Morgunblaðið - 22.04.1958, Blaðsíða 20
V EÐRIÐ
AUhvass eða hvass SV, skúrir og
síðar haglél, hiti 3—4°
or0vmií)tn
91. tbl. — Þriðjudagur 22. apríl 1958
Eysfrasaif friðarins
Sjá grein á bls. 11.
Tillögurnar 1 efnaKagsmálum:
Forsætisráðherra afsakar dráttinn
með því, að staðið hafi á athugun-
um og útreikningum sérfræðinga
//
játar hér raunverulega, hversu
fráleitt það sé að gera kröfur á
hendur Sjálfstæðisflokknium um
að koma fram með tillögur í efna-
hagsmálunum. Forsætisráðherr-
ann segir að til þess að unnt sé
að leggja fram slíka tillögu þurfi
í fyrsta lagi „ýtarlega athugun
á öllu fjárhagskerfinu", í öðru
lagi „skýrslur“ um málið frá
sérfræðingunum og þar á eftir
komi svo sjálfar tillögurnar.
Nú hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn engan aðgang að rannsókn
eða skýrslu sérfræðinganna. Það
efni hefur allt verið til athugun-
ar og ráðstöfunar fyrir stjórnar-
flokkana og ríkisstjórnina eina.
Ríkisstjórnin hefmr með þessu
Ekki ósennilegt" oð frumvarp verði
lagt fram i jbessari viku
Á SUNNUDAGINN birti Tíminn viðtal við Hermann Jónasson, for-
sætisráðherra, þar sem hann gerir tilraun til að afsaka þann drátt
sem orðið hafi á þvi að leggja fram tillögur í efnahagsmálunum og
er nú skuldinni skellt á sérfræðinga þá, sem unnið hafi á vegum
ríkisstjórnarinnar, að þessum málum. Segir forsætisráðherrann, að
ekki hafi verið unnt að gera sér grein fyrir því hvað gera skyldi
fyrr en þessar tillögur lægju fyrir, en nú þegar þær séu fengnar
sé „ekki ósennilegt“ að fnumvarp komi bráðlega fram.
Viðtalið við Hermann Jónasson
í Tímanum á sunnudaginn seg-
ir svo:
„Unnið er nú að því að semja
frumvarp um nauðsynlegar ráð-
stafanir í efnahagsmálum og er
ekki ósennilegt að það verði lagt
fyrir Alþingi í næstu viku. Her-
mann Jónasson, forsætisráðherra,
skýrði Tímanum frá þessu í gær,
er blaðið leitaði frétta hjá honum
af samningaviðræðum stjórnar-
flokkanna.
Það hefur verið unnið látlaust
að þessum málum núna um lang-
an tíma, sagði forsætisráðherra,
og er öllum landsmönnum það
kunnugt. Fram hefur farið mjög
ýtarleg athugun á öllu fjárhags-
kerfinu. Sérfræðingar undir for-
ustu Jónasar Haralz hagfræðings
hafa fjallað um þá rannsókn og
lagt skýrslu fyrir ríkisstjórnina.
Má segja, að nú liggi alveg ljóst
fyrir, hvernig ástandið er, svo og,
hver áhrif einstakar aðgerðir til
leiðréttingar og úrbóta koma til
með að hafa. Þá er það ríkis-
stjórnarinnar, stuðningsflokka
hennar og loks Alþingis í heild
að velja þær leiðir, sem heppi-
legastar eru og færar eru tald-
ar“.
Er ljóst, að forsætisráðherrann
Carmen óbaft
iagnað
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís-
lands flutti í gær óperuna Car-
men eftir Bizet í Austurbæjar-
bíói. Hljómsveitarstjóri var Wil-
helm Briickner-Ruggeberg, en
meðal flytjenda óperxmnar voru
ameríska söngkonan Gloria Lane
og Stefán íslandi. Þjóðleikhús-
kórinn aðstoðaði við flutninginn.
Hvert sæti i húsinu var skipað og
▼ar hljómsveit og söngfólki
ákaft fagnað. Voru söngvararnir
margkallaðir fram að hljómleik-
unum loknum. — Þau Gloria
Lane og Stefán íslandi voru sér-
staklega hylit.
skapað sér einkaaðstöðu til þess
að bera fram sundurliðaðar til-
lögur um málið og er því vita-
skuld fráleitt að krefjast þess af
öðrum, sem enga slíka aðstöðu
hafa, að þeir gangi fram fyrir
skjöldu um að gera tillögur.
Þess er svo að minnast að í
upphafi lofaði ríkisstjórnin því,
að „úttekt á þjóðarbúinu" skyldi
fara fram „fyrir opnum tjöldum",
eins og það var orðað. Þetta lof-
orð sitt hefur ríkisstjórnin þver-
brotið eins og öll hin. Ferill ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálun-
um er óslitinn ferill glundroða
og ráðaleysis og er nánar vikið
að þeim málum í forystiugrein
inni í blaðinu í dag.
Fiskbíllinn við hliðina á mb. Hilmi. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Bryggja brotnaði undan iiskbíl
UM klukkan 6 í gærkvöldi brotn-
aði Loftsbryggja hér í Reykja-
víkurhöfn undan fiskflutninga-
bíl. Hafði bílnum skömmu áður
/9 manna nefndin hefur
ekki verið kölluð saman
EINS og frá er skýrt á öðrum
stað í blaðinu í dag birtist við-
tal við Hermann Jónasson for-
sætisráðherra í Tímanum á
sunnudaginn, og er þar rætt um
undirbúning lagafrumvarps um
ráðstafanir í efnahagsmálum. í
Hörmulegt slys á Vatns-
leysusfrönd í gœrkvöldi
SEINT í gærkvöldi bárust blað-
inu fregnir sunnan af Vatnsleysu
strönd af hörmulegum atburði,
sem þar hafði orðið um kl. 8,30,
er átta ára drengur, Steinþór
Aðalsteinsson að nafni, drukknaði
kippkorn frá landi.
Steinþór litli hafði ásamt öðr-
um dreng, 11 ára, verið að leika
sér niðri í fjörunni skammt sunn
an við bæinn Halakot í Brunna-
staðahverfi. Eldri drengurinn
kom heim til foreldra Steinþórs,
Aðalsteins Sigursteinssonar og
konu hans Sigríðar Kristjánsdótt-
ur í Suðurkoti, og sagði þeim, að
Steinþór væri ósjálfbjarga á
pramma. Sjálfur hafði þessi leik-
félagi Steinþórs komizt af pramm
Framfærsluvísitalan
hækkar um 1 stig
KAUPLAGSNEFND hefur reikn-
að út vísitölu framfærslukostn-
aðar í Reykjavík hinn 1. april
sl. Reyndist hún vera 192 stig,
og hefur því hækkað um 1 stig
frá því sem var hinn 1. marz sl.
Um 36.600 farþegar milli landa
ÚTLENDINGAEFTIRLITIÐ ger-
ir skýrslu um farþegaflutninga til
landsins og frá því. Hagstofan
hefur tekið saman yfirlit yfir
árin 1954—1957 eftir skýrsium
þessum, og birtist það í síðasta
blaði Hagtíðinda.
Þar kemur fram, að ferðalög
útlendinga hingað til landsins
jukust að mun árið 1955, en hafa
ekki aukizt síðan. S.l. ár hafa
rúmlega 9000 erlendir menn kom-
ið hingað árlega.
Utanferðum Islendinga fór
einnig fjölgandi árin 1955 og
1956, en aukningin varð miklu
minni í fyrra. Voru íslenzkir
langferðamenn þá nokkrum
hundruðum færri en erlendir
menn, sem hingað komu. Ails
komu 18.137 farþegar til íslands
1957, en 18.489 farþegar fóru til
útlanda.
Af útlendingum, sem hingað
komu, eru Danir og Færeyingar
fjölmennastir (rúml. 3000 í fyrra)
en næstir í röðinni eru Banda-
ríkjamenn (milli 2400 og 2500).
Bretar (nokkuð innan við 1000)
og Þjóðverjar (tæpl. 800). z
anum, er hann bar frá landi. Að-
alsteinn, faðir Steinþórs litla, brá
skjótt við ásamt tveimur öðrum
mönnum. Þegar þeir komu niður
í fjöruna, en skammt er þangað
frá Suðurkoti, sáu þeir dreng-
inn á prammanum, og var hann
þá ekki langt frá landi. Bar
prammann norður með strönd-
inni fyrir vindi, en allhvasst var.
Er faðir Steinþórs stóð í fjör-
unni með mönnunum tveimur,
sáu þeir, hvar drengurinn, sem
átti að hefja sundnám nú í vor,
kastaði sér út af prammanum.
Aðalsteinn og menn hans settu
fram bát í skyndi, en drengurinn
var horfinn, er þeir komu út á
sjóinn.
í allt gærkvöld var drengsins
leitað, og fannst lík hans seint um
kvöldið. Læknir var á staðnum
með súrefnistæki, en lífgunartil-
raunir voru árangurslausar.
Steinþór litli var eitt af 7
systkinum í Suðurkoti.
Oddsskarðsvegur
NESKAUPSTAÐ, 21. apríl. —
Oddsskarðsvegur hefir verið
ruddur og fóru fyrstu bílarnir yf-
ir skarðið á þessu vori, í gærdag.
Er það með allra fyrsta móti,
sem vegurinn er ruddur. Fyrst
um sinn er umferð um veginn
bönnuð öðrum bílum en jeppum.
— Fréttaritari.
Tímanum er m.a. haft eftir for-
sætisráðherra:
„Ýtarlegar viðræður um þessi
mál hafa farið fram í milli stjórn
arflokkanna á þingi og verið er
að kanna viðhorf alþýðusamtak-
anna til einstakra atriða".
Morgunblaðið sneri sér í gær-
kvöldi til Eðvarös Sigurðssonar,
vara-forseta Alþýðusambands ís-
Iands, og spurði hann, hvort
efnahagsmálanefnd sambandsins,
„19 manna nefndin" svonefnda,
er kosin var á síðasta sambands-
þingi, hefði verið kölluð saman
til fundar. Eðvarð sagði, að það
hefði ekki verið gert.
verið ekið niður bryggjuna að
m.b. Hilmi, sem nýkominn var
úr róðri, en bíllinn skyldi flytja
fiskinn frá bátnum.
Skipsmenn voru að ferma bíl-
inn og var hann nokkuð hlaðinn
orðinn, er bryggjan brast skyndi
lega undan hægra afturhjólinu.
Nokkru síðar var gerð tilraun
til þess að bjarga bílnum undan
sjó, þar sem var að falla að. Sú
tilraun mistókst og töldu menn
að bíllinn hefði við það skemmzt,
„hásingin" hafði slitnað frá öðr-
um megin. Varð því að bíða þess
að aftur fjaraði. Fór vél bílsins
á kaf í sjó á háflóðinu í gær-
kveldi.
Nokkru af fiskinum, sem kom-
inn var á bílinn skolaði út í höfn
ina, er sjór féll yfir pall hans.
Ekki var vitað, hve leyfilegt var
að fara með mikinn þunga eftir
hinni gömlu Loftsbryggju. Bíll-
inn er eign SÍS.
Bátar, sem hafa löndunarpláss
við Loftsbryggju urðu í gær að
leita að öðrum bryggjum til lönd-
unar.
Kópavogur
SJALFSTÆÐIOFÉLoGIN í
Kópavogi efna til skemmtunar
í kvöld í Oddfellow.
Sœnska bókasýningin
opnuð síðastliðinn laug-
ardag í Bogasalnum
SÆNSKA bókasýningin var opn| mann Stolpe, forstjóri K.F.s. för-
uð í Bogasal Þjóðminjasafnsins i lag, ávörp. Að lokum talaði
kl. 2 e. h. sl. laugardag. Við opn-
ina flutti sendiherra Svía á ís-
landi, Sten von Euler-Chelpin
ávarp og lýsti sýninguna opnaða.
Menntamálaráðherra Gylfi Þ.
Gíslason þakkaði þeim, er geng-
izt höfðu fyrir opnun sýningar
þessarar. Síðan fluttu þeir Sven
Rinman, bókavörður og Her-
Úrslit hraðskák-
mótsins í kvöld
UNDANRÁSIR í hraðskákmóti
íslands voru tefldar á föstudag-
inn. Var teflt í 5 riðlum og kom-
ust þrír menn í úrslit úr hverj-
um riðli. Þeir eru:
A riðill: Jón Kristjánsson, Hail
dór Jónsson, Guðmundur Gísla-
son.
B-riðill: Ólafur Magnússon,
Jón Pálsson, Stefán Briem.
C-riðill: Sveinn Kristinsson,
Benóný Benediktsson, Jónas Þor-
valdsson.
D-riðill: Ingi R. Jóhannsson,
Gunnar Ólafsson, Eggert Gilfer.
E-riðill: Sigurgeir Gíslason,
Lárus Johnsen, Júlíus Lofsson.
Teflt verður til úrslita í kvöld
í Sjómannaskólanum kl. 8.
sænski rithöfundurinn Eyvind
Johnson. Benti hann m. a. á, að
sænskar bókmenntir hefðu orðið
fyrir hollum áhrifum af íslenzk-
um skáldskap og bókmenntum.
Viðstaddir opnun sýningarinn-
ar voru fimm sænskir gestir:
Eyvind Johnson, Sven Rinman,
Hermann Stolpe, Áke Runnquist,
ritstjóri BLM, og Greta Helms,
sölustjóri hjá Bonniers förlag. —
Forsetahjónin voru viðstödd opn-
unina.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í fréttum, er sýning þessi hald
in að tilhlutan Svenska Bokför-
laggareföreningen, ísafoidarprent
smiðju hf. og Bókaútgáfunnar
Norðra.
Bolungarvíkurbátar
hefja veiðar
með þorskanef
BOLUNGARVÍK, 21. apríl. —
Tveir bátanna hér, Þorlákur og
Einar Hálfdáns, hafa nú hætt
línuveiðum og hafið veiðar með
þorskanetum. Munu bátarnir
fyrst reyna fyrir sér hér fyrir
utan. Verði aflinn tregur, er
sennilegt, að bátarnir leiti suður
á bóginn. —Fréttaritari.