Morgunblaðið - 05.07.1958, Síða 16
Grímsárvirkjun.
Sjá grein á bls. 9.
Kjarobætur 7,17% umfram
lögboöna hækkun
í 5 iðngreinum
Samsvarandi verbhækkanir
Flokksráðs- og
formannaráðstefnan
sett kl. 1,30 í dag
FUNDUR flokksráðs Sjálfstæðisflokksins og formanna
Sjálfstæðisfélaganna hefst kl. 1.30 í dag í Sjálfstæðishúsinu.
1 upphafi fundar mun formaður flokksins, Ólafur Thors,
flytja inngangsræðu um stjórnmálaviðhorfið og síðan mun
formaður skipulagsnefndar flokksins, Birgir Kjaran, hafa
framsögu um skipulagsmál flokksins.
Þess er óskað, að fulltrúar vitji aðgöngumiða að fund-
inum í skrifstofu flokksins í Sjálfstæðishúsinu fyrir hádegi
í dag.
Heildarsöltun nam
88,298 tunnum á mið-
nœtti í fyrrinótt
RAFVIRKJAMEISTARAR sam-
þykktu á fundi klukkan 2 í fyrri-
nótt að fullgilda hinn nýja kaup-
og kjarasamning við rafvirkja-
sveina. Hafði það köraið fram á
fundinum, sem skotið var á í
skyndi klukkan 11,30 um kvöldið,
að öruggar líkur væru fyrir já-
kvæðu svari verðlagsyfirvaldanna
um að kauphækkanir, sem af samn
ingnum leiddi yrðu bættar með
hækkun á útseldri vinnu.
1 kjölfar þessa sigldi svo sam-
komulag milli atvinnurekenda og
sveina í fjórum iðngreinum, sem
undanfarið hafa verið í verk-
falli, þ.e.a.s. járniðnaðarmanna,
blikksmiða, bifvélavirkja og
skipasmiða. Samdist um veruleg-
ar kauphækkanir til þeirra, að
því tilskildu, að atvinnurekendur
fái kauphækkanirnar bættar með
hækkun á útseldri vöru. Torfi
Hjartarson sáttamsemjari ríkisins
í vinnudeilum, hafði meðalgöngu
um þetta samkomulag. í gærkv.
hafði ekki verið lýst verkfalli
í þessum fjórum iðngreinum.
Sáttafundurinn í kaup- og
kjaradeilu bifvélavirkja, biikk-
smiða, járniðnaðarmanna og
skipasmiða, hófst í Alþingishús-
inu klukkan 9 á fimmtudagskvöld
ið. Klukkan um 10 í gærmorgun
gengu samninganefndarmenn út
úr Þinghúsinu eftir að samkomu-
lag hafði verið undirritað með
þeim fyrirvara, sem venja er að
hafa á, þegar gerðir eru kaup- og
kjarasamningar, það er að félög
deiluaðila samþykki gerðir samn-
inganefndanna.
Fundir voru haldnir í þessum
félögum í gær og höfðu ekki bor-
izt fregnir um að þar hefði sam-
komulagið verið fellt.
Samkomulagið, sem undirritað
var í gærmorgun, eftir 13 klst.
sáttafund, var á þá leið að kaup
iðnsveina, sem hér eiga aðild að,
skuli hækka úr kr. 600,27 á viku
í kr. 665.Er hér um að ræða 10,8
prósent beina hækkun þegar inni-
falin, er hin lögboðna „bjargráða
Da Silva væntan-
legur í morgun
•k ÓLYMPÍUMEISTARINN og
heimsmethafinn í þrístökki,
Brazilíumaðurinn da Silva var
væntanlegur hingað snemma í
morgun með flugvél Loftleiða frá
Bandaríkjunum.
Sem kunnugt er keppir da
Silva á frjálsíþróttamóti, sem IR
efnir til og heyr þá í þriðja
sinn einvígi við Vilhjálm Ein-
arsson.
EINS og öllum mun kunnugt,
hafa kartöflur verið ófáanlegar
í verzlunum bæjarins undanfar-
ið, og hefur það ástand valdið
megnri óánægju eins og eðiiiegt
er. Kvað margt áfellisorðið hafa
hrotið af vörum reykvíkskra hús-
mæðra í matarverzlunum undan-
farna daga og þykir þeim skipan
þessara mála illviðunandi, og
telja þær það hin mestu firn, að
leyfa ekki innflutning á svo lífs-
nauðsynlegri vöru sem kartöfl-
hækkun" ; launum, en beina
kauphækkunin umfram lögboðnu
hækkunina nemur 5,51 prósenti.
Þessu til viðbótar kemur að
samkomulag varð um, að vinnu-
vikan skuli vera 43 klst., mánuð
ina júlí og ágúst og verði ekki
unnið á laugardögum á þessu
tímabili. Jafngildir þetta 1,66
prósent kauphækun. Er þá kaup-
hækkunin alls 12,17 prósent, eða
7,17 prósent umfram hina lög-
boðnu hækkun.
Inn í samkomulagið var settur
sá fyrirvari, að atvinnurekendur
fái að taka hækkun þá, sem verði
á kaupi sveinanna með í útreikn-
ing á seldri vinnu.
Verðlagsyfirvöldin samþykktu
í gær hina áskildu hækkun hjá
rafvirkjameisturum, en þá mun
ekki hafa verið búið að gera
formlega samþykkt um hækkun
hjá oðrum iðnrekendum.
Þessi mynd er af hinu stórglæsi-
lega skemmtiferðaskipi „Sænsku
Ameríkulinunnar“ Gripsholm,
sem kom til Reykjavíkur í gær-
dag með bandarískt skemmti-
ferðafólk. Þokuloft byrgði alla
fjallasýn í gærdag. Síðdegis gerði
hellirigningu. Það mátti heyra á
gestunum að þeir fögnuðu rign-
ingunni. Eftir svo sem þrjá stund-
arfjórðunga stytti upp aftur. —
Skemmtiferðafólkíð verður hér
þar til klukkan 11 í kvöld, er
þetta glæsilega skip blæs til brott
ferðar.
DALVÍK, 4. júlí: — Þessi skip
hafa lagt hér upp síld í dag:
Faxaborg 400 tunnur, sem öfluð-
ust á Grímseyjarsundi. Af Húna-
flóamiðum: Sæfaxi 250 tunnur,
Guðfinnur 100, og Bjarni VE 600,
Húnaflóasíldin er stærri og feit-
ari, en veiðzt hefur hér um ára-
bil. Er fitumagnið 22 til 26%.
SPJ.
um, en fylla glysbúðir af glingri
og veita valútu til lystiferða.
Mbl. hringdi til forstjóra Græn-
metissölu ríkisins í gær og spurði
hvað kartölfuskipinu langþráða
liði. Sagði hann skipið, sem er
Dísarfell, á leiðinni, en það hefði
tekið á sig krók til Gautaborg-
ar, að ná í vélar, tefðist því um
tvo daga og legði væntanlega
hér að bryggju miðvikudagínn
9. júlí. Daginn eftir ættu kart-
öflurnar að geta verið tilbúnar
til afgreiðslu.
Þess skal að lokum getið að í
fyrrakvöld var útvarpinu haldið
opnu til klukkan 0,30 e.m. vegna
þess að þá var búizt við að verk-
falli rafvirkjanna yrði aflýst.
Næturfundi rafvirkjameistara
var ekki lokið fyrr en klukkan 2
um nóttina. 1 morgunútvarpinu í
gærmorgun, var tilkynnt að verk-
fallinu væri lokið og hófst vinna
rafvirkja í gær.
Svartaþoka á mið-
ununi í nótt
ER MBL. hafði tal af fréttaritara
sínum á Siglufirði laust fyrir
miðnætti höfðu eftirtalin skip til-
kynnt afla: Þráinn 150 tn, Erling-
ur III 200, Svalan 80, Guðbjörg
GK 350, Gunnvör ÍS 250, Frosti
VE 100, Stjarnan 200, Stígandi
600, Ófaigur III 600, Snæfugl
50, Fram 600, og Ingvar Guð-
jónsson 150 tunnur. Sumir bát-
arnir höfðu fengið aflann vestur
af Grímsey, en aðrir vestur af
Strandagrunnshorni. Undir mið-
nættið var lítið að gerast á mið-
unum. Var þá komin svarta þoka
bæði fyrir austan og vestan.
í GÆRMORGUN barst sú fregn
út um bæinn að þrír gæzlufang-
ar frá Litla-Hrauni hefðu gerzt
útilegumenn í hinum sögufræga
og fagra Þjórárdal. Höfðu fang-
arnir, sem allir eru ungir menn,
stokkið af bíl inni í Þjórsárdal og
komizt undan til skógar. í gær-
kvöldi var kominn mannsöfnuð-
ur að Ásólfsstöðum sem leita
skyldi útilegumannanna og voru
sporhundar með í förinni, en
leita átti í alla nótt.
Þessi fregn mun hafa komið
yfirvöldunum hér í Reykjavík
mjög á óvart, því ekki barst
þeim nein vitneskja um strok
mannanna fyrr en um 17 klst. eft
ir að flóttinn hafði átt sér stað.
Gæzlumannalið á Litla-Hrauni
hefur verið aukið nú í vor, eftir
að gæzlufangar höfðu hvað eftir
annað stofnað til óspekta og mót-
þróa. Samt mun ekki hafa tekizt
að koma á fullri ró meðal gæzlu-
fanganna.
Samkvæmt frásögn útvarpsins,
lét yfirmaður vinnuhælisins svo
um mælt í viðtali í gærkvöldi
um aðdragandann að stroki fang-
anna, að á Litla-Hrauni væri það
venja, að leyfa föngunum að vera
með, þegar sauðfé vinnuhælisins
SIGLUFIRÐI, 4. júlí. — Mörg
skip fengu síld í nótt, mest á
vestursvæðinu, Strandgrunns-
horni. Mikil þoka var þar, en á
Skjálfanda var svartaþoka og
mjög erfitt að færa skip. Heldur
virðist síldin færa sig nær og er
orðið mun styttra að sækja hana
væri flutt með bílum inn á af-
rétt á vorin. Það væri nokkurs
konar skemmtiferð fyrir þá.
Ekkert sögulegt gerðist í þremur
fyrstu ferðunum. Með 4. bíl
voru fimm fangar, auk bifreiðar-
stjóra og verkstjóra frá Litla-
Hrauni. Stukku þrír fanganna af
bílnum, er farið var niður
brekku í Skriðufellsskógi á heim
leið . um kl. 19 í fyrrakvöld.
Hurfu þeir í skóginn. Þeir stóðu
á bílpallinum. Þremenningarnir
stefndu til fjalls, er þeir hurfu
sjónum. Hringt var frá Ásólfs-
stöðum til rannsóknarlögreglunn
ar í Reykjavík, en jafnframt
hófu sex starfsmenn frá vinnu-
heimilinu o.fl. leit að strokuföng-
unum í Skriðufellsskógi. Þeir
sáu ekkert af þeim nema spor í
moldarflagi, sem sýndu, að þeir
höfðu stefnt inn til landsins. Leit
að var í skóglendinu til kl. 1 í
fyrrinótt, en inn af skóglendinu
eru fjöll og óbyggðir.
í gærkvöldi fóru menn frá
flugbjörgunarsveitinni austur til
leitar og höfðu sporhunda með í
förinni. Þegar Mbl. hafði sam-
band við leiðangursmenn kl. 9
í gærkvöldi, kváðust þeir mundu
leggja upp frá Ásólfsstöðum um
tíuleytið og gerðu ráð fyrir að
leita í alla nótt. Þeir höfðu tekið
en áður eða um 60 mílur héðan.
Vitað er um eftirtalin skip sem
hafa fengið síld síðan í gær-
kvöldi: Sunnutindur 150 tn. Þor-
steinn 200, Baldvin Þorvaldsson
250, Muninn GK 300, Svanur RE
200, Reynir AK 350, Björn Jóns-
son 4—500, Kópur KE 200, Faxa-
borg 350, Bjarmi 550, Steinunn
gamla 250, Gunnhildur 300, Þór-
katla 200, Jökull 200, Hrafnkell
300, Jón Finnsson 250, Páll Páls
son 350, Smári 200, Hringur 150,
Bjarmi VE 150, Völustein 200,
Þorsteinn GK 200, Tjaldur SH
200, Gjafar 350, Sæfaxi AK 250,
Ágúst Guðmundsson 150, Krist-
ján 300, Ingjaldur SH 350, Helga
RE 500, ísleifur II 250, Sæfinnur
250, Halkion 200, Guðbjörg 200,
Ólafur Magnússon AK 400, Höfr-
ungur AK 450, Snæfell 600,
Reykjanes 200, og Rifsnes 300.
Hér voru saltaðar 6,528 tunnur í
gær og hafa þá alls verið saltað-
ar 63.132 tunnur hér á Siglu-
firði á þessari vertíð, en heildar-
söltunin á landinu nam 88,298
tunnum á miðnætti í nótt.
með sér lök og fatnað fanganna
til að koma hundunum á sporið.
Fangarnir, sem struku heita
Jóhann Víglundsson, Einar Arn-
órsson og Ragnar Jónsson. Jó-
hann hefur áður strokið frá hæl-
inu eins og kunnugt er af frétt-
um. í gær var milt veður austur
í Þjórsárdal og komst hitinn í 23
stig á Ásólfsstöðum.
Sóðaskapur við
Leifsstyttuna
EKKI verður hjá því komizt, að
benda á, að umhirðan á styttu
Leifs heppna á Skólavörðuhæð er
með þeim fádæmum að án talar
verður að fara fram lagtæring.
Um þessar mundir hópast hingað
erlendir ferðamenn og án efa
verður þeim bent á styttu Leifs,
er ekið er um bæinn og trúlega
við hana staldrað
Það er til dæmis um þann sóða-
skap, sem menningarsnauðir veg-
farendur og óvitar hafa haft í
frammi, að makað hefur verið
tjöru yfir áletrunina og slett
grænni málningu á öðrum stöð-
um. Um daginn var minnzt á
umgengnina við styttu Snorra
í Reykholti, en hún er sýnu verri
við styttu Leifs heppna.
Kartöflurnar koma 9. júlí
Gœzlufangar á Litla-Hrauni leggjast
út í Þjórsárdal
Yoru í skemmtiferð með verkstjóra hœlisins