Morgunblaðið - 27.04.1958, Side 3

Morgunblaðið - 27.04.1958, Side 3
Sunnudagur 27. apríl 1958 MORGVNBLAÐ1Ð 3 Ú r v( ------------- Eftir Einar Xogararnir Um síðastliðna helgi gerði vestanstorm, og voru þá tafir frá veiðum hjá togurunum. Á þriðju- dag gerði svo suðaustanbraelu, sem spillti veiðinni. Annars var gott fiskiveður í vikunni, sem leið. Öll skip eru nú farin af Sel- vogsbanka og hafa nú leitað vest- ur á bóginn. Flest munu nú vera á Eldeyjarbanka, en nokkur fyr- ir vesjan land og enn önnur á Jónsmiðum við Austur-Græn- Xand. Síðustu skipin, sem komu af Selvogsbankanum, Neptúnus og Marz, komu með góðan afla, meðalafli á dag var t. d. 33 lest- ir hjá Neptúnusi. Skip á Eldeyjarbanka hafa verið að afla vel, og sama er að segja um skip fyrir vestan, þar var ágætur afli framan af vik- unni. * Á Jónsmiðum hefur verið mjög góður karfaafli. Bæjarútgerðarskipin er nú flest verið að búa út á veiðar við Vestur-Grænland. Hefur heyrzt, að ein 6 skip eigi að fara þang- að og veiða í salt. Fisklandanir s .1. viku: Þorkell Máni .. 128 t. 20 daga saltfiskur .... 125 - Pétur Halldórss. 50 - 13 — saltfiskur .... 129 . Skúli Magnúss. . 5 - 11 — saltfiskur .... 115 Ing. Arnarss 25 - 13 — saltfiskur .... 139 - Jón Þorláksson .. 164 - 6 — Marz 315 - 11 — Neptunus 325 - 10 — Egill Skallagr. .. 261 - 8 — Hallv. Fróðad. .. 257 - 13 — Geir 257 - 10 — Jón Forseti .... 263 - 13 — Reykjavík • Tíð var stirð fyrri hluta sið- ustu viku. Netabátarnir héldu sig á óvenjulegum slóðum, inni í Kollafirði í svonefndri Blá- klakksbrún og inn um fjörðinn. Var þarna reytingsafli, frá 3 og upp í 12 lestir í umvitjun. En nú er farið að draga úr aflan- um þarna og hann kominn niður í 2—3 lestir. Eru nú bátarnir að færa sig aftur utar í bugtina. Nokkrir af stærri bátunum hafa haldið sig á Grunnköntun- um, sem eru um miðja bugtina. Hafa þeir verið að fá þar 8—20 lestir eftir nóttina. Einn bátur hefur þó skorið sig úr með afla þarna, ér það Helga. Hefur hún fengið 8—40 lestir í umvitjun og dag eftir dag við 25 lestir. Útilegubátar eru við Jökulinn, og eru þeir að afla þar sæmi- lega. Færabátar eru þó nokkrir byrj- aðir, og hefur afli farið vaxandi og komizt stundum upp í 1 lest á færi yfir daginn. Ógæftir hafa þó bagað þessar veíðar. Akranes Framan af vikunni var sæmi- legur afli, en eftir því sem á vikuna leið, smádró úr honum. Algengasti afli fyrri hluta vik- unnar var 10—20 lestir, en er nú vart meira en 5—10 lestir. Trillubátar eru nokkrir byrj- aðir með handfæri. Hafa þeir fengið 500—2000 kg. yfir daginn. Er aflinn mjög smár. Síldveiðin hefur gengið mjög báglega, marga dagana ekki sízt síld. Einn daginn í vikunni komst þó aflinn upp í 60 tn. Keflavík Fyrstu 2 daga vikunnar var að mesiu landlega. Eftir það var sæmilegt sjóveðúr, þó ekki gott. Hjá línubátum var algengasti afli 6—7 lestir, en gat hrokkið upp í 12 lestir. Eftir landleguna fyrri hluta vikunnar var fyrst talsverður srinu Sigurðsson ---------------- afli í net, yfirleitt 15—20 lestir, en síðan farið var að vitja um daglega, hefur aflinn verið mjög rýr, 2—5 lestir í róðri. Fyrri hluta vikunnar öfluðu handfærabátar vel, þegar gaf á sjó, og komst aflinn upp í 11 lestir á skip með 5—6 mönnum, en síðari hluta vikunnar hefur verið mjög lélegt hjá þeim. 3 bátar eru byrjaðir með rek- net, og hefur verið bezt hjá þeim 80 tn. í lögn. Var það Vonin, sem fékk þann afla. Annars er veiðin léleg, og spilla stirðar gæftir. V estmannaey jar Róið var alla síðustu viku nema á þriðjudaginn, þá voru fáir á sjó vegna suðvestanstorms. Afli var misjafn hjá netabát- um, yfirleitt ágætur hjá þeim, sem voru á Heimabankanum. Þeir bátar, sem voru með net sín austur í Meðallandsbugt, fengu lítinn afla. Hjá handfærabátum hefur afli enn ekki glæðzt, og er vertíðin hjá þeim rýr. Eru sjómenn bjartsýnir á, að enn eigi talsverður afli eftir að koma á land, ef veður ekki spill- ist. Er útlit fyrir, að þessi vertíð verði allgóð, hvað aflamagn snert ir, en veiðarfæratjón verði með mesta móti. Frystihúsin fjögur eru nú að verða full og eiga nú ekki eftir rúm í frystiklefum nema fyrir sem svarar 3—4 daga frystingu. Sama er að segja um lýsisverk- smiðjuna, geymar hennar eru að fyllast og ekki rúm nema fyrir nokkurra daga vinnslu enn. Ekk- ert lýsi hefur enn verið selt. Lifrarsamlag Vestmannaeyja hafði tekið á móti: 24. apríl 1958 3067 1. lifur 24. apríl 1957 2905 1. lifúr 10 aflahæstu bátarnir frá ára- mótum og fram að deginum í gær: Gullborg .1118 t. Ófeigúr III. ... ,. 959 - Freyja . 878 - Stígandi . 859 - Sigurður Pétur . . 832 - Kristbjörg . 799 - Bergur VE 780 - Hannes lóðs ... ,. 765 - Kap . .. .! . 762 - Víðir SU ,. 747 - Einfaldari stjórnarhættir I atvinnulífinu og verzluninni stefnir allt að því að gera fram- kvæmdina sem einfaldasta. Áður sátu margir menn á skrifstofum við að færa úr klöddum inn í höfuðbækur úttekt manna, hvert pút og plagg. Ef um lánsverzlun er að ræða nú til dags, sem er yfirleitt forboðin m. a. vegna aukins mannahalds og þunglama- legri rekstrar, eru nóturnar lagð- ar saman í samlagningarvél og niðurstöðutalan á renningnum ein færð inn í bækurnar. Er þetta ekki nema brot af þeirri vinnu, sem áður fór til þessara hluta. Þá er vélabókhaldið búið að leysa af hólmi hið þunglamalega gamla kerfi. Nú getur ein vélritunar- stúlka með bókhaldsvélinni ann- azt bókhald fyrir mörg fyrirtæki, miklu betur en fjöldi spreng- lærðra verzlunarmanna gerði áð- ur. Alveg eins er þetta, hvað önnur störf snertir. Alls staðar, þar sem því verður við komið, eru vélarnar að leysa mannshönd ina af hólmi. Allt stefnir að því að gera hlutina sem einfaldasta í viðskipta- og atvinnulífinu, hvort heldur á verklega- eða andlega sviðinú. Allt snýst um að koma við sem mestum sparn- aði. En hvernig er þetta hjá því opinbera? Er þar leitazt við að gera hlutina sem einfaldasta? Snýst þar allt um að koma við sem mestum sparnaði? — Fyrir rúmum 10 árum lét fjármálaráð- herrann telja nefndir og ráð á vegum þess opinbera. Talan reyndist 212. Ekki hefur síðan frétzt, að ein nefnd eða ráð hafi verið lagt niður. En mörgum nýj- um hefur verið ungað út. Færi talning fram í dag, væri talan sjálfsagt ekki undir 500, svo blóm leg hefur viðkoman verið undan- farið. Séu 5 menn í hverri nefnd, eru ekki færri en 2500 manns nú önnum kafnir við að leysa vanda- mál þjóðarinnar ásamt blessaðri ríkisstjórninni og öllu starfslið- inu. Þótt ólíku sé saman að jafna, eru nefndar- og ráðsmennirnir sem svarar skipshöfnum á helm- inginn af vélbátaflotanum eða 250 skip. Að vísu hefur margt af þessu fólki þessi störf í hjáverk- um, þótt þar sé allur gangur á. Annað dæmi um, hversu ríkið bindur starfsorku þjóðarinnar. Fyrir álíka mörgum árum var áætlað, að þeir, sem ynnu við að leggja tekjuskatt á landslýðinn, væru 600 talsins. Sjálfsagt hefur þessi tala eitthvað hækkað, ætli það sé goðgá að gera viðbótina 150. Þá ætti þetta starfslið að vera 750 talsins. Ef haldið er áfram samanburði við útgerðina, eru þetta sem svarar skipshöfn- um á % hluta af togaraflotanum eða 30 skip. Það er eins ástatt með þetta fólk og hið fyrra, að ekki er hér um aðalatvinnu að ræða hjá öllum. Þá er ónefnt skrifstofubákn þess opinbera, sem almenningur hefur alls staðar fyrir augum og kemst alls staðar í snertingu við. Og ótaldar eru þær mörgu stund- ir, sem allir verða að eyða, ýmist í vinnutíma sínum eða frístund- um, til að fá málum sínum fram- gengt á svokölluðum „hærri stöð- um“. Er hér margt, sem kemur til, og endist enginn til að telja það upp. Væri nú ekki ráð að gera ,,be- holdningu“ á nefndunum og ráð- unum og leggja niður og sam- eina einhvern verulegan hluta þeirra. Það ætti öllum að vera skaðlaust, þótt þær væru færðar niður í svo sem 212. Og hvernig væri að samþykkja tillögu Alþýðuflokksins um athug un á afnámi tekjuskattsins, ef það gæti orðið til þess, að hægt væri að slá striki yfir alla Færeying- ana á flotanum. Og margri rauna og erfiðisstundinni myndi það létta af almenningi að þurfa ekki að sitja að loknu dagsverki yfir skattskýrslunni sinni. Og margt myndi Alþýðuflokknum fyrirgef- ast af skriffinnskutillögum sín- um, ef honum auðnaðist að koma hér á betri skipan. Hvað skyldi hið flókna tolla- kerfi binda marga menn við að semja flóknar skýrslur, reikna út tollinn, færa siðan í bækur og endurskoða að lokum allt kirfilega. Væri ekki hægt að hafa tollflokkana t. d. 3, tollfrjálst, meðaltollur og lúxustollur. Alveg er það sama með útflutn- mginn, þótt völundarhús hans sé ekki neitt á borð við innflutnings ins. Engu að síður er þar svo vandratað, að ekki komast þeir þar fótmál, sem ættu þó að vera þar húsum kunnugastir, nema lesa sig tii af bókum. Fyrst sá háttur er á hafður að láta út- flutninginn í stað rétts gengis, fá vissar verðbætur á þann gjald- eyri, sem hann skilar, því geta þá ekki bankarnir greitt þær til útflytj endanna, um leið og þeir skila gjaldeyrinum, í stað þess að vera að hafa eitt nefndarbáknið til þess. Það er sama, hvar gripið er niður, alls staðar reka menn sig á vafstur þess opinbera í einu og Öllu og langoftast kák, sem aðeins er sóun á vinnuafli. Það er ekki ósennilega til getið, að lifsafkoma alls almennings i land inu myndi batna um ekki minna en 10—20%, ef komið væri á fót einfaldari og hagkvæmari þjón- ustu þess opinbera, þar sem hún á við og er óhjákvæmileg, en öllu hisminu sópað í burtu. Lófótveiðin betri en áður Á vetrarvertíðinni við Lófóten veiddust við 33.000 lestir af fiski, eða um 11.000 lestum meira en í fyrra. Þátttakan í veiðunum í Sr. Bjarni Sigurðsson; SUMARDACUR SUMARDAGURINN fyrsti — þegar þessi heiðkyrri dagur geng ur á burt léttum fótum, og kvöld hans tekur oss sér við hönd, er engu líkara en sundurleitustu kenndir fagnaðar og vonar og trega stígi dans fyrir hugskots- sjónum. voru. Tómið, seni unnin vetrarþraut ski'.ur efttr, verður kannski vanfyllt um sinn, en þó líður varla á löngu, að hugur vor man ekki annað fremur en hlakkandi von komanda sumars. í hönd fara dagar, þegar ritn- ingarnar ljúkast upp fyrir oss í nýjum greinum: Lítið til fugla himinsins; þeir sá ekki né upp- skera, og þeir safna ekki heldur í hlöður, og yðar himneski faðir fæðir þá. Gefið gaum að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Fyrst guð nú skrýðir svo gras vallarins, sem í dag stendur, en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann, þá ekki miklu fremur klæða yð- ur, þér lítiltrúaðir. Verið því ekki áhyggjufullir. Og getum við ekki nú eftir genginn vetur einnig tek ið undir þessi orð sálms Hebre- ans: Allra augu vona á þig, og þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma; þú lýkur upp hendi þinni og seður allt, sem lifir, með bless un þinni. — Og seiður vorsins flytur enn með sér þessa dæmisögu 20 alda um sáðmanninn, sem gekk út að sá. Og svo fór, er hann var að sá, að sumt sæðið féll við götuna og varð fótum troðið, og fuglar komu og átu það upp. Og annað féll á klöpp og er það óx, skræln aði það, af því að það háfði ekki vökva. Og sumt féll í grýtta jörð, þar sem það hafði eigi mikinn jarðveg. Og það rann skjótt upp, af því að það hafði ekki djúpan jarðveg. Og er sólin koni upp, skrælnaði það, og sökum þess að það hafði engar rætur, visnaði það. Og sumt féll meðal pyrna. En þyrnarnir uxu upp og kæfðu það, og það bar ekki ávöxt. — En sumt féll í góða jörð og kom upp og óx og bar ávöxt og gaf af sér að þrítugföldu og að sextug- földu og að hundraðföldu. t Enginn hefir sem Kristur verið sáðmaður þessarar jarðar. Hann gekk um kring og líknaði og kenndi, og öll var breytni hans siík, að athöfn hans var sáðmanns starf út í hörgul. Og svo mikill kraftur fylgdi þessu sáðmanns- starfi hans að því linnir hvergi, heldpr endist það heiminum, með an hann stendur. En þeir eru fleiri sáðmennirnk en hann, sáðmaðurinn mikli. Vér erum öll sáðmenn með einhverj- um hætti. í hverri andrá stráum vér sæðinu umhverfis oss; ekkert orð, engin athöfn fellur mark- laust, heldur orkar öll breytm vor á oss sjálf og aðra til góðs eða ills eftir því, sem til er stofnað. Hvílík ábyrgð er oss ekki á herð- ar lögð! Allt hátterni vort er starf sáðmannsins, og hversu undursamlegt er það ekki, að vér skulum þannig vera í þjónustu guðs, hann skuli geta beitt vorum veika mætti í þjónustu anda síns, að vér skulum standa undir hand leiðslu hans til að koma fram fyrirætlun hans og vilja. Öll viljum vér standa í stöðu vorri; það er líka göfugt og gott lífsmið. Hitt skyldi oss þó elcki síður rikt í huga, að strit vort og starf verður harðla fáhýtt, þar sem það vakir ekki jafn- vetur var þó mun minni en ár- ið áður, vegna þess að margir þorðu nú ekki að eiga á hættu aðra eins vertíð og árið áður. Lófóten er langsamlega stærsta verstöð Noregs, þó er aflinn þar ekki meiri en í Vestmannaeyjum í vetur, og eru þó við Lófóten margfalt fleiri skip. framt fyrir oss að vinna það drottni til vegsemdar. Gefuœ drottni dýrðina. t Manstu í vetur, hve stormurinn gnauðaði um þil húss þíns og glugga? „Var ekki eins og væri um skeið vofa í hverjum skugga?" Samt gaztu vonglaður sungið: í sannleik, hvar sem sólin skin, er sjálfur guð að leita þín. Þú veizt nú, að vonir þínar þá voru ekki fyrir gýg, þegar undur vorsins seytlar inn í merg og bein og leyndardómur þess er vafinn í allt starf þitt eins og órofa taug. Það er einhver eftirvænting, einhver titrandi strengur, sem tengir saman nótt og dag, aftan og dagrenning. Og þótt vér hugs- um kannski ekki út í, hvað það er, sem veldur þessum ljúfa hug- blæ, þá vakir þetta hugboð æ í vitund vorri, þar sem vér geym- um það eitt, sem enginn fær frá oss tekið. Þvílíkur er leynöar- dómur vors og gróandi. Og þegar kvöldar eftir vorlangan dag, og jörðin eins og dæsir í velsæld vegna örlátra ástarhóta dægr- anna, þá hefir hugur vor svo töfrazt af anda vorsins, að hann þráast við að leyfa þreyttum líkama að fara í rúmið eftir sleitulaust erfiði. því að ljósar sumarnætur vaka öll fegurstu ævintýr. Hvaðan öll þessi dýrð, öll þessi sæld, þetta sumarundur? Svarið er eitt, það er óvefengjanlegt og knýjandi: Vor himneski faðir hef ir lagt á borð alla þessa dýrindis- rétti anda vorum að neyta af. Hér blasir við sjónum vorum einn sá gagnvegur, sem drottinn hefir lagt milli sín og þín. t W Sálmaskáldið góða, séra Vald— mar Briem, segir í veisi, sem allir kunna: Guð, allur heimur. eins í lágu og háu, er opin bók, um þig er fræðir mig, já, hvert eitt blað á blómi jarðar smáu er blað, sem margt er skrifað á um þig. Öll náttúran hrópar til vor undrið um' guð föður, jafnvel smæsta frækorn á í sér fólginn. veigamikinn vísdóm um hann, frækornið, sem grær og vex fyrir kraft hans, án mannlegrar íhlut- unar bg afskipta. Heimur hans skyldi vera oss eins og opin bók sjáandi auga; og ef vér viljum í hana skyggnast, megum vét nema þar þau sannindi, sem eng- an eiga sinn líka og engin bók önnur fær birt oss, hversu þykk sem hún er og af hve miklum lærdómi, sem hún er rituð. Þann- ig tálmar það ekki heldur neinum að þekkja sannleikann um kraft guðs og kærleika, hversu fá- kunnandi sem hann kann að vera á veraldarvísu. Því að bók guðs stendur öllum jafnopin og hún er öllum jafnlæsileg þeim, sem i hana vilja skyggnast. t Anai guðs, það er röddin fagra, sem heyrist í brjósti hvers manns. Stundum verður orð heilagrar ritningar til að brýna þessa raust, stundum hvatningar- og- hlýju- orð góðrar ræðu eða þekks vinar, stundum snerting mjúkrar hand- ar, sem strýkur um vanga eða barnshönd í lófa. Kannski hefir líka viðkvæmt amáblóm vakið þig, svo að þú heyrðir röddina þá, eða gullský á vesturhimni. — Þá vegu, s«m guð á sér «ð hjarta voru, fær enginn fulltahð. Þegar minnst vartr getur hann svipt burf gráma hversdagsins og greitt götu boðskap sínum til þín. Og þannig var þvi lika farið sumardagana fyrstu frá ómura tið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.