Morgunblaðið - 22.03.1958, Page 15
Laugardagur 22. marz 1958
MORGUNBLAÐIÐ
15
Stofnfundur styrkfarfélags
fyrir vangefið fólk á morgun
NOKKUR hópur karla og
kvenna, sem viðræður hefur átt
um velferðarmál vangefins fólks
hér á landi, hefur ákveðið, að
stofna félagsskap, sem vinni að
umbótum á aðbúnaði þessa fólks.
í viðræðum þykir hafa komið
í ljós, að aðbúnaður slíks fólks,
sé nú með öllu ófullnægjand;.
Fréttamenn. áttu í gær tal við
forvígismenn þessa málefnis,
þá Guðmund Gíslason, múrara-
meistara; Hjálmar Vilhjálmsson,
ráðuneytisstjóra og Halldór Hall-
dórsson, arkitekt, sem hafa
ásamt Birni Stefánssyni fulltrúa,
samið uppkast að lögum fyrir hið
væntanlega félag, en stofnfundur
þess hefir verið ákveðinn í félags
heimilinu Kirkjubæ á morgun,
sunnudag, kl. 2 e. h. Borgarlækn
ir, Jón Sigurðsson, var einnig
mættur á fundinum og gaf hann
fréttamönnum þar ýmsar upp-
lýsingar varðandi málefnið.
Markmið félagsskaparins
Tilgangur félagsins yrði að
vinna að því:
1. að komið verði upp nægileg-
um og viðunandi hælum fyrir
vangefið fólk, sem nauðsynlega
þarf á hælisvist að halda.
2. að vangefnu fólki veitist
ákjósanleg skilyröi til þess að ná
þeim þroska, sem hæfileikar þess
leyfa.
3. að starfsorka vangefins fólks
verði hagnýtt eftir föngum.
4. að einstaklingar sem kynnu
að vilja afla sér menntunar til
þess að annast vangefið fólk,
njóti ríflegs styrks í því skyni.
Stór hópur þarf á hælisvist
að halda
Síðustu skýrslur þessa efnis,
bera með sér, að milli 350 og 360
fávitar og örvitar á landinu þurfa
nú á hælisvist að halda. Ekki
kvað borgarlæknir þessar skýrsl-
ur þó nákvæmar og reikna má
með stærri hóp fólkj-. í Reykjavik
er vitað um 114 sem svo er ástatt
með. Stærstan kvað hann hóp
vangefinna og er hann ekki tal-
inn þarna með. Af vangefnum
eru 5% talin örvitar, 20% fávitar,
en 75% vangefið á lægri stigum.
Starfandi hæli fyrir þetta fólk
eru nú í Kópavogi, á Kleppjárns-
reykjum, í Skálatúni og Sólheim-
um í Grímsnesi. Á öllum þessum
hælum eru alls aðeins 115 sjúkra
rúm, og vantar þar af leiðandi
alveg rúm fyrir 240 til viðbótar.
Auk þess eru nú fleiri vistmenn
á hælunum en gert var ráð fyrir
I upphafi, og því þrengsli mikil
og aðstaða öll óhæg. Er því aug-
ijóst, að brýn nauðsyn er á raun-
hæfum aðgerðum í þessu efni.
Málefni sem snertir alla
landsmenn
Félagsskaþur þessi er ekki ein-
göngu miðaður við Reýkjavík,
heldur allt landið. Fólki, sem
styðja vill þetta mannúðarstarf,
gefst þess vegna kostur á að ger-
ast ævifélagar og leggja þannig
sitt af mörkum. — Verk-
efnin eru óþrjótandi, en stórt
átak verður ekki hægt að gera,
nema allir leggist á eitt. Fundar-
boðendur heita því á alla sem
leggja vilja málinu lið, að sækja
stofnfundinn og gerast félagar
styrktarfélagsins fyrir vangefið
fólk.
Tító á móti eldilauga
stöðvum á Italíu
BELGRAD, 21. marz (Reuter). —
Júgóslavneska stjórnin mótmælti
í dag þeim fyrirætlunum ítala
að koma upp eldflaugastöðvum
á ítölsku landi. Eins og kunnugt
er af fréttum, hefur komið til
mála, að Atlantshafsbandalagið
setji upp eldflaugastöðvar í ít-
alíu og starfræki þær í varnar-
skyni.
f orðsendingu sinni segir júgó-
slavneska stjórnin ennfremur, að
hún líti það mjög alvarlegum aug
um, ef vestur-þýzki herinn fær
kjarnorkuvopn í hendur.
Talsmaður júgóslavnesku
stjórnarinnar, Aksa Petric, sagði,
—1 Hafskipin
Framh. af bls. 1
verði á skipum þessum, öll eins
og lúxusfarrými á öðrum skip-
um, en þó verður fargjaldi stillt
í hóf, eða um 150 dollarar hvora
leið. í skipunum verða 3 þús.
farþegaherbergi auk baðher-
bergja. Er rúm fyrir 10 þús. far
þega í skipum þessum, sem verða
120 þúsund tonn á stærð. Þau
verða 1200 fet á lengd og ganga
36 sjómílur. Fyrstu skipin verða
skírð „New Yorker“ og „Lisbon“,
sem mun sigla undir portúgölsk-
um fána og þá sennilega til Lissa
bon. Innan tíðar verður lagður
kjölur að „New Yorker".
Forstjóri skipafélagsins sagði,
að Evrópulönd mundu fá 1 billjón
dollara árlega frá bandarískum
ferðamönnum, ef skipin væru
öll á sjó í einu, enda mundi
ferðamannastraumurinn stórauk-
ast milli heimsálfanna. Skipin
gætu flutt um 1 millj. manna á
ári. — Þegar hlé væri á ferða-
mannastrauminum til Vestur-
Evrópu, yrðu skipin í förum til
Miðjarðarhafslanda, Afríku og
írans.
Þess má loks geta, að stærstu
skip, sem nú eru í förum, Queen
Mary og Queen Elizabeth eru
rúmlega 83 þús. tonn að stærð
(Queen Elizabeth heldur stærra),
1000 fet á lengd og fara með 29
sjómílna hraða. Þau geta flutt
2000 farþega og áhafnir þeirra
eru milli 1000 og 1100 mamis.
að stjórn sín væri andvíg öllum
eldflaugastöðvum ekki sizt þegar
þær væru staðsettar í nágranna-
löndum Júgóslavíu.
Talsmaðurinn neitaði að gefa
upplýsingar um fyrirætlanir
júgóslavnesku stjórnarinnar um
að koma á fót sjöríkjabandalagi,
sem hefði það höfuömarkmið að
banna eldflaugastöðvar í við-
komandi ríkjum. Þau eru: Júgó-
slavía, Grikkland, ítalia, Albanía,
Búlgaría, Rúmenía og Ungverja-
land.
— Ursgt íólk
Framh. af bls. 2
Hún stuðlar að því, að ungt
fólk komi sér upp bústofni í
skjóli foreldra sinna. Þessir
unglingar verða þannig beinir
þátttakendur í búrekstrinum.
Margföld reynsla er fyrir því,
að slík þátttaka í búrekstrinum
er mikilsvert uppeldisatriði, og
öruggasta ráðið til að tengja
unga fólkið við sveitirnar og
landbúnaöinn til frambúðar.
Ég er sannfærður um og
styðst þar við nokkra reynslu,
að margt sveitafólk á því aldurs
skeiði, sem hér um ræðir, (16—
25 ára), hefir mun meiri áhuga
á að eignast skepnur ,sem
það umgengst, heldur en að
safna í sjóði, ef um þetta er að
velja. Með samþykkt tillögunn-
ar gefst Alþingi færi á að stuðla
að þróun sem mundi hafa mikla
þýðingu fyrir sveitirnar og land
búnaðinn í framtíðinni. — Auk-
in þátttaka unga fólksins í bú-
skapnum, mundi vega margfald-
lega móti því krónutapi, sem
sjóðurinn mundi líða vegna þess
arar undanþágu.
EHSAR ÁSM UISDSSON hæsiarcttarlÖgmabur. HAFSTEINDI SIGURÐSSOM bcraðsdómslugma? ur. Sími 15407. Skrifstofa, Hafnarstræti 5.
Málflutningsskrifstofa Finar B. Guðmundsson GuÖ'!augur Þorláksson Guðniundur Pctursson Aðalstræti 6, III. hæð. Símar 1200? — 13202 — 13602.
rekf»i Knaltspyrnufélagið VALUR Skemmtifundur fyrir 4. og 5. flokk verður í félagsheimilinu n.k. sunnudag kl. 2. Mörg skemmtiat- riði. Fjölmennið.
IþróUafélag kvenna Skíðaferð í dag- kl. 2,30 og sunnudag kl. 9,30. — Farið frá Lækjargötunni.
Knaltspyrnufclagið Frain Knattspyrnuæfingar fyrir 3., 4. og 5. floklc verða sem hér segir á sunnudag í K.R.-húsinu: — 4. og 5. flokkur kl. 1. — 3. flokkur kl. 1,50. — Þjálfarinn.
Kuattspyrnufclagið þróltur Dansæfing í félagsheimilinu við Ægissíðu í kvöid.
Þjóðdausafclag Reykjavíkur Hið árlega peysufatakvöld fé- lagsins verður í Skátaheimilinu annað kvöld. Hefst kl. 9. Félagar, fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Kaffikvöld sktðamanna á Café Höll mánudaginn 24. marz kl. 9. Skíðaráðsfundur kl. 8 á sama stað. Verðlaunaafhending Reykjavíkurmótanna 1956—1957. Væntanlegir keppendur og starfs menn, mætið á fundinum. Síðasta kaffikvöld fyrir iandsmót.
Skíðaferðir um lielgina (1 Skíðaskálann), laugardaginn kl. 2 og kl. 6. Sunnudaginn kl. 9, 10, 114. Farið frá BSR. Skíða- lyfta og ljós í gangi.
Stórsvigsniót sem frestað var um helgina, verður hoidið sunnudaginn 23. marz. Keppendur og starfslið, ferð frá BSR kl. 9.
Reykvíkingar! Hringið í síma 14608, og vér sækjum gömlu skíðin og skíða- útbúnað til yðar.
Sdiitkoiiiiir
K. F. U. M. —— Á morgun: Kl. 10 f.h. Sunnudagaskólinn. Kl. 10,30 Kársnesdeild. Kl. 1,30 e.h. Drengjadeildirnar. Kl. 8,30 e.h. Samkoma. Kristi- leg skólasamtök annast samkom- una Allir velkomnir.
Bræðraborgarstíg 34
Samkcma í kvöld kl. 8,30. Sæ-
mundur G. Jóhannesson talar. —
IOMAÐARPLASS
Viljum kaupa eða taka á leigu ca. 200 ferm. iðn-
aðarpláss í eða við Reykjavík.
J. ÞORLAKSSON & NOEÐMANN HF.
Bankastræti 11.
Þakka innilega sveitungum mínum og kunningjum
heimsóknir gjafir og heillaskeyti á sextugsafmæli mínu
18. marz 1958.
Jakob Einarsson
Norður Reykjum.
Hjartans þakkir færi ég öllum ættingjum og
vinum nær og fjær, sem glöddu mig með heim-
sóknum gjöfum og hlýjum kveðjum á sjötugsaf-
mæli mínu 7. marz s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Þorkelína Jónsdóttir
Tjarnarkoti.
Stofnfundur
sameignarfélags um tólf hæða hús í Laugarási verð
ur haldinn í Breiðfirðingabúð laugardaginn 22. þ.m.
ld. 2 e.h.
UNDIEBtíNINGSSTJÓRNIN.
Kantlísfar
á eldhúsborð fyrirliggjandi.
A. Jóhannsson & Smith h.f.
Brautarholti 4. Sími 24244
Útvega frá Vestur-Þýzkalandi og öðrum löndum:
SKIP OG BATA
af öllum gerðum og stærðum.
Ennfremur alls konar
VÉLAR OG ÁHÖLD
Leitið tilboða.
ATLANTOR
Dr. Magnús Z. Sigurðsson,
Hamburg 36/Colonnaden 5.
Verð staddur á Hótel Borg, Reykjavík til 25. þ.m.
Konan mín
INGIBJÖRG TÓMASDÓTTIR
lézt í St. Jósefs-sjúkrahúsi, Hafnarfirði 20. þ.m.
Eyjólfur Ámundason.
Eiginmaður minn
HJÁLMUR HJALMSSON
bóndi, Hvammi, Miklaholtshreppi, andaðist í sjúkrahúsi í
Kaupmannahöfn 19. þ.m.
Ragnheiður Guðbjartsdóttir.
Hjartkæra móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma
LILJA SNORRADÓTTIR
andaðist að heimili okkar Lokastíg 6 aðfaranótt 2L
marz.
Guðrún Guðmundsdóttir.
Tryggvi Gunnarsson.
Hjartans þakkir til allra hinna mörgu nær og fjær,
er sýndu okkur samúð, hjálpsemi og hluttekningu við
fráfall og jarðarför
BRYNHILDAR JÓNSDÓTTUR
frá Jörva,
er lézt í sjúkrahúsinu á Akranesi 20. febr. sl. Enn-
fremur þökkum við hin mörgu spjöld um minningar-
gjafir, kransa, blóm o.fl.
Jörva, í marz Í958.
Vandamenn.