Morgunblaðið - 12.07.1958, Side 16

Morgunblaðið - 12.07.1958, Side 16
VEÐRIÐ Hæg breytileg átt. Léttskýjað með köflum 155. tbl. — Laugardagur 12. júlí 1958 20. iðnþingið Sjá grein á bls. 9. Missfu fingurna er hey var dregið í hlöðu Tveir drengir stórslasast í Eyjafirði: AKUREYRI, 11. júlí. — Það svip- lega slys vildi til að Grund í Eyjafirði.í gær, að tveir ungir drengir stórslösuðust er verið var að draga hey inn í hlöðu. Nánari atvik slyssins eru þau, að drengirnir Bjarni Aðalsteins- son, 5 ára, og Gunnar Hjartarson, 12 ára, höfðu farið inn í heyhlöð- una þar á staðnum, sennilega án þess að þeir sem að heyflutn- ingunum unnu yrðu þeirra var- ir. Þannig háttar til að þegar hey er sett í hlöðu þessa, er not- aður blakkarútbúnaður og heyið dregið inn með honum. Liggja því taugar frá baggagati og inn í encfa hlöðunnar og renna þar í blökkum. Drengirnir munu hafa verið að Úrslifahuidar í nótt ÞEGAR blaðið var fullbúið til prentunar í gærkvöldi, stóð yfir súttafundur í Alþingishúsinu í farmannadeilunni. Hefur hver sáttafundurinn rekið annan nú síðustu daga. Úti í Alþingishúsi virtist það liggja í loftinu, að sáttasemjari ríkisins, Torfi Hjart- arson, legði hart að samninga- mönnum um að slíta ekki fundi fyrr enn öll sund virðist lokuð. Mun því fundurinn í gærkvöldi, sem búizt var við að standa mundi fram á nótt, hafa verið nokkurs konar úrslitatilraun til þess að koma á samkomulagi í farmannadeilunni, sem nú hefur staðið í 18 daga. Talið var, að færi svo að samningar strönd- uðu í nótt, þá myndu allar frek- ari samningaumleitanir til lausn- ar deilunni strandaðar um ófyrir- sjáanlegan tíma. leika sér að því að hanga i taug- unum. Þegar bólsturinn er dreg- inn inn, herðist á taugunum, og gerðist það á sama tíma sem drengirnir héngu í þeim. Notuð er dráttarvél við að draga heyið inn, og er henni ekið langt frá hlöð- unni um leið og bólsturinn fer inn í hana. Heyrðist því ekki til drengjanna. Skipti það engum togum að fingur drengjanna klipptust af á strengjum, þannig að Bjarni litli missti 4 fingur hvorrar handar of- an við miðju, en Gunnar 4 fing- ur annarrar handar og 3 fingur hinnar. Þumalfingrunum héldu þeir heilum. Drengirnir voru strax fluttir á sjúkrahús á Akureyri og gert að sárum þeirra. Er líðan þeirra eft- ir atvikum. Bjarni Aðalsteins- son er fóstursonur hjónanna á Grund, Aðalsteinu Magnúsdótt- ur og Gísla Björnssonar. Gunn- ar Hjartarson var hins vegar gest komandi á staðnum, en er sunn- an úr Reykjavík. — vig. Danir unnu 7:1 FYRSTI leikur úrvalsliðs knatt- spyrnumanna af Sjálandi fór fram á Laugardalsvellinum í gærkveldi. Lékú Danirnir við gestgjafa sína, Fram, og sigruðu með yfirburðum, 7 mörkum gegn 1, og gefur markatalan rétta hugmynd um yfirburði þeirra. Öll voru mörkin vel undirbúin og mjög fallega skoruð. Staðan í hálfleik var 2—1. — Mark Fram skoraði Dagbjartur Grímsson. — Nánar um leikinn í blaðinu á morgun. Hér sér yfir nýja endastöð Strætisvagna Reykjavíkur hér í Miðbænum. Stöðin er rétt norðan við bílastöð Hreyfiis. Þar verður endastöð fyrir sex leiðir og verður hún væntanlega tekin í notkun áður en langt um líður. Þarna verða Lögbergsvagnar, hraðferðavagnarnir í Vogahverfið, hrað- ferðin Austurbær—Vesturbær, hraðferðin Klepnur og Bústaða-hraðferð. Myndin er tekin af Arnar hóli. Ekkert ákveðið um kaup Loftleiða á Electravélum í NÝÚTKOMNU hefti af „Flug- mál“ er þess getið að talið sé að flugfélagið Loftleiðir hafi selt samning sinn um kaup á Electra- flugvélum og að félagið hyggist kaupa DC-6 og slíta samvinnu við Braaten. Mbl. sneri sér til stjórnarfor- manns Loftleiða, Kristjáns Guð- laugssonar, og spurðist fyrir um hvað hæft væri í þessum fregn- um. Sagði Kristján að enginn fótur væri fyrir þessu. Loftleiðir hefðu samning um kaup á Electravél- um og væri þegar búið að borga inn á slíka vél, en þó væri fyrir- vari í þeim samningi. Vildi félag- ið ekki ákveða neitt endanlega fyrr en komin væri einhver reynsla á Electravélarnar. Væri einmitt verið að reyna þær um þessar mundir og mundu forráða menn Loftleiða sennilega fara utan í ágúst eða september í þessu sambandi. Hvað" kaupum á DC-6 viðvéki, hefði ekkert verið ákveðið. Það væri ura svo margar aðrar tegundir flugvé'la að ræða, ef til kæmi. Sem sagt, ekkert hefði endan- lega verið ákveðið um flugvéla- kaupin. M jólkin hœkkar ef... ★□★ Blaðinu er kunnugt um að full- trúar verkamannafélagsins Dags- brún og Vinnuveitendasambands íslands áttu viðræður í gær um væntanlega samninga. Targjöld á sérleyf- isleiðum hækka VERÐLAGSYFIRVÖLDIN hafa veitt leyfi til þess að hækka öll sætagjöld á sérleyfisleiðum um 15%. í allmörgum tilfellum er hér um að ræða aðra hækkunina sem verður á fargjaldi á þessu ári. Allmargar sérleyfisleiðir sem liggja frá kaupstöðum og kaup- túnum út um land, var eftir ára- mótin leyft að hækka sætagjöld um 22—30%. Um það mun á sín- um tíma ekki hafa verið tilk. op- inberlega og þessi nýja hækkun kemur ofan á þá hækkun, sem þá var leyfð. H. C. Hansen í fegursta veðri á Þingvöllum í FEGURSTA sumarveðri ók forsætis- og utanríkisráðherra Dana, H. C. Hansen, „Hringin“ í gærdag. Hafði veðrið verið dásamlegt á Þingvölium meðan ráðherrann var þar, en í Vaihöll snæddi hann hádegisverð í boði Guðmundar í. Guðmundssonar utanríkisráðherra. Á Þingvöllum sagði Bjarni Guðmundsson. blaða fulltrúi, ráðherranum frá sögu staðarins. Komið var við í orku- verunum við Efra-Sog og íra- fossi, og eins var komið við í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi. H. C. Hansen var með kvikmyndavél sína meðferðis og myndaði ráðherrann ailmikið á viðkomustöðunum. í gærkvöldi var óvíst hvort ráðherrann myndi halda för sinni áfram í dag, áleiðis til Græn- lands. Hann mun fljúga með bandarískri flugvél frá Keflavík- urflugvelli, — þega^ hann fer ög verður þá flogið til Keflavíkur. í gær var mjög tvísýnt útlit um flugveður á leiðinni. Gott veður — engin síld í GÆRKVÖLDI var gott veður á síldarmiðunum, en engin síld. Blaðið átti tal við Síldarleitina á Siglufirði seint í gærkvöldi. Þá voru báðar leitarflugvélarnar á ferðinni og höfðu þær leitað á víxl, djúpt og grunnt, frá því kl. 7 í fyrrakvöld, en ekki orðið varar við neina síld. 'Síldarflotinn mun vera dreifður um miðin, en ekki hefur heyrzt að nein skip hafi fengið síld. Félagsbréf NÝKOMIÐ er út 8. hefti af Fé-1 lagsbréfi Almenna bókafélagsins, fjölbreytt að efni. Hefst það á því, að kynntar eru tvær næstu mánaðarbækur félagsins, en þær eru, Hlýjar hjartarætur eftir Gísla Ástþórsson (septemberbók) og úrval úr smásögum Guðmund- ar G. Hagalín (októberbók). — Eiríkur Hreinn Finnbogason minnist Steins Steinars, sænski rithöfundurinn Eyvind Johnson á þarna grein, sem hann nefnir AB komið Skáldsagnahöfundurinn og verk hans. Tvær sögur eru í heftinu, Fullnumi eftir kínverska rithöf- undinn Nakashima Ton og Böggla-Stína eftir Ingimar Er- lend Sigurðsson. Tvö ung skáld eiga þarna kvæði, þeir Jóhann Hjálmarsson og Gylfi Gröndal. Rætt er við Matthías Jóhannes- sen um skáldskap hans og um bækur skrifa Ingimar Óskarsson og Baldur Jónsson. Þá má einnig nefna ritstjórnargreinar o. fl. Drengur fyrir bifreið Slökkviliðið kvali út KLUKKAN 16,20 í gær varð drengur á reiðhjóli fyrir bifreið við Herk'astalann í Reykjavík. Hann var - fluttur á Slysavarð- stofuna, en meiðsli hans ekki talin mikil. Slökkviliðið var kvatt á Óð- insgötu 10 kl. liðlega 13. Hafði kviknað í feiti í potti og var smávegis eldur í kring. Ekki tók langan tíma að slökkva hann og skemmdir urðu engar. Aflafréllir frá Akranesi AKRANESI, 11. júlí. — Reknetja bátarnir Fram og Sigurfari fengu í dag sínar 30 tunnurnar hvor. Þriðji síldarbáturinn Aðalbjörg fer ekki út á veiðar í dag. Norskt skip, Konastindur frá Aalesund tók hér í gær 2200 kassa af freð- fiski til Frakklands og Englands. — Oddur. SEINT í fyrrakvöld náðist sam- komulag í kjaradeilu mjólkur- fræðinga, en þá var verkfall þeirra yfirvofandi eins og kunn- ugt er. Samkvæmt hinum nýju samningum fá mjólkurfræðingar 5Vz% launahækkun umfram hina lögboðnu 5% hækkun. Enn hefur ekki verið ákveðin hækkun á mjólkurverðinu af þessum sökum, en ef aðrir starfs- hópar við mjólkurvinnsluna fá samsvarandi kjarabætur og þeir hafa þegar sagt upp samningum, má búast við að það hafi í för með sér verðhækkun á mjólk- inni. Ánœgjulegt skátamót að Gilsbakka c AKRANESI, 10. júlí. — Skáta- félögin á Akranesi og í Borgar- nesi héldu skátamót að Gilsbakka á Hvítársíðu 2. til 6. júlí sl. Auk Akraness- og Borgarnessskáta sóttu mótið skátar frá Patreks- firði og Hafnarfirði. Mótstjóri var Bragi Þórðarson, skátafor- ingi á Akranesi. Mót þetta var haldið fyrst og fremst til að þjálfa skátana betur í útilegu- starfinu. Þeim var skipt í hópa og annaðist hver hópur sig alger- lega sjálfur, svo sem við matseld. í flokkakeppni ýmis konar, o. fl. viðkomandi skátastarfinu Farnar voru ferðir um nágrennið, í Surts helli, Stefánshelli, Víðgelmi og að Barnafossum. Einnig gengu nokkrir skátar á fjallið Strút, en þaðan er útsýni mikið og fagurt eins og kunnugt er. Á hverju kvöldi voru varðeldar með fjöl- óreyttum skemmtiatriðum og 1 Hvítársíðu söng. Sunnudaginn 6. júlí var úti- guðsþjónusta á fögrum stað í Skógarhrauni. Predikaði séra Ein ar Guðnason í Reykhelti. Hátt á þriðja hundrað manns sótti mótið þegar flest var. Veður var hag- stætt og mótið hið ánægjulegasta í alla staði. Skátarnir senda hjón- unum á Gilsbakka beztu þakkir fyrir alla greiðasemi þeirra í sam bandi við mótið. — Oddur. Island vann 4:0 1 ÚRSLITAKEPPNI á Stúdenta- skákmótinu keppir ísl. sveitin í B-riðli. í gær unnu Islendingar íra með 4:0. Friðrik vann Kenn- edy, Ingvar vann Cochran, Frey- steinn vann Cacthy, Árni vann Rowlis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.