Morgunblaðið - 13.08.1958, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.08.1958, Blaðsíða 4
4 MORCV N B L AÐ1Ð Miðvikudagur 13. ágúst 1968 í dag er 225. dagur ársins. Miðvikudagur 13. ágúst. Árdegisflæði kl. 5.00. SíðdegisflæSi kl. 17,19. Slysavarðstofa Beykjavíkur Heilsuverndarstöðinn' er opin all an sólarhringinn. Læknavörður L. R. (fyrrr vitjanirl er á sama stað, frá kl. 18—8. — Sími 15030 Næturvarzla vikuna 10. til 16. ágúst er í Laugavegs apóteki, — sími 24047. Holts-apótek og Garðsapótek eru opi- á sunnudögum kl. 1—4. Hafnarfjarðar-apótek er opið alia virka daga kl. 9—21. Laugardaga ki 9—16 og 19—21. Helgidaga kl 13—16 Næturlæknir í Hafnarfirði er Garðar Ólafsson. Stofusími 50536. Heimasími 10145. Keflavíkur-apótek er opið alla virka daga kl 9—19, laugardaga kl. 9—16. Helgidaga kl 13—16. Kópavogs-apótek, Alfhólsvegi 9 er opið daglega kl. 9—20. nema laugardaga ki. 9—16 og helgidaga kl. 13—16. — Simi 23100. - A F M Æ L! o Nírað varð 4. ágúst Lovísa Denke, Bergþórugötu 20. m Bruókaup Laugardaginn 2. ágúst voru gef in saman í hjónaband ungfrú Heið veig Guðmundsdóttir frá Hafnar- firði og Hafsteinn Sveinsson frá Selfossi. Heimili ungu brúðhjón- anna er að Hellusundi 3. BBBI Skipin Eimskipafélag íslands h.f.: Dettifoss er í Helsingfors. — Pjallfoss fór frá Fáskrúðsfirði 11. þ.m. — Goðafoss fór frá Rvik 4. þ.m. — Gullfoss fór frá Leith í gær. — Lagarfoss er í Rvík. — Reykjafoss fór frá Hull 11. þ.m. — Tröllafoss er í Rvík. — Tungu- foss er í Lysekil. — Drangajökull iestar í Hamborg 16. þ.m. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.. Katla fór frá Rvík í gær. — Askja er í Bergen. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er væntanleg til Rvíkur árdegis í dag. — Esja er væntan- leg til Rvíkur í kvöld. — Herðu- breið fór frá Rvík í gær. — Skjald breið fer frá Rvík í dag. — Þyrill kom til Blönduóss síðdegis í gær. — Skaftfellingur fór frá Rvík í gær. Flugvélar Flugfélag íslands h.f.: Milliiandaflug: — Fullfaxi fer til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 08:00 í dag. Væntanlegur aft- ur til Rvíkur kl. 22:45 í kvöld. Flugvélin fer til Lundúna kl. 10:00 í fyrramálið. — Hrímfaxi fer til Oslóar, Kaupmannah. og Hamb. kl. 08:00 í fyrramálið. Innanlandsflug: — f dag er á- ætlað að fljúga til Akureyrar (3 ferðir) Egilsstaða, Hellu, Horna- r MYTT Hvitkal, Gulrætur, Blómkál, Agúrkur, Gulrófur, Persille, Salad, Vínber, Tómatar, Laukar, $Hli fí Ifcíltli, Myndin sýnir Robert Murphy, sérstakan erindreka Eisenhow- ers forseta, ásamt bandaríska sendiherranum í Líbanon, Robert McClintock (fyrir miðju) og hinum nýkjörna forseta Líbanons, Fuad Chehab (t. h.) Ræddust þeir við í varnarmálaráðuneytinu í Beirut. Murphy virðist hafa mikinn áhuga á orðum Chehabs. fjarðar, Húsavíkur, ísafjarðar, Siglufjarðar, Vestmannaeyja (2 ferðir) og Þórshafnar. — Á morg un er áætlað að fljúga til Akur- eyrar (3 ferðir), Egilsstaða, ísa- fjarðar, Kópaskers, Patreksfjarð- ar Sauðárkróks og Vestmanna- eyja (2 ferðir). Loftleiðir h.f.: Hekla er væntanleg kl. 19.00 frá Hamborg, Kaupmannahöfn og Gautaborg. Fer kl. 20.30 til New York. ^Pennavinir ltaij a ivuutiw aara, UKsasenkatu 4a, A, Helsingfors, Finnlandi og Tuula Jyrkinen, Porvoonkatu 11, B, Helsingfors, Finnlandi. -— Vilja skiptast á bréfum og frímerkjum við pilta á aldrinum 14—17 ára. Skrifa á ensku. SPYmislegt Orð lífsins: Og er Jesús fór það. an, fylgdu eftir honum tveir menn blindir, er kölluðu og sögðu: Misk- unna þú okkur, Davíðs sonur! Matt. 9,27. £§j§Aheit&sainskot Lamaði íþróttamaðurinn afh. Mbl.: Ásgeir kr. 200. Sólheimadrengurinn afh. Mbl.: K.J. kr. 50; gömul kona 20; Ásgeir 100; Guðlaug 2r Læknar fjarverandl: Alma Þórarinsson. frá 23. júní til L' september. Staðgengill: Guðjón Guðnason Hverfisgötu 50. Viðtalstími 3,30—4,30. Sími 15730. . Arinbjöm Kolbeinss 27. júlí til 5. sept. Staðgengill: Bergþór Smári. Árni Björa-son frú 1. ág. til 18. ág Staðgengill: Jón Hjaltalín Gunnlaugsson, Hverfisgötu 50. Axel Blöndal frá 14. júlí til 18. ágúst. Staðgengill: Víkingur Arnórsson, Bergstaðastræti 12. Vitjanabeiðnir í síma 13678 til kl. 2. — Bergsveinn Ölafsson frá 3. júlí til 12. águst. Staðgengill: Skúli Thoroddsen. Bjarni Bjarnason til 15. ágúst. — Stg.: Arní Guðmundsson. Sigurður mi n ni nga rorð í DAG, h. 13 ágúst, fer fram frá Fossvogskirkju jarðarför Sigurð- ar Jónsson, er lézt í Landakots- spítala h. 5. þ. m. Hann var fæddur þ. 11. júní 1893 að Svínafelli í Öræfum. Foreldrar hans, Jón (d. 1921) Sigurðsson, bóndi þar, og kona hans, Rannveig (d. 1944) Run- ólfsdóttir. Sigurður, faðir Jóns bónda, var sonur Jóns hrepp- stjóra Sigurðssonar, Þorsteins- sonar, er allir voru bændur að Svínafelli mann fram af manni og líklega niðjar hinna fornu Svínfellinga. Móðir Jóns Sigurðs- sonar og amma Sigurðar heitins, var Sigríður Runólfsdóttir, hreppstjóra að Maríubakka, Sverrissonar. Var Runólfur hreppstjóri, bróðir Eiríks sýslu- manns Sverresens, en Rannveig, móðir Sigurðar heitins, var dótt- ir Runólfs Þórhallssonar, er bjo um skeið að Eystri-Asum, Gunn- steinssonar. Kona Þórhalls var Þuríður Jónsdóttir, hreppstjóra að Hlíð í Skaftártungu, eitt hinna mörgu og merku Hlíðar- systkina. Á þeim árum er þau foreldrar FERDIMAIMII Skofið skelk í brinciu Bjarni Jónsson frá 17. júlí, í mánaðartíma. Staðgengill: Guðjón Guðnason, Hverfisgötu 50. — Við- talstimi 3,30—-4,30, sími 15730. Bjarni Konráðsson til 1. sept. Staðgengill: Bergþóf Smári. Við- talstími kl. 10—11, laugard. 1—2. Björgvin Finnsson frá 21. júlí til 31. ágúst. Stg. Árni Guðmunds- son Stofan opin eins og venju- lega. Brynjúlfur Dagsson, héraðs- læknir í Kópavogi frá 1. ágúst til septemberloka. Staðgenglll: Garð ar Ólafsson, Sólvangi, Hafnar- firði, sími 50536. Viðtalstimi í Kópavogsapóteki kl. 3— e.h. sími 23100. Heimasími 10145 Vitjana- beiðnum veitt móttaka í Kópa- vogsapóteki. Friðrik Einarsson til 3. sept. Guðm. Benediktsson frá 20. júlí í óákveðinn tíma. Staðgengill: Tómas Á. Jónassor Hverfisgötu 50. Viðtt. 1—2, sími 1-5730. Guðmundur Eyjólfsson frá 6. ág. til 10. sept. — Staðgengill: Erlingur Þorstéinsson. Gunnar Benjamínsson frá 19. júli til 1. sept. Staðgengill: Jónas Sveinsson. Hannes Guðmundsson frá 4. b. m. í ca. hálfan mánuð. — Staðg.: Hannes Þórarinsson. Viðtalstími k . 1,30—3, laugard. 11—12. Halldór Hansen frá 3. júlí til ca. 14. ágúst. Staðgengill: Karl Sig. Jónsson. Jón G. Nikulásson 9. þ.m. til 1. sept. Staðg.: Óskar Þórðarson. Jón Þorsteinsson 11. þ.m. til 16. þ.m. Staðg.: Gunnl. Snædal. Jóhannes Björnsso.. frá 26. júlí til 23. ágúst. Staðgengill: Grímur Magnússon. Jónas Bjarnason 8—4 vikur, frá 27. júlí. Karl Jónsson, frá 20. júlí til 31. ágúst. Stg. Arni Guðmundsson, Hverfisgötu 50. Viðtt. 4—5 alla daga nema laugard. heima 32825. Kristján Sveinsson frá 12. þ.m. til 1. sept. Stg.: Sveinn Pétursson, Hverfisgötu 50, til viðtals dagl. kl. 10—12 og 5,30 til 6,30. — Kristinn Björnsson óákveðið. — Staðgengill: Gunnar Cortes. J ánsson Siguroar heitins bjuggu að Svína felli lá leið margra um Skeiðar- ársand, og var Svínafellsheimilið almennt rómað fyrir gestrisni og greiðasemi. Jón Sigurðsson í Svínafelli var talinn einn hinn öruggasti vatnamaður, og munu þeir víst fáir, er oftar hafa átt leið yfir Skeiðarársand en hann. Oft mun hann hafa komizt í hann krappan er hann var að fylgja ferðamönnum yfir Skeið- ará, en sú gifta fyigdi honum ætíð að allir komust heilu og höldnu á leiðarenda. Sigurður heitinn ólst upp með foreldrum sínum að Svínafelli og tók ungur að starfa í þágu heim- ilisins. Hann var elztur systkina sinna, mæddi því fljótt á honum mikil vinna og umönnun, er fað- ir hans var oft fjær heimilmu vegna ferðalaga. En um greiðslu fyrir fylgdir var á þeim tímum varla orðað. Að föður sínum látnum bjó hann með móður sinni og systkinum, þar til skömmu eftir að móðir hans dó (1944), að hann fluttist með systur sinni og mági til Reykja- vikur, og átti hjá þeim gott heim ili á Ásvallagötu 17. Hann var lengst af heilsu- hraustur, unz hann fyrir 15 ár- um tók að kenna þess sjúkdóms, er nú að síðustu leiddi hann til dauða. Sigurður var fremur hlé- drægur, en skemmtilegur og ræð mn í hópi vina sinna. Hann var athugull, hygginn og stakur elju- maður. Trygglyndur var hann og áreiðanlegur svo af bar. Vinur vina sinna og vel kynntur, hvar sem hann var. Þeir, sem þekktu til Svínafells- heimilisins, munu minnast þess, hve mikil eining ríkti á því heim ili, og hve þar var gott að koma. Sigurður er nú kvaddur með söknuði af systkinum, ættingjum og vinum, sem geyma minning- una um ástkæran bróður og vin í þakklátum huga. >n Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.