Morgunblaðið - 30.04.1958, Page 12

Morgunblaðið - 30.04.1958, Page 12
12 MORarvrtLAÐIto Miðvikudagur 30. april 1958 — Valdib yfir sálum mannanna Framhald af bls. 11. feiti og mergur með“, stóð skráð á andlitum boðberanna og var undirtónn alira þeirra orða. En vei þeim, sem þverskölluðust! Skrifað stendur í Rauðum penn- um árið 1935: „Utan við þá voldugu bók- menntahreyfingu, sem hafin er, getur ekkert skáld staðið, sem ætlar sér nokkra framtíð . . . Öll grózka hins vaxandi iífs, allur veruleiki þess, býr í skáldskap hinnar nýju stefnu. Máttugra og glæsilegra tímabil en nokkru sinni hefur áður þekkzt, er að rísa í bókmenntum heimsins". Og svo vel sem boðendum hins nýja Orðs vannst á vettvangi fé- lagsmála og stjórnmálalífs, vannst þeim ennþá betur á sviði bókmenntanna. í borgaralegum herbúðum ríkti frekast tómlæti um bókmenntir í þá tíð, en hins vegar þurfti ekki að óttast það- an verulegan fjandskap, og var það máske nokkuð undarlegt, þó að skáld og rithöfundar vildu eiga sér framtíð? Þeir gátu áunn- ið sér kjass og klapp, ef þeir gengu undir merki hrópandans í eyðimörk kreppuáranna, en aft- ur á móti gengu þeir þess ekki duldir, að ef þeir þó ekki nema þrjózkuðust, máttu þeir eiga vís- an vönd harðra dóma og skipu- lagðrar rógmælgi. Nöfn mikils meirihluta íslenzkra skálda aug- lýstu svo fyrir alþjóð áhrifavald og vinsældir hinna rauðu penna — og mikils virtir menntamenn og ritsnillingar tóku að sér að ábekja og þar með tryggja með nöfnum sínum víxla hinna djörfu og stórhuga forystumanna máls og menningar framtíðarinnar, hina nýju Fjölnismanna íslenzkr- ar sögu — eins og þeir auðsjáan- lega vildu allra auðmjúklegast láta á sig líta. Það varð fínt að fylla þennan hóp, — það varð tákn upphafningar og fól óneit- anlega í sér fyrirheit um bjöllu í horn og sérlega grösugan og kjarngóðan blett í ódáinshögum framtíðarinnar meðal útvaldra sauða til hægri handar hinum mikla Jósef Stalin, — enda hófst nú ærið hávær lofgerðarjarmur í bundnu máli og óbundnu um „bóndann í Kreml" — og þá eink- um er hann þreytti glímu við gamlan bandamann sinn, Adolf Hitler, og reyndist bæði sterkur og fylginn sér, en þess var lítt við getið, að hann var girtur megingjörðum vondra manna úr vesturvegi. Hinn mikli Stalin og hans hart nær yfirskilvitlega full- komnir samstarfsmenn, Bería og fleiri svipaðir, burgu veröldinni! Þjóðin rússneska hafði raunar beð ið mikið afhroð fyrir tilverknað tryggðarofa af hendi Adólfs Hitlers, en með þeirri þjóð ríkti þó hið fullkomnasta frelsi, alger jöfnuður og fyllsta réttlæti, og andlegt lif greri eins og blóm í varpa í skini hiýrrar vorsólar! Hana nú þá! Styrjaldarlokin voru gullöld fylgismanna hins austræna ein- ræðis hér á landi, enda gengi þeirra slíkt, að þeim var falin forsjá nýskipunar allra mennta- mála, val skólanefndarformanna og úrslitaorðið um val fræðara æskulýðsins hvarvetna í byggð- um landsins. En síðan hafa þeir hlotið ærin áföll, þó að þeir í nokkra sólarhringa ættu sér úti i himingeimnum tíkarkvikindi, sem vakti alheimsathygli, og eigi sér raunar tvo jólasveina í efstu tröppu íslenzkra valdhafa. Gull- kálfinum Bería var steypt af stalli, og núverandi Arno Rúss- lands flutti víðfræga ræðu, sem olli þvi, að jörð hinnar komm- únistísku Paradísar skalf og björg trúarinnar klofnuðu víðs vegar. Sjálfur ritari rússneska kommúnistaflokksins — ekki ein hver vondur maður í vestrænum heimi — lýsti allt í einu hinum nú látna og smurða, en fram að þessu guðdómlega Stalin, Kreml- bónda íslenzkra skálda og rit- snillinga, sem hálfvitfirrtum harðstjóra og grimmdarsegg og afhjúpaði þannig ástandið í Rúss- landi, að augljóst varð öllum heimi það, sem höfundar Gróðrar og sandfoks og fleiri vondir menn höfðu sagt og skrifað, að í stað frelsis, bræðralags, laga- verndar, réttlátrar skiptingar vinnuarðsins og fullkomnustu skipanar allra atvinnumála, ríkti þar miskunnarlaus harðstjórn og ófrelsi, gerspillt réttarfar, ein- stæð misskipting lífskjara, algert valda- og réttleysi stritandi "al- þýðu og slík ringulreið og van- geta á sviði atvinnulífsins að njósnarar, lögreglumenn og böðl- ar stóðu önnum kafnir við að finna, pynda og hengja eða skjóta raunverulega, en oftar ímyndaða eða beinlinis valda sökudólga. f fátinu, sem greip sjálft hið harð- svíraða austræna einræði við þess ar játningar og opinberanir, losn- aði um hríð nokkuð um tungu- haft skálda og rithöfunda í lönd- Bifreiðaeigendur Við getum ávallt sólað flestar tegundir af hjól- börðum. Sólningar, ísuður og bætingar á sama stað. — Fjót afgreiðsla. GÚMBARÐINN H. F. Brautarholti 8 — Sími 17984. T ilkynning um atvinnuleysisskráningu Atvinnuleysisskráning samkvæmt ákvæðum laga nr. 52 frá 9. apríl 1956 fer fram í Ráðningastofu Reykjavíkur- bæjar, Hafnarstræti 20, dagana 2., 5. og 6. maí þ.á., og eiga hlutaðeigendur, er óska að skrá sig samkvæmt lög- unum, að gefa sig fram kl. 10—12 f.h. og kl. 1—5 e.h. hina tilteknu daga. Óskað er eftir, að þeir sem skrá sig séu viðbúnir að svara m.a. spurningum: Um atvinnudaga og tekjur síðustu 3 mánuði. 2. Um eignir og skuldir. Reykjavík, 29. apríl 1958. Borgarstjórinn í Reykjavík. cir l rít um þess, og leystu þá ýmsir ! ríki á jörðu, trú, sem er þeim svo þeirra frá skjóðunni, rússneskir,! mikils virði, að hún verður ekki pólskir, tékkneskir og þó einkum J einu sinni kæfð í blóði. ungverskir og sögðu sterkum orð j En hinir — mundu þá nokkrir um, að í þessum löndum hefði þeirra hafa vafasama eða veila rikt sívaxandi andlegt ófrelsi, afstöðu? Hafa ekki einmitt ýms- unz svo hefði verið komið, að það hefði verið orðið harðara og grimmúðugra en dæmi væru til áður í sögu mannkynsins. Og bókmenntirnar væru svo eftir því: Ýmist fáránlegir lofsöngvar um valdhafana og athafnir þeirra eða andlaus vegsömun þess skipu lags, sem þarf daglega á að halda réttarmorðum, hefur svipt hinar erfiðandi stéttir frjálsræði sínu til búsetuskipta og réttinum til ákvarðana um lífskjör sín — og þarfnast sem fastra stofnana — jafnt vegna hagkerfis síns og með tilliti til öryggis leiðtoganna — þrælabúða fyrir fullan milljóna- tug manna! Síðan: Hin samvirka forysta — siðbótarmennirnir, sem flettu ofan af blóðveldi Stal- ins, en höfðu raunar verið þar samábyrgir — létu sig hafa það, þá er ungverskir verkamenn, stúdentar, rithöfundar og fjöl- margir annarra menningarfröm- uða, vörpuðu af sér oki kúgunar- innar, að láta rússneskan her drepa hundruð þúsunda frelsis- unnandi Ungverja, flytja tugi eða jafnvel hundruð þúsunda ungra ungverskra manna í þrælavinnu í Síberiu og á saltsléttum Mið- Asiu, og líða frelsis og föður- landssvikurum Ungverjalands, sinum auðmjúkum þénurum, að ir, sem á gat leikið nokkur vafi, gengið fram á opinberan vett- vang og gefið skelleggar yfirlýs- ingar? O, jú, jú, — og vel er. En....... Nú standa ekki lengur boðend- ur hins austræna Orðs og hrópa, að ekkert skáld, sem ætli sér nokkra framtíð, geti staðið utan við svokallaðan sósíalrealisma, stefnu, sem í Vesturlöndum varð aldrei annað en pappírsheiti og í hinum austræna heimi komm- únismans fyllti skemmur ríkis- forlaganna af með öllu óseljan- legum skáldritum — eins og sá gáfaði maður Björn Þorsteinsson sagnfræðingur bar vitni um, þeg- ar hann var á ferð í Tékkóslóva- kíu fyrir svo sem tveimur ár- um. Nú láta þeir sem sér líki vel hvers konar list þeirra manna, sem ekki ganga í berhögg við málstað þeirra, og ekki kannski sízt þá — „sem er list án boð- skapar, næstium án hugsana . . .“ — því að önnur list gæti orðið þeim og þeirra fyrirætlunum hættuleg, svo ný og óhrekjanleg sannindi bárust af öllu hinu sæt- lega lofsungna, þá er jÖrðin skalf og járntjaldið rifnaði og kvein- stafir píndra og hrjáðra, öskur böðla og drunur morðtóla skáru í eyrun og minntu á fornar, en dæma þúsundir frelsisvina til ' uppdubbaðar hugmyndir um þrælkunar eða til að enda líf sitt ; kvalastað fordæmdra. Svo gera fyrir hendi böðulsins . . . Og | þá boðendurnir sér far um að loks: Hin sanrvirka forysta — hið laða hlutlausa orðsins menn að stóra slagorð — er úr sögunni! í sæti Stalíns, á alblóðugum veld- isstóli grimmúðugasta og vélráð- asta harðstjóta veraldar, situr sjálfur vandlætarinn, siðbótar- maðurinn, en um leíð —• gleym- um því ekki — Ungverjalands- böðullinn og geimtíkurglæsirinn, sem bráðlega mun til þess knú- inn af risavaxnasta, óviðráðanleg asta, blóðugasta og háskalegasta hag- og stjórnarkerfi veraldar- sögunnar, að hausa og slægja samverkamenn sína í þeirri skelf ingarþrungnu von að með því móti fái lífsfleyta hans sjálfs flotið yfir sker eiturbyrlara og réttarmorðingja, sem nú lúta hon um í auðmýkt. Og vitaskuld hef- ur á ný ginkefli verið stungið upp í skáld og rithöfunda og fjötur lagður á hendur þeirra, því að ærið greinilega kom í ljós, þá er þeim veittist nokkurt mál- og ritfrelsi, að enn hefur ekki hinu austræna einræði í sinni fjögurra áratuga látlausu og grimmilegu viðleitni tekizt að ná algeru valdi yfir sálum mann- anna. V sér, án þess að gera kröfur til þeirra um beina baráttulega sam- stöðu, strjúka þá og dilla þeim, hæla verkum þeirra — um leið og þeir til velþéntrar áminningar svívirða og rægja verk beinna andstæðinga — einmitt í nafni listarinnar, — nota svo málvini sína og gælubörn sín sem trygg- ingarsveit gagnvart alþjóð fyrir því, að þeim búi svo sem ekkert illt í huga, koma með þeim fram á bókmenntahátíðum í dýrustu sölum höfuðborgarinnar og aug- lýsa nöfn þeirra sem ábyrgðar- manna á þeim fylgivíxlum, sem ætlazt er til að almeningur kaupi — helzt affallalaust .... Og svo glotta þeir bak við hina dáðu og þörfu sakleysingja, kreppa jafnvel hnefana í buxnavösunum, sárir yfir sínu vafstri og fyrir- höfn, og hvísla út á milli saman- bitinna vara: „Bíðið þið bara við, fíflin ykk- ar! Afglöp vesturveldanna eru mörg og stór og þægileg til okkar brúks, og okkar menn vinna sér hér létt verk á vettvangi andlegr- ar, félagslegrar og fjármálalegr- ar siðspillingar. Ástandið versn- Hér skal ekki farið út í að ar óðum, og vald okkar á atvinnu- ræða og skilgreina svo sem raun- ar vert væri þá ógn og þann vanda, sem íslenzku stjórnmála- og efnahagslífi stafar af þeirri tvískiptingu hins austræna ein- ræðisliðs, þar sem á sviðinu standa í alþýðlegum borgara- klæðum leikbrúður undir sýndar- forystu nefndra jólasveina, en að tjaldabaki stendur harðsvíraður hópur austrænna átrúnaðarseggja undir merki hamars og sigðar, hrópar ögrunarorð og ógnanir til áhorfenda og heldur í þá þræði gerzkrar hentisemi, sem ráða hreyfingum leikbrúðanna. Ég vil því aðeins víkja nokkr- um orðum að mönnum þeirrar listar, sem „á að deyja — því orðið getur verið hættulegasta og fjárhagslifi þjóðarinnar fer hraðvaxandi, — já, bíðið þið við!“ „Hún launaði honum ljósahald- ið loksins með því að senda ’ann Rúti . . .“ sagði Grímur Thom- sen í kvæðinu um Þjóstólf og Hallgerði langbrók. Það er alkunna, að fjöldi víð- frægra rithöfunda frá ýmsum löndum hefur snúið frá refilstig- um kommúnismans — einkum á seinustu áratugum. Og í játning- um flestra þeirra kemur skýrt fram og oft átakanlega, hve frámunalega örðugt þeim hef- ur reynzt að losa sig úr hinum margvíslegu tengsl- um við hugmyndakerfið, við flokkinn, við gamla félaga og sprengiefni undir sólinni“. f fljótu j samstarfsmenn og við minning bragði mætti ætla, að enginn þeirra manna væri í vafa eftir það, sem á undan er gengið. Ég arnar, og ekki sízt hefur skinið í gegnum skrif þessara skálda, hve hörmulegt það hefur verið sagði í fljótu bragði, því að vita að horfast í augu við þá stað- mátti, að einhverjir þeirra mundu j reynd að hafa, sumir í áratugi, standa stöðugir í trúnni, menn- raunverulega helgað sig glæpa- irnir, sem voru í upphafi vega starfsemi í garð alls þess, sem þannig gerðir, að þeir skulfu eins hefur skilað mönnunum í áttina og reyr í nörpum gusti umhverf- J til aukins manndóms og að marki isins og þurftu á að halda ein- ( sannrar mannhelgi. Þá hefur og hverjum óhagganlegum átrúnaði, . verið ekki síður sorglegt að hlutu hann engan í bernsku eða ' skyggnast í sköp þeirra skálda, voru sviptir honum á státinni, en sem séð hafa sannleikann, en biturri og hunzkri öld efnis- ekki megnað að rjúfa tengslin, hyggju og fengu svo kjölfestu skálda eins og til dæmis Maxims lífs síns í trúnni á nálægt himna- . Gorkís og Berts Brechts .... En Nóbelsverðlaunaskáldið Thomas Mann hefur allra borg- aralegra rithöfunda gert skýrasta og eftirtektarverðasta grein fyr- ir þeirri iðrun, sem hann tók út fyrir að hafa ekki risið í tæka tíð gegn ofbeldi og einræði. Hann taldi það langt fyrir neð- an virðingu sína að skipta sér af því, sem fram fór á sviði stjórn- mála og félagsmála í föðurlandi hans, Þýzkalandi, á baráttuárum kommúnisma og nazisma og á uppgangsárum Hitlers. Hann lét það því með öllu afskiptalaust, hvernig lýðræðisflokkarnir vóg- ust á, seyrðust og veiktust, hve ofbeldið og hinn blindi kraftur var vegsamað og mannúðin gerð auvirðileg í augum fjöld- ans, sem þrælum einum samboð- in. En þar kom, að valdamenn nazista væru þeim mun veilli en kommúnistar járntjaldslandanna að dirfast ekki að skerða eitt hár á höfði hins heimsfræga skálds frekar en keisarastjórnin á sínum tíma höfuðhár Leos Tolstojs, þá þoldi Mann ekki við í föðurlandi sínu, en fór vestur um haf og hrópaði síðan varnað- arorð til hins stríðandi mannkyns. Hann varaði sterkum orðum við hlutleysinu gagnvart þjónum ó- frelsis og tortímingar, og . . . . hvort mundi svo ekki mega telja óviðurkvæmilegt, jafnvel háska- legt, að raunverulega frjálshuga rithöfundar hefðu meira eður minna samstarf við og veittu sið- ferðilegan stuðning frammi fyrir alþjóð svo harðsvíruðum þjónum einræðisins i frjálsu þjóðfélagi hinna beztu lífskjara, að þeir létu sér engan veginn segjast við hin válegu sannindi, sem opinberuð hafa verið alheimi með vitnis- burðum Krúsjeffs, við blóðbaðið í Ungverjalandi, þar sem einmitt menn orðsins listar voru sérstak- lega lagðir í einelti — og við frá- sagnir og yfirlýsingar rússneskra, tékkneskra, ungverskra og pólskra rithöfunda um hinn and- lega þrældóm í kommúnistaríkj- unum. Getur nokkur svo skyn- samur maður, að hann sé liðtæk- ur rithöfundur, látið sér til hug- ar koma, að slíkir menn meti raunverulega nokkurs neinar list ir — hvaða nafni sem þær nefn- ast, að nokkuð sé nokkurs vert í þeirra augum annað en þjónustan við sína meistara og herra, sem þeir enn trúa, að eigi að leiða þá og mannkynið allt í himnaríki á jörðu? Geta nokkrir þeir rithöfundar, sem unna frelsi, sönnu lýðræði, mannúð, mannhelgi — öllu því, sem þrátt fyrir allar villúr og víxlspor hefur unnizt á vegferð mannkynsins hér í hinum vest- ræna heimi verið þekktir fyrir að halda að sér höndum gagnvart þjónum ofbeldis og einræðis, hvað þá unnið það fyrir vinsemd eða meintan heiður frá þeirra hálfu að veita þeim beint eða ó- beint brautargengi og með því þoka í áttina til þess ástands, að upp í þá sjálfa verði keyrt ginkefli og hendur þeirra bundn- ar á bak aftur? Nei — og aftur nei, ekki ef þeir staldra við, hugsa sig um og líta af alvöru í kringum sig hér heima og úti um veröldina, því að það er sannast mála, að „tækni kúgunarinnar hefur ekki náð fullkomnun fyrr en á okkar öld. Þess vegna get- ur svo farið, að framtíðin beri enga líkingu af liðnum tímum. Og að ekkert eigi sér meiri fram- tíð en harðstjórn rikisvaldsins og kúgun mannlegs anda“. Þessi orð úr leikriti Kristjáns Albertssonar, svo sem raunar mörg önnur, eru ekki aðeins eðli- leg og áhrifarík á sínum stað í leiknum, heldur fela í sér alvöru- þrungin, heiltæk sannindi, í senn viðyörun og boðskap til allra þeirra, sem vilja vera frjálsir menn á þessari jarðkringlu, þar sem úthöfin hafa á fáum árum orðið að sundum og öræfaflákar að bæjarleiðum, svo að háskinn jafnt og sprengiefni áróðursorða og eldflauga stendur við hvers manns dyr. Mýrum í Silfurtúni í fyrstu viku sumars 1958 Guðm. Gíslason Ilagalín.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.