Morgunblaðið - 22.04.1958, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLA0IÐ
Þriðjudagur 22. apríl 1958
>
SlysavarSstofa Reykjavíkur 1
Heilsuvemdarstöðmni er ipin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L.
R (fyrir vitjanir) er á sama stað,
frá kl. 18—8. — Sími 15030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki. Sími 11700.
Holts-apótek og CarSsapótek
eru opin á sunnudögum kl. 1—4.
Hafnarfjarðar-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—21. Laugardaga kl.
9—16 og 19—21. Helgidaga kl. 13—16
Næturlæknir er Kristján Jóhann-
esson.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kL 9—19, laugardaga kl.
9—16. Helgidaga kl. 13—16.
Kópavogs-apótek, Alfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kL 9—16 og helgidaga
kL 13—16. — Sími 23100.
□ EDDA 50584227 — 2. Atkv.
m
Mcssur
Hafnarfjarðarkirkja. Altaris-
ganga í kvöld kL 8.30. Séra Garð-
ar Þorsteinsson.
o AFM Æ Ll *
Áttræður er í dag Gísli Eiríks-
son, bóndi Naustakoti, Vatns-
leysuströnd.
gs Skipin
Eimskipafélag íslanðs hf.: —
Dettifoss fór frá Vestmannaeyj
um 17. apríl til Hamborgar,
Ventspils og Kotka. Fjallfoss
kom til Hull 20. april, fer þaðan
á morgun til Rvíkur. Goðafoss
kom til Rvíkur 18. apríl frá New
York. Gullfoss fór frá Rvík 19.
þ.m. til Leith, Hamborgar og
Kaupmannahafnar. Lagarfoss
hefur væntanlega farið frá Vents
pils 19. þ.m. til Kaupmannahafn-
ar og Rvíkur. Reykjafoss för frá
Reyðarfirði í gær til Eskifjarðar,
Fáskrúðsfjarðar, Vestmannaeyja,
Keflavíkur og Reykjavíkur.
Tröllafoss fer frá New York um
25. þ.m. til Rvíkur. Tungufoss fór
frá Rvík í gærkvöldi til Hamborg
SkipaútgerS rikisins: Esja fór frá
Akureyri síðdegis í gær austur
um land til Reykjavíkur. Herðu-
breið er á Austfjörðum á suður-
leið. Skjaldbreið fer frá Reykja-
vík í dag til Breiðafjarðarhafna.
Þyrill fer frá Reykjavík í dag
vestur og norður um land. Skaft-
fellingur fer frá Reykjavík í dag
til Vestmannaeyja.
Flugvélar
Flugfélag íslands hf.: Millilanda
flug: Millilandaflugvélin Hrím-
faxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 í dag. —
Væntanleg aftur til Rvíkur kl.
22:45 í kvöld.
Innanlandsflug í dag: er áætl-
að að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Blönduóss, Egilsstaða,
Flateyrar, Sauðárkróks, Vest-
mannaeyja og Þingeyrar. Á morg
un er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar, ísafjarðar og Vestmanna-
eyja.
Loftleiðir hf.: Edda kom kl.
0800 í morgun frá New York. Fór
til Glasgow og London kl. 0930.
Ymislegt
Orð lí/sins: — Drottinn rann-
salcar hinn réttláta, «n hinn 6guð-
lega, og þamn, er hefur mætur ú
ofríki, hatar hamn. (Sálm. 11,5).
★
Mænusóttarbólusetning í Heilsu
verndarstöðinni. Opið: Þriðju-
Það er óvanalegt að bílar séu fluttir loftleiðis milli landshluta
hér á landi, en slíkir flutningar áttu sér stað sl. föstudags-
kvöld, er Wolksvagenbifreið, eign manns á Akureyri, var flutt
með Gljáfaxa Flugfélagsins frá Reykjavík til Akureyrar. —
Auk bílsins flutti Gljáfaxi í þessari ferð eldavélar og þvotta-
vélar frá Rafha í Hafnarfirði. — Á undanförnum árum hafa
nokkrir bílar verið fluttir frá útlöndum með Skymasterflug-
vélum Flugfélagsins, en þetta munu vera fyrstu bilaflutningar
í lofti innanlands. — ((Ljósm.: Sv. Sæm.)
daga kl. 4—7 e.h. og laugardaga
kl. 9—10 f.h.
Boðsmiðar á afmælisleik Fram
er fer fram fimmtudaginn 24. þ.m.
verða afhentir á íþróttavellinum
þriðjudag og miðvikudag. Þeir
miðar er ósóttir verða á miðviku-
dagskvöld verða seldir.
★
„Vakið, verið algáðir". — Þessi
voru hvatningarorð þeirra guðs-
manna, sem lögðu grundvöil að
hinni kristnu menningu. Algáður
er enginn, sem áfengis neytir. —
Alls staðar er full þörf á aðgát og
aðeins algáðum mönnum er treyst
andi. Hinir geta alltaf valdið
óhöppum. — Umdæmisstúkan.
A'
Félagsstörf
Húnvetningafélagið heldur
sumarfagnað í Tjarnarkaffi niðri
annað kvöld síðasta vetrardag
kl. 8.30.
j^Aheit&samsköt
Hallgrímskirkja í Saurbæ. —
Afh. Mbl. NN Grindavík 300.00.
Læknar fjarverandi:
Kristjana Helgadóttir verður
fjarverandi óákveðinn tíma. Stað-
gengill er Jón Hj. Gunnlaugsson,
Hverfisgötu 50.
Kristján Þorvarðarson verður
fjarverandi í 7—10 daga. -— Stað
gengill hans er Eggert Steinþórs-
son. —
Ólafur Jóhannsson fjarverandi
frá 8. þ.m. til 19. maí. Staðgengill
Kjartan R. Guðmundsson.
Sveinn Pétursson, fjarverandi
til mánaðamóta. — Staðgengill:
Kristján Sveinsson.
Þórður Þórðarson, fjarverandi
HEIUA
IViyndasaga fyrir börn
148 Heiða hefir fundið stafrófskverið,
sem hún tók með sér heim frá Frankfurt.
Þar eru margar skemmtilegar vísur. —
„Sj áðu“, segir Heiða og bendir á fyrstu
vísuna. „Þarna stendur, að allir krakk-
arnir muni hlæja að þér, ef stafrófið
stendur í þér. Nú skulum við byrja.“ Og
Pétur tekur ótrauður til við að stafa og
lesa. Það gengur ofurlítið stirt fyrst í
stað. En hvað um það, hugsar Pétur með
sér. Þolinmæðin þrautir vinnur allar. Afi
hefir setið og hlustað á bornin og skemmt
sér ágætlega. Hann hrósar Pétri fyrir
dugnaðinn og býður honum til kvöld-
verðar.
149. Fannkyngið hefir verið svo mikið,
að Heiða hefir ekki komizt upp eftir tíl
ömmu í þrjár vikur. Hún vinnur af því
meira kappi að því að kenna Pétri. Kvöld
nokkurt er Pétur kemur heim, hrópar
hann: „Nú get ég það!“ „Hvað getur
þú?“ spyr móðir hans. „Lesið,“ segir Pét-
ur stoltur. „Er það virkilega? Heyrir þú,
hvað hann segir, amma?" Móðir Péturs
slær á lær sér af undrun. „Heiða sagði,
að ég ætti að lesa sólma fyrir þig, amma,“
segir Pétur, og hann byrjar að lesa reip-
rennandi, en móðir hans og amma hlusta
undrandi á hann. Móðir Péturs er inni-
lega glöð.
150. Næsta dag var lestrarpróf í bekk
Péturs. Þegar röðin kemur að Pétri, segir
kennarinn: „Eigum við að hlaupa yfir
þig eins og venjulega, Pétur? Eða eigum
við að reyna einu sinni ennþá? Það hefir
alltaf gengið mjög illa, en það er bezt,
að þú reynir að stauta eina línu eða svo.“
Pétur gengur upp að kennaraborðinu og
byrjar að lesa. Hann les margar línur
reiprennandi án þess að lesa svo mikið
sem eitt orð skakkt. „Hvað hefir komið
fyrir, Pétur?“ spyr kennarinn. — „Heiða“,
svarar Pétur aðeins. Kennarinn horfir á
Heiðu, sem situr grafkyrr, eins og ekkert
hafi í skorizt.
FERDIIMAIMH
Kærkoininn aldrei þessu vant
8/4—15/5. — Staðgengill: Tóma»
A. Jónasson, Hverfisgötu 50. —•
Viðtalstími kl. 1—2. Sími: 15730.
Söfn
Náttúrugripasnfniði — Opið á
sunnudögum kl. 13,30—15 þriðju-
dogum og fimmtudögum kl. 14—18
Listasafn Einars Jónssonar, Hnit
björgum er opið kl. 1,30—3,30 k
sunnudögum og miðvikudögum.
Þjóðminjasafnið er opið sunnu-
daga kl. 1—4, þriðjudaga, fimmta
daga og laugardaga kl. 1—3.
Bæjarbókasafn Rnykjavíkur,
Þingholtsstræti 29A, sími 12308.
ÍTtlán opið virka dags kl. 2—10,
laugardaga 2—7. Lesstofa opin
kl. 10—12 og 1—10, laugardaga
10—12 og 1—7.. Sunnudaga, útlán
opið kl. 5—7. Lesstofan kL 2—7.
ÍJtibú, Hólmgarði 34, opið mánu-
daga kl 5—7 e.h. (f. börn); 5—9
(f. fullorðna). Þriðjudagu, mið-
vikudaga, fimmtudaga og föstud.
kl. 6—7. — Hofsvallagötu 16,, op-
ið virka d .ga nema laugardaga,
kl. 6—7. — Efstasundi 26, opið
mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga kl. 5—7.
Listasain ríkisins. Opið þriðju-
daga, fimmtudaga, laugardaga
;kl. 1—3 og sunnudaga kl. 1—4.
Hvað kostar undir bréfin.
1—20 grömm.
Sjópóstur til útlanda ..... 1,75
Innanbæj ar .............. 1,50
XJt á land................ 1,75
Evrúpa — Flugpóstur:
Danmörk 2,55
Noregux .......... 2,55
SvíþjóS 2,55
Finniand ........ 3,00
Þýzkaland 3,00
Bretland 2,45
Frakkland ....... 3,00
írland 2,65
Spánn 3,25
ítalia 3,25
Luxemburg ....... 3,00
Maita 3,25
Hoiland 3,00
Fóliand 3,25
Portugai 3,50
Rúmema ......... 3,25
Sviss 3,00
Búigaria 3,25
Belgía 3,00
Júgósiavía ....... 3.25
Tékkóslóvakía .... 3.00 •
Fræðslufundur
um garðvrkjumál
GARÐYRKJUFÉLAG ISLANDS
hélt nýlega fræðslufund . um
garðyrkjumál (í Tjarnarcafé í
Reykjavík).
Formaður Jón H. Björnsson
skýrði fyrst frá starfsemi félags-
ins, en það hefur s. 1. ár m. a.
gengist fyrir 11 útvarpsfyrir-
lestrum um garðyrkju, gefið út
garðyrkjuritið og unnið að því
að komið verði á stofn grasgarði
í Reykjavík. í vor mun koma út
matjurtabók.
Hafliði Jónsson, garðyrkju-
stjóri Reykjavíkur, flutti erindi
um sklpulag og ræktun lóða 1
kaupstöðum. Taldi hann fulla
þörf á því að settar yrðu reglur
um lóðirnar og staðsetningu hús-
anna á þeim um leið og götur
og húsahverfi eru skipulögð.
Síðan sýndi Hafliði líkan af
húsi og lóð í smáíbúðahverfinu
í Reykjavík og rabbaði við fund-
armenn um skipulag og ræktun
slíkrar lóðar. Komu fram mörg
sjónarrrúð bæði leikra og lærðra
garðyrkjumanna, enda er smekk-
ur manna að sjálfsögðu misjafn.
Paul Michelsen í Hveragerði
sýndi allmörg pottablóm og
kenndi verklega hvernig gróður-
setja skyldi og hafa pottaskipti
o. s. frv.
Hann lýsti ennfremur hentug-
um jarðvegsblöndum handa inni
jurtum, áburði, vökvun o. fl.
Mun P. Michelsen eiga mikið úr-
val pottablóma. Fundurinn var
fjölsóttur og mun félagið ætla
sér að halda fleiri fræðslufundi
um garðyrkjumál. Öllum er
heimill ókeypis aðgangur.
Kunnáttumenn 1 garðyrkju
munu jafnan vera á fundunum
og svara fyrirspurnum.