, en þá var Sigurður Stefáns- sori með 15 lestir af óslægðum fiski, en Geysir með 11 lestir. Aðeins þessir tveir bátar eru gerðii út frá Bíldudal. Rækjuafli hefur einnig verið ágætur í vetur. Hlé hefur þó ver- ið á þeim veiðum, þar sem hætt er nú að hraðfrysta rækjuna og á að fara að sjóða hana niður. Hefur staðið á að fá dósir til niðursuðunnar, en þær munu koma innan skamms tíma og verður þá tekið til við veiðarn- ar aftur. — Friðrik. Á MORGUN fer fram hér í bæn- um hin árlega skákkeppni milli Austurbæjar og Vesturbæjar. Að þessu sinni verður teflt á 15—20 borðum.' Fyrirliðar fyrir hvorri fylkingu verða hinir gömlu Norðurlandameistarar, Baldur Möller fyrir Vesturbæ- inn og Friðrik Ólafsson fyrir Austurbæ. , Að því er biaðið frétti í gær um skipan liðsins, þá munu þess- ir vera meðal þátttakenda: Ingi R. Jóhannsson, Jón Þorsteinsson, Sveinn Kristinsson, Ingvar Ás- mundsson og Gunnar Gunnars- son, allir liðsmenn Friðriks, en með Baldri, foringja liðs Vest- urbæinga verða: Guðmundur Pálmason, Guðmundur Ágústs- son, Guðmundur S. Guðmunds- son, Jón Pálsson og Áki Péturs- son. Víglínan liggur að þessu sinni um Barónstíginn. Geta má þess að í fyrra voru það Austurbæ- ingar, sem hrósuðu sigri. Því miður er hér ekki keppt um neinn grip, en hver veit nema úr því verði bætt. Góðviðri við Arnarfjörð BÍLDUDAL, 22. marz. — Veðr- átta hefur verið góð undanfarið við Arnarfjörð. Blíðviðri hefur verið og þíða síðustu daga. Snjóþungt hefur þó verið og jarðlaust fyrir sauðfé fram til þessa. Fé hefur því alveg verið á innigjöf, og fjörubeit lítið eða ekkert notuð. Talsverðir erfiðleikar voru á tímibili með mjólkurflutninga til Bíldudals bæði utan úr sveit og innan. Var aðallega flutt á drátt arbílum og á sjó í nokkur skipti. Nýlega ru'ddi jarðýta vegina og ganga flutningarnir nú greiðlega. Menn frá Rafveitu ríkisins hafa nú um mánaðartíma unnið við að setja niður vélar í Mjólk- árvirkjuninni. — Friðrik. Bæjarkeppnin hefst klukkan 2 síðd. og verður teflt í Sjómanna skólanum og er öllum heimill að gangur þar að sjálfsögðu. Varðarkaffi í Valhöll í dag kl. 3-5 s.d. Hann var í Grindavík í GÆRKVÖLDI lét rannsóknar- lögreglan lýsa eftir 26 ára göml um manni í útvarpið. Hafði hann farið að heiman frá sér á þriðju daginn, Síðdegis þann sama dag hafði hann sézt niðri við höfn, en síðan ekki af honum frétzt. Um klukkan 8.30 í gærkvöldi barst svo rannsóknarlögreglunni tilkynning frá aðstandendum mannsins þess efnis, að hann væri kominn fram heill á húfi. Lítilli stundu áður hafði hann hringt heim til sín, sunnan úr Grindavík, en þangað hafði hann farið og þar verið síðan hann hvarf hér í bænum, en láðst að láta aðstandendurna vita. Drengur undir bíl SEX ára drengur varð um klukk an 5.30 í gær fyrir bíl inni í Stór holti og slasaðist hann. Var dreng urinn kominn yfir miðja götuna, er bíll ók hann niður. Fór dreng- urinn, að sögn vitnis, á milli framhjóla bílsins, en með báða fætur undir annað afturhjólið. Við það fótbrotnaði drengurinn á öðrum fæti og brotnuðu báð- ar leggpípurnar. Hann hafði ekki skaddazt á hinum fætinum. Bíllinn var lítill, franskur 4ra manna bíll. Drengurinn var flutt ur í sjúkrahús, en hann heitir Viðar Jóhannsson, Stórholti 37. Strand Vonarinnar á Reykjanesi r'ORMAÐURINN á vélskipmu Von frá Grenivík, sem fórst suð ur á R.eykjanesi á miðvikudags- kvöldið, hefur gert dálitla at- hugasemd við frásögn blaðsins í gær af því er báturinn strand- aði. Sagði Valdimar formaður, að hann og skipsfélagar hans sem í gúmmíbjörgunarbátnum voru, hafi verið við flakið meðan fé- lagar þeirra voru á því. Sú hætta vofði stöðugt yfir að þeir gætu ekki lengur haldizt þar við og var því aldrei róið í burtu frá flakinu, fyrr en þeir voru allir komnir í land. Af hverju svorur ríkisstgórnin ekki fyrirspurnum um lækkun benzínsins ? í SAMBANDI við þau sltrif, sem farið hafa fram um olíu- málin, er rétt að almennmgur hafi tvær staðreyndir í liuga; 1. Olíufélögin óskuðu í desember eftir heimild verðlags- yfirvaldanna til að lækka benzínið um 8 aura á lítra vegna lækkunar á farmgjöldum og innkaupsverði. 2. Olíufélögin óskuðu ennfremur eftir heimild til að lækka benzínið um 9 aura hvern lítra hinn 1. marz sl., af sömu ástæðum. Þannig telja olíufélögin að bcnzinið gæti nú verið 17 aurum lægra hver lítri en var miðað við desemberbyrjun sl. Nú er spurt: Af hverju er þessi lækkun ekki fram- kvæmd og af hverju þegja verðlagsyfirvöldin og ríkis- stjórnin gersamlega við öllum fyrirspurnum um þetta mál? Bornar hafa verið fram ákveðnar spurningar til ríkisstjórn- arinnar, en hún hefur farið undan í flæmingi og engin svör gefið. Spurningin er, hvort nú eigi að svíkja almenn- ing um þessa lækkun og nota hana til annarra þarfa. Ef svo væri, er sýnt að ríkisstjórnin er komin inn á þá braut að stöðva verðlækkanir, en það er vitaskuld þveröfugt við það, sem hún hefur marglýst yfir. Nær allar samgöngur á Iandi byggjast á benzíninu og það er stórfellt hagsmunamál fyrir landsfólkið að benzin- verðið geti verið sem Iægst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.