Morgunblaðið - 23.03.1958, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.03.1958, Blaðsíða 13
Sunnudagur 23. marz 195b MORGVNBLAÐIÐ 13 liðsins hefur að undanförnu stað- ið togstreita um þetta. Lúðvík Jósefsson skrifaði áður en hann fór austur fyrir tjald — með við- dvöl í Genf — á dögunum grein, þaí sem hann hélt því fram, að tekjuþörfm væri ekki nema 85 milljónir króna. Eysteinn Jóns- son hefur aftur á móti fullyrt, að stjórnin hefur verið við völd, má ' því segja að vísitalan hefði að réttu lagi átt að hækka um 20 stig. Hækkunin hefur einungis opinberlega orðið 5 stig, en 15 stiga munurinn leggst að lang- samlega mestu leyti sem bein kjaraskerðing á fólkið í landinu. I Vel má vera, að sú kjaraskerðing afla þyrfli 200 milljóna. Um | hafi verið óumflýjanleg en hún þetta hefur verið þingað fram og aftur og margir reiknings- meistarar kvaddir til. Sennilegast _ ^ er talið, að ofan á verði að fara “ “ ‘ 1 " * ý einhvern milliveg. Stjórnarliðar gera allt að verzlunarvöru sín á milli. „Ekki hægt að íí er bein afleiðing verkfallsins mikla, sem kommúnistar og Her- mann Jónasson efndu til 1955. Frétt, sein lengi \ar að berast Hverjum sem um er að kenna, þá er óumdeilanlegt, að svona I er ástandið í raun og veru. Og , , , fjarstætt er að ræða um efna- Samtimis þvi, sem togazt er a.j um þetta bak við tjöldin í stjórn- arherbúðunum, senda stjórnar- Ekki er ráff nema í tíma sé tekiff. Um síðustu helgi efndi Alþýffusamhand íslands til sjómanna- ráffstefnu undir forsæti Hannibals Valdimarssonar félagsmálaráffherra. Verkefni ráffstefnunnar var þaff aff segja upp síldveiffisamningunum fyrir næsta sumar. Hvernig ætli stjórnarblöðin hefðu látiff, ef þau hefðu treyst sér til aff kenna Sjálfstæffismenn viff þá ályktun? Ætli Timinn hefffi þá þagaff eins og hann hefur gert um samþykktina, sem gerff var undir forsæti Hannibals? REYKJAVÍKURBRÉF blöðin hvert öðru tóninn yfir skilningsleysi á frumatriðum efnahagsmálanna. Þjóðviljinn segir allt í lagi, ef fylgt sé því, sem hann kallar „stöðvunarstefnu“ og á þá við, að farnar séu sömu leiðir og að undanförnu. Tíminn fullyrðir aftur á móti, að „stöðvunarstefnan“ leiði til „stöðvunar og atvinnuleysis“. — Lét hann um tíma svo sem nú væri von mikilla aðgerða, og Hermann Jónasson dreifði út þeirri sögu, að hann væri stað- ráðinn í að bera fram tillögur um hin „varanlegu úrræði“, sem hann þykist hafa á takteinum, og knýja kommúnista til að fallast á þau, eða hverfa úr ríkisstjórn- Laugard. 22. marz Miniiing Jóos Sigurðssonar Jón Sigurðsson var ekki ein- ungis fremstur íslendinga um sína daga, heldur ber hann af öll- um öðrum íslendingum fyrr og síðar. Hann varð þegar í lifanda lífi sannur liöfðingi þjóðarinnar. Er sjaldgæft eða nær einstakt, að maður nái svo skjótt almennri hylli sem Jón gerði, og þó sé virðing eftirkomendanna jafnvel enn meiri en samtíðarmanna hans. Mikið hefur verið skrifað um Jón Sigurðsson. Enginn hef- ur lýst honum betur en séra Eiríkur Briem í minningargrein sem hann skrifaði um Jón í And- vara, þegar eftir andlát hans. — Sumt af því, sem um Jón hefur verið ritað skortir líf, af því að litbrigðin í myndina vantar. Séra Eiríki tókst að glæða lýsingu sína lífi hinnar skrumlausu frásagnar og skín þó virðing og aðdáun út úr hverju hans orði. Menntamálaráð hefur að und- anförnu haft til athugunar að gefa út öll rit Jóns. Hefur rétti- lega verið talið, að vel færi á að tengja slíka útgáfu við 150 ára afmæli hans. Það afmæli nálgast nú óðum, og er því ánægjulegt, að öruggt virðist, að útgáfuhug- myndinni verði hrint í fram- kvæmd. Að vísu má efast um, hort svo mikið rit verði sú almenningseign sem ráðgert sýn- ist vera, engu að síður er þörf á því. Og allir íslendingar hljóta að sameinast um að gera þetta ritsafn sem veglegast úr garði. Þótt hér sé ágreiningur um flest, sameinast allir um viðurkenn- ingu á gildi Jóns Sigurðssonar fyrir hina íslenzku þjóð. Bókmennta- verðlaun Þátttaka almennings í Al- menna bókafélaginu varð þegar í stað meiri en hinir bjartsýn- ustu höfðu fyrirfram þorað að vona. Þetta hefur orðið til þess, að félagið hefur nú treyst sér til að efna’ til bókmenntaverðlauna. Vonandi verða þau íslenzkum rit- höfundum til uppörvunar, eink- um æskumönnum, enda er tekið fram, að við veitingu verðlaun- anna skuli ungir höfundar sitja fyrir, að öðru jöfnu, þ. e. þeir, sem yngri eru en 35 ára eða senda frá sér fyrstu bók sína. Ráðgert er, að upphæð verðlaunanna verði ár hvert 25 þúsundir króna og má veita þau einu sinni á ári fyrir frumsamið íslenzkt verk, sem út kemur á árinu. Heimilt er að hækka upphæðina í allt að kr. 50.000, ef um afburðaverk er að ræða. Ákvörðun um veitingu verðlaunanna tekur bókmennta- ráð Almenna bókafélagsins, og eru verðlaunin óháð greiðslu rit- launa fyrir birtingu vei'ksins. Mikið er undir því komið, að víðsýni og hlutleysi ráði í dóm- um þeirra, er slík verðlaun veita. Reynslan ein fær úr því skorið, hvort svo tekst hér til. En fyrir- fram er full ástæða til bjartsýni, því að í bókmenntaráði Almenna bókafélagsins eiga sæti ýmsir af fremstu skáldum og bókmennta- mönnum þjóðarinnar. Dagbók • • Onnu Frank Allir þeir, sem séð hafa leikrit- ið Dagbók Önnu Frank, lóta mik- ið af því. Er til þess tekið, hversu vel leikarar fari með hlutverk sín, ekki sízt hin unga stúlka, er leikur önnu Frank, og hversu leikritið sjálft sé áhrifaríkt. ís- lendingar eiga erfitt með að skilja ömurleikann, sem hvílir yfir lífi þeirra, sem ofsóttir eru á þann veg sem. þarna er lýst. Sem betur fer hafa þvílíkar að- farir aldrei tíðkazt í okkar landi. En því miður heyra slíkar hörm- ungar ekki aðeins fortíðinni til. Þær eru einnig samtímafyrir- brigði í stórum hluta heims. Gyðingaofsóknir nazista voru andstyggð. Nazisminn var ein- ungis eitt afbrigði einræðis og ofbeldis þess sem svo mjög hef- ur markað 20. öldina. Þar má segja, að kommúnisminn sé aðal- stofninn en nazisminn hafi verið ein grein á. Nazisminn er von- andi úr sögunni fyrir fullt og allt, en kommúnisminn blómg- ast enn. Innan endimarka veldis hans eru óteljandi fjölskyldur, sem eiga við sama öryggisleysið að búa og lýst er í leikritinu um Önnu Frank. Þar hafa heilir þjóð- flokkar verið teknir upp af heimastöðvum sínum og sett- ir í fangabúðir eða a. m. k. reknir í útlegð. Ótrúlegt er en samt satt, að til skuli vera greind ir og í sjálfu sér góðhjartaðir ís- lendingar, sem trúa því, að slíkir stjórnarhættir horfi til góðs og vinna að þvi af öllum sálarkröft um að innleiða þá á íslandi. Hægt gengur Nú er Alþingi búið að sitja að störfum nær lVz mánuð frá því að jólaleyfinu lauk. Það hafði varað annan IV2 mánuð, og var ákveðið svo langt m. a. til þess að gefa stjórninni færi á því að hafa til tillögur sínar um endan- lega afgreiðslu fjárlaga og að- gerðir í efnahagsmálum, þegar þingið kæmi saman á ný. Enda þótt undirbúningstiminn hafi nú tvöfaldazt, bólar ekki enn á tillögunum. Raunar er ótrúlegt, að ræða þurfi um, að enn sé ekki lokið fullnaðarafgreiðslu fjárlaga fyr- ir 1958. Nú er þó komið hátt á þriðja mánuð þessa fjárhagsárs, og fjárlög fyrir það voru að nafninu til samþykkt fyrir ára- mótin. En sú samþykkt var ein- ungis að nafninu til. 1 42. grein stjórnarskrárinnar segir svo: „Fyrir hvert reglulegt Alþingi skal þegar er það er saman kom- ið leggja frumvarp til fjárlaga fyrir það fjárhagsár, sem í hönd fer, og skal í frumvarpinu fólgin greinargerð um tekjur ríkisins og gjöld“. Allir viðurkenna, að eins og fjárlögin nú eru, skortir mjög á um, að í þeim sé „fólgin greinar- gerð um tekjur ríkisins og gjöld“. Eftir skýrslu sjálfs fjármálaráð- herrans vantar þar upp á a. m. k. 85 milljónir króna, og hefði ein- hvern tíma verið talið taka því að nefna þá upphæð. Hér vantar þó í rauninni miklu meira. Hið eina rétta væri að telja öll gjöld og tekjur útflutningssjóðs með tekjum og gjöldum rikissjóðs. — Það er ríkið, sem leggur á gjöld- in til þess sjóðs og ákveður hvern ig tekjunum skuli varið. Það glopraðist upp úr Bern- harði Stefánssyni, forseta efri deildar, á dögunum, að þegar talin væri tekjuþörf beggja, ríkis sjóðs og útflutningssjóðs, myndi vanta 200 milljónir króna, sem afla yrði í nýjum sköttum. Be\n- harð vildi síðar gera lítið úr þessu og halda sér að þvi, að sumir segðu, að það vantaði 100 milljónir en aðrir 200 milljónir. Kunnugt er, að innan stjórnar- inni ella. Síðustu dagana þýtur mjög öðru vísi í þeim skjá. Tím- inn segir hinn 20. marz: „Fyrir- heitið um að ráða niðurlögum dýrtíðarinnar „með einu penna- striki" var ekkert nema auðvirði- legt lýðslcrum og blekking---“ I stað þess talar málgagn for- sætisráðherrans um að gera þurfi ráðstafanir sem að vísu er enn ekki sagt, hverjar séu, og eiga þær „smátt og smátt að auðvelda vegferðina að jafnvægisbúskap og vinnulífi“. Þarna er sannarlega dregið úr stóryrðunum, miðað við það, sem áður var, enda virðist svo sem Alþýðublaðið fylgist ekki með á flóttanum. Daginn áður segir það: „— — er ekki hægt að fresta því að marka og fram- kvæma nýja stefnu í efnahags- málunum“. Sumir segja raunar, að „hin nýja stefna" eigi að vera sú, að leggja á nýja skatta, eins og fyrr og bæta því við, að eftir nokkra mánuði verði ný úrræði fundin! „Nýja stefnan", sem ekki er hægt að fresta að mörk- uð verði, er þá nýtt loforð loforða svikaranna um, að þeir ætli sér að gera eitthvað, einhvern tíma síðar! Skrítin stöðvun Framkvæmd stöðvunarstefn- unnar lýsir sér annars einkum í því, að reyna að halda leyndum fyrir almenningi ýmsum höfuð- staðreyndum efnahagslífsins. — Enn mun t. d. ekkert stjórnar- blaðanna hafa sagt frá hinni stór- merku skýrslu, er birtist í janú- arliefti Hagtíðinda um áhrif nið- urgreiðslna úr ríkissjóði á visi- töluna. Samkvæmt þeirri skýrslu hafa niðurgreiðslur í valdatíð V-stjórn arinnar aukizt svo, að 9 vísitölu- stigum nemur. Er það mun meiri hækkun en nokkru sinni áður hefur orðið á jafnskömmum tíma. Almenningur verður vitan- lega að borga kostnaðinn við þessa niðurgreiðslu vísitölunnar. Skattarnir, sem notaðir eru til að standa undir henni, eru heimt aðir af allri alþýðu manna með harðri hendi. Til viðbótar þeirri útgjaldaaukningu er á það á að líta, að á valdatíma núverandi stjórnar hefur sjálf vísitalan hækkað um 5 stig, þrátt fyrir það að launþegar hafa verið sviptir kauphækkunum, er svara til enn annarra 6 vísitölustiga. Á því rúma IV2 ári, sem V- | hagsmálin, ,,stöðvunarstefnu“ eða önnur úrræði án þess að gera almenningi t. d. grein fyrir þýðingu þeirra 9 visitölustiga, sem greidd eru niður með aukn- um framlögum úr ríkissjóði. En ekkert stjórnarblaðanna hefur sem sagt minnzt á þessa skýrslu einu orði. Sú þögn náði svo langt, að fréttastofa útvarpsins lét sér sæma að skýra ekki frá þessum staðreyndum fyrr en annar af útvarpsráðsmönnum Sjálfstæðis- manna, Þorvaldur Garðar Krist- jánsson, fór að grennslast eftir því hjá útvarpsstjóra, hverju þetta sætti. Þá hafði verið byrjað að lesa í fréttatíma útvarpsins ýmiss konar fregnir úr febrúar- hefti Hagtíðindanna, en janúar- heftið hafði af einhverjum ástæð um lagzt til hliðar! Útvarpinu til lofs skal þess getið að úr þessu var bætt. En staðreynd er að það tók langan tíma, eða fullan mánuð, að sagt væri frá jafnsjálfsögðum tíðind- um og þessum. Skýrslan var á sínum tíma jafnskjótt birt í Morgunblaðinu og þá var einnig sagt frá henni í Vísi, svo erfitt er að skýra, hvernig hún gat farið fram hjá fréttastjórn útvarpsins. j Hannibal beitir sér fyrir samningsuppsögn Um síðustu helgi gei'ðist það, að forseti Alþýðusambands ís- lands, Hannibal Valdimarsson, efndi til sjómannaráðstefnu í Alþýðusambandinu. Þjóðviljinn skýrði stórum stöfum svo frá því afreki: „Sjómanna-ráðstefna Alþýðu- sambandsins ráðleggur upþsögn síldarsamninga“. í fréttinni segir að öðru leyti: „Var ráðstefnan sammála um að leggja til að samningum um síldveiðikjörin verði sagt upp. — — — Forseti Alþýðusam- bandsins, Hannibal Valdimars- son, setti ráðstefnuna og bauð fulltrúa velkomna. Síðan hófust umræður um síldveiðikjörin, -------og var það sammála áiit ráðstefnunnar að leggja til við félögin að segja upp samningum um síldveiðikjörin". Hætt er við, að heyrzt hefði hljóð úr horni, ef Sjálfstæðis- menn hefðu efnt til þvílíkrar ráð stefnu. Blandast nokkrum hugur um, að þá hefði Tíminn talið það dæmi þess, að Sjálfstæðisflokkur inn „beitti öllum áhrifum sínum -------til að torvelda aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál um“? En Tíminn segir sl. fimmtudag, að meðan Sjálfstæðismenn fari þessu fram, þá hafi Framsóknar- menn tekið þá afstöðu að hafa ekki samstarf við Sjálfstæðis- menn í verkalýðshreyfingunni. Ekki vítir Tíminn einu orði félagsmálaráðherrann fyrir að efna til þessarar ráðstefnu. Sá verknaður Hannibals Valdimars- sonar er og í beinu framhaldi þess, sem Snorri Jónsson lýsti Framh. á bls. 14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.