Morgunblaðið - 12.07.1958, Page 9

Morgunblaðið - 12.07.1958, Page 9
Laugardaínir 12. júlí 1958 xnr 4 nji. 9 íslenzkir iðnaðarmenn vilja fúsir liggja sinn skerf til þjóðhollrar viðreisnar atvinnuveganna Ræða Björgvins Frederiksen form. Landssambands Iðnaðarmanna á Iðnþingi Islendinga FORSETI bæjarstjórnar, góð-j ir iðnþingsfulltrúar og gestir. Eg býð yður öll hjartanlega I velkomin til setningar 20. Iðn- þings íslendinga. Eg þakka ísfirzkum iðnaðar- mönnum fyrir að bjóða okkur að halda þingið að þessu sinni hér á ísafirði. Þá vil ég sérstaklega þakka formanni Iðnaðarmanna- félagsins og stjórn þess fyrir hve vel er tekið á móti okkur öllum og fyrir það hve vel virðist búið í haginn að öllu leyti fyrir full- trúana til að geta starfað að mál efnum Iðnþingsins. Ég vona að þingfulltrúarnir endurgjaldi alla þessa fyrirhöfn, með miklum og góðum störfum, sem verði iðnaðinum til hagsæld- ar og sóma. Það teldi ég hina beztu afmælisgjöf til tuttugasta Iðnþingsins. Á síðastliðnu sumri átti Lands- sambandið 25 ára afmæli. Var þess minnzt á síðasta Iðnþingi, og þá jafnframt rifjuð upp nokk- ur atriði úr starfssögu iðnþinga, mun ég ekki ræða þau mál að sinni, en vitna til setningarræðu 19. Iðnþings, sem birt er í Tíma- riti Iðnaðarmanna 7.—8. hefti 1957. Hinn fjölmenni hópur iðnaðar- manna, sem hér er samankominn í dag á hinum mestu annatímum ársins í mörgum iðngreinum, ber því bezt vitni hve almennur á- hugi ríkir um iðnaðarmálin og hvert aðdráttarafl ísafjörður hef- ur haft bæði á iðnþingsfulltrú- ana og konur þeirra. Á Löngum hefur staðið hinn mesti frægðarljómi af ísfirzkum iðnaðarmönnum, framsækni þeirra og menntaþrá, sem bezt kemur fram í hinni löngu sögu Iðnaðarmannafélagsins, sem úm þessar mundir er 70 ára og auk þess að vera annað elzta iðnað- armannafélag á landinu. Mann- virki og byggingar í höfuðstað Vesturlands eru talandi tákn um dugmikla hagleiksmenn, sem sett hafa svip á bæinn, augljósan svip, sem sýnir þróun og framför kaup- staðarins í verki. Því er það svo að þegar. gesti ber að garði úr hinum ýmsu byggðarlögum þá veldur miklu um allt hið ytra og innra útlit hverjir eru iðnað- armenn staðarins. ísfirzkir iðn- aðarmenn hafa fylgt tímans tönn, þeir hafa unnið úr litlu og miklu. þeir hafa upplifað hina breyti- legustu tíma, þeir hafa byggt kaupstaðinn við hinar ólíkustu aðstæður og þannig mun ísafjörð- ur halda áfram að þróast fyrir atbeina starfssamra handa til sjós og lands. Öll þessi verk mun- um við gestir ykkar skoða næstu daga auk þess að endurnýja göm- ul vináttubönd og treysta ný. En það er fleira sem heillar hér vestra ,sem yfirgnæfir öll mann- anna verk, það er hin stórfeng- lega náttúrufegurð ísafjarðar, sem er og verður langmestur allra fjarða vestra. Að sigla fram fjörðinn milli himinhárra blárra fjalla í fögru veðri er ógleyman- leg sjón og stórfengleg. Þannig er hann í dag og þannig var hann er Jón Indíafari tók skip- rúm hér fyrir álíka mörgum ár- um og dagarnir eru í árinu og gerðist víðförlastur allra íslend- inga. Ef hlíðarnar beggja vegna við kaupstaðinn mættu mæla þá gætu þær sagt okkur margar sög- ur um líf og fjör á Tanganum, er hinar happasælu fleytur dugmik- illa vestfirzkra sjómanna hafa svamlað inn á Pollinn færandi björg í bú, þá björg, sem er enn aðalundirstaða til gjaldeyrisöfl- unar íslendinga. í þessum forna höfuðstað Vest- urlands er ánægjulegt að koma til skrafs og ráðagerða við ís- firzka iðnaðarmenn og stéttar- bræður þeirra af öllu landinu. ★ Á málaskrá Iðnþingsins eru að vanda nokkur þau mál, sem áð- ur eru okkur kunn, en sem hafa Björgvin Frederiksen ekki ennþá fengið fullnaðaraf- greiðslu og enn önnur sem oftast munu fylgja okkur vegna þess að þeim þarf að þoka í rétta átt eftir öllum aðstæðum, eins og þær eru á hverjum tima. Ég mun ekki nema lítillega gera þeim skil núna því að gerð er grein fyrir nokkrum þeirra í skýrslu stjórn ar Landssambandsins og verða þau rædd undir þeim lið. Iðn- fræðsla og iðnskólar er gamall og sjálfsagður fylgifiskur Iðn þinga og ekki að ástæðulausu, því að fátt mun okkur skyldara og nauðsynlegra viðfangsefni en að huga að því hvort iðnfræðslan sé í samræmi við það sem tím arnir krefjast hverju sinni og hvort hún er samræmd við hið bóklega og hið verklega nám. Öll aðstaða hefur stórbatnað hin síðari ár vegna betra húsnæðis iðnskólanna og þá sérstaklega í Reykjavík vegna nýju skólabygg- ingarinnar til bóklegs náms, en öðruvísi horfir við um skilyrði skólans til eflingar verknámi, þótt örfáar iðngreinar hafi feng- ið húsnæði í nýja skólanum til verklegrar kennslu og námskeiða, þá er hér aðeins um örmjóan vísi að ræða af því, sem koma skal, ef við förum að hætti ann- arra þjóða, sem lengra eru komn- ar í iðnfræðslu og tæknimenntun almennt. Það er vitað mál að iðn- fræðslu hefur í nokkrum iðn- greinum stórhrakað hin síðari ár, sérstaklega eftir að iðnfyrir- tækin fóru að stækka, því nem endur eru þá ekkixeins og var undir handleiðslu meistara síns, heldur starfandi með ýmsum mönnum sem hvorki hafa áhuga fyrir að kenna né heldur að þeir telji það skyldu sína, en svona má þetta eigi lengur ganga. Þessi öfugþróun ér þekkt fyrirbæri í öllum öðrum löndum með stækk- andi fyrirtækjum, þar til ráðin var bót á þessum málum í ná- grannalöndunum með tilkomu verknámsskóla. Með stækkandi fyrirtækjum í ýmsum iðngrein- um á íslandi, mun það verða krafa tímans að kenna iðnnám að einhverju eða öllu leyti í verknámsskólum. Þess vegna er það tímabært að þetta Iðnþing geri það að sínu máli að benda á nauðsyn þess að byggður verði verknámsskóli í sambandi við Iðnskólann í Reykjavík. Þetta þarf að vera sérstök bygging með öllum þeim útbúnaði, sem því tilheyrir, bygginguna má byggja í áföngum eftir því sem þróunin krefst. Þótt Iðnskólanum í Reykjavík sé engan veginn lokið, þá er hann fyrst og fremst byggð- ur sem vandaður bóknámsskóli, en ekki sniðinn fyrir vinnustofur, þótt nokkrar léttar iðnir hafi fengið þar húsnæði fyrir verk- nám, svo sem prentarar og raf virkjar og málarar Við skulum reikna með því að ótal nýjar aðrar iðngreinar muni óska eftir samskonar fyrirgreiðslu á næstu árum. Þess vegna er tímabært að hefjast nú handa um nauðsyn- legan undirbúning til þess að hrinda þessu stórmáli í fram- kvæmd eftir þeim fyrirmyndum sem bgztar gerast í nágranna- löndum. Við verðum að vanda meir til kennslunnar í þeim iðn- greinum, sem nemendur ekki njóta beinnar tilsagnar meistara síns en gert hefur verið um nokk- urt skeið í ofurkappi atvinnu- veganna um útvegun vinnuafls. Það sem hefur farið úr skorðum verður að bæta upp, við þurfum vandvirka, vel menntaða og sanngjarna iðnaðarmenn, sem hugsa sér framtíð sína fólgna í starfi í iðngrein sem þeir geta treyst að sé líkleg til að veita þeim sómasamlega afkomu fyrir sig og sína. ★ Góðir iðnþingfulltrúar. Þótt við séum fyrst og fremst hingað saman komnir til þess að ræða iðnaðarmál, gömul og ný vanda- mál okkar stéttar, til þess að setja fram sanngjörn sjónarmið, að við teljum, og til að færa fram frómar óskir til þings og stjórnar, eins og ávallt gerist á iðnþingum, þá veit ég að engum, sem hér er inni blandast hugur um það að í dag ríkir meira öngþveiti í efnahagsmálum ís- lendinga en gert hefur um lang- an aldur, af þessu leiðir af at- vinnumálin munu líða hið mesta tjón fyrir efnahagsöngþveitið, sem fram undan er. Ég er því ekki í nokkrum vafa um það að núverandi ástand í þjóðmál- um okkar mun hafa sín áhrif á öll störf þingsins og erfiðara mun í dag að spá nokkru um fram- kvæmd mála en oftast áður, vegna þess að það sem þótti gott og gilt fyrir nokkrum vikum er horfið í dag, samanber þá sam- keppnisaðstöðu, sem hin nýju lög, svokölluð bjargráð, áttu að skapa nokkrum iðngreinum í sam- keppni við útlönd, ef kaup héldist óbreytt miðað við lögin, bjart- ir álitu þessi ráð mundu duga til haustsins eða jafnvel til áramóta, en hvað hefur skeð, verkfalls- alda hefur skollið yfir, samkeppn isaðstaðan hefur stórversnað og krónan orðið minni. Þetta tel ég mál málanna í dag, mál sem varðar okkur öll, að engar áætl- anir standast, allt svífur í lausu lofti, öryggisleysið í atvinnu- og fjármálum eykst frá degi til dags. Við erum í dag eins á vegi stödd með allan heildarrekstur þjóðar- búsins eins og sá sem berst und- an straumi á ísjaka og veit aldrei hvenær hann brestur. En hvað getum við gert, við sem styðjumst við þriðja hluta þjóðarinnar að baki okkar, þegar við beitum okkur fyrir framgangi okkar eigin mála við þing og stjórn. Við hljótum að geta gert mikið ef við og allt okkar lið hugsar af einlægni um þjóðar- heill. Hér þarf vissulega hina fæ'rustu menn til að bjarga efna- hags- og atvinnumálunum og koma öllu á traustan grunn. Það er til lítils fyrir eina og eina stétt að berjast fyrir kröf- um misjafnlega sanngjörnum, sumum beinlínis ósanngjörnum, eins og við erum áhorfendur að síðustu daga á hendur þrautpínd- um atvinnuvegum, sem lifa á styrkjum, sem heita á fínna máli ,,millifærsluleið“ og svo er með lægni og sjónhverfingum og milli færsluleiðum aftur beitt til þess að ná svokölluðum kjarabótum til samræmingar við einhvern annan þjóðfélagsþegn, í formi hækkaðs vöruverðs, dýrari þjón ustu, með tollum og sköttum og þannig koll af kolli. Meðan svo er ástatt að þjóðina vantar á- byrga forustu og meðan þing og stjórn skortir allt framkvæmda vald yfir þegnum hins unga lýð- veldis, þá er eiginlega skuggi og óvissa yfir því að gera áætlanir um framgang mála og um sam- keppnishæfni einstakra iðngreina við útlenda framleiðslu eða að ræða samkeppnisaðstöðu útflutn- ingsatvinnuvega Islendinga. Allt verður þetta vanskapningur, sem breytist frá degi til dags, allt heildarkerfið er byggt upp á ís- jaka, sem getur sprungið þá og þegar. ★ Til þess að þing iðnaðarmanna, aðalfundir útvegsmanna, búnað- arþing og ráðstefnur kaupsýslu- manna beri árangur annan og meiri en þann sem felst í þeirri íþrótt, er menn í reiptogi streit- ast við að draga hvern annan of- an í grugguga tjörn, eins og gerist suður í Tívoli í Reykjavík á viss- um dögum. Þá þurfa allir þessir aðilar, sem eru hvor öðrum háð- ir, að sameinast um starfsgrund- völl fyrir alla aðalatvinnuvegi þjóðarinnar og á sama tíma verð- ur löggjafarvaldið að breyta vinnulöggjöfinni þannig að allar hinar vinnandi stéttir setjist að sameiginlegu samningaborði og geri hvor annarri grein fyrir kröfum sínum á hendur þeim, sem greiða ber og þjóðfélaginu í heild. Ef slík lausn er ekki fram- kvæmanleg undir sameinaðri þjóðhollri, sterkri stjórn, þá er hætt við að sú ógæfa hendi okk- ur, að verða öfgaöflum að bráð eða skerða sjálfstæði okkar. En slíkt má ekki henda þjóðfélag vort eftir að hafa unnið stóra sigra, eftir að hafa skapað þegn- um sínum betri og jafnari lífs- kjör en þekkist í öðrum lönd- um. Hvað er ömurlegra, en að sjá hinn glæsilega skipastól lands- manna bundinn við festar, nú um hábjargræðistímann, vegna þess að nokkrir menn af áhöfn hvers skips krefjast hærri launa, þess- ir af áhöfninni í ár, aðrir á síð- astliðnu ári. Allir beita þeir verk- fallsvopninu og allir telja þeir sig hafa fullt leyfi til þess að vega að atvinnuvegunum og stofna eigin atvinnu í hættu í ofurkappi sínu til þess að fá fleiri og verðminni krónur, öllum til tjóns. Við höfum með réttu dáðst að uppbyggingu iðnaðarins, bætt- um húsakosti, auknum afkasta- miklum vélum, meðal annars í vélsmiðjum. Nú hafa þær stærstu í Reykjavík undanfarið staðið mannlausar að kalla má og öll hjól stöðvazt. Verkfall skollið á rétt einu sinni, afleiðingin versn- andi samkeppnisaðstaða við út- lönd, varðandi allar meiriháttar smíðar og vélaviðgerðir skipa. Verkfall blikksmiða, skipasmíða, rafvirkja, öll að vísu leyst í bili á kostnað fólksins í landinu, þess fólks, sem allt á eftir að óbreyttu að gera verkföll í einhverri mynd, til þess að bæta sér upp tjónið af að kaupa þjónustu ann- arra stétta dýrari verði, en var, Framh. á bls. 14 ÍIIIÍÉá ' 4 Sumarið 1950 fóru Flugvélar Flugfélags íslands fyrstu Ieiguflugin til Grænlands og voru þau far- in fyrir rannsóknarleiðangur dr. Lauge Koch. Sumarið eftir annaðist félagið flutninga fyrir leiðangur Paul Emii Victor og voru þá farnar fjórtán ferðir. Sumarið 1952 voru enn farin 36 Grænlandsflug og frá þeim tíma hafa þau verið fastur liður í starfsemi Flugféiagsins. Um þessar mundir ljúka „Faxarnir“ fimmhundraðasta fluginu. Meðfylgjandi mynd er af Sólfaxa á flug- vellinum i Ikatec. (Ljosm.: Sv. S.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.