Morgunblaðið - 13.08.1958, Blaðsíða 8
e
M&RGUTUiL AÐIÐ
Mi?S'”'V,'rtasur 13. ágúst 1958
CTtg.: H.f Arvakur, Heykjavík.
F'ramkvænidastióri: bigíus Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Ola, sírm 33045
Auglysrngar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 224^'
AsKriftargjald kr 35.00 á mánuði innanlands.
T lausasölu kr. 2.00 emtakið.
SKÝLAUS YFIRLYSING
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINF
IYFIRLYSINGU Sjálfstæð-
isflokksins um stefnuna í
landhelgismálinu, sem gef-
in var 21. maí sl. var m. a. kom-
izt þannig að orði, að flokkurinn
gæti ekki fallizt á ákvörðun Fram
sóknarflokksins í málinu „sum-
part vegna efniságreinings og
sumpart vegna ágreinings um
málsmeðferð, enda er það mat
Sjálfstæðisflokksins á allri að-
stöðunnt, að auðið sé að ná betri
niðurstöðu fyrir fslendinga án
nokkurrar áhættu með öðrum
starfsaðferðum"
Enda þótt afstaða Sjálfstæðis-
manna hafi áður verið skýrð
greinilega er þó rétt að endur-
taka þær skýringar enn einu
sinni, þannig að enginn þurfi að
fara í grafgötur um hana.
Sérstaða Sjálfstæðismanna
var fyrst og fremst fólgin í
því, að þeir voru andvigir
þeirri ákvörðun forsætisráð-
herra að hafna algerlega frek-
ari viðræðum við Nato-ríkin
á sl. vori, áður en útfærsla
fiskveiðitakmarkanna væri á-
kveðin. Sjálfstæðismenn töldu
að verja bæri enn „örfáum
vikum“ til þess að skýra lífs-
hagsmuni íslenzku þjóðarinn-
ar fyrir bandalagsþjóðum
hennar í trausti þess, að þær
skýringar myndu leiða til auk
ins skilnings á þörfum íslend-
inga.
Forsætisráðherra var hins
vegar á sömu skoðun og komm
únisf"- "ð hafna bærí frekari
v. : við Nato um málið.
Rétting grunnlína
Petta var um málsmeðferðiná.
Um efnishlið málsins er það að
segja, að Sjálfstæðismenn telja,
að íslendingar hefðu átt að nota
tækifærið til þess að rétta grunn-
línur fiskveiðitakmarka sinna um
leið og þeir færðu fiskveiðitak-
mörkin út. Slík rétting grunnlína
UTAN UR HEIMI
Krúsjeff hefur látið gera sér neðan-
jarðarbyrgi — öruggt
fylgsni í kjarnorkusfríði
átti einmitt stoð í samþykktum
Genfarráðstefnunnar og gat haft [
verulega þýðingu fyrir íslenzkan ;
útveg og fiskveiðar.
En á þetta vildi forsætisráð-
herra og ríkisstjórnin ekki fall-
ast.
í öðru lagi töldu Sjálfstæðis-
menn að taka bæri ákvörðun um
aðstöðu íslenzkra togveiðiskipa
um leið og reglugerðin um út-
færsluna var gefin út. Það var
hins vegar ekki gert nema að
litlu leyti vegna vanrækslu sjáv-
arútvegsmálaráðherra á nauðsyn
legum undirbúningi reglugerðar-
innar.
Sérstaða Sjálfstæðismanna,
bæði gagnvart meðferð og efn
ishlið landhelgismálsins kem-,
ur þarna greinilega fram. í|
yfirlýsingunni frá 21. mai kem
ur það einnig fram á ótvíræð- J
an hátt, að Sjálfstæðisflokkur >
inn telur að unnt eigi að vera
að ákveða 12 sjómílna fisk-
veiðitakmörk ef rétt sé á mál-
inu haldið.
Viðiræðurnar við Nato
Það er athyglisvert, að for-
sætisráðherra vildi á sl. vori
hafna algerlega viðræðum við
bandalagsþjóðir íslendinga í
Nato til skýringa á hinum ís-
lenzka málstað í landhelgismál-
inu. Nú, á elleftu stundu, lýsir
utanríkisráðherra því yfir að
slíkar viðræður hafi verið hafnai.
En í vor mátti ekki verja „örfá-
um vikum“ eins og Sjálfstæðis-
menn lögðu til, til þess að kynna
sjónarmið okkar með umræðum
innan Nato.
Afstaða Sjálfstæðismanna í
landhelgismálinu er skýlaus
og hrein. Flokkurinn hefur
barizt fyrir útfærslu fiskveiði-
takmarkanna og haft giftu-
drjúga forystu um stærstu
sporin, sem stigin hafa verið
í þeirri baráttu.
MERKILEGT FRAMFARASPOR
ISLENZKT sement frá
hinni nýju sementsverk-
smiðju á Akranesi er nú
komið á markaðinn. Á næstunni
munu rísa hús og mannvirki
byggð úr íslenzku sementi. Inn-
flutningur þessa byggingareínis
frá útlöndum leggst nú niður.
Hér er vissulega um að ræða
merkilegt og glæsilegt framfara-
spor, sem öli þjóðin fagnar. Árleg
sementsnotkun okkar á undan-
förnum árum hefur numið allt
að 90 þús. tonnum. Hin nýja verk
smiðja mun framleiða um 100
þús. tonn af sementi 4 ári og full-
nægir því þörfum þjóðarinnar
fyrir þessa tegund byggingarefn-
is. En hægt mun vera að auka
afköst verksmiðjunnar verulega
með tiltölulega lítilli fyrirhöfn,
og án mjög mikils nýs kostnaðar.
Sementsverksmiðjan mun enn-
fremur framleiða um 20 þús. tonn
á ári af áburðarkalki. Er þar
einnig um mjög gagnlega nýjung
að ræða. Hefur sú áburðartegund
verið notuð lítið áður hér á landi.
SKAMMT frá bökkum Volgu, um
700 km frá Moskvu, hefur Krú-
sjeff látið byggja geysimikið neð-
anjarðarhýsi. Á það að vera
öruggt fylgsni, ef til kjarnorku-
styrjaldar kæmi — og þar eiga
200 æðstu menn Rússlands að
geta hafzt við án utan að kom-
andi aðstoðar. Fregnin um þetta
mikla neðanjarðarmannvirki
barst fyrir skömmu vestur fyrir
járntjald, þrátt fyrir allar ör-
yggisráðstafanir Ráðstjórnarinn-
ar til þess að ekkert kvisaðist
út.
Neðanjarðarhýsið er grafið 45
metra í jörðu niður og á að vera
öruggt byrgi gegn áhrifum kjarn-
orkusprengingar, enda þótt hún
yrði beint yfir því. Á landssvæði
með 17 km geisla umhverfis
mannvirki þetta er strangur vörð
ur — og þaðan hefur rússneska
leynilögreglan flutt alla almenna
borgara. „Öryggissvæðið“ er og
rammgirt. Og svo vel hafa Rúss-
a" gætt leyndarmálsins, að fyrst
nú, einu ári eftir að virkinu var
lokið, hafa fregnirnar síazt út
fyrir járntjaldið.
Upplýsingarnar eru hafðar eft-
ir búlgörskum hitunarsérfræð-
ingi, Dr. V. S. Goloff, sem var
einn 200 vísindamanna víðs veg-
ar úr Rússlandi og leppríkjunum,
sem unnu að byggingu neðanjarð-
arbyrgisins.
Það var í janúarmánuði árið
1954, að Krúsjeff fyrirskipaði, að
byggt skyldi neðanjarðarbyrgi,
sem yrði öruggt skjól, ef til kjarn
orkustyrjaldar kæmi. Tveim rúss
neskum vísindamönnum, Maksa-
rev og Lavrentiv, var falið að
annast yfirstjórn framkvæmd-
anna.
(I apríl s. 1. var Maksarev skip-
aður formaður vísinda- og tækni-
nefndar ríkisins og Lavrentiv er
nú framkvæmdastjóri „Atom-
grad“, stóra kjarnorkubæjarins í
nánd við Novosibirsk í Síberíu,
en samkv. opinberum upplýsing-
um frá Kreml vinna þar 20 þús.
vísindamenn að kjarnorkurann-
sóknum).
Fjórði maðurinn, sem kom
aðallega við sögu byggingar neð-
anjarðarhýsisins var að sjálfsögðu
Ivan Serov, yfirmaður rússnesku
öryggislögreglunnar. Honum fól
Krúsjeff að sjá svo um, að ekkert
kvisaðist út — og jafnframt átti
Serov að rek» á eftir framkvæmd
unum með öllum tiltækum ráð-
stofur, fundarsalir, aðsetur yfir-
stjórnar hersins, matsalir, tvö
eldhús svo og sjúkrahús af full-
komnustu gerð. í miðju byrginu
er stór og langur salur um 200
metrar á lengd og ótal hliðar-
herbergi fyrir starfslið Krúsjeffs.
Frá þessum stöðvum mun hann
Sparar erlendan
gjaldeyri
Hin íslenzka sementsverk
smiðja mun spara þjóðinni allt1
að 30 millj. kr. á ári í erlendum
gjaldeyri. Af byggingu hennar
hlýtur ennfremur að leiða aukið
öryggi og bætta möguleika til
byggingarframkvæmda í landinu.
Með byggingu sementsverk-
smiðju og áburðarverksmiðju er
stóriðnaður hafinn hér á landi.
Er hér um að ræða ein merkileg-
ustu sporin, sem stigin hafa verið
til uppbyggingar íslenzkum
bj argræðisvegum.
En við þurfum að halda
áfram að hagnýta vatnsaflið
og jarðhitann í þágu stóriðn- j
aðar. í öllum landshlutum
þurfa að rísa iðjuver, sem
auka framleiðslu landsmanna,
skapa atvinnu og tryggja heil-
brigt efnahagslíf í landinu.
gefa út fyrirskipanir sínar, ef til
styrjaldar kemur — og þar, eins
og í neðanjarðarbyrgi Hitlers í
Berlín, fylgsnum Stalins undir
Kreml, loftvarnarbyrgi Churc-
hills og neðanjarðarmannvirkjum
Bandaríkjamanna í nánd við
Washington, er allt það, sem
æðsti foringi og herstjórnin þarfn
ast á ófriðartímum til þess að
hafa nákvæmt eftirlit og stjórn
á herjum sínum.
Ofanjarðar er, eins og fyrr seg-
ir, víðlent „öryggissvæði“, sem
öryggislögreglan gætir. Lögreglu-
foringinn, sem þar hefur stjórn
á hendi heitir Brykov, sá hinn
sami og var foringi aftökusveit-
arinnar, sem fullnægði dóminum
yfir Beria. öryggislögreglumenn-
irnir, sem eru við gæzlu inni á
þessu umgirta svæði, klæðast
venjulegum vinnufötum landbún
aðarverkamanna — og yfir neð-
anjarðarhýsinu hefur verið reist-
ur búgarður, sem „verkamenn-
irnir“ vinna við. Þetta er gert
til þess að villa þeim sýn, sem
kynnu að sjá yfir „öryggissvæð-
ið“ úr lofti.
Frá upphafi var öllum fram-
kvæmdum haldið leyndum. Hér
var um hernaðarleyndarmál að
ræða og vinnubrögðin voru hin
sömu og í meðferð kjarnorku-
leyndarmála. Starfsmenn og milli
göngumenn við Moskvu komu
flugleiðis — og lenti flugvélin á
dulbúinni flugbraut, sem virtist
úr lofti vera akur. Þegar verkið
var langt komið fóru að koma
ýmsir eftirlitsmenn lögreglunnar
frá Moskvu — og komu þeir nið-
ur í gegn um jarðgöng, sem hóf-
ust í miðjum bóndabæ á „öryggis
svæðmu“. Vísindamennirnir, sem
unnu að uppsetningu hinna
ýmsu véla og tækja, voru ein-
angraðir — og vistin því líkust,
að þeir dveldust á öðrum
hnetti. Nýir sérfræðingar og
starfsmenn, sem bættust í hóp-
inn, voru fluttir flugleiðis að
næturlagi — og í gluggum far-
þegarýmis flugvélanna var ógegn
sætt gler. Alla aðflutninga önnuð
ust öryggislögreglumenn og sín
í milli máttu sérfræðingarnir
ekki ræða um hvers konar verk-
efni þeir hefðu með höridum. Bréf
þeirra voru stranglega ritskoðuð
— og yfirleitt allt hugsanlegt gert
til þess að þeir kæmust ekki að
staðsetningu mannvirkisins.
Þrátt fyrir hvatningarorð og
ógnanir Serovs var verkinu ekki
lokið fyrr en einu ári eftir
áætlun. Samt var unnið nótt og
dag, á þrískiptum vöktum. Mikl-
um fjölda sérfræðinga hafði ver-
ið safnað saman í leppríkjunum
til þess að vinna með Rússunum
— og að verkinu loknu fengu
engir þeirra að hverfa heim. Þeir
voru fluttir flugleiðis til Síberíu
til starfa við kjarnorkurannsókn-
ir og ýmislegt þeim viðkomandi.
Áður er haldið var af stað var
þeim sagt, að fjölskyldur þeirra
yrðu fluttar til þeirra austur í
Síberíu.
Þrátt fyrir allar þessar varúð-
arráðstafanir „öryggislögregl-
unnar“ komst a. m. k. einn vís-
indamannanna til Moskvu. Það
var dr. Goloff, Búlgari, sem feng-
ið hafði hjartaslag — og lagður
var inn í sjúkrahús í Moskvu.
Dr. Goloff lézt 10 dögum síðar í
sjúkrahúsinu, en áður hafði hann
ljóstrað leyndarmáli Krúsjeffs
upp við annan sjúkling, sem lá
í sömu stofu. Þannig kvisaðist
fregnin út, þrátt fyrir allar ráð-
stafanir Serovs, til þess að halda
öllu leyndu, ekki einungis fyrir
Vesturveldunum, heldur og fyr-
ir samlöndum sínum.
Þjóðveldisllokkurinn ætluði uð
steypu iæreySKU iunúst)urnmni
Hlutverk Lavrentiv var nær
eingöngu að sjá um tækniútbún-
að allan í neðanjarðarhýsinu,
sem er mjög margbrotinn og full-
kominn. Úr einum stjórnsal er
öllum vélum og tækniútbúnaði
stjórnað, þess verður m. a. að
gæta, að loftið sé jafnan nægi-
lega súrefnisríkt og hitastigið sé
hæfilegt. En verði allt andrúms-
loftið úti fyrir geislavirkt, þá
vandast málið. En fyrir öllu er
séð. í þessu neðanjarðarbyrgi á
Krúsjeff og aðstoðarmönnum að
vera líft enda þótt banvænt sé
að vera á jörðu uppi, þar eru líka
vatnsbirgðir og nægar vistir til
a. m. k. hálfs árs fyrir 200 manns.
Og það sem meira er: Þaðan get-
ur Krúsjeff haft samband við
stöðvar Rússa um allan heim —
og haft er eftir honum: „Ef 10
línur bila, þá á sú 11. að vera
til“.
í helmingi neðanjarðarhýsisins
eru vélar og alls kyns útbúnað-
íur, en í binum vistarverur fyrir
?f>0 manns, svefnstofur, vinnu-
KAUPMANNAHÖFN, — Sam-
tímis því að deilan um fiskveiði-
lögsöguna kemur til umræðu í
Hindsgavlhöll á Jótlandi og í að-
alstöðvum Atlantshafsbandalags-
ins í París, hefur Þjóðveldis-
flokkurinn í Færeyjum haft það
á prjónunum að steypa lands-
stjórninni og setja á stofn nýja
stjórn, sem átti að „framkvæma
samþykkt lögþingsins um stækk-
un fiskveiðilögsögunnar“, segir
danska blaðið Dagens Nyheder
sl. sunnudag.
Sendi Þjóðveldisflokkurinn
bréf í sl. viku til Fólksflokksins,
Jafnaðarmannaflokksins og Sjálf
stjórnarflokksins, og er þar lögð
fram tillaga um að mynda póli-
tískt bandalag til að geta steypt
færeysku stjórninni. „Dagblad-
id“, blað Fólksflokksins birti
bréfið.
Áform Þjóðveldisflokksins mis
heppnuðust, því að hann fékk
ekkert jákvætt svar. Flokkarnir
þrír, sem bréfin fengu, héldu því
fram, að þannig væri ekki hægt
að fara að. Lögmanninum væri
ekki hægt að víkja úr embætti,
fyrr en kjörtímabil hans væri á
enda.
Klnverskir kommún-
istar skjóta á
Quemoy
TAIPEI, 11. ágúst — Reuter —
Sl. nótt hófu herir kínversku
kommúnistanna skothríð á Que-
moy-eyju í Formósusundi. Stóð
skothríðin í tæpa klukkustund,
en ekkert mannfall varð í liði
þjóðernissinna. Engin umferð
hefur verið undanfarna daga á
sundinu, sem skilur Quemoy frá
meginlandi Kína. Venjulega er
mikið um skipaferðir um sundið.
— Talsmaður varnamálaráðu-
neytisins á Formósu sagðist í dag
ekki vita til þess, að Rússar
hefðu látið kínverskum komm-
únistum kjarnorkusprengjur í
té. —