Morgunblaðið - 22.04.1958, Blaðsíða 10
10
MORCl’NTiL 4 ÐIÐ
Þriðjudagur 22. april 195fe
WgplStlMáfrtft
tTtg.: H.í. Arvakur, Reykjavllc.
Framkvæindastjóri: Sigfus Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045
Augiýsmgar: Arni Garðar Kristmsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Simi 22480
Asknftargjalo kr. 30.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. i.50 eintakið.
EFNAHAGSMÁLIN OG VIÐTALIÐ
VIÐ FORSÆTISRÁÐHERRANN
I'X INS og kunnugt er, gafst
| ríkisstjórnin upp við það
■Á að koma fram með tillög-
ur í efnahagsmálunum, þegar
fjárlagafrumvarpið var lagt fram
í byrjun þingsins. Þá lagði Ey-
steinn Jónsson fjármálaráðherra
frumvarpið fram með miklum
tekjuhalla og lét svo um mælt,
að það væri ekki á sínu færi að
ganga frá fjárlögunum í öðru
formi og yrði nú að koma til
kasta Alþingis að leysa þetta
vandamál og afgreiða fjárlögin á
fullnægjandi hátt. Fjármálaráð-
herrann hafði vitaskuld haft ríf-
legan tíma til undirbúnings fjár-
lögunum, svo sem venjulegt er,
og haft til þess öll þau meðul,
sem fjármálaráðherrann og ríkis-
stjórnin ræður yfir til að gera þau
úr garði á fullkominn hátt. En
þetta verkefni reyndist honum
ofvaxið og þar af leiðandi lagði
hann frumvarpið fram í því
formi, sem hann gerði og vísaði
til Alþingis um að bæta þar um,
sem hann sjálfur ekki gat lokið.
★
En svo sem raunar vænta mátti
gáfust stjórnarflokkarnir á Al-
þingi einnig upp við að leysa
þetta mál. Þeir fundu engar leið-
ir til þess að afgreiða efnahags-
málin og niðurstaðan varð því
sú, að þau voru einfaldlega tekin
út úr fjárlagafrumvarpinu og
fjárlögin aðeins afgreidd að hluta,
en efnahagsmálunum, viðkvæm-
ustu málunum, skotið á frest til
síðari tíma.
Úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar
og flokka hennar varð nú svo
augljóst, sem verða mátti. Eftir
þessa uppgjöf fjármálaráðherr-
ans og stjórnarflokkanna á Al-
þingi, liðu margir mánuðir, án
þess að nokkuð gerðist í þessum
þýðingarmiklu málum og hefur
allt rekið á reiðanum um þau.
Ríkisstjórnin hefur hvatt sér-
fræðinga sér til ráðuneytis, sem
Tíminn segir á sunnudag, að
unnið hafi látlaust að þessum
málum um langan tíma og ber
forsætisráðherrann sjálfan fyrir
þeirri umsögn. Þessir sérfræðing-
ar hafa gert ýmsar athuganir og
rannsóknir og gert tillögur í efna-
hagsmálunum, sem ríkisstjórnin
og flokkar hennar hafa fengið til
meðferðar. En enda þótt álit og
útreikningar sérfróðra manna
hafi legið fyrir, er ljóst, að
stjórnarflokkarnir hafa ekki
komið sér saman um lausn mál-
anna og við það situr enn.
Er almenningur farinn að ger-
ast mjög óþolinmóður út af
þessum málum, enda hefur vegna
þessa langa dráttar skapazt mikil
óvissa bæði hjá einstaklingum,
fyrirtækjum og opinberum aðil-
um. Nægir í því sambandi að
benda á, að Reykjavíkurbær hef-
ur enn ekki getað afgreitt fjár-
hagsáætlun sína fyrir yfirstand-
andi ár, vegna þess að beðið hef-
ur verið eftir hinum nýju ráð-
stöfunum ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum, en á þeim velt-
ur auðvitað mjög mikið, hvernig
fer um fjárhag Reykjavíkur, hins
stærsta, opinbera aðila í landinu
utan ríkisins sjálfs.
★
f Tímanum á sunnudag er birt
stutt viðtal við Hermann Jónas-
son, forsætisráðherra, og er þar
haft eftir ráðherranum að ekki
sé „ósennilegt", að frumvarp um
nauðsynlegar ráðstafanir í efna-
hagsmálunum muni lagt fyrir Al-
þingi í yfirstandandi viku, eins
og það er orðað í Tímanum. Seg-
ir ráðherrann, að unnið hafi ver-
ið látlaust að þessum málum nú
um langan tíma og fram hafi
farið „ítarleg athugun á öllu fjár-
málakerfinu“, undir forystu sér-
fræðinga, en þar hafi Jónas
Haralds hagfræðingur, verið odd-
viti. Þessir sérfræðingar hafi svo
lagt skýrslu fyrir ríkisstjórnina
og nú liggi ljóst fyrir, hvernig
ástandið er, og eínnig hitt, hver
áhrif einstakar aðgerðir hafi.
Það liggi nú fyrir að ríkis-
stjórnin og stuðningsflokkar
hennar og Alþingi velji þær leið-
ir, sem séu heppilegastar. Er ljóst
af þessu viðtali, að forsætisráð-
herrann er að afsaka þann drátt,
sem orðið hefur á að leggja fram
tillögurnar í efnahagsmálunum,
með því að staðið hafi á útreikn-
ingi og tillögum sérfræðinganna.
í þessu felst ótvíræð játning
þess að ekki hafi verið á annarra
færi en rikisstjórnarinnar, að
bera fram tillögur í þessum mál-
um, að fengnum útreikningum og
áliti sérfræðinga. Það er fyrst,
þegar það efni er fengið, sem það
liggur „ljóst fyrir, hvernig ástand
ið er og hver áhrif einstaka að-
gerðir til leiðréttingar og úrbóta,
kynnu að hafa“, eins og Tíminn
hefur eftir forsætisráðherranum.
Fer þá að verða lítið úr upp-
hrópununum út af því að stjórn-
arandstaðan hefði átt að koma
fram með slíkar tillögur. Stjórn-
arandstaðan hefur engan aðgang
að tillögum og útreikningum sér-
fræðinganna og því var fýrir
löngu lýst yfir af ríkisstjórninni
og flokkum hennar, að Sjálf-
stæðismenn skyldu gerðir full-
komulega áhrifalausir í efnahags-
málunum. Sést af öllu þessu,
hversu fráleitt það er að gera
kröfu til Sjálfstæðisflokksins um
að hann gangi fram fyrir skjöldu
um að gera tillögur í efnahags-
málunum þegar hann fær engan
aðgang að þeim athugunum og
tillögum, sem forsætisráðherrann
sjálfur lýsir yfir að séu nauðsyn-
legar til að átta sig á málunum
og þegar því er svo lýst yfir alveg
sérstaklega fyrirfram, að hálfu
stjórnarflokkanna, að þeir vilji
útiloka öll áhrif Sjálfstæðis-
manna á lausn efnahagsmála.
★
Uppgjöf stjórnarflokkanna í
efnahagsmálunum var ljós, þeg-
ar Eysteinn Jónsson lagði fram
fjárlagafrumvarp sitt í haust.
Alla þá mánuði, sem síðan eru
liðnir, héfur staðið látlaust þóf
um þetta mál bak við tjöldin,
en þingið setið aðgerðarlaust. í
þessu sambandi er nauðsynlegt
að menn geri sér ljóst, að það
hefur alls ekki fyrst og fremst
staðið á því, að stjórnarflokk-
arnir kæmu sér saman innbyrðis,
heldur hafa þessir flokkar verið
algjörlega ráðalausir um hvað
gera skyldi. Þetta ráðaleysi stjórn
arflokkanna er meginástæðan til
þess dráttar, óvissu og glundroða,
sem ríkt hefur í efnahagsmál-
unum um langan tíma.
ÖR HEIMI
1
y
Gamla Grænland og hið nýja
Um þessar mundir dvelst hér
ó landi ungur, grænlenzkur pilt-
ur, Leif Jensen að nafni. Er hann
hingað kominn til að læra ís-
lenzku og stundar nám við Há-
skóla íslands. Hann hefir nú
dvalizt hér í tæpa tvo mánuði og
hyggst vera hér um kyrrt a.m.k.
eitt ár. Leif Jensen er fæddur í
Umanaq á Grænlandi, og er fólk
hans búsett þar. En Leif er
kominn af dönskum, íslenzkum
og grænlenzkum ættum, og var
afi hans Þorfinnur Hjaltason frá
Akureyri. Leif hefir lagt stund
á tæknifræði í Kaupmannahöfn
og einnig í Kiel í Þýzkalandi.
Hefir hann áður ritað smágrein
í Mbl. um bjarndýraveiðar á
Grænlandi, og hér fer á eftir hug
leiðing um breytta lifnaðarhætti
Grænlendinga:
Fyrir tæpum tíu árum var
mjög strjálbýlt á Grænlandi, Á
vesturströndinni voru t.d. rúm-
lega 200 smáþorp, og í mjög fá-
um þeirra voru yfir 100 íbúar.
íbúarnir lifðu aðallega á sel-
og rostungaveiðum, og slíkar til vinnslustöðvanna. Áður höfðu
veiðar eru arðbærastar í strjál- menn eingöngu lifað á því sem
býli. En í lok ársins 1940 fækk- þeir öfluðu, en nú tóku menn að
aði selum og rostungum töluvert, I leggja sér til munns búðarfæðu
-- -"'m&rf/
★ ★ ★
Nú eru menn
ekki lengur
frjálsir að því að
fara á veiðar,
þegar þeim býð-
ur svo við að
horfa ......
★ ★ ★
og menn tóku að snúa sér æ
meira að fiskiveiðum. Ríkið
reisti niðursuðuverksmiðjur á
nokkrum stöðum og var þar unn-
ið úr aflanum.
Nú var strjálbýlið ekki lengur
eftirsóknarvert, og hafði þar að
auki þann ókost í för með sér að
flytja varð aflann um langan veg
svo sem brauð, grjón, kartöflur
og annað slíkt, sem menn höfðu
ekki áður neytt. Fæðan var
áður eingöngu fugla- og sela-
kjöt, sem matbúið var á marg-
víslegan hátt. Fjöldi smáverzl-
unarfélaga höfðu verið sett á
stofn í hinum ýmsu þorpum, en
þau voru rekin með halla vegna
kostnaðarsamra flutninga um
langan veg.
BREZKA blaðið The Star skýíði
nýlega frá því, er listakonan
Nína Tryggvadóttir opnaði sýn-
ingu í The Institute of Contem-
porary Arts í Mayfair. Á sýn-
ingunni eru aðallega svo kallað-
ar klippmyndir. Sýninguna opn-
aði dr. Kristinn Guðmundsson,
sendiherra íslands í Lundúnum.
Blaðið segir, að Nína hafi feng-
izt við að gera klippmyndir í 15
ár, allt síðan hún fékk styrk frá
íslenzka ríkinu til að komast til
Bandaríkjanna, en þar kynntist
hún manni sínum dr. Alfred
Copley, sem á virkum dögum er
yfirmaður rannsóknardeildar lyf
lækningadeildar Charing Cross
sjúkrahússins, en á helgidögum
er hann listmálari. Listamanns-
nafn hans er Alcopley. Bæði
mála hjónin abstrakt.
Segir brezki blaðamaðurinn,
sem tal átti við Nínu, að hún
hafi sagt, að list sín væri samt
„mjög nátengd náttúrunni". Því
til sönnunar hafi hún sýnt mynd-
ir af hrikalegu landslagi á ís-
landi.
Ík
Grænlandsmálastjórnin skip-
aði því árið 1951 nefnd, er athuga
skyldi möguleika á auknu þétt-
býli. Með því að flytja íbúana úr
nokkrum litlu þorpanna til kaup-
staðanna, sem risið höfðu um-
hverfis verksmiðjurnar, var bú-
izt við, að skapast myndu betri
aðstæður fyrir bæði fiskveiðar
og verzlun. í héraðinu umhverf-
is Julianehaab voru íbúarnir t.d.
fluttir frá fjórum smáþorpum til
Julianehaab og Narssak.
Ekki varð betur séð, en þetta
fólk lifði nú við betri lífskjör.
En samt var það ekki hamingju
samt — það hafði orðið að skipta
á frjálsu lífi úti í náttúrunni og
reglubundnu borgarlífi. í stað-
inn fyrir að búa í litlum hlýleg-
um torfbæjum, bjó það nú í stór
um, nýtízkulegum, köldum hús-
um. Þessir menn voru ekki leng-
ur frjálsir að því að fara á veið-
ar, þegar þeim bauð svo við að
horfa, heldur urðu þeir nú að
vinna 8 klukkustundir á dag í
verksmiðjum. Þeir minnast með
söknuði þeirra daga, er þeir voru
frjálsir og hamingjusamir. Oft
tala þeir með tárin í augunum
um fjöllin heima, nútíðin hverf-
ur þeim og þeir sökkva sér niður
í minningar um ánægjulegri
stundir, þegar æðarfugla á flugi
ber við himin úti í fjarðarmynn-
inu.
Þegar þetta fólk verður á vegi
manns, vaknar ósjálfrátt sú
spurning: Hvort skyldi vera
betra að vera óhamingjusamur
maður, bundinn í báða skó, en
búa við góð lífskjör eða vera
frjáls og hamingjusamur og búa
við léleg lífskjör. Skyldi hið síð-
ara ekki vera eftirsóknarverð-
ara?
Leif Jensen.
Þriggja Araba
leitað
ADEN 19. apríl. — Brezkar her-
sveitir í Aden leita nú þriggja
Araba, sem kærðir eru fyrir að
hafa haft samband við „erlend
stórveldi". Tvö brezk herskip eru
komin til Aden.