Morgunblaðið - 05.07.1958, Page 14

Morgunblaðið - 05.07.1958, Page 14
14 luonr.rrvntiÐiÐ Laugardagur 5. júlí 1958 stjórn Jóns Þorsteinssonar, sem gat sér mikið hrós eins og Vil- hjálmur Finsen skrifar um í End- urminningum sínum: „Á heim- leið“. Stúlkurnar sem skipa flokkinn nú eru á aldrinm 15—22 ára. Flokknum hefur verið sýndur sá heiður nú að sýna við setningu mótsins. Að mótinu loknu heldur Fim- leikasamband Norðurlanda fim- leikanámskeið í Horten við Osló fjörð. í því munu taka þátt um 500 manns frá öllum Norðurlönd- unum og verða flestir þátttakend- ur úr. ísl. flokknum þar einnig. Fararstjóri fimleikaflokks Ár- manns verður Sigurður Guð- mundsson, íþróttakennari frá Hvanneyri. Fimleikar eftir músík. Úrvalsflokkur Ármanns sýnir á fim- ieikamófi í Þrándheimi 5.—70. jútí TÓLF stúlkur úr úrvalsflokki kvenna úr Armanni fóru flug- leiðis til Noregs síðastliðið mið- vikudagskvöld ásamt kennara sínum frú Guðrúnu Nielsen. Flokkurinn mun taka þátt í fimleikamóti sem Norðmenn halda 4. hvert ár, og nefna Lands turnstevnet, koma þar fram þús undir fimleikamanna og kvenna á öllum aldri. Ennfremur fer þar fram fimleikakeppni. öllum Norð urlöndunum var boðið að senda úrvalsflokka karla og kvenna, en héðan fer aðeins úrvalsflokkur kvenna eins og áður er sagt. Mót- ið fer að þessu sinni fram í Þránd heimi og stendur yfir frá 5.—10. júlí. Ármannsflokkurinn sýndi á íþróttavellinum 17. júní sl. og nú aftur mánudaginn 30. júní í fim leikasal Gagnfræðaskóla Austur bæjar fyrir ýmsa boðsgesti, fram- kvæmdastjóra í. S. í., í. B. R., blaðamenn o. fl. Fyrst sýndi flokkurinn staðæfingar með og án áhalda (gjarða), síðan tví- menningsæfingar og akrobatisk- ar uppstillingar af mikilli list og að síðustu vandasamar jafn- vægisæfingar á hárri slá. Sýning- in tókst mjög vel og var stúlk- unum fagnað innilega að henni lokinni. Benedikt G. Wáge forseti f.S. f. ávarpaði kennarann og stúlk- urnar að sýningu lokinni, var hann viðstaddur Landsturnstevn- et fyrir fjórum árum, kvaðst hann þess fullviss að flokkur Ár- manns myndi vekja hrifningu á mótinu nú, svo framúrskarandi væri hann í samanburði við þá flokka, sem hann hefði séð. Frú Guðrún Nielsen fer nú utan í þriðja sinn með úrvalsflokk á alþjóðamót. Fyrst fór hún með slíkan flokk 1949 á Al- heimsmótið í Lingiaden í Stokk- hólmi, þá til Hollands 1955 á Al- þjóðafimleikamótið Gymnajuv- enta í Rotterdam . Ávallt hafa flokkarnir getið sér hinn bezta orðstír. Fyrir 20 árum sótti Glímufélagið Ármann þetta mót, var það kvenflokkur undir Tvöföld „brú“. Bexti leikur Akurnes- inga um langt skeið Urmu Val með 7:1 FIMMTI leikur íslandsmótsins fór fram í veðurblíðu mikilli í fyi'rakvöld. Mættust Akurnesing Hvítur 0 M 0 - þvottur þolir allan samanburð Þarna er hún að flýta sér í matinn. Hvað er það, sem vekur athygli þína? Kjóllinn, OMO-þveginn, auðvitað. Öll hvít föt eru hvít tilsýndar, en þegar nær er komið, sést bezt, hvort þau eru þvegin úr OMO. Þessi fallegi kjóll er eins hreinn og verða má, hvítur, mjallahvítur. Þegar þú notar OMO, ertu viss um að fá hvíta þvottinn alltaf verulega hreinan, og mislitu fötin einnig. Láttu þvottinn verða þér til sóma, — láttu ekki bregðast að hafa alltaf OMO í eldhúsinu. ^OMO 33/rM-e460-50 Blátt OMO skilar yði/r hvítasta þvotti i heimi — einnig bezt fyrir mislitan! ar og Valsmenn og sigruðu Akur- nesingar með miklum glæsibrag, skoruðu 7 mörk gegn 1. Staðan var 6:0 í hálfleik. Leikur Akurnesinga í fyrri hálfleik var með því bezta sem til þeirra hefur sézt um nokkurra ára skeið. Þó segja megi að mörk in hafi komið eins og á færiöandi — 6 í hálfleiknum —- gefur þetta nokkuð rétta mynd af gangi leiksins. Valsmenn brutust nokkr um sinnum í gegn en sóknartil- raunir þeirra voru tilviljana- kenndar og lausar í reipunum. Framlína þeirra var aldrei sám- stillt í sókninni. Framlína Akurnesinga var hins vegar mjög hreyfanleg. Leikið var af meiri fjölbreytni en áður, kantarnir nýttir og tókst vel, einkum hægra megin, en þar naut Akranesliðið aftur hins gamalkunna Halldórs Sig-. urbjörnssonar (Donna) sem ekki hefur leikið fyrr á þessu ári. Var eins og nýtt líf færðist í allt liðið við endurkomu hans. Helgi Björgvinsson skoraði fyrsta markið mjög fallega er skammt var á leikinn liðið. Hann skoraði einnig annað mark ið eftir að hafa leikið á tvo varn- armenn. Færðist aukið fjör í Akranesliðið við þessi mörk, en vörn Vals varð æ götóttari, eink um mistókst Árna í stöðu mið- varðar. Þriðja markið skoraði Ríkharður eftir að hafa brotizt í gegn á miðjunni, en vörn Vals gaf óþarflega langan tíma til umsvifa innan vítateigs. í lok hálfleiksins var sókn Akranesliðsins líkust vélbyssu- skothríð á mark Vals og skoruðu Akurnesingar 3 mörk á síðustu 4 mín. hálfleiksins. Voru þau undirbúin með laglegum sam- leik, þar sem knötturinn gekk með góðum skiptingum frá miðju og yfir á kantana til skipt- is. Skoraði Þórður Þórðarson tví vegis og Halldór Sigurbjörnsson skoraði hið sjötta mark. Var nú einsýnt um úrslit í leiknum, enda kom í ljós í síð. hálfleik að Akurnesingar lögðu ekki eins hart að sér. Tókst Vals mönnum að skora á fyrstu mín- útunum eftir gróf mistök Guð- mundar bakvarðar. Aldrei missti þó Akranes frumkvæðið í leikn- um og átti skemmtilegar atlögur að marki Vals. Þórður Jónsson var fylginn sér og ágengur við markið en óheppinn — átti tvö /

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.