Morgunblaðið - 06.07.1958, Side 9

Morgunblaðið - 06.07.1958, Side 9
Sunnudajpur 6. jálí 1958 MOFCT’Vnr 4»1Ð 9 * KVIKMY N DIR + Dýramyndir Walts Disneys Skoðar hér það, sem augu for- feðra hans hvíldu á FYRIR nokkrum árum byrjaði teiknimyndahöfundurinn frægi, Walt Disney, sérstakan kvik- myndaflokk um líf dýranna. Þessi myndaflokkur ber heitið „Sönn ævintýri úr lífinu“, og er sorg- lega lítið kunnur íslenzkum kvik- myndahúsgestum. Tildrög þess að Disney fór að kvikmynda dýrin sjálf, í stað þess að gera þau að aðalpersón- unum í teiknimyndum sínum, eru sem hér segir: Áður en Disney byrjaði að teikna eitthvert dýr, eyddi hann oft löngum tíma 1 að fylgjast með athöfnum þess og viðbrögðum og skoða hreyf- ingar þess. Frægasta dæmið er músin, sem hélt til í herberginu hans, og varð fyrirmyndin ,að Mikka Mús. Af þessum sökum lágu hann og samstarfsmenn hans oft langtímum saman í leyni í nánd við bústaði villtra dýra. Það varð til þess að þeir fengu svo mikinn áhuga á dýrunum sjálfum að þeir fóru að kvik- mynda athafnir þeirra og tengja þessar myndir svo saman í sög- ur. í fyrstu voru kvikmyndirnar úr dýralífinu í ofurlítið grófum skopstíl, til að fanga athygli hins almenna kvikmyndahúsgests. En smám saman hvarf þessi stíll fyr- ir tilgerðarlausum náttúrulýsing- um. Nú voru kvikmyndahúsgest- X komnir á bragðið og ekki þurfti lengur að lokka þá. Sá sem stjórnar þessum myndaflokki Eitt af „Ijónunum í Afríku“ úr inynd Disneys heitir James Algar, reyndur fræðslumyndahöfundur. Fyrsta langa myndin í flokkn- um, „Undur eyðimerkurinnar“, hefur verið sýnd hér, en hún er sú eina, að því er okkur er bezt kunnugt. Hún varð gerð árið 1953, en þá voru áður komnar nokkrar stuttar myndir úr lífi dýranna. Af stuttu kvikmyndunum má nefna myndina um bjórinn. Hún er að mestu tekih undir vatns- borðinu og sýnir hvernig bjór- inn stofnar bú að vorinu, nær sér í konu, safnar trjábútum, byggir stíflur o. s. frv. Aðrar stuttar myndir eru: „Paradís hjartanna", „Bjarnarland“ og „Daglegt líf sjófuglanna". Af löngu kvikmyndunum má nefna, auk kvikmyndarinnar „Undur eyðimerkurinnar" sem áður er nefnd, „Sléttan að deyja út“, Leyndardómar lífsins" og „Ljónið í Afríku“. í síðastnefndu kvikmyndinni er því lýst hvernig Ijónynjan er húsbóndinn á heimil inu og ber ábyrgð á fjölskyld- unni meðan karlljónið lifir makindalegu lífi. Hún elur upp börnin, ver þau fyrir ágangi ut- anaðkomandi dýra og veiðir handa þeim, eftir þeim fjöl- breytta matseðli, sem ljónin í myndinni virðast hafa, þar sem eru hin dýrin í kringum þau. í þeirri mynd eru sýnd fleiri dýr á veiðum, eins og t. d. hlébarði, sem kastar sér á bráðina ofan úr tré. Kvikmyndirnar úr þessum myndaflokki eru ekki einungis fróðlegar, heldur eru þær líka bráðskemmtilegar og fallegar. Sjálf kvikmyndatakan vekur að- dáun og áhorfandanum er það alveg óskiljanlegt hvernig kvik- myndatökumaðurinn hefur get- að náð sumum myndunum, án þess beinlínis að vera étinn upp til agna af villidýrium. ’.Vlt Disney Það er vissulega skaði að kvik- myndahúsin skuli ekki gefa okk- ur tækifæri til að sjá feiri af þessum frábæru myndum. „Á villigötum', ÞESSI ameríska kvikmynd, sem Austurbæjarbíó sýnir, segir að vísu frá kaldrifjuðum bófum, en er þó ólík flestum bófamyndum að því leyti að þar er varla hleypt skoti úr byssu, en hins vegar mik ið „rokkað“ og ofsalega og sung- in þar mörg rokk- og calypsolög, enda fer þarna með aðalhlutverk- ið Mamie van Doren, en hún hlaut viðurnefnið „rokkdrottn- ingin“ eftir leik sinn í þessari mynd, að því er segir í kvik- myndaskránni. — Þar segir reyndar líka að myndin fjalli um „æskufólk á villigötum", en væri réttara „eldra fólk á villigöt- um“, því að unga fólkið þarna er yfirleitt ágætt, eða að minnsta kosti stórum betra en hið eldra. — Myndin gerist á búgarði Russ Tropp’s, sem er leynilega kvænt- ur héraðsdómaranum Cecile Steel, en hún sér manni sínum fyrir ódýru vinnuafli með því að dæma ungt fólk fyrir smá- afbrot til vinnu á búgarði hans um ákveðinn tíma. Tropp er mesta varmenni bæði í kvenna- málum og fjármálum, og verða stúlkurnar á búgarðinum mjög fyrir áleitni hans. — Systurnar Penny og Janey Low hafa verið dæmdar til vinnu á búgarðinum og sonur Cecile dómara ræðst þangað einnig sem starfsmaður. — Hann veit ekkert um giftingu móður sinnar í fyrstu, en þegar hann kærir Tropp fyrir henni vegna framkomu hans við Penny, játar móðir hans fyrir honum að hún elski Tropp og sé gift honum. — Syninum tekst þó að lokum að opna augu móður sinnar fyrir glæpsamlegu athæfi Tropps og kemur þá til kasta hennar sem dómara. Myndin er hvorki verri »é betri en amerískar myndir af þessu tagi gerast, — sam sé fr-em- ur lítilmótleg. Ego. „Glaöa skólaæska" BANDARÍSKT háskólalíf er um margt ærið ólíkt því sem gerist við háskóla í Evrópu ef dæma má eftir því sem við fræðumst um þessa hluti af sögum og kvik- myndum. — Frjálsræði er við ameríslca háskóla mjög mikið og þar blómgast fjölþætt félagslíf meðal nemenda og margs konar skemmtanir eru þar einnig á boð- stólum, sem nemendurnir sjá óft- ast um sjálfir. í kvikmyndinni „Slaða skóla- Samtal v/ð „Onkel Lauritz" í norska útvarpinu BARNADAGSKRÁIN í útvarp- inu er mikilvægasta dagskrár- efnið og jafnframt það hættuleg- asta, því börn eru svo næm og opin fyrir áhrifum. Við, starfs- menn útvarpanna, höfum bein- línis á valdi okkar að breyta fólki. Gegnum okkur fær barnið sín fyrstu kynni af tónlist, leik- list o.s.frv. Það má því ekki flytja barninu nema það allra bezta. Þetta eru orð Lauritz Johnsons sem allir krakkar í Noregi þekkja undir nafninu Onkel Lauritz, en hann hefur að und- anförnu setið hér fund norrænna útvarpsmanna, sem sjá um barna tima og skólaútvarp. Þetta er gráhærður maður með kýmnis- glampa í augunum og manni finnst að einmitt svona hljóti frændinn að vera, sem hefur unn ið hug og hjörtu norsku barn- anna. — Ef til vill er gert of mik- ið að því í útvarpinu að fræða börnin, ^heldur Lauritz Johnson áfram. Fræðslan dynur á þeim alls staðar frá, í skólunum jafnt sem á heimilunum. Það ætti ekki að vera höfuðmarkmið út- varpsins, heldur það að auðga ímyndunarafl barnanna. Ég vil leggja mesta áherzlu á að ala börnin upp til að vera frjálsir lýðræðissinnar, í smáu sem stóru, og til að vera sannir alheims- borgarar. Það má ekki tala við börn eins og maður sé langt yfir þau hafin. Hvernig barnadagskránni er háttað í Noregi? Við byrjum á þeim yngstu og endum á þeim elztu. Á hverjum morgni er barnadagskrá fyrir yngstu börn- in, 3—4 ára. Við höfum sérstaka dagskrá fyrir 10 ára börn, fyrir unglinga og fyrir foreldra. En vinsælustu banatímarnir eru þó laugardagstímarnir, sem við köll um fjölskyldudagskrá. Hún er miðuð við 7—12 ára börn, en all- ir hlusta, ungir og gamlir. Leigu- æska“, sem Gamla Bíó sýnir nú og gerist í einum af háskólum Bandaríkjanna fáum við nokkra hugmynd um lífið þar — þó að vísu nokkuð einhliða. — Nem- endur taka margir hverjir nám- ið ekki hátíðlega, en njóta í þess stað lífsins í ríkum mæli við dans og daður og brennandi ást þegar því er að skipta. Allt ólg- ar þarna af æskugleði og lífs- fjöri, en allt þó með prúðmann- legum hætti sem sæmir góðu ungu fólki. — Dobi Gillis, ung- ur stúdent hefur setzt í Grainbelt háskólann og er aðaláhugamál hans hinar ungu og friðu skóla- systur hans, enda er hann mesta kvennagull. En hann verður þeg- ar ástfanginn af Pansy Iíammer og lítur ekki við annarri þrátt fyrir allan gáskann og fjörið. Og hún, sem hafði verið svo iðin við námið fer nú að slá algerlega slöku við það af eintómri ást til Dobies. — Faðir hennar send- ir hana til New York til þess að stía þeim sundur. — En „kærleikurinn sigrar allt“, segir gamalt máltæki og svo reynist einnig í þessari mynd. í myndinni er mikið „rokkað" og mörg önnur atriði eru þar bráðskemmtileg. Einkum hlýtur myndin að verða vinsæl meðal unga fólksins — ef ég þekki það rétt. Aðalhlutverkin, þau Dobie og Pansy, leika Bobby Van og Debbie Reynolds og eru þau bæði mjög aðlaðandi og leikur þeirra prýðilegur. Ego. bílstjórarnir í Osló segja að milli klukkan 6 og T á laugardögum séu göturnar auðar. Þá sitja all- ir saman fyrir framan útvarpið með kökur og gosdrykki, og þannig er það um allan Noreg. Þetta er einasti dagskrárliðurinn okkar, sem þrír ættliðir hlusta á. Lauritz Johnson er ákaflega ánægður með árangurinn af ráð stefnu útvarpsmannanna, sem nú Lauritz Johnson er afstaðin. Það fékkst samþykkt að útvörpin á Norðurlöndum sendu árlega skýrslur um barna tíma sína hvert- til annars og hvert útvarp sendi að minnsta kosti einu sinni á ári fulltrúa í kynnisferð til annarrar útvarps- stöðvar. Og nú er ráðstefnunni lokið og Johnson hefur snúið sér að hinu erindinu, sem hann átti til ís- lands. En það var að heimsækja tvo staði á landinu, Espihól í Eyjafirði og Dýrafjörð, til að skoða það sem augu forfeðra hans hafa hvílt á, eins og hann orðar það. Því Lauritz Johnson er ættaður frá íslandi. Gísli Jónsson, bróðir Jóns Espolins, íluttist til Noregs og gerðist þar prestur um 1800. Af honum er mikill ættleggur í Noregi. Og afkomendur hans halda mjög á lofti tengslum sín- um við ísland. T.d. heita öll börn Lauritz Johnsons, Espolín að seinna nafni. Hann segir að oft hafi sér dottið í hug að taka upp ættarnafnið Espolín, en nú er nafn hans orðið of þekkt í Noregi til að skipta um. Dýrafirði er hann líka tengdur gegnum forfeður sína. Afi hans, Lauritz Berg, rak þar hvalstöð. Hann lét byggja þar litla kirkju úr timbri, sem hann flutti með sér frá Noregi, og um leið og sú kirkja var vígð, voru faðir John- sons og móðir gefin þar saman í heilagt hjónaband. Kirkjan stendur þar enn, en hvalstöðin og íbúðarhúsið ei horfið. Johnson segir að á dögum afa síns og ömmu hafi Dýrafjörður alls ekki verið eins afskekktur og ætla mætti. Þangað hafi kom ið margt stórmenna, eins og t.d. Karl prins, sem seinna varð Hákon Noregskonungur, Frið- þjóf Nansen og margir aðrir þekktir heimskautafarar. Og nú ætlar Johnson að fara að skoða þessa staði, sem hann hefur heyrt svo mikið um og fara ríð- andi sömu leiðina og móðir hans, þegar hún brá sér á ball í gamla daga, frá Dýrafirði oe inn til ísa- fjarðar. Auk heimkynna ættmenna sinna hefur Lauritz Johnson heimsótt marga gamla sögustaði á íslandi í þessari ferð. Hann er búinn að vera á Borg á Mýrum Bergþórshvoli og í Reykholti, og hann er búinn að fara norður í Mývatnssveit og taka upp á stál- band kraumið í hverunum á Námaskarði. Það hefur í sumar verið jafn mikið ævintýri að kynnast hin- um óbeizlaða frumkrafti íslenzkr ar náttúru, eins og að mæta allt í einu steinöldinni, en það fannst mér ég gera þegar ég í fyrrasum ar ferðaðist um Afríku, segir hann. Þar búa menn í strákofum, éiga aðeins leirkrukku með mat og þurrkaðar baunir, en þeir gefa sér líka tíma til að sitja fyr- ir utan kofann sinn og túlka til- finningar sinar hömlulaust með því að hnoða í leir eða með ein- hverju öðru móti. Við að kynn- ast þeim verður manni ljóst, hvað mennirnir hafa í rauninni lítið breytzt, þó að þeir hafi þró- azt tæknilega. Þessir menn eru á svipuðu stigi og víkingarnir. Ef við lítum á það sem eftir þá liggur, sjáum við að þó að þá skorti tæknikunnáttu, höfðu þeir andlega þroskaðan og listrænan smekk. — Það gleður mig að sjá hvern ig nútíðin hér er tengd fortíð- inni, sagði Johnson að lokum. Það er svo mikilvægt að gæta þess bezta úr gamalli arfleifð. En ég er ekki síður hrifinn af nýja íslandi en hinu gamla. Allt þetta ónotaða landrými hér, öll þessi óbeizlaða fossorka, allir þessir möguleikar. Hér er rúm fyrir þúsundir íbúð í viðbót. Ég er líka búinn að ganga um þessa nýbyggðu borg ykkar þvera og endilanga, og fæ ekki betur séð en að í listrænu tilliti standið þið okkur í Noregi framar. Sinfóníuhljóm- sveitmni vel fagn- að í Bolungarvík BOLUNGARVÍK, 4. júlí. — Sin- fóníuhljómsveit íslands hélt hljómleika hér í félagsheimil- inu á miðvikudagskvöldið undil stjórn Paul Pampichlers. Óperu- söngvararnir Guðmundur Jóns- son og Þorsteinn Hannesson sungu með hljómsveitinni, senj lék sinfóníu nr. 94 eftir Haydn og ýmis sönglög, innlend og er- lend. Var hljómsveitinni og söngvurunum ákaft fagnað. Bol- víkingar fjölmenntu á hljómleika pessa, enda var hér um einstæð- an viðburð að ræða hér um slóð- ur Hjaltason, sveitarstjóri, bauð hreppsnefnd Hólshrepps hljóm- sveitinni til hófs, sem var haldið < kaffisal félagsheimilisins. Þórð ur Hjaltason, sveitarstjóri, bauð gestina velkomna með ræðu. Þá ílutti Friðrik Sigurbjörnsson, ræðu, en Jón Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri hljómsveitarinnar, flutti svarræðu og þakkaði mót- tökurnar fyrir hönd gesta. Um 60 manns mun hafa setið hóf þetta, sem var mjög ánægjulegt. Er Sinfóníuhljómsveitinni og for ráðamönnum hennar mjög þökk uð koman hingað. — Fréttaritari. Urslit kosiiinga í Bessastaðalireppi í NÝAFSTÓÐNUM kosningum f Bessastaðahreppi voru þessir menn kjörnir í hreppsnefnd: Eyþór Stefánsson, Akurgerði; Gunnlaugur Halldórsson, Hofi; Sæmundur Arngrimsson, Landa- kotij Sveinn Erlendsson, Grund og Ármann Pétursson, Eyvindar- holti. I sýslunefnd var kjörinn Eyþór Stefánsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.