Morgunblaðið - 19.08.1958, Síða 15

Morgunblaðið - 19.08.1958, Síða 15
MORCUNBLAÐIÐ 15 T»riðjudagur 19. ágúst 1958 Einfeldningsleg og heimskuleg skoðun — segir Manchester Guardian Gœti leitt til harmleiks Kaupmannahöfn, 18. ágúst. — Einkaskeyti til Mbl. „MANCHESTER GUARDIAN“ ræðir landhelgismáiið í dag og segir það hyggilegt af brezku stjórninni að senda herskip til íslands, þegar fiskveiðilandhelg- in verði færð út. Með þeirra að- stoð geti brezkir togarar virt land helgina að vettugi. En Bretar eiga að vera reiðu- búnir til að ganga að málamiðl- un jafnskjótt og íslendingar sýni samstarfsvilja. Það er nauðsyn- legt að veita íslendingum viðnám — og það harðnar sennilega, ef marka á ummæli Lúðvíks Jósefs- sonar þess efnis, að fslendingar telji það árás á ísland-, ef Bret- ar verja togsra sína innan 12 mílna landhelginnar. íslendingar hlaupa á sig, ef þeir halda, að Bretar séu aðeins að reyna að leika á íslendinga með hótunum sínum, eins *g I.úðvík Jósefsson telwr. Þessi einfeldningslega skoð un er heimskuleg af því að hún er ekki á rökum reist. Brezka stjórnin hefur andanlega ákveðið að senda herskip togaraflotanum til verndar, e« við getum ekki haft herskip til eilífðar á þessum slóðum, enda þótt verndar sé þörf. — Lúðvik Framh. af bls. 1 Lúðvík Jósefsson var spurður að því, hvort íslendingar teldu, að hægt væri að jafna deiluna um fiskveiðilandhelgina með samn- ingaviðræðum. Svaraði hann því til, að íslendingar mundu taka þátt í ráðstefnu, ef boðuð yrði á sama grundvelli og alþjóðlega sjóréttarráðstefnan, sem haldin var í Genf á þessu ári. — En um- ræðugrundvöllur er ekki fyrir hendi á meðan 12 mílna landhelg- in er ekki viðurkennd, sagði hann. íslendingar hefðu ekki séð ástæðu til þess að ræða landhelg- ismálið við aðrar þjóðir eftir Genfarráðstefnuna. Ekki hefði verið hægt að fallast á viðræður við vestræn ríki, sem hagsmuna hefðu að gæta á íslandsmiðum, því að ljóst væri, að afstaða allra viðkomandi landa væri öndverð afstöðu íslands. ★ ★ ★ En ef fiskgengdin innan nýju fiskveiðitakmarkanna eykst í framtíðinni umfram þarfir íslend inga sjálfra munum við fúsir til þess að ræða málið, sagði Lúðvík — en ekki kvað hann slíka þró- un sennilega. Þá sagði ráðherrann, að aðstaða íslendinga væri sterk, því að mörg ríki um víða veröld hefðu sama sjónarmið og íslendingar hvað fiskveiðimálunum viðkæmi. Meirihluti þátttökuríkja á Genfar ráðstefnunni hefði verið fylgjandi 12 mílna fiskveiðilandhelgi. Allir íslendingar, allir stjórnmálaflokk arnir, væru einhuga í málinu — og hann yrði sakaður um svik- semi í starfi, ef hann fylgdi mál- inu ekki fast eftir. ★ ★ ★ - Sem fyrr segir neitaði Lúðvík því að hafa rætt málið við komm- únistaforingjana í Moskvu, en minnti þó á, að Ráðstjórnin hefði lýst stuðningi við rétt íslendinga til útfærslu landhelginnar. Þá sagði hann, að stefna ís- lendinga í landhelgismálinu mót- aðist aðeins af íslenzkum hags- munum, ekki áformum um að grafa undan Atlantshafsbandalag inu eða samvinnu við önnur lönd. Atlaritshafsbandalagið kæmi í rauninni máli þessu ekkert við. Því má bæta við, að Morgun- blaðið spurðist fyrir um það i gær í atvinnumálaráðuneytinu, hvort Lúðvík Jósefsson væri kom inn til Iandsins. Gat ráðuneytið engar öruggar upplýsingar gefið um það. Við verðum að ganga að mála- miðtun jafnskjótt og íslendingar eru fýsandi til þess. /Eskilegt væri, að brezka stjórnin gæfi KAUPMANNAHÖFN, 18. ágúst. — Fréttaritari „Poletiken" í Lundúnum símar, að brezku tog- urunum á íslandsmiðum muni verða safnað saman í þrennu lagi þegar íslendingar færa út fisk- veiðitakmörkin — og halda síðan undir hervernd upp að 4 mílna landlielginni gömlu til veiða. 10 skip brezka sjóhersins verða þá á íslandsmiðum, stærst þeirra verður freigátan „Eastburne", 20.000 lestir að stærð. Brezkir togaraskipstjórar hafa fengið ströng fyrirmæli um það, að þeim sé undir engum kring- amstæðum heimilt að hafa vopn meðferðis á íslandsmið. NEW YORK, 18. ágúst. — Róstu- samt var á Allsherjarþinginu í dag. Norski fulltrúinn flutti álykt unartillögu, sem studd var af nokkrum öðrum ríkjum — og var þar skorað á Hammarskjöld að gangast fyrir því, að deilurnar í löndunum fyrir botni Miðjarð- arhafsins yrðu jafnaðar í anda S.Þ. Columbía var meðal þeirra, sem stóðu að tillögunni og lýstu fulltrúar margra S-Ameríkuríkja yfir vanþóknun á afstöðu sendi- nefndarinnar þar eð ekki var skýrt tekið fram, að Bandaríkja- menn og Bretar ættu tafarlaust að flytja her sinn frá Líbanon og Jórdaníu. Japanski fulltrúinn var beðinn að styðja tillöguna, en ekki fékkst hans stuðningur — og var Aðcins 9 líkanna þekktust GALAWAY, 18. ágúst — Til- kynnt var í dag, að einungis 9 þeirra 34 líka, sem fundust eftir flugslysið mikla, er Super-Con- stellation-flugvél frá KLM fórst um 65 mílur vestur af írlands- strönd með 99 manns innanborðs, hefðu þekkzt aftur. Óþekktu lík- in verða jarðsett hér, en hin 9 verða flutt flugleiðis til átthaga ninna látnu. Nokkur síld til Seyðisfjarðar SEYÐISFIRÐI, 18. ágúst. — í nótt lönduðu hér þrjú skip síld í bræðslu: Höfrungur AK 244 mál, Hvannaröst 295 og Vonin II 416. Þessi skip eiga ólandað: Vík- ingur 300 mál, Jökull SK 250, Hvanney SF 200 og Þorbjörn GK 250. Síldin hefir veiðzt úti fyrir Vopnafirði og við Digranes. Tal- ið er nokkurt magn síldar á mið- unum en veður hamlar veiðum — sama brælan úti fyrir en sæmilegt innfjarða. Alls hafa borizt hingað í sumar 33 þús. mál síldar til bræðslu. Saltaðar hafa verið 4400 tunnur og frystar 2700 tn. — Fréttaritari BELGRAD, 18. ágúst. — Tito hefur beðið Bandaríkin um meira en 300 millj. dollara lán til langs tíma til iðnvæðingar landsins. þetta fyllilega til kynna fyrir 1. september. Fiskimiðin við ísland eru nægi- lega stór bæði fyrir íslendinga og Breta. Erfiðleikarnir liggja e. t. v. í því, að stórir brezkir tog- arar hrekja minni íslenzk fiski- skip af miðunum. E. t. v. væri hægt að ákveða einhver svæði innan 12 milnanna, sem íslenzk- um fiskibátum einum væri heim- ilt að veiða á. Gamall togaraskipstjóri frá Hull, John Withley á „St. Crisp- in“, sagði við fréttaritarann: — í gamla daga notuðum við krókstjaka og sprautuðum sjóð- andi vatni — og við gerum það aftur nú. Við viðurkennum ekki 12 mílna fiskveiðilandhelgi, ég læt ekki reka mig af miðunum, sem ég hef veitt á í 15 ár. íslend- ingar segjast ætla að vopna gamla Catalinu með 5 punda fallbyssu — og þegar þeir hafa skotið tveim skotum fyrir framan togarann segjast þeir munu skjóta á skipið. En það hræðir okkur ekki. Ég hef a. m. k. ekki í hyggju að láta í minni pokann. hún dregin til baka um stundar sakir. — Fulltrúar Rúmeníu For- mósu og Indlands fluttu stuttar ræður. Ingverjinn ræddi um þörf iná á að flytja her Breta og Bandaríkjamanna strax úr lönd- unum fyrir Miðjarðarhafsbotni, kvaðst hann ekki geta sætt sig við lögreglusveitir S.Þ. þar, að- eins eftirlitssveitir. Þá lýsti Gro- myko andúð sinni á norsku til- lögunni. Nú var norska tillagan aftur lögð fram — eg studdu hana þá fulltrúar Danmerkur, Columbíu, Líberíu, Panama og Paraguay. Líkindi eru talin til þess að % hlutar þingsins fáist til þess að styðja þessa tillögu, en endanleg úrslit málsins verða þó ekki kunn fyrr en í lok vikunnar að því talið er. Bretar og Bandaríkjamenn hafa tilkynnt Hammarskjöld, að þeir muni flytja herinn frá Lí- banon og Jórdaníu strax og S.Þ. eða stjórnir landanna æskja þess. — Engin einstök Framh. af bls. 1 júní. Þar sagði, að hin fyrirhug- aða 12 míina landhelgi sam- rýmdist ekki alþjóðalögum. Brezka stjórnin teldí það skyldu. sína að koma í veg fyrir ser- hverja óiöglega tllraun til a® stækka fiskveiðilögsögu. Talsmaðurinn var spurður að! því, hvort skipzt hafi verið á skoð unum í málinu á alþjóðlegum vettvangi — og sagði hann sam- bandið aldrei hafa fallið niður. Bætti hann því við, að brezka stjórnin mundi með ánægju ræða málið. Brezka stjórnin hefði vænzt þess, að hægt yrði að finna lausn á málinu, en engin einstök ríkisstjórn gæti breytt alþjóða- lögum. ★ Samkvæmt fyrri fregnum höfðu enskir togaramenn ekki viljað láta neitt uppi um fyrir- hugaðar aðgerðir gegn íslend- ingum. Var vísað til flotamála- stjórnarinnar, sem vísaði til land búnaðar- og sjávarútvegsmála- ráðuneytisins — sem aftur vísaði til utanríkisráðuneytisins. Samkomur Fíladelfta: Almennur biblíulestur kl. 8,30. Allir velkomnirl Næsta föstudag kl. 6 e.h. verður barnasamkoma. öll börn velkomin. — segir Aftenposten KAUPMANNAHÖFN, 18. ágúst. — Einkaskeyti til Mbl. — „Aften posten" í Ósló ræðir landhelgis- málin í dag og segir, að ástandið sé nú greinilega orðið svo slæmt, að lengur megi ekki við svo búið standa. Gripa verði til skjótra úr- ræða — og nauðsyn sé, að við- ræður hefjist. til harmleiks, ekki einungis hvað íslandi viðkemur, heldur okkur öllum, segir ,Aftenposten‘. Þess vegna biðjum við norsku stjórnina, að hafa frumkvæðið áður en klukkan slær tólf. MOSKVU, 15. ágúst. — Krúsjeff er að fara i mánaðar sumarlri suður á Krím, segir Tass-frétta- stofan. Núverandi ástand getur leitt Móðir mín GUÐFINNA JÓNSDÓTTIB frá Skuld í Garði, andaðist 18. ágúst að Eilliheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði. Óskar Guðlaugsson. Konan mín og móðir okkar DANFRÍÐUR BRYNJÓLFSDÓTTIR lézt í sjúkrahúsinu Sólvangi í Hafnarfirði sunnudaginn 17. þ.m. Kristján Pálsson og börn. Okkar kæri faðir PÉTUR FJELDSTED KRISTJÁNSSON frá Guðnabakka, andaðist 16. ágúst í Elliheimilinu Grund. Dætur hins látna. Maðurinn minn ÁRNI PÁLSSON lézt í Heilsuverndarstöðinni að kvöldi 15. þ.m. Ingibjörg Sveinsdóttir. Hjartkær sonur minn og bróðir okkar SIGURJÓN PÉTURSSON lézt af slysförum laugardaginn 16. ágúst. Guðrún Guðmundsdóttir og systklni. Útför konu minnar FRÍÐU GUÐLAUGSDÓTTUR er andaðist á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, miðvikudag- inn 13. ágúst s.l. fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju laug- ardaginn 23. þ.m. kl. 2 e.h. að aflokinn bæn heimá. Kransar og blóm vinsamlegast afbeðið Þóroddur Hreinsson. Jarðarför SIGRÍÐAR STEFANÍU BJARNADÓTTUR frá Borgarnesi, sem andaðist að Sólvangi í Hafnarfirði 12. þ.m., fer fram frá Fossvogskapellu á morgun (miðvikudag) kl. 2 e.h. Kirkjuathöfninni verður útvarpað. Fríða Þórðardóttir, Ól. Bergm. Erlingsson. Hjartkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir okkar MAGNÚS jóhannsson vélstjóri frá Akureyri, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 20. þ.m. kl. 10,30. Jarðarförinni verður útvarpað. Blóm og kransar afbeðin. Ragna Ólafsdóttir og börn, Jóhann Hallgrímsson og systkini Þakka auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför sonar míns, GUNNARS HJÁLMSSONAR Hjarðarfelli. Ragnheiður Guðbjartsdóttir. Okkar innilegustu þakkir færum við öllum nær og f jær fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ÞORSTEINS JÓNSSONAR vélvirkja, Neskaupstað. Sérstaklega viljum við þakka Dráttarbrautinn h.f. fyrir að heiðra minningu hins látna með því að kosta útför hans, svo og Sveini Guðmundssyni forstjóra Héðins h.f. fyrir rausnarlega gjöf. Eiginkona, börn, foreldrar, systkini og tengdaforeldrar. Togaraskipstjórum harð- lega bannað að hafa vopn Einhverjar samkomulags- hortur á Allsherjarþingi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.