Morgunblaðið - 13.08.1958, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.08.1958, Blaðsíða 6
e MORCUNBLAOIÐ Miðvik'udagur 13. ágúst 1958 Togarinn komsf ekki á veiðar vegna manneklu PATREKSFIRÐI, 11. ágúst. — Togarinn Ólafur Jóhannesson landaði í sl. viku um 370 lestum af góðum fiski, mestmegnis karfa, sem veiðzt hafði við Grænland. Var hér um góðan afla að ræða, Þýzkt skemmtif er ðaskip hér um sl. lielgi ÞÝZKA skemmtiferðaskipið Ari- adne frá Hamborg-Ameríkulín- unni lá í höfn í Reykjavík á sunnudag og fram á hádegi á mánudag. Þetta er í annað sinn í sumar, sem þetta skip kemur til fslands með skemmtiferða- menn, um 250 í hvort skipti. Með skipinu er fólk frá ýmsum lönd- um á meginlandi Evrópu, þó mest Þjóðverj ar. Skipið kom kl. 8,30 á sunnu- dagsmorgun og á sunnudaginn fóru farþegar í skemmtiferðir á vegum Ferðskrifstofu ríkisins, til Þingvalla og í Hveragerði. Frá Reykjavík fór skipið um hádegi á mánudag, áleiðis til Akureyrar, og í gær fór skemmtiferðafólk- ið að Goðafossi. Ariadne kom hingað frá Fær- eyjum. Frá Akureyri fer skipið til Noregs og mun sigla suður með Noregsströnd, en ferðinni lýkur í Cuxhaven. sérstaklega með tilliti til þess að hjá flestum togurum var afli frekar rýr um svipað leyti. Að lokinni löndun, fór togarmn aftur á veiðar. Torfi Jónsson frá Patreksfirði er skipstjóri á b/v Ólafi Jóhannessyni. í gær var aftur hægt að senda b/v Gylfa út á veiðar. Hafði hann legið . heimahöfn sinni á þriðju viku vegna manneklu, sem er mjög bagalegt um hábjargræðis- tímann. Ekki eru nema tveir færeyskir sjómenn eftir á Pat- reksfjarðartogurum, annars voru stöðugt 20—30 færeyskir sjó- menn hér starfandi síðustu árin og líkaði þeim vistin vel. Hingað komu nýlega þrír „foss- ar“, sem lestuðu sjávarafurðir til útflutnings. Fóru alls um 15000 kassar af freðfiski, mestmegnis karfa, á rússneskan markað. Ennfremur fóru 260 lestir af karfa og fiskimjöli á þýzkan og holl- enzkan markað. Austur-þýzki togarinn Meisser frá Rostoc lá hér í höfninni í þrjá daga vegna viðgerðar. Guðmund- ur Júní frá Flateyri fékk við- gerð á biluðu togspili. I júní og júlí hefur verið land- burður af fiski á handfæri og hafa menn haft uppgripa-tekjur af þeim veiðum. Undanfarið hefur verið ein- munatíð. Þurrkar hafa verið góðir og eru margir bændur bún- ir að hirða túnin. Silungsveiði í ám og vötnum hefur verið léleg það sem af er sumrinu. — Karl. Austurstrœti 1886 Myndin að ofan er ein af mörgum skemmtilegum á sýningu þeirri er opnuð verður að Skúlatúni 2 á mánudaginn kemur, afmælisdag Reykjavíkur. — Eins og áður er getið í fréttum standa Reykvíkingáfélagið eg Skjala- og minjasafn Reykja- víkurbæjar fyrir sýningu þessari, en á henni verður sýnt stórt safn gamalla mynda úr Reykjavík — og bæjarlífinu. — Mynd- in sýnir útsýn yfir Austurstræti 1886. í baksýn sést vindmyll- an við Bankastræti. Lága rishúsið hægra megin við miðju myndarinnar, er þar sem Morgunblaðshúsið stendur nú. Mökkur yfir Reykjanesi Á SUNNUDAGINN veitti fólk hér í Reykjavík því athygli að mökk lagði upp af Reykanesi, og leiddi að því getum. að þar væri aftur kviknað í mosa. Svo var þó ekki. Vavnarliðið var aðeins að brenna gömlum tunnum, malbiki og því um líku, sem ýtt hafði verið saman í bing, eigi alllangt frá Keflavík. Lagði reykinn á haf út, en ekki yfir mannabústaði og sást hann langt að. Háspennustrengnum til Akraness haldið uppi með 15 m. masfri Sementsverksmiðjan mun hefja framleiðslu áburö- arkalks í haust AKRANESI, 11. ágúst. — Menn gera ráð fyrir að búið verði að tengja háspennulínuna hingað frá Sogsvirkjuninni á miðviku- dagsmorgun. Kominn var sæ- strengur yfir Hvalfjörð á móts við Kúludalsá, búið að setja nið- ur alla staura beggja megin fjarðarins og strengja á þá lín- urnar, nýlega lokið við að grafa fyrir jarðstrengnum frá spenni- stöðinni að Sementsverksmiðj- unni og verið er að tengja þar í kvöld. Eftir var þó að koma háspennustrengnum yfir Kolla- fjörð, nærri 1 km. haf eða 900 m. Unnið hefur verið að því und anfarna daga á Kollafirðinum og orðið að sæta sjávarföllum vegna þess að skeyta þurfti breiðum palli, 5 m. háum ofan á Helgu- sker, sem er á miðjum firði. Ofan á skerið er reist 15 m. hátt mast- ur úr stáli, sem á að bera raf- Blómadrottning kiörin í Hvera- V gerði HVERAGERÐI, 11. ágúst. — Ár hvert gengst kvenfélagið í Hvera gerði fyrir „blómaballi." Er reynt að vanda til þessarar skemmtun- ar eftir föngum, borðin og allt húsið skreytt með blómum. Þá kjósa viðstaddir „blómadrottn- ingu.“ Síðastiiðið laugardagskvöld var þetta árlega blómaball hald'ð og þótti takast vel. Sérstaklega var leiksviðið fagurlega skreytt að þessu sinni. Þar sem þetta er auglýst skemmlun er öllum heimil þátt- taka og var Hanna Ólafsdóttir úr Reykjavík kjörin blómadrottn- inc. Hanna er 19 ára gömul. Hún er leikfimikennari, útskriíuð frá Laugarvatni sl. vor. og vinnur í •umar á barnaheimilinu í Kubara vogi. — G. M. strenginn uppi í nægjanlegri hæð til þess að bátar þótt stórir seu, geti siglt undir hann. Að öðru leyti hafa verkamenn- irnir notazt við árabát. Straum- ur er mikill í firðinum. Þar er misvinda og leggur stundum hvassar rokur ofan af Esjunni. Eina bótin að skerið er traust og mastrið úr stáli. Verkstjóri þarna er Ólafuf Jensson. — Oddur. SEMENTSVERKSMIÐJAN á Akranesi mun hefja framleiðslu á áburðarkalki seint á hausti kom anda. Hafa verið keyptar vélar til að fleyta kalk úr skeljasandi, og mun það koma úr vélum þess- um tilbúið til notkunar sem á- burður. Vélarnar eru komnar til landsins, en hafa ekki verið sett- ar upp. Ársframleiðslan verður allt að 20.000 tonn. Ábrurðarkalk hefur ekki ver- ið notað að neinu ráði hér á landi til þessa. Ilins vegar er talið vafa- laust, að full þörf sé á að nota það, ekki sízt eftir að áburðar- verksmiðjan hóf framleiðslu köfn unarefnisáburðar og nýting rækt- aðs lands jókst. Er álitið, að ýms- ir kvillar í búfé, sem gert hafa vart við sig, stafi m.a. af kalk- skorti. ★ Dr. Jón Vestdal, forstjóri sem- entsverksmiðjunnar, skýrði blaða mönnum frá hinni fyrirhuguðu áburðarkalkframleiðslu, er þeir skoðuðu verksmiðjuna sl. laugar- dag. Frá heimsókninni var að öðru leyti sagt í sunnudagsblað- inu. í þeirri frásögn var sagt, að blaðamennirnir hefðu horft á mælingu á styrkleika 13 daga gamalla steyptra kubba. Kubbarn ir voru 3 daga, en reyndust öllu sterkari en gert er ráð fyrir, að 28 daga gamlir kubbar séu. — Þá sagði, að sementið verði selt frá skipshlið fyrst í stað. Sá hátt- ur verður að sjálfsögðu aðeins hafður á í Reykjavík, eins og lesa má í málið. Á Akranesi verður sementið afgreitt frá pökkunar- húsi verksmiðjunnar. Góð skötuveiði AKRANESI. 11. ágúst. — Eyleif- ur ísaksson lagði skötulóðir fyrir tveim vikum. Þrisvar sinnum hefur hann vitjað um lóðirnar í fyrstu lögn fékk hann lVz lest af skötu, í annarri fékk hann tvær stórlúður og í þriðju lögn- inni einnig tvær lúður og jafn- framt lúðunum slangur af skötu. — Oddur. Meir og Lloyd ræddust við LUNDÚNUM, 11. ágúst. — Reu- ter. — í dag ræddi brezki utan- ríkisráðherrann Selwyn Lloyd við utanríkisráðherra ísraels, frú Goldu Meir. Fréttaritarar segja, að þau muni hafa rætt um fram- tíð Jórdaníu og brottflutning brezkra hersveita frá Amman og flutninga Breta til Jórdaníu um lofthelgi ísraels. Frú Meir fer frá Lundúnum á morgun. f kvöld fór Selwyn Lloyd flug- leiðis til New York til að sitja aukafund Allsherjarþingsins, sem hefst á miðvikudag. Kristilegt ceskulýðsmót Aðventista í Skógaskóla SAMTÖK Aðventista á Islandi héldu kristilegt æskulýðsmót að Skógum undir Eyjafjöllum 28. júlí til 4. ágúst. Þátttakendur voru um 130, flestir á aldrinum 12—25 ára. Flestir mótgestir vorU úr shrifar úr daqiega lifinu Athugasemd frá útvarpsþul rpiNN af þulum Ríkisútvarpsins hefir hringt í mig út af giein þeirri um kynningu á hljómplöt- um, sem birtist hér í dálkunum sl. sunnudag. Kvað hann gæta þar nokkurs misskilnings Það væri ekki þulurinn hverju sinni, sem réði því, hvernig hljómpiót- urnar væru kyftntar. Hann fengi kynningarnar allar uppskrifaðar — frá tónlistardeildinni — og læsi þær aðeins upp eins og pær kæmu þaðan. Það væri því ekki rétt né sanngjarnt að bregða þul- unum um leti og kæruleysi í þcssu efni. Gleymist of oft ÞAÐ er nú svo. — Auðvitað var það ekki af löngun Velvak- anda til að „ráðast á þessa fá- mennustu stétt landsins — út- varpsþuli" — eins og viðkom- andi þulur tók til orða — að hann skrifaði pistil þennan held- ur fremur til að ýta dáiítið við þeim með þetta atriði — og tala þar með fyrir munn margra. Kynningarnar koma uppskrifað- ar frá tónlistardeildinni í hendur þulanna og það er gott og blessað enda er hljómplatan venjulega skýrt og skilmerkilega kynnt á undan — en kynningin á eftir gleymist alloft og það ev auðvitað af því, að þulurinn annaðhvort gleymir eða hirðir ekki um að endurtaka kynninguna — en þar er einmitt kjarni málsins. — Nú er ég alveg sammála þulnum, við mælanda mínum, að það tekur því ekki að kynna vandlega bæði á undan og eftir, lög eins og t. d. Ólafur reið með björgum fram — ísland ögrum skorið — eða syrpu af smálögum. En þegar um er að ræða sígild verk — eða þætti úr þeim, hversu þekkt, sem þau kunna að vera, þá er það stór hópur hlustenda, sem vill ákveð- ið fá kynninguna á eftir líka. Er vonandi, að sá hópur fái þeirri ósk sinni fullnægt í framtíðinni. Y — 380 MAÐUR nokkur, sem hafði ver- ið á ferð uppi í dvalfirði um helgina kom til Velvakanda á mánudaginn og hafði meðferðis hjólkopp af bíl, sem auðsjáanlega hefir tapazt ~þar í umferðinni. Eigandi viðkomandi bíls hefir verið svo hygginn að merkja hjól koppana, en inni í þessum, sem Velvakandi hefir nú í vörzlu sinni stendur Y — 380 og getur eigandi þess bíls sem sagt vitjað koppsins til hans þegar hann vill. Er sýningum lokið? KÆRI Velvakandi, Fyrir skömmu var sýndur hér í bæ gamanleikurinn „Haltu mér — slepptu mér“ á vegum Heimdallar. Nú vill svo kynlega til, að sýningum hefir venð hætt þrátt fyrir ágætar undirteKtir bæði blaða og sýningargesta. Þar sem ég var í sumarleyfi, er sýn- ingar stóðu yfir, gat ég ekki kom- ið þvi við að sjá leikinn þá en þegar ég kom í bæinn aftur var sýningum lokið mér til undrunar og mæðu. NU langaði mig til að spyrja þig, vísi Velvakandi, hvort þú gætir gefið mér nokkra skýr- ingu á þessu fyrirbæri og hvort nokkur von sé til þess, að leikur- inn verði sýndur aftur. Vonsvikinn" Sýningar hefjast aftur EG get giatt hinn vonsvikna með því, að sýningum á um- ræddum gamanleik er alls ekki hætt. Hlé varð aðeins á sýning- um, meðan leikararnir þrír brugðu sér út á land með leikinn og hafa þeir sýnt fyrir norðan og austan að undanförnu við á- gætar undirtektir. En nú er „þrí hyrningurinn" sem sagt kominn heim aftur og tekur aftur upp sýningar hér í Sjálfstæðishúsinu. Sú fyrsta verður hinn 17. ágúst — á sunnudaginn kemur. Reykjavík og Vestmannaeyjum, en einnig frá ýmsum öðrum stöðum á landinu, svo sem Árnes sýslu, Keflavík, Akureyri og af Austurlandi. Þátttakendur móts- ins úr Vestmannaeyjum fengu leigða flugvél hjá Flugfélagi ís- lands og flugu á Skógasand, en þangað er um 10 mínútna flug frá Vestmannaeyjum. Mótgestir bjuggu ýmist í tjöld- um, sem reist voru á flötinni suður af skólanum eða í heima- vist skólans. Samkomur og kvöldvökur fóru fram í sal skól- ans og máltíðir í borðsal. Hver dagur hófst með morgun- bæn úti við fánastöng skólans, en að henni lokinni var fámnn dreginn að hún. Mótgestir stóðu á meðan í skipulögðum hálfhring umhverfis fánastöngina og sungu Ég vil elska mitt land. Hver dagur var fyrirfram skipulagður. Biblíulestur og and- leg uppbygging fór fram fyrn hluta dags. Síðdegis voru knatt- leikir, hópgöngur og þ. u. 1. A kvöldin voru kvöldvökur með stuttum erindum, framsögn, hljómlist, kórsöng, einsöng o. s. frv. Einnig voru sýndar fræðslu- kvikmyndir. Tveim dögum var varið til hópferðar á Þórsmörk. Heiðursgestur mótsins var séra M.E. Lind, en hann er ritari æskulýðsdeildar Aðventista í N.- Evrópu og býr í London. Flutti hann nokkur snjöll erindi um kristindómsmál miðuð við þroskastig unglinga. Sýndi hann einnig litkvikmynd, sem nefnist Dögun yfir Afríku, en í Afríku dvaldist hann áður sem trúboði um 20 ára skeið. Það kom einnig í ljós, að séra Lind, sem er norsk- ur að uppruna, hafði á sínum tíma verið meðlimur norska landsliðsins í knattspyrnu. Eftir að þetta komst upp, komst hann ekki undan því að vera dómari í öllum knattleikum mótsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.