Morgunblaðið - 23.03.1958, Síða 2
2
MORGUNfíLAÐtH
Sunnudagur 23. iriárz 1958
Tvœr „gular skáldsögur"
komnar úf
Isafoldarprentsmiðja tekur upp sölu
bóka gegn afborgunum
KOMNAR eru út tvær nýjar bæk
ur á vegum ísafoldarprentsmiðju
h.f. í bókaflokknum „Gulu skáld-
sögurnar“. Sígurpáll Jónsson
skýrði blaðamönnum frá þessu
í gær. I fyrra komu út 4 bækur
í þessum bókaflokki og má segja
að þær hafi selzt sæmilega. Isa-
foldarprentsmiðja vill með þessu
gera tilraun til þess að dreifa
útgáfu bóka sinna á fleiri mánuði
ársins og er ætlunin að gefa út
6 „gular skládsögur" á þessu ári,
þ. e. eina annan hvern mánuð.
Sígild, létt verk
Þessar skáldsögur eru fyrst og
fremst valdar úr flokki erlendra
metsölubóka, sem þó hafa jafn-
framt fengið góða dóma. Er hér
um að ræða skáldverk af léttara
taginu, sem þó hafa bókmennta-
legt gildi.
Bækurnar sem út koma í dag
eru „Sámsbær“, sem á frummál-
inu heitir „Payton Place“ eftir
bandarísku skáldkonuna Grace
Metalious og t,Örin“, sem á ensku
heitir „The Sword of Satan“ eft-
ir þýzka rithöfundinn Hans
Mahner-Mons. Báðar eru þessar
bækur úr flokki metsölubóka.
Fundurinn vildi
ekki flyfja Reykja-
víkurflugvöll
í FYRRAKVÖLD boðaði Flug-
málafélag Islands til umræðu-
fundar um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar. Var þetta allíjölmenn
ur fundur og umræður fjörugar.
Leiddu þar saman hesta sína
talsmenn þess, að flugvöllurinn
yrði eigi lagður niður og hinna
sem það vilja. í fundarlok var
borin upp ályktun um að flug-
völlurinn verði ekki fluttur.
Á fundi þessum voru mættir
ýmsir of forystumönnum flug-
mála hér á landi og flugáhuga-
menn, en þar munu ekki hafa
verið neinir af flugmönnum flug
félaganna tveggja.
Margir tóku til máls er frum
mælandinn á fundinum, Agnar
Kofoed-Hansen, flugmálastjóri,
hafði lokið máli sínu, en aðal-
andmælandi hans var Guðmund-
ur Marteinsson verkfræðingur,
sem lengi hefur verið talsmaður
þess að Reykjavíkurflugvöllur
yrði lagður niður.
Verður sagt frá umræðum
fundarins síðar en í lok hans var
borin upp og samþ. með atkv.
alls þorra fundarmanna svo-
hljóðandi ályktun:
„Fundurinn telur að ekki komi
til álita í fyrirsjáanlegri fram-
tíð að flylja Reykjavíkuiflugvöll
þar sem það myndi valda aftur-
kipp í þróun íslenzkra flugmála.
Leggur funaurinn áherzlu á það
að flugvöilurinn verði svo sem
hingað til, höfuðmiðstöð íslenzku
flugfélaganna.
Jafnframt skorar fundurinn á
þau yfirvöld er hlut eiga að máli
að hefjast handa um aðkallandi
framkvæmdir á Reykjavíkurflug
velli“.
Geta má þess að Fél. íslenzkra
atvinnuflugmanna, hefur gert
samþykkt um að millilandaflug
ið verði með þjónustu sína á
Keflavíkurflugvelli.
London, 18. marz — Forsætisráð-
herra Irlands, Eamon de Valera,
lýsti því yfir í dag, að hann ósk-
aði þess, að Bandaríkin reyndu
að sætta fra og Englendinga, svo
að allt frland mætti sameinast.
Þegar slík sameining hefði verið
framkvæmd myndi írland gerast
aðili að brezka samveldinu.
Hin unga bandaríska skáld-
kona, Grace Metalious, sem nefnd
hefur verið „unga stúlkan í
nankinsbuxunum“ var aðeins 19
ára gömul er hún hlaut heims-
frægð fyrir fyrrgreinda bók. Hún
er nú þriggja barna móðir og
tvígift. Bókin var metsölubók
veturinn 1956—’57. Nú hefur sag-
an verið kvikmynduð og hlotið
metaðsókn og mjög góða dóma.
„Sámsbær“ er mjög djarflega
skrifuð bók. Þýðinguna hefur
Páll Skúlason gert.
Hans Mahner-Mons, höfundur
„Axarinnar", er Þjóðverji, fædd-
ur 1883. Hann er hámenntaður
og víðförull. Hann hvarf frá
Þýzkalandi er Hitler komst til
valda. Fyrrgreinda bók skrifaði
hann á Ítalíu á síðari heimsstyrj-
aldarárunum og hafðist við í
kjallaraherbergjum og leikhúsa-
rústum, en þá var Ítalía herset-
in af Þjóðverjum. Saga þessi
byggist á sannsögulegum heimild-
um um franskan böðul. „öxin“
var gefin út í Þýzkalandi árið
1950 og seldist upp á örskömm-
um tíma. Hún hefur jafnan sið-
an verið í hópi metsölubóka,
þýdd á ensku, hollenzku, sænsku
og dönsku.
Með afborgun
Þá gat Sigurpáll Jónsson þess
að ísafoldarprentsmiðja hefði
tekið upp sölu bóka með afborg-
unarskilmálum. Býður forlagið
mikinn fjölda merkra bóka til
sölu með þessum kjörum. Hefur
það gefið út lítinn gulan tví-
Enn sýnir Leikfélag Hafnar-
fjarðar gamanleikinn Afbrýði-
söm eiginkona, fyrir fullu húsi.
Á myndinni er Sólveig Jó-
hannsdóttir, sem leikur Molly
og Friðleifur Guðmundsson,
sem Bentley. — Næsta sýning
verður á þriðjudagskvöld kl.
8,30.
Björn Pétursson
form. félags bóksala
AÐALFUNDUR Félags íslenzkra
bókaverzlana var haldinn 20.
marz. — Björn Pétursson var
kjörinn formaður. Meðstjórnend-
ur voru kosnir Lárus Bl. Guð-
mundsson og Kristján Oddsson,
Reykjavík, Kristinn Pétursson,
Keflavík og Ólafur B. Ólafsson,
Akranesi.
Aðalfulltrúi í stjórn Sambands
smásöluverzlana var kosinn
Björn Pétursson og Lárus Bl.
Guðmundsson til vara.
(Frétt frá S.S.).
-------------------□
PARÍS, 22. marz. — Alsírmaður
myrti tvo lögregluþjóna og eina
konu í Norður-Frakklandi í gær.
n------------------------p
blöðung og er í honum nánar
kynnt hvernig skilmálar eru fyr-
ir þessum bókakaupum. Meðal
öndvegisrita í þessum bókaflokki
eru: „Endurminningar Sveins
Björnssonar", „Ljóðmæli" Matt-
híasar og „Sögur herlæknisins",
„Ljóðmæli og laust mál“ Einars
Benediktssonar, „Bólu-Hjálmar“
I—V, rit Þorsteins Erlingssonar,
rit Sigurðar Breiðfjörðs, orða-
bækur, mannfræðibækur o. fl.
Samninga um afborgunarskilmála
geta menn gert við hvaða bók-
sala sem er á landinu. Er þetta
í fyrsta sinn sem ísafoldarprent-
smiðja efnir til siíks afborgun-
arkerfis.
Sveinn B. Valfells endur-
kjörinn formaður F. 1.1.
í GÆRDAG klukkan 2 síðd.
hófst í Þjóðleikhúskjallaranum
ársþing- og aðalfundur Félags
ísl. iðnrekenda.
Formaður félagsins Sveinn B.
Valfells setti fundinn. Síðan hóf
formaður flutning ársskýrslu fé-
lagsstjórnar, en jafnhliða ræddi
hann ástand og horfur í iðnrekstr
inum hér á landi um þessar
mundir. Verður nánar sagt frá
ræðu formannsins.
Innan félagsins hefur undanfar
ið staðið yfir kjör stjórnar, nú
áttu að ganga úr stjórn félagsins
þeir Sveinn B. Valfells, Gunnar
J. Friðriksson og Gunnar Jónas-
son.
Kjörstjóri Hjörtur Jónsson
skýrði frá úrslitum atkvæða-
greiðslunnar, en kosningu hlutu:
Sveinn B. Valfells, Gunnar J.
Friðriksson og Árni Jónsson.
Varamenn í stjórn voru kjörnir
þeir Gunnar Jónasson og Guð-
mundur Ágústsson. Fyrir eru í
stjórninni Sigurjón Guðmunds-
son og Axel Kristjánsson.
Þessu fiæst gerði framkvæmda
stjóri F.Í.I., Pétur Sæmundsen
grein fyrir reikningum félags-
ins. Þessu næst var kosið í nefnd
ir.
Fundarstjórar voru kjörnir
þeir Eggert Kristjánsson og
Kristján Friðriksson.
Næsti fundur verður haldinn
á þriðjudaginn kl. 3 síðd.
(Frétt fré Fél. ísl. iðnrekenda).
Dýrmælur eyrna-
lokkur tapaðist
DÝRMÆTUR gulleyrnalokkur
með rauðu og grænu kögri tap-
aðist í miðbænum í fyrrakvöld.
Finnandi er vinsamlega beðinn
að skila honum gegn góðum fund
arlaunum til afgreiðslu Morg-
unblaðsins.
Handknattieikur
í. R. fœr kunnan un gverskan
þiálfara til sfarfa
ÍR-ingar fara utan / 5 skipti-
heimsóknir í sumar
ÍÞRÓTTAFÉLAG Reykjavíkur
hefur gert umfangsmikla og
glæsilega áætlun um utanfarir
íþróttamanna sinna og heimsókn-
ir erlendra íþróttamanna — allt
á grundvelli gagnkvæmra
heimsókna. Er þessi áætlun fé-
lagsins glæsilegri en eitt félag
hefur áður gert. Alls eru ráð-
gerðar utanfarir 6 hópa úr hinum
ýmsu deildum félagsins og er í
öllum tilfellum um skiptiheim-
sóknir að ræða. Þá hefur félagið
ráðið til sín þekktan ungversk-
an þjálfara í frjálsíþróttum,
handknattleik og körfuknattleik.
Ungverski þjálfarinn kemur
hingað og byrjar störf 1. maí,
sagði Jakob Hafstein, form. ÍR
blaðamönnum á föstudaginn. —
Frjálsíþróttamenn ÍR kynntust
honum á Moskvumótinu í fyrra
og nú hefur tekizt samkomulag
um að hann kæmi til 4ra mánaða
dvalar hér. Þjálfarinn heitir
Gabriel Simonyii Gabor og er
39 ára gamall og hefur verið
aðalþjálfari Ungverja í tækni-
greinum og aðstoðarþjálfari '
hlaupum. Hann hefur þjálfað
ýmsa af heimsþekktum íþrótta-
mönnum Ungverja. Hann er og
kunnur handknattleiks- og körfu-
knattleiksþjálfari í Ungverja-
landi. Enginn vafi leikur á því
að koma hans til ÍR mun hafa
mikil áhrif á félagslífið, aukna
þjálfun og aukin afrek.
ÍR-ingar eru að vonum hreykn-
ir af að hafa náð í þennan þjálf-
ara. Þeim hefur áður tekizt að
ryðja nýjar brautir í þjálfun,
t. d. með komu Bergfors hins
sænska og Russmanns hins
þýzka. Þeir ætla að nú séu þeir
enn forystufélag hvað það snert-
ir. —
Þá raeddi Jakob Hafstein um
utanfarir hinna ýmsu deilda úr
ÍR. Séð hefði verið fyrir sam-
böndum erlendis en síðan ynnu
deildirnar sjálfar að framkvæmd
málsins. — Jakob sagði að
heimsóknirnar hefðu gefið mjög
góða raun. Hér verður drepið á
áætlanir ÍR-inga í þessum efnum.
För frjálsíþróttamanna
18 manna hópur frjálsíþrótta-
manna félagsins er boðinn til
Bromma I. F. í Stokkhólmi í sum
ar, svo og einnig til Varkaus í
Finnlaadi. Félagskeppni fer fram
á milli ÍR og þessara tveggja
vinafélaga, auk þess sem ÍR-ing-
arnir eru ráðnir til að keppa á
fjölda íþróttakeppna í Svíþjóð
eftir E. M. í Stokkhólmi og einn-
ig eftir landskeppnina við Dani.
Körfuknattleiksmenn
Einn af kunnustu körfuknatt-
leiksmönnum félagsins, Gunnar
Bjarnason, hefur í vetur dvalið
í Stokkhólmi við nám í leik-
tjaldamálun. Hann hefur nú
skipulagt keppnir í körfuknatt-
leik fyrir þá deild félagsins á
komandi sumri, og verður sú för
farin í sambandi við E. M. í ágúst
n. k. Þá hefur og körfuknattleiks-
deild félagsins tekið upp vina-
samband við eitt af kunnustu
íþróttafélögum í Austur-Þýzka-
landi og koma Þjóðverjarnir hing
að í boði félagsins í byrjun okt.
n. k. en hafa svo boðið ÍR-ingum
til Leipzig 1959.
21. SKÍÐAMÓT ISLANDS fer
fram í nágrenni Reykjavíkur nú
um páskan*. Skíðaráð Reykja-
víkur sér um mótið og hefir
skipað 7 manna mótstjórn. —
Mótið verður sett af form. Í.B.R.,
Gísla Halldórssyni, miðvikudag-
inn 2. apríl kl. 13.00 við Skíða-
skálann í Hveradölum. Strax að
mótsetningu lokinni hefst mót-
ið með keppni í 15 km skíða-
göngu, fyrst 20 ára og eldri, þá
17—19 ára og loks 10 km skíða-
ganga 15—16 ára. Kl. 17.00 fer
fram sveitakeppni í svigi í Skíða-
skálabrekkunni. Sú keppni hefir
alla tíð verið mjög spennandi og
verður það sennilega í ár líka.
Fimtud. 3. apríl fer fram stór-
svig karla og kvenna. Stórsvig-
ið fer fram við Vífilfell, er næg-
ur snjór er og er það gert vegna
áhorfenda, því að þeir geta fylgzt
með keppendum svo til niður alla
brautina. Verði ekki snjór 1 Vífil-
felli verður keppt í Suðurgili eða
Marardal.
Laugard. 5. apríl fer fram
4x10 km boðganga við Skíða-
skálann. Brun karla fer fram í
Handknattleiksmenn félagsins
eru í sambandi við júgóslavnesku
meistarana, félagið Zagreb. Það
kemur hingað í haust, en ÍR-ing-
ar fara utan á næsta ári.
Sundmenn íélagsins eru í sam-
bandi við félagið Speed í Osló.
4—5 sundmenn þess félags koma
hingað í maí n. k. og ÍR-ingar
fara utan í ágúst.
Norskir skíðamenn frá félaginu
Ready koma í vor og skíðamerm
ÍR fara utan næsta vetur þess í
stað.
Loks er ráðgerð utanför fim-
leikaflokks félagsins, kvenna-
flokks. Mun hann fara til Nor-
egs.
Þessar skiptiheimsóknir eru
stórmerkur þáttur í starfi ÍR. —
Utan þeirra er von á heimsmeist-
aranum í þrístökki da Silva til
keppi hér í júní. Þá hafa ÍR-ingar
boðið beztu skriðsundskonu Norð
urlanda og bezta skriðsunds-
manni, þ. e. hin sænska Karin
Larson og Daninn Lars Larsson
til keppni við Ágústu Þorsteins-
dóttur og Guðmund Gíslason. Er
þannig reynt að sjá hinum beztu
fyrir keppni við beztu íþrótta-
menn annarra landa.
Marardal og brun kvenna á sama
stað. Snjóbílar annast flutning
starfsmanna, keppenda og áhorf-
enda inn í Marardal.
Sunnud. 6. apríl. Svig kvenna
hefst og fer fram á Þverfelli við
Kolviðarhól. Kl. 11.00 fer fram
skíðastökk í norrænni tvíkeppni
og kl. 14,30 fer fram meistara-
stökkið, stokkið verður á stökk-
brautum við Kolviðarhól, en þar
er hægt að stökkva 45—48 m.
Mánud. 7. apríl fer fram 30
km skíðaganga við Skíðaskálann
í Hveradölum. Seinasta keppni
mótsins er svig karla, sem fram
fer í Iíamragili við Kolviðarhól
og hefst kl. 14.30.
í skíðaskálanum í Hveradölum
verður aðalskrifstofa mótstjórn-
ar og var verður hægt að fá all-
ar upplýsingar um mótið. —
Skemmtinefnd mun sjá um
kvöldvökur í skálanum a. m. k.
á miðvikudags- og laugardags-
kvöldið, en mótinu verður slitið
með dansleik á mánudagskvöld
og verða þar afhnt verðlaun.
Þátttaka tilkynnist til Ragnars
Þorsteinssonar, Hrísateig 8, Rvík,
fyrir 25. þ. m.
SkíSamóf íslands