Morgunblaðið - 30.04.1958, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.04.1958, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 30. apríl 1958 MORCVISBL AÐIÐ 13 * KVIKMYNDIR * i| ■F ^ I|l§úÍ«§ einkum þó hennar, en beztur finnst mér þó leikur Richards Widmarks í hlutverki Fiske eins af félögunum fjórum. — Ég hygg að margir munu hafa gam- an af þessari mynd, þó hún verði ekki talin nein merkismynd. Ego. —★—★— I „Flughetjarí' Ausfurbæjarb'iói Minningarorð um trú Guðbjörgu Thorstensen ,Fanginrí HINN vestræni heimur hefur með undrun og hryllingi fylgzt með því hversu pólitískir sak- borningar í einræðislöndunum hafa verið knúðir til þess með margvíslegum aðferðum að játa saklausir á sig landráð og hvers konar glæpi aðra gegn föðurlandi sínu. Eru hinar mörgu „hreinsan ir“, sem svo tíðar hafa verið í Rússlandi gott dæmi þessa réttar fars og má einnig í þessu sam- bandi minna á réttarhöldin, sem ungverskir kommúnistar héldu yfir Myndszenty kardinála fyrir nokkrum árum. Mun brezk- ameríska kvikmyndin „Fangirm", sem sýnd er nú í Stjörnubíói, vera gerð með hliðsjón af þeim at burði. — Lýsir myndin á mjög raunsæan hátt, hversu farið er með kardínála einn ,sem lögregl- an í ónefndu einræðisríki hefur varpað í fangelsi, sakaðan um landráð, — og hversu saksóknar- anum og þjónum hans tekst að lokum að yfirbuga fangann svo, að hann „meðgengur" saklaus alla þá glæpi, sem á hann eru bornir. -— Eru aðferðir saksókn- arans og fangavarðar allar hinar óhugnanlegustu og mjög í sam- ræmi við lýsingu manna, sem sagt hafa frá slíkum réttarhöld- um, er þeir hafa sjálfir orðið fyrir í einræðislöndunum. — ýðgi og taumlausu ofsóknar- brjálæði. — Einkum hefðu þeir menn hér á landi, sem aðhyllast stefnu þessara einræðisríkja, og vilja koma henni á hérlendis, gott af að sjá þessa mynd, ef ske kynni að það gæti opnað augu þeirra. Ego. —★—★— „Landið illrí' KVIKMYND þessi, sem Nýja Bíó sýnir nú, gerist á „gullöld“ Kaliforníu, þegar gullleitarmenn streymdu þangað úr öllum áttum í æðisgenginni leit að hinum dýra og glóandi málmi. — Þrír menn hittast í litlu mexíkönsku fiski- þorpi á leið til gullnámanna í Kaliforníu. Á veitingakrá þar kemur til þeirra ung og fríð kona, Leah Fuller að nafni, sem komin er langt að, og biður þá að hjálpa sér að bjarga manni sínum John Fuller, sem liggi ósjálfbjarga og slasaður í gull- námu þeirra hjóna, sem hrunið hafi saman. Heitir hún mönn- unum stórfé að launum og láta þeir til leiðast að fara með henni og bætist 4. maðurinn við. Leið þeirra liggur um land óvinveittra og herskárra Indíána, en þó komast ferðalangarnir klakk- laust í námu Fullers og fá bjarg- að honum mikið slösuðum. — En á bakaleiðinni sitja Indíánarnir um ferðafólkið og í þeirri viður- Aðalhlutverk myndarinnar, 1 eign fellur fyrst John Fuller og kardinálann, leikur hinn frábæn síðar allir fylgdarmennirnir enski leikari Alec Guiness af nema einn þeirra, Hooker að áhrifamikilli snilld. — Þá er og nafni og Leah Fuller. Þau sleppa leikur Jack Hawkins í hlutverki j heilu og höldnu úr greipum Indí- saksóknarans afbragðsgóður og ánanna, og þarf ekki að segja þá hið sama er að segja um leik j sögu lengri, því að auðvitað Wilfred Lawsons í hlutverki liggja leiðir þeirra saman það ÞESSI ameríska kvikmynd, sem tekin er í litum og Cinema-Scope, fjallar um ævi hins fræga amer- íska flugmanns, McConnells. — Hann tók þátt í heimsstyrjöldinni síðari og gat sér þar góðan orðstír en það var þó einkum í Kóreu- stríðinu að hann vann sér hið mikla frægðarorð, sem flughetja, enda skaut hann þá niður ekki færri en 15 flugvélar af MIG-gerð frá óvininum. Að Kóreu-stríðinu loknu hlaut McConnell mikla við- urkenningu í Bandaríkjunum fyr- ir hreysti sína og hugrekki, var síðan ráðinn til þess hættulega starfs að reyna fyrir Bandaríkja- her nýjar „jet“-flugvélar, sem þá voru fyrst smíðaðar. Lézt hann í flugslysi við slíkt reynsluflug fyr ir um tveimur árum. Myndin gerist á vígvöllum Ev- rópu og Kóreu og einnig í Banda- ríkjunum. Leikur Alan Ladd aðal hlutverkið, McConnell, en konu hans, Butch, leikur June Allyson. Er leikur þeirra beggja góður og þó sérstaklega June Allysons. — Þegar maður sér þessa mynd, sem er öfgalaus og sannfærandi, verður manni ljóst hversu mjög hefur reynt og reynir á þrek og manndóm eiginkvenna þeirra manna, sem kallaðir eru til að heyja hinar æðisgengnu styrjald- ir vorra tíma. Mynd þessi er mjög athyglis- verð og vel úr garði gerð í hvi- vetna. Ego. Gamlir traktorar fangavarðarins. Mynd þessa, sem i alla staði er ágætlega gerð ættu sem flestir að sjá, því að hún ar hrópandi ádeila á þær þjóðir og þá menn, sem halda uppi stjórnarfari, sem byggt er á miskunnarlausri harð sem eftir er ævinnar. Atburðarásin í þessari mynd er allhröð og spennandi. Gary Cooper hin mikla hetjaamerískra Indíánamynda leikur Hooker og Susan Hayward leikur Leah Fuller. Er leikur beggja góður, í SVIÞJOÐ var nýlega efnt til keppni um það hvaða bóndi ætti elztan traktor í nothæfu ásig- komulagi, sem enn væri í not- kun. Fern verðlaun voru veitt. Fyrstu og önnur verðlaun hlutu Munktells traktorar frá 1917 og 1918, þriðju verðlaun hlaut Ford- son frá 1918—19, og loks fékk International mogul traktor fró 1915 fjórðu verðlaun, en hann hafði verið endurbyggður það mikið að dómnefndin vildi ekki viðurkenna hann að fullu sem 33 ára gamlan! Hvaða bóndi á voru landi ís- landi skyldi eiga elztan traktor, sem enn er notaður? Það væri gaman að fá upplýsingar um það, og það er meira en gaman, í því er fróðleikur bæði um endingu vélanna, og þó ennþá meiri um hirðusemi bændanna. 5. marz 1958. Á. G. E. HINN 9. apríl sl. andaðist frú Guðbjörg Hermannsdóttir Thor- stensen frá Þingvöllum á nítug- asta og fyrsta aldursári. Hver skyldi trúa því, að þessarar góðu konu hefði enn ekki verið opinber lega minnzt, sem áratugum sam- an skipaði einhverja vandamestu prestkonustöðu þessa lands, en þannig fer með þá, sem /erða langlífir í landinu, að þeir eru á undan þeim horfnir. sem bezt til þekkja og dómbærastir eru Frú Guðbjörg var dóttir Her- manns sýslumanns á Velli í Hvol- hreppi og Ingunnar konu hans. Var Guðbjörg óvenjulega mikl- um gáfum gædd, skýr og minnu og virtist sem allt lægi henni í augum uppi. Hún var há og grönn og að öllu leyti vel á sig komin og bauð af sér svo mikinn yndisþokka, að hún vann sér hvers manns hylli við fyistu sýn og þar leyndi ekki litur kosti. Þó var hún alla ævi ákaflega hlédræg og lítið fyrir að berast á, en einbeitt og ákveðin, ef hún vildi það við hafa. Rúmlega tvítug var hún gefin séra Jóni Thorstensen á Þing- völlum, sem var ættgöfugur mað ur og þar að auki óvenjumikill mannkostamaður. Það sýndist ekki óglæsilegt fyrir hina ungu stúlku að setjast að á þessum fagra og sögufræga stað í hið snotra heimili, sem allt var at manni hennar blómum skrýtt, bæði úti og inni. Séra Jón var einna fvrstu manna til að gróð- ursetja trjágarð í sveitum þessa lands, og plönturnar sem hann setti niður á Þingvöllum urðu í hans tíð að háum trjám. En það er annað ljóð og ó- bundið mál. Á Þingvöllum varð aldrei stundlegur friður fyrir gestagangi nema hina fáu vetr- armánuði, en þá hélt Vetur kon- ungur afskekkta prestssetrinu í heljargreipum og fór ómjúkum höndum um hina fíngerðu en þó dugmiklu prestskonu i tæknileysi þeirra tíma. Guðbjörg gat þess vegna lítið notið sinna miklu hæfi leika, en sameinaði þá aðeins til þess að annast sitt stóra heimih og vernda sinn mannvænlega barnahóp fyrir þeim hættum og sjúkdómum sem að steðjuðu úr öllum áttum á þeim dögum og tókst með Guðs blessun og sinni miklu árvekni. Þótt hún lengi bæri menjar mikilla erfiðleika, var seigla hennar svo mikil, að hún náði þetta háum aldri. Hún hafði hlot- ið góða menntun í föðurhúsum og á efri árum gat hún notið henn- ar i lestri erlendra tungumála sinni, sem hún söng oft og tíð- um með sinni silfurskæru rödd. Oftast voru þau andlegs eðlis, því Guðbjörg var hin mesta trúkona. Fram til hins síðasta mundi hún og talaði um Guðrúnu systur sina, sem var hálfu öðru án eidri en hún og lifir hana ásamt tveim bræðrum vestan hafs og austan. Með þeim systrum voru avallt miklir kærleikar, sem ekKi er að undra því Guðbjörg vildi um- vefja öll ættmenni sín óendan- legum gæðum og einnig alla, sem áttu við erfiðleika. Hún átti miklu barnaláni að fagna en lifði eina dottur sína í fáeina mán- uði. Hún átti hjá dætrum sínum indæla elli, talaði gjarnast um siria miklu vellíðan, þegar komið var að finna hana. Aðeins nokkra daga lá hún á sjúkrahúsi og kvaddi heiminn sársaukalaust, en skiiur eftir hugljúfai minn- mgar. —Frænka. Konur í Hvera- gerði færa sjúkrahúsi gjöf HVERAGERÐI, 28. apríl — Kven félag Hveragerðis ákvað þegar „Sjúkrahús Suðurlands" tók til starfa, að færa því gjöf og var kosin þriggja manna nefnd til að annast framkvæmdir í málinu. Fór nefndin til Selfoss til að grennslast eftir því, hvað myndi koma sér bezt fyrir sjúkrahúsið að fá, og tjáði yfirhjúkrunarkon- an að útvarpstæki væri mjög kær komin gjöf. Var síðan keypt við bókakost nútímans. Þótt hún vandað útvarpstæki. Færðu kven héldi að mestu leyti fríðleik sín- um, sjón og heyrn, hafði hún á allra síðustu árum fellt úr minni miðbik ævi sinnár, en kunni ógrynni af ljóðum frá bernsku félagskonur sjúkrahúsinu það á sumardaginn fyrsta. í nefndinni áttu sæti: frú Elín Guðjónsdóttir, frú Olga Mörk og frú Jytte Mic- helsen. — G. í dag verður 3. fl. vísitölubréfa lokað og eru því síðustu forvöð fyrir væntanlega kaupendur að tryggja sér bréfin Vísitölubréf eru tryggasto innstœðo, s®m völ er á 1958 □□ QO 10,4% hóekkun ó grvnnverðmoeti frá 1955 Þau eru seld á nafnverði. að frád-regnum vöxtum til næsta gjald- daga, þó að grunnve»rðmæti þeirra hafi þegar hækkað um 2.14%. Söluverð bréfanna verður því um 95%. Vísitölubréf eru skattfrjáls og undanþegin framtalsskyldu á sama hátt og spídrifé. Vegna vísitölutryggingarinnar hefur grunnvérðmæti hvers 10. þús. kr. bréfs frá 1955 hækkað um 1104 kr. I Reykjavík eru bréfin til sölu hjá Landsbankanum Búnaðarbank- anum osr Utvegsbankanum. Utan Reykjavíkur er tekið á móti áskrift- um í útibúum bankanna. Seðlabankinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.