Morgunblaðið - 14.10.1958, Blaðsíða 8
8
MORGUPiBLAÐlÐ
Þriðjudagur 14. okt. 1958
Guðrún Jónasson fyrrv. bæjarfulltrúi
Minningarorð
ÞEGAR mér barst fregnin um
andlát frú Guðrúnar Jónasson,
sem reyndar kom mér ekki á
óvart, því að ég hafði íáum dög-
um áður frétt að hún væri mjög
veik og tvísýnt um líf hennar,
rifjuðust upp fyrir mér fyrstu
persónulegu kynni mín af þessarj
sæmdarkonu fyrir nærri 13 árum.
Tilefni þess að leiðir okkar lágu
þá saman voru bæjarstjórnarmál-
efni, en á þeim vettvangi áttum
við síðan samstarf um árabil. Það
samstarf og nánari viðkynning
sannfærði mig æ betur um það,
sem mér frá öndverðu þótti áber-
andi, hve drenglyndi og góðvild
í annarra garð, hvort sem þeir
áttu með henni samleið í skoðun-
um eða ekki, voru ríkir þættir
í fari hennar, enda ætla ég að
þegar hún nú kveður þennan
hfcim fylgi henni hlýhugur allra
þeirra mörgu, er hún átti ein-
hver samskipti við á langri ævi.
Guðrún Jónasson var fædd að
Felli í Biskupstungum 8. 2. 1877.
Foreldrar hennar voru Pétur
Einarsson bóndi þar og kona hans
Hálla Magnúsdóttir Jónassonar í
Bráðræði. 11 ára gömul fluttist
hún til Vesturheims með foreldr-
um sínum, en kom aftur til Is-
lands 1904. Settist hún þá að í
Reykjavík og stofnsetti hér
verzlun með Gunnþórunni Hall-
dórsdóttur og hafa þær rekið
hana síðan.
Guðrún Jónasson átti sæti i
bæjarstjórn Reykjavíkur lengur
en nokkur kona önnur hefur átt.
Hún var fyrst kosin í bæjarstjórn
árið 1928 og sat þar óslitið til
ársins 1954, þar af 2 síðustu
kjörtímabilin sem varabæjarfull-
trúi. í þessi 26 ár sat hún 445
bæjarstjórnarfundi eða fleiri en
nokkur bæjarfulltrúi annar
fyrr eða síðar að Guðmundi heitn
um Ásbjörnssyni einum undan-
sk'ldum.
í bæjarstjórn voru henni falin
mörg trúnaðarstörf, en lengst átti
hún sæti í fátækra- og fram-
færslunefnd og barnaverndar-
nefnd, og má segja að það væri
engin tilviljun að hún valdíst til
þeirra starfa, því að miklum
hluta langrar starfsævi varði hun
í þágu líknar- og menningar-
mála.
Hún átti sæti í veganefnd.
vatnsnefnd, heilbrigðismálanefnd
og heilbrigðisnefnd, sóttvarna-
r.efnd, brunamálanefnd og veit-
ingaleyfanefnd. Varamaður var
hún í bæjarráði og fræðsluráði
og átti auk þess sæti í forstöðu-
nefnd Húsmæðraskóla Reykja-
víkur. Öll þessi störf rækti hún
af þeirri skyldurækni og grand-
varleik er auðkenndu hana í hví-
vetna, og ávallt var hún reiðu-
búin að leggja gott til málanna.
Af hinum mörgu áhugamálum
Guðrúnar Jónasson utan bæjar-
stjórnar ætla ég aðeins að minn -
ast á byggingu kvennaheimilisins
Hallveigarstaða. Hún beitti sér á
sínum tíma fyrir því innan bæ;ar-
stjórnar að tekin yrái upp ftár-
veiting til Hallveigarstaða, og
sjálf var hún frá upphafi for-
maður fjáröflunarnefndar, sem
gengst fyrir merkjasölu og ann-
arri fjársöfnun í byggingarsjóð.
Fyrir nokkrum árum sagði hún
mér að hún hefðí til gamans
haldið því saman hve miklu hún
hefði safnað sjálf persónulega,
aðallega með merkjasölu, og
nefndi mér upphæð, svo háa, að
ég varð undrandi yfir. Má með
sanni segja að hverju því mál-
efni, er ætti mörgum liðsmönn-
um á borð við hana á að skipa,
væri farsællega borgið.
Um leið og ég kveð Guðrúnu
Jónasson hinztu kveðju og votta
henni virðingu mína og þökk
fyrir vináttu og samstarf, vil ég
óska þess að íslenzkar konur eigi
eftir að minnast hennar á verð-
skuldaðan hátt með því að hlú
að þeim málefnum, sem henni
voru hjartfólgnust, því að öll
voru þau af göfugum hvötum
sprottin og góðri konu samboðin.
Auður Auðuns.
EIN af mætustu konum þessa
lands, frú Guðrún Jónasson, verð
ur til moldar borin í dag.
Fyrstu kynni min af frú Guð-
rúnu Jónasson voru fyrir 34 ár-
um, er ég kom að Nesjum í Grafn
ingi þar sem hún og frk. Gunn-
þórunn Halldórsdóttir leikkona
bjuggu fyrirmyndarbúi, sem þær
stjórnuðu sjálfar með mestu
prýði eins og öllu sem þær tóku
sér fyrir hendur.
var hrókur alls fagnaðar.
Nú er þessi ágæta kona horfin
sjónum okkar í bili, og vildi ég
óska þess að við gætum hafið
hennar merki og starfað áfram
í hennar anda, og þá mun félagi
okkar og Sjálfstæðisflokknum
vel vegna.
Þessar fáu og smáu línur mín-
ar vil ég enda með að flytja inni-
legustu samúðarkveðjur fröken
Gunnþórunni Halldórsdóttur,
fósturbörnum þeirra, tengdabörn
um og barnabörnum, og bið ég
Guð að blessa heimili þeirra og
allt sern þau taka sér fyrir i.end-
ur.
Frú Guðrún Jónasson
Ágætan sumarbústað höfðu
þær byggt sér á fögrum stað í
Hólmanesi, skammt frá bæ
þeirra, neðar við voginn. Var oft
gestkvæmt hjá þeim þar, og var
gestum þeirra heimilt að róa út
á vatnið og veiða silung, skreppa
út í Nesjaey, fara gönguferðir um
þetta fagra umhverfi og, síðast
en ekki sízt, að tína ber í bezta
berjalandi sunnanlands.
f þessum umhverfi dvöldu þær
vinkonurnar öll sumur ásamt
fósturbörnum sínum og mörgum
öðrum börnum og ýmsu fólki,
sem naut góðs hjá þeim í einni
og annarri mynd. Fannst mér í
hvert sinn sem ég kom þar ég
vera komin í eins konar paradis,
og er. ég þakklát fyrir þá kynn-
ingu er ég hafði af þeim á Nesj-
um.
En nánustu kynni mín af frú
Guðrúnu Jónasson fékk ég þeg-
ar Sjálfstæðiskvennafélagið
Hvöt var stofnað 15. febrúar
1937, og var það hin mesta
heppni fyrir félagið og okkur
sjálfstæðiskonur er hún tók að
sér formennsku félagsins, þar
sem hún var í forsæti í 18 ár, en
óskaði þá eindregið að verða ekki
endurkjörin og söknuðum við
þess mjög að hún gat ekki haldið
því áfra:n En alltaf var nún
samt sami góði krafturinn í fé-
laginu þó hún lév.i af fcrmennsko
og ævinlega mátti sækja til
hennar ráð, því hún var sú sam-
vinnuþýðasta manneskja sem ég
hefi þekkt.
Á félagsfundum mátti mikið
og margt af henni læra, þvi hún
stjórnaði af velvild og skilningi
og vildi hvers manns vanda
leysa í þessum félagsskap og öðr
um, er hún átti sæti í. Þökkum
við henni öll störf hennar í þágu
félagsins, landsins og þjóðarinn-
ar.
í sumarferðalögum félagsins
tók hún jafnan þátt og þótti okk
ur hinum vænt um það, því hún
„Deyr fé,
deyja frændr,
deyr sjalfr et sama;
en orðstírr
deyr aldrigi
hveims sér góðan getr“.
María P. Maack.
FRÚ Guðrún Jónasson er horfin
af sjónarsviðinu eftir langan
starfsdag. Hún átti um ævina
mörg áhugamál og var alla tíð
mjög starfsöm kona. Afskipti
hennar af opinberum málum eru
alþjóð kunn. Hún var um langt
árabil bæjarfulltrúi í Reykjavík
og lét sér þar einkum umhugað
um ýmis félags- og mannúðarmál
Hún átti sæti í barnaverndar-
nefnd frá stofnun hennar árið
1932 Síðast var nún kjörin í
nefndina í byrjun yfirstandandi
árs, þá komin yfir áttrætt. Ég
átti þess kost að starfa með frú
Guðrúnu í þessari nefnd um rúm
æga átta ara skeið, en þegar leið
ir okkar ’águ þar saman, var hún
komin á þann aldur, er flestir
kjósa að iétta af sér byrðum og
hvílast. Það átti elcki við frú
Guðrúnu. Hún var fuil áhuga og
starfsvilja aiit þar til hún fyrir
nokkrun. mánuðum kenndi sér
þess meins, er nú hefur slökkt
líf hennar.
Frú Guðrún Jónasson lagði
mikla alúð við störf sín í barna-
verndarnefnd og mig grunar, að
ekki hafi -önnur áhugamál skip-
að æðri sess í hug hennar en
vernd barna og ungmenna. Af-
skipti hennar af málum þeim,
er hún fjallaði um í barnavernd-
arnefnd mótuðust jafnan af
mikilli góðvild og ríku umburð-
arlyndi. Ég mun ávallt minnast
hennar með virðingu og þakk-
æti.
Guðm. Vignir Jósefsson.
FRÚ Guðrún Jónasson formaður
Kvennadeildar Slysavarnafélags
íslands í Reykjavík, andaðist að
heimili sínu sunnudaginn 5.
október. Hún hafði verið mikið
veik frá því í júní í sumar og
lá um skeið þungt haldin á Bæj-
arspítalanum. Hresstist hún þá
það mikið að hún gat verið
nokkra daga í hinum fagra sum-
arbústað sínum að Nesjum við
Þingvallavatn, þar sem hún átti
svo margar ánægjustundir. En
skyndilega versnaði henni, missti
meðvitund sJ. fimmtudag og á
sunnudag var hún dáin. Ég ætla
mér ekki að lýsa frú Guðrúnu
Jónasson fyrir Reykvíkingum, til
þess er hún þeim of kunn fyrir
sinn frábæra dugnað og áhuga er
hún lagði til allra mannúðar-
mála. Hún starfaði í bæjarstjórn
Reykjavíkur um 25 ára skeið.
En minnisstæðust og hjartfólgn-
ust verður hún þó fyrir hið
mikla starf er hún vann fyrir
Slysavarnafélag íslands. Hún
stofnaði fyrstu kvennadeildina í
Reykjavík og fyrir hennar at-
beina starfa nú um 30 kvenna-
deildir á landinu. Við konurnar
sem höfum starfað með henni á
liðnum árum munum aldrei
gleyma hennar góðu hvatningar-
orðum og umhyggjunni, er hún
bar fyrir þeim er áttu við bág
kjör að búa.
Konurnar í Kvennadeild
Slysavarnafélagsins í Reykjavík
kveðja nú sinn ástsæla formann,
frú Guðrúnu. Við þökkum henni
ai heilum hug alla vinsemd og
hjartahiýju. biðjum Guð að
blessa hana og hjálpa okkur til
að haida stai finu áfram í henn-
ar anda.
Ástvinum hennar biðjum við
blessunar Guðs.
Gróa Pétursdóttir.
Happdrœtti Háskóla
íslands — 10. flokkur
Kr. 100.000,00 17282 17297 17324 17342 17375
Nr. 1024 17394 17502 17602 17610 17634
17669 17677 17693 17743 17771
Kr. 50.00«,OU 17989 18058 18175 18209 18213
íNr. ððiðú 18290 18309 18374 18417 18484
Kr. 10.000,00 18502 18518 18716 18736 18750
5549 17318 17833 18541 20430 18773 18829 18839 18968 18972
24335 19029 19126 19128 19213 19260
Kr. 5000.00 19442 19501 19512 19514 19587
7805 10658 11627 19319 27667 19588 19645 19694 19723 19746
28781 33707 40578 43086 43680 19768 19781 19838 19843 19863
19885 19897 19994 20062 20098
Aukaviniringar kr. 5.000,00 20107 20132 20143 20164 20196
1023 1025 20262 20308 20337 20417 20429
20514 20529 20545 20605 20664
Kr. 1.000,00 20665 20733 20821 20947 20873
72 112 245 256 417 20878 20913 21030 21042 21043
505 596 606 727 732 21075 21190 21195 21232 21226
752 764 779 84 877 21285 21312 21341 21349 21378
879 894 975 980 983 21409 21439 21447 21588 21605
1039 1052 1068 1075 1115 21660 21729 21749 21799 21870
1133 1134 1207 1271 1300 21892 21900 21933 22033 22064
1332 1460 1461 1475 1493 22068 22080 22093 22115 22183
1665 1767 1781 1827 1896 22276 22301 22308 22312 22323
1899 1913 1946 1998 2099 22360 22426 22431 22466 22469
2200 2263 2315 2348 2356 22517 22568 22610 22783 22820
2466 2488 2551 2571 2610 22837 22852 22857 22863 22885
2742 2843 2927 2945 3157 22925 22937 22984 23016 23163
3159 3226 3319 3381 3428 23234 23310 23321 23331 23508
3538 3571 3576 3599 3657 23676 23770 23927 23945 24083
3838 3879 3902 3944 3965 24168 24259 24261 24295 24333
3980 4001 4109 4170 4303 24370 24576 24873 24932 24989
4307 4310 4320 4336 4397 24998 24999 25099 25154 25252
4441 4446 4581 4652 4794 25285 25374 25391 25404 25436
4833 4836 4852 4918 4959 25485 25507 25594 25638 25716
5008 5040 5057 5080 5092 25760 25777 25783 25832 25874
5169 5198 5297 5318 5337 25889 25893 25945 25954 25989
5497 5668 5702 5745 5830 25991 26000 26018 26102 26110
5945 6036 6039 6141 6171 26258 26264 26310 26376 26409
6201 6236 6238 6241 6242 26477 26599 26618 26626 26922
6234 6358 6407 6453 6567 26931 27074 27095 27114 27192
6632 6925 6950 6966 6976 27336 27376 27385 27433 27480
6993 6995 7042 7121 7127 27510 27664 27711 27716 27719
7130 7146 7150 7270 7305 27721 27734 27743 27818 27890
7334 7378 7468 7499 7545 27926 27932 27948 27954 28102
7570 7659 7823 7919 7982 28103 28130 28204 28339 28349
7995 8003 8212 8239 8321 28380 28381 28385 28392 28399
8361 8416 8445 8462 8469 28474 28529 28577 28586 28600
8472 8557 8655 8694 8716 28633 28645 28666 28704 28747
8738 8827 9097 9098 9137 28765 28788 28795 28823 28836
9169 9195 9208 9362 9377 28865 28878 28887 28952 29060
9395 9440 9454 9486 9508 29106 29140 29211 29215 29250
9530 9593 9622 9660 9692 29300 29315 29425 29432 29461
9756 9778 9793 9845 9906 29503 29522 29544 29567 29583
9961 9981 10092 10150 10163 29620 29650 29671 29764 29815
10164 10179 10203 10300 10338 30010 30015 30025 30126 30127
10385 10400 10402 10424 10520 30141 30160 30223 30275 30280
10536 10602 10637 10654 10817 30308 30438 30456 30469 30473
10913 10938 11057 110621 11112 30578 30659 30714 30768 30777
11158 11166 11299 11486 11531 30846 30973 31022 31076 31123
11551 11745 11786 11981 11993 31142 31229 31354 31387 31549
12015 10225 12177 12303 12396 31552 31555 31580 31797 31825
12400 12424 12519 12631 12655 31861 31867 31875" 31942 31966
12686 12689 12773 12802 12848 32085 32160 32233 32342 32361
12954 13043 13055 13111 13158 32371 32388 32392 32511 32525
13273 13294 13356 13421 13440 325771 32575 32593 32646 32698
13447 13448 13724 13748 13805 32729 32737 32825 32877 32019
13829 13843 13845 13855 13872 32961 32994 33003 33050 33055
13940 13996 14037 14050 14063 33134 33146 33204 33293 33388
14071 14173 14235 14243 14344 33527 33546 33583 33675 33764
14352 14366 14407 14503 14562 33847 33856 33916 34021 34029
14610 14693 14716 14788 14817 34212 34245 34426 34459 34477
14872 14924 15239 15331 15343 34482 34484 34509 34545 34574
15346 15363 15379 15566 15597 34654 34698 34707 34768 34910
15600 15753 15777 15903 16048 34934 34950 34983 35113 35121
16056 16065 16087 16129 16290 35186 35190 35362 35406 35409
16306 16321 16342 16362 16440 i35460 35498 35506 35516 35524
16545 16564 16671 16694 16750 35551 35560 35581 35592 35630
16770 16788 16794 16838 16887 35633 35649 35662 35722 35808
16997 17032 17106 17155 17197 Framh. á bls. 18