Morgunblaðið - 19.08.1958, Side 2
2
Þrit^judagur 19. ágúst 1958
MORGVNBLAÐIÐ
Héraðsmót að Skúlagarði, Norður-Þingeyjarsýslu:
Hverjum manni ber að hugsa hlut
laust um þjóðmálin
Við verðum að bera gæfu til sameinaðra
átaka
Þjóðin er farin oð
þekkja stjórnina
Fjislsótt héraðsmót í Ólafsvík á sunnud.
GRUNDARHÓLI, 19. ágúst. —
Héraðsmót Sjálfstæðismanna i
Norður-Þingeyjarsýslu var hald-
ið að Skúlagarði, félagsheimili
Keldhverfinga, s.l. sunnudag.
Víkingur Guðmundsson, Grund-
arhóli, setti mótið og stjórnaði
því. Að setningu lokinni hófst
dagskrá með söng Kristins Halls-
sonar við undirleik Fritz Weiss-
happel.
Virkjun Dettifoss
Síðan tók Barði Friðriksson,
héraðsdómslögmaður til máls.
Fyrri hluti ræðu hans fjallaði
um sérmál Norður-Þingeyinga.
Barði sagði m.a., að framkvæmd-
ir í Norður-Þingeyjarsýslu hefðu
verið miklar að undanförnu, og
hefði þær fyrst og fremst byggzt
á dugnaði fólksins, en ekki að-
gerðum hins opinbera. Taldi
hann mjög hafa skort á fullan
skilning stjórnvaldanna á þörfum
sýslubúa.
Ræðumaður talaði um framtíð
sýslunnar og minnti á, að þar
myndi unnt að efla atvinnulífið
með margvíslegum hætti. Fyrst
og fremst væru gífurlegir mögu-
leikar í sambandi við stórvirkjun
hjá Dettifossi. Hefðu ýmsir aðilar
áhuga á vatnsréttindum þar,
en allt væri í óvissu um, hvað
verða myndi. En lífsskilyrðin má
bæta með öðrum aðgerðum og
smærri í sniðum, sagði Barði Frið
riksson: auknum fisk-og síldar-
iðnaði, t.d. á Raufarhöfn, og
mjólkurvinnslu. Hann kvað
mikla nauðsyn til bera, að at-
vinnulif sýslubúa yrði gert fjöl-
breyttara og benti á framkvæmd
ir í vega- og orkumálum, sem
flýta myndu fyrir því. Loks vék
hann í þessum kafla ræðu sinnar
að sandgræðslunni í sýslunni og
taldi hana mjög ánægjulega.
Séttabarátta
Þá ræddi Barði Friðriksson um
stéttabaráttuni í þjóðfélaginu.
Stéttarígur hefur oft á tíðum ill
áhrif og verkfallsrétti er beitt
ómjúklega. Stéttavaldið er orðið
slíkt, að nauðsynleg gernýting
véla og stórra framleiðslufyrir-
tækja er óframkvæmanleg og
nokkrir menn við vélar í frysti-
húsum geta með verkfalli eyði-
lagt ársframleiðslu 2—3 þús.
manna. Við getum ekki haldið
endalaust áfram á sömu braut,
sagði ræðumaður. Við verðum að
bera gæfu til sameinaðra átaka.
Kjörorð Sjálfstæðismanna er
stétt með stétt.
Þjóðin þarf að hugsa
hlutlaust um mái sín
Þá tók til máls Ingólfur Jóns-
son alþingismaður. Hann hóf mál
sitt með því að ræða um stefnur
og starfshætti hinna pólitísku
flokka og taldi nauðsynlegt, að
allir góðir íslendingar gæfu sér
tíma til að hugsa hlutlaust um
þjóðmálin. Þá myndi heilbrigð
dómgreind þjóðarinnar ráða
stefnunni
Afleiðingin verður örugglega
sú, sagði ræðumaður, að núver-
andi stjórnarflokkum verður
refsað vegna ráðleysis þeirra og
fyrir að leiða nú hraðvaxandi
dýrtíð yfir þjóðina. Hann taldi
þjóðarnauðsyn, að bieytt yrði um
stefnu, verðbólgan stöðvuð, kaup
máttur krónunnar tryggður, at-
vinnulífið gert fjölbreyttara, út-
flutningsframleiðslan aukin og
komið í veg fyrir hraðvaxandi
skuldasöfnun erlendis. Starfs-
hættir núverandi ríkisstjómar
hafa verið slíkir, að hún hefur
tekið erlend lán til að flytja inn
neyzluvarning og aukið gjald-
eyrisskuldirnar m.a. með því.
Auka þarf
útfluíningsframleiðsluna
Efnalegt stjálfstæði þjóðarinn-
ar verður ekki tryggt, sagði Ing-
ólfur Jónsson, nema útflutnings-
framleiðslan verði aukin og jafn
framt gerð fjölbreyttari.
i Ræðumaður taldi, að Sjálf-
stæðisflokkurinn myndi taka
stjórnarforystuna að næstu kosn
ingum loknum og vinna það erf-
iða starf að byggja upp úr þeim
rústum, sem vinstri stjórnin skil
ur eftir. Með samstarfi við al-
menning myndi viðreisnarstarfið
takast. Myndi fólkið fúst til þess
að leggja nokkuð að sér í bili,
þegar vitað væri, að tekið væri
á verkefnunum á raunhæfan
hátt, sem að gagni mætti verða
til frambúðar.
Frambjóðandi Sjálfstæðismanna
Þá sagði ræðumaður m.a., að
hann teldi öruggt, að Norður-Þing
eyingar myndu ljá sitt lið til við-
reisnarstarfsins. Þeir myndu við
hlutlausa athugun komast að
raun um, að hagsmunum þeirra
væri bezt borgið með því að fela
FLUGFÉLAG íslands hefur nú
tekið að sér að annast innan-
landsflug í Grænlandi. Verður
flogið vikulega á milli Syðri-
Straumfjarðar og Ikateq á veg-
um Bandaríkjahers.
Flugmenn Fiugfélagsins hafa
mikið flogið til Grænlands og
eru margir þeirra vel kunnugir
staðháttum í helztu byggðarlög
unum. Þar df leiðandi taldi fé-
lagið sér ekkert að vanbúnaði
að taka að sér þessa flutninga
og var yfirmaður innanlands
flugsins, Birgir Þórhallsson, ný-
lega vestanhafs þar sem hann
undirritaði samninga þar að lút
andi.
Skymasterflugvélin Sólfaxi
verður notuð til þessara ferða.
Hún hefur þegar farið eina ferð
— og sú næsta verður farin á
sunnudaginn — og jafnan á
sunnudögum til októberloka.
Héðan er flogið til Ikateq, en
þangað er 2Vz stundar flug. Ika-
teq er á vesturströndinni,
skammt frá Angmaksalik — og
er þar sæmilegur flugvöllur,
sem byggður var á styrjaldarár-
unum. Syðri-Straumf jörður er á
austurströnd Grænlands — og
er því flogið frá Ikateq beint
yfir Grænlandsjökul. Er þetta
um klukkustundar flug, en flog-
STOKKHÓLMI, 18. ágúst: — Vil-
hjálmur Einarsson tognaði á æf-
ingu i Vesterás síðastliðinn mið-
vikudag, en er á batavegi og verð
ur með í þrístökkskeppninni á
Evrópumeistaramótinu n.k. föstu
dag.
íslenzku keppendurnir búa i
ágætu yfirlæti i Vestertorp barna
skóla, ásamt írum, Dönum, Aust-
urríkismönnum og Belgum.
I Blöð hér ræða að líkum mjög
Barða Friðrikssyni, frambjóð-
anda Sjálfstæðisflokksins, umboð
sitt á Alþingi. Myndi hann reyn-
ast því byggðarlagi, sem fóstraði
hann, hinn nýtasti maður.
Að lokum sagði Sveinn Bene-
diktsson framkvæmdastjóri nokk
ur orð. Hann minntist m.a. á
Barða Friðriksson og sagði, að
kynni sín af honum væru slík, að
hann ætti ekki aðra ósk betri
Norður-Þingeyingum til handa
en að Barði yrði fulltrúi þeirra
á Alþingi.
Fólk kom víða að
Máli ræðumanna var ágætlega
tekið.
Næst á dagskránni voru ýmis
skemmtiatriði, sem flutt voru af
Ævari R. Kvaran, Kristni Halls-
syni, Steinunni Bjarnadóttur og
Fritz Weisshappel. Var þeim
óspart klappað lof í lófa. — Að
lokum var stiginn dans.
Mótið sóttu á fjórða hundrað
manns víðs vegar að úr Norður-
Þingeyjarsýslu. Fór það í alla
staði prýðilega fram. Það eitt
vakti óánægju, að ekki fékkst
opinbert leyfi til að halda
skemmtunina lengur en til kl. 1
eftir miðnætti. Þótti það harður
úrskurður, þar sem margir voru
komnir að um mjög langan veg.
— Fréttaritari.
ið er hátt, því að jökullinn er
víða um 11,000 fet.
1 Straumfirði er góður flug-
völlur. Þar hafa viðkomu flug-
vélar SAS, sem fara á milli
Kaupmannahafnar og Los Ang-
eles.
Síðan flýgur Sólfaxi aftur til
Ikateq — og þaðan heim. í
fyrstu ferðinni voru fluttir 45
farþegar auk farangurs margs
konar.
KAUPMANNAHÖFN, 15. ágúst.
— Bankavextir í Danmörku voru
lækkaðir í dag úr 5% í 4 Vá %.
CAPE CANAVERAL, 18. ágúst —
Fyrsta tilraun Bandaríkjamanna
til þess að skjóta flugskeyti til
tunglsins misheppnaðist.
Það var fjögurra þrepa eld-
flaug, sem skotið var á loft — og
var ætlunin að hún kæmist til
tunglsins á 2—3 dögum — og
gengi síðan umhverfis tunglið.
Vel tókst í fyrstu. Var e!d-
flaugin komin í mikla hæð, er
hún tók að hallast — og sprakk
hún síðan, þegar hún hafði verið
77 sekúndur á lofti.
Bandarískir vísindamenn eru
mikið um mótið og virðast Gunn-
ar Huseby, Vilhjálmur Einarsson
og Valbjörn Þorláksson Vera vin-
sælastir okkar manna.
Mjög góður andi er ríkjandi
meðal íslendinganna og hafa þeir
náð ágætum árangri á æfingu,
þannig hefir Huseby t.d. varpað
kúlunni 16,30 og Valbjörn var
mjög náiægt því að fara yfir 4,50
m i stangarstökki.
Hilmar Þorbjörnsson og Svav-
ÓLAFSVÍK, 18. ágúst — Héraðs-
mót Sjálfstæðismanna á Snæ-
fellsnesi var haldið í Félagsheim-
ili Ólafsvíkur á sunnudaginn.'
Hinrik Konráffsson, oddviti i
Ólafsvík, setti mótið og stjórn-
aði því. Gaf hann þingmanni
Snæfellinga, Sigurði Ágústssyni,
fyrstum orðið.
Blómlegt atvinnulíf í Ólafsvík
Sigurffur Agúsísson hóf ræðu
sína með því að fagna því, að
þetta mót væri nú haldið hér í
Ólafsvík, og kvað hann það
ánægjulegt fyrir mótsgesti að fá
að kynnast hinum miklu fram-
kvæmdum, sem hefðu átt sér
stað hér undanfarin ár. Nú mætti
Frá Portoroz
PORTOROZ, 17. ágúst. — Bið-
skák Bronsteins og Benkös úr
fimmtu umferð lyktaði með jafn-
teflí eins og búizt var við. en
Neykrich vann Friðrik Ólafsson
í 7. umferð. Úrslit í áttundu um-
ferð urðu sem hér segir: Matano-
vic vann Szabo, F'ilip vann de
Greiff, Cardoso vann Sherwin,
Friðrik Ólafsson vann Fiister, og
Fischer vann Larsen. Jafntefli
varð hjá Neykirch og Tal, Gligo-
ric og Petrosjan, Rossetto og
Panno, Bronstein og Averbach.
Staðan eftir 8. umferð: 1. Pet-
rosjan 6 vinninga, 2. Benkö 5ti,
3. Friðrik Ólafsson 5 Vz v., 4.—tí.
Averbach, Tal og Matanovic 5 v„
7.—9. Larsen, Sanguinetti og
Gligoric 4y2 v., 10.—12. Fischer,
Bronstein og Pachman 4 v.,
13.—14. Panno og Filip 4 v.,
15. Szabo 3 v., 16.—17. Cardoso
og Neykirch 3 v., 18. Rossetto 2 v„
19. Sherwin IV2 v„ 20. de Greiff
1 v. og 21. Fúster 1 v. — Þeir,
sem átt hafa frí og teflt einni
umferð færra en himr, eru taldir
á undan, þar sem um jafna vinn-
inga er að ræða.
samt sem áður mjög ánægðir með
árangurinn — og brezkir starfs-
bræður þeirra hafa sent þeim
heillaóskaskeyti.
Tilkynnt hafði verið fyrirfram,
að ólíklegt væri, að vel heppn-
aðist í fyrstu tilraun. Kafarar
hafa nú fiskað upp hluta úr eid-
flauginni, sem féll í hafið undan
Canaveralhöfða. Þykir sýnt, að
fyrsta þrepið hafi brugðizt, en hin
þrjú hafi verið í stakasta lagi —
og eru Bandaríkjamenn vongóðir
um að næsta tilraun, sem á að
fara fram eftir u. þ. b. mánuð,
heppnist betur.
ar Markússon keppa á morgun á
fyrsta degi mótsins. Hilmar í 100
m hlaupi og Svavar 1 800 m
hlaupi. — A. St.
★
STOKKHÓLMI í gærkvöldi: —
Dregið var í riðla í kvöld, og
verður Hilmar að teljast heppinn.
Hann lenti í riðli með Bartanjev
(beztur tími 10,3), Goldovany,
Ungverjalandi (10,5), Stesso.
Tékkóslóvakíu (10,5) og Rass-
mussen, Danmörku (10,7).
Svavar var einnig heppinn með
riðil. Með honum eru Scavo (bezt
1.49,8), Johnson, Engl., (1.46,6),
Saintgali, Ungverjalandi (1.47,1),
Marin, ’Spáni, (1.53,5) og Haas,
Hollandi, (1.51,6). Fjórir fyrstu
halda áfram. — A. St.
telja, að Ólafsvík væri í fremstu
röð kauptúna landsins Og atvinnu
skilyrði slík, að árlega þyrfti að
fá fjölda aðkomufólks til að
vinná úr verðmætum þeim, sem
hin mikla útgerð bæri að landi.
Landhelgismáiið
Þá minntist ræðumaður á land-
helgismálið og hvernig að því
alvarlega og þýðingarmikla máli
landsmanna hefði verið unnið af
núverandi ríkisstjórn. Hann
minnti á óeiningu stjórnarinnar
innbyrðis, en hins vegar nauðsyn
þess að skapa þjóðareiningu um
málið. Þetta velferðarmál allrar
þjóðarinnar ætti að vera hafið
yfir dægurþras og illindi flokka
á milli og ætti að sínu leyti að
sýna samstöðu íslenzku þjóðar-
innar eins og árið 1944, þegar
gengið var til kosninga um sam-
bandsslit okkar við Dani. Þá bar
hann saman undirbúning þessa
máls nú og þann undirbúning,
sem hafður var um stækkun land
helginnar 1952. Sýndi hann glögg
lega fram á þann mismun sem
á er og hve gæfurík lausn þess
í fyrra skiptið var undir forystu
’.Sj álfstæðismanna.
Þjóffin þekkir stjórnina
Loks vék ræðumaður nokkrum
orðum að hinum alkunnu bjarg-
ráðum núverandi ríkisstjórnar,
sem þó eiga aðeins að duga til
haustsins. Skýrði hann, hvernig
þau kæmu við aðalatvinnuvegi
þjóðarinnar, sjávarútveg og land
búnað. Þá minntist hann á, að
núverandi stuðningsflokkar ríkis
stjórnarinnar hefðu talað um það
1956, að Sjálfstæðisflokkurinn
væri með þjóðina á eyðimerkur-
göngu og sýndi fram á hina öm-
urlegu göngu þeirra sjálfra nú.
Þjóðin er farin að þekkja vinstri
stjórnina og kann að meta hana
réttilega, sagði þingmaðurinn.
Það sýndi hún í lcosningunum í
vetur og vor.
Öllum er skylt að fylgjast með
stjórnmálum
Næsti ræðumaður var Magnús
Jónsson, alþingismaður. Hann
ræddi um Sjálfstæðisstefnuna og
minnti á, að meginstefnur flokk-
anna væri það, sem fyrst og
fremst bæri að hafa að leiðar-
ljósi, þegar menn skipa sér 1
flokka.
Sjálfstæðisstefnan byggist á
víðsýni og frjálslyndi, hún vill
hafa í heiðri manngildi og frelsi
og telur sjálfsagt, að hver maður
fái að nýta krafta sína til fram-
kvæmda og framfara, hugsa um
vandamálin að fengnum upplýs-
ingum um sjónarmið allra aðila
og segja álit sitt ótruflaður.
Þá talaði ræðumaður um af-
stöðu almennings til stjórnmál-
anna. Sumir vilja ekki við það
kannast, sagði hann, að þeir eyði
tíma sínum í að hugsa um stjórn-
mál. En þeir geta búizt við, að
slíkt sinnuleysi leiði til þess, að
aðrir muni fyrr eða síðar koma
þeim í þá aðstöðu, að þeir eigi
ekki afturkvæmt í ríki frjálsra
og sjálfstæðra manna. Það er
skylda hvers manns að fylgjast
með á sviði stjórnmálanna,
hugsa um þau, taka afstöðu til
þeirra og breyta samkvæmt
henni.
Fjölbreytt mót
A mótinu fóru leikararnir
Brynjólfur Jóhannesson og Bald-
ur Hólmgeirsson með ýmis
skemmtiatriði, sv® og Hanna
Bjarnadóttir, söngkona, og Skúli
Halldórsson, tónlistarmaður.
Félagsheimilið var þétt setið
mótgestum. Munu hafa verið á
samkomunni 400—500 manns.
Komu þeir víða að, m. a. fóru
um 90 Dalamenn hópferð til Ól-
afsvíkur. Ræðumönnum var
ágætlega tekið og listafólkinu
einnig. — B. Ó.
Sólfaxi í innanlandsflugi
s Grcenlandi
Evrópumeistaramótið í
frjálsíþróttum hefst í dag
Hilmar og Svavar keppa i dag
Tunglferðin mistókst