Morgunblaðið - 14.10.1958, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.10.1958, Blaðsíða 18
18 MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 14. okt. 1958 Hljóp Maraþonhlaup í myrkri og frosti Jón Guðlaugsson frá Biskupstungum horfinn — á rétta braut. Hann . ... 0 . lauk svo hlaupinu á góðum vmnur athyglisvert afrek spretti. Tottenham 12 4 3 5 27:27 11 Charlton 12 5 3 4 26:26 13 Portsmouth 12 4 3 5 20:26 11 Liverpool 12 5 2 5 24:22 12 Birmingham .... 12 4 3 5 16:23 11 Grimsby Town 12 4 4 4 24:26 12 Leicester 12 3 4 5 19:28 10 Leeds Utd 12 2 5 5 12:21 9 Swansea Town 12 4 3 5 22:22 11 Everton 12 4 0 8 21:38 8 Leyton Orient 12 4 3 5 17:18 11 Manchester C. 12 2 4 6 17:31 8 Cardiff City .... 12 5 1 6 20:22 11 Aston Villa 12 3 2 7 19:35 8 Huddersfield .... 12 4 2 6 20:14 10 Ipswich Town.... 12 4 2 6 18:21 10 2. deild Barnsley 12 4 2 6 20:26 10 Sheffield Wedn. 12 10 1 1 35:12 21 Derby County 12 3 4 5 16:23 10 12 9 3 0 36:16 21 Bristol Rovers 12 7 2 3 25:18 16 Brighton 12 2 5 5 14:31 9 Stoke City 12 7 2 3 24:21 16 Scuiithorpe 12 2 4 6 16:27 8 Bristol City .... 12 7 1 4 29:20 15 Sunderland 12 3 2 7 16:21 8 Sheffield Utd. 12 5 3 4 11811 13 Lincoln City .... 12 3 1 8 23:29 7 UM kl. 6 á sunnudaginn hóf Jón Guðlaugsson frá Umf. Biskups- tungna maraþonhlaup. Lagði hann af stað frá Kambabrún og lauk hlaupinu á Melavellinum í Reykjavík 3 klst. 38,18,2 mín. síðar. Er þetta afrek Jóns hið bezta miðað við aðstæður, en hann hljóp lengst af í myrkri og hitastigi við og undir frostmarki. Met Hafsteins Sveinssonar frá í fyrra á þessari vegalengd 3.01.2.0 klst. Jón hafði lengi haft í huga að reyna við maraþonvegalengdina, og afráðið var i síðustu viku að tilraun skyldi gerð á sunnu- dag ef veður og aðstæður leyfðu. Svo var ráð fyrir gert að hlaupið hæfist um kl. 3, en vegna mis- skilnings fórust reykvískir að- stoðarmenn Jóns og hann á mis og hann lagði ekki af stað fyrr en um kl. 6. Skömmu síðar skall á myrkur og hljóp hann lengst af í dimmu. Kalt var er sól hvarf af lofti og það svo að rakur and- ardráttur hlauparans allt að því fraus á vitum hans. En þrátt fyrir hinar erfiðu að- stæður lauk Jón hlaupinu og vann með því hið mesta afrek. Maraþonhlaup er erfitt við beztu aðstæður, en að hlaupa það í myrkri og frosti hafa fáir gert — eða kannski enginn nema Jón. Mun þetta afrek hans lengi í minnum haft. Allt hlaupið var Jón mjög vel á sig kominn. En kuldans vegna varð hann er líða tók á hlaupið stirður mjög. En er nálgaðist Iþróttavöllinn tók hann mikinn endasprett, og það svo að starfs- menn vallarins áttu fullt í fangi með að vísa honum leiðina. Jón spurði er hann hljóp upp tröpp- urnar hjá íþróttavellinum: „Er það ekki hérna“ — og þar sem vallarstarfsmaðurinn var varla nógu fljótur að svara var Jón íþróttalæknirinn, Jón Eiríks- son, skoðaði hlauparann að hlaup inu loknu og sagði að hann væri í hinu bezta ásigkomu- lagi eftir jafnerfitt hlaup og þetta maraþonhlaup hans var. Jón er 32 ára gamall. Hann hefur hlaupið í mörg ár og keppt í 1500, 3 km, 5 km og 10 km hlaupum. Síðasti leikur í kvöld í kvöld fer fram síðasti kappleikur austur-þýzka körfuknatt- leiksiiðsins, sem hér dveist á vegum ÍR. Mætir það þá liði er blaðamenn hafa valið. Það lið keppti í gærkvöldi við eins- konar B-landslið og vann lið blaðamanna með 44:22. í því liði eru 4 úr KFR, 3 úr ÍKF og 3 úr ÍR. Tottenham skorar 10 mörk Úrslit á miðvikudag Manchester Utd. — Preston N.E. 0:2 Úrslit á laugardag 1. deild Aston Villa — West Bromwich 1:4 Blackburn — Preston 4:1 Blackpool — Burnley 1:1 Chelsea — Bolton 0:1 Manchester Utd. — Arsenal 1:1 Newcastle — Leicester 3:1 Nottingham For. — Luton Town 3:1 Portsmouth — Leeds Utd. 2:0 Tottenham — Everton 10:4 West Ham Utd. — Birmingham 1:2 Wolverhampton — Manchester City 2:0 2. deild Barnsley — Derby County f:0 Brighton — Sheffield Wedn. 1:3 Bristol City — Swansea Town 4:0 Cardiff City — Ipswich 1:2 Charlton — Stoke City 1:2 Grimsby Town — Fulham 2:2 Huddersfield — Bristol Rovers 1:2 Liverpool — Lincoln City 3:2 Middlesbro — Sunderland 0:0 Rotherham — Leyton Orient 1:1 Sheffield Utd. — Scunthorpe 4:1 ÚRSLITIN á White Hart Lane, leikvelli Lundúnaliðsins Totten ham skyggðu á öll önnur úrslit á laugardag í ensku deildarkeppn- inni. Tottenham sigraði Everton með hvorki meira né minna en tíu mörkum gegn fjórum. Inn- herjinn, Tommy Harmer, sem hefur ekki verið látinn leika með aðalliðinu í síðustu fjórum leik- um þess átti langmestan þátt í þessum stórsigri, en hann bók- staflega tætti sundur vörnina hjá Everton hvað eftir annað. Leik- ur hans var sérstaklega glæsileg ur í fyrri hálfleik þegar liðið skoraði sex mörk gegn einu. — Mörkin skoruðu: Bobby Smith 4, Alf Stokes 2, en Harmer, George Robb, Terry Medwin og John Ryden sitt markið hver. Jimmy Harris miðherji Evertons skor- aði 3 mörk og Bobby Collins hið fjórða. Framkvæmdastjórinn hjá Tott enham, Jimmy Anderson, sagði af sér stöðunni eftir leikinn sök- um vanheilsu og aðstoðarmaður hans Billy Nicholson tekur við. Síðasti ieikur liðsins undir stjórn Andersons hlýtur að verða hon- um ógleymanl. en aldrei fyrr í sögu ensku deildarkeppninnar hafa jafnmörg mörk verið skor- uð í einum leik í 1. deild. Bolt- on hefur tekið forystuna á ný í fyrstu deild. Liðið heimsótti Chelsea og sigraði með 1 marki er Nat Lofthouse skoraði á fyrstu mín. síðari hálfleiks, gegn engu. Johnny Carey, framkv.stj. Blackburn Rovers sá lið sitt sigra nágrannana Preston, 4:1, en hann er á förum í vikunni til Liver- pool-liðsins Everton, þar sem hann tekur við stöðu framkv.stj. Hægri bakvörður hjá Black- burn, Whelan, meiddist lítils hátt ar, var settur í stöðu miðherja og skoraði tvö mörk! Preston lék án Tom Finney. Sigur West Bromwich er athyglisverður, en Ronnie Allen fékk ekki að leika með liðinu, í fyrsta sinn í 8 ár. 56 þús. sáu leikinn í Manchester milli United og Arsenal. Á föstu- dag keypti Newcastle Ivor All- church frá Swansea fyrir 27 þús. pund. Newcastle borgaði 15 þús. og leikmann í milli, Reg Davies, sem er metinn á 12 þús. pund. Allchurch, sem er talinn einn bezti knattspyrnumaður Bret- lands var bezti maðurinn á vell- inum og skoraði tvö mörk fyrir sitt nýja lið. Hann leikur í lands liði Wales og lék m.a. í heims- meiatarakeppninni í Svíþjóð í sumar. í 2. deild hefur Sheffield Wed nesday tekið við forystunni af Fulham. Wednesday sigraði í Brighton 3:1. Fulham gekk aftur á móti illa í Grimsby og var heppið að fá stig. Grimsby hafði tvö mörk yfir í hálfleik. John Ateyo skoraði 3 mörk fyrir Bristol City gegn Swansea. Röð efstu liðanna í 3. deild er óbreytt Plymouth er efst með 23 stig, Reading hefur 21 og Swindon 18. í 4. deild er York City enn efst með 22 stig, næst koma Coventry, Port Vale og Gilling- ham með 19 stig hvert. 1. deild Bolton 1 12 6 4 2 22:16 16 Preston 13 6 4 3 24:18 16 Arsenal 12 7 1 4 36:18 15 Wolverhamton 12 T 1 4 27:17 15 Luton Town .... 12 4 6 2 22:15 14 West. Brom 12 4 5 3 32:20 13 Manchester U. 13 4 5 4 27:21 13 Blackpool 12 4 5 3 14:12 13 Burnley 12 5 3 4 23:20 13 Newcastle 12 6 1 5 23:22 13 West Ham Utd. 12 6 1 5 28:27 13 Chelsea 12 6 1 5 30:32 13 Nottm. Forest .... 12 5 2 5 23:21 12 Blackburn 12 4 3 5 29:23 11 IR vann lirað keppni í hancl- knattleik UM helgina efndu Fram og Vík- ingur til afmælismóts í hand- knattleik. Var þar um að ræða hraðkeppni í meistaraflokki karla og ýmsa leiki í öðrum fiokkum. í hraðkeppni meistaraflokks sigraði ÍR, vann alla sína leiki. Léku þeir á laugardag gegn Aft- ureldingu og unnu .með 9:6, en þá tryggðu FH, KR og Þróttur sér einnig rétt til úrslitakeppninnar með því að vinna Fram, Ármann og Víking (í sömu röð). ÍR mætti síðan Þrótti og vann auðveldlega en KR vann FH í allhörðum leik. í úrslitaleik mótsins vann ÍR verðskuldaðan sigur yfir KR, en KR-ingar höfðu barizt harðri baráttu til úrslitanna og bar leik ur þeirra þess nokkur merki. í öðrum leikjum urðu úrslit þau að Fram vann Þrótt í meist araflokki kvenna með 5:4, Fram vann ÍR í 2. fl. karla með 12:9, Ármann vann Víking með 5:3 í 2. fl. kvenna og Ármann vann Víking í 3. fl. karla með 8:5. — Mótið fór hið bezta fram og var íæstum húsfyllir bæði kvöldin. Hvað verður um íshúsið í Kópavogi? ISHÚSIÐ í Kópavogi hefur nú staðið að mestu ónotað um lang- an tíma. Full-starfrækt mundi íshúsið þó vera langmesti atvinnu veitandi í hinum atvinnusnauða Kópavogsbæ, þar sem yfir 90% af vinnandi fólki þarf að sækja atvinnu sína í önnur sveitafélög og þá vitanlega að langmestu leyti til Reykjavíkur. Þannig má segja að Kópavogskaupstaður sé og hafi verið ómagi á Reykjavik atvinnulega séð. Þrátt fyrir þetta verður stjórn bæjarfélagsins að láta sér það í léttu rúmi liggja, þótt slíkt at- vinnutæki, sem íshúsið er, sé ó- starfsrækt og að þeir Kópavogs- búar sem atvinnu hafa haft í ís- húsinu, þegar það var starfrækt, þurfi að eltast við snapvinnu í Reykjavík í stað þess að vinna hagkvæmari vinnu í .byggðarlagi sínu. Það hefur ó undanförnum ár- um oltið á ýmsu um starfrækslu þessa íshúss, og hefur um það ráðið, ýmist fjárskortur eða hrá- efnaskortur og líklega stundum hvort tveggja. Nú er talið að ís- húsið þurfi nokkurra endurbóta við til þess að verða fullkomlega starfhæft, og er áætlaður kostn- aður við það talinn vera um V2 milljón króna. Það má að vísu segja, að ís- húsið sé merkilega staðsett, svo langt frá sjó. En kunnugir segja, að það sé bitamunur en ekki fjár, ef á annað borð þarf að setja hráefnið á bíl við skipshlið. Hvað sem um það er, stendur nú ís- húsið með verðmætum vélum algerlega óstarfrækt, en þeir sem haft hafa vinnu við það þurfa nú að sækjast eftir atvinnu annars staðar. Hinn þekkti athafnamaður á sviði sjávarútvegs, Steingrímur Árnason, tók fyrir nokkrum ár- um íshúsið í Kópavogi á leigu og rak það um tveggja ára skeið með þeim ágætum, að það hefur aldrei fyrr eða seinna verið betur rekið. Steingrímur endurnýjaði þá að einhverju leyti vélakost frystihússins. Annað árið, sem hann rak ís- húsið, framleiddi hann yfir 60.000 kassa af fiskflökum, en það mundi gera í vinnulaun með nú- verandi verðlagi yfir 2 millj. kr. Afkastageta frystihússins mun hins vegar vera um 100 þús. kass- ar á ári. Með fullum afköstum gæfi frystihúsið því af sér árlega um 3,5 millj. kr. í vinnulaun, sem að mestu eða öllu leyti gætu runnið til þeirra Kópavogsbúa, sem ella þurfa að leita sér at- vinnu í öðrum byggðarlögum. Sem dæmi um það hvað slík atvinnuaukning í Kópavogi hefði að segja gagnvart íbúunum, má geta þess, að tvö stærstu atvinnu- fyrirtækin sem nú starfa í Kópa- vogi greiða til samans um 2 millj. kr. á ári í vinnulaun og eru þau einustu, sem eitthvað munar um á þessu sviði. Má því sjá, að hér er ekki um litla búbót að ræða fyrir svo atvinnurýrt bæjarfélag sem Kópavogur er, enda lætur það nærri að frystihúsið fullnýtt mundi tvöfalda greidd vinnu- laun frá framleiðslufyrirtækjum hér. Það er vitað að áhugamenn um fiskframleiðslu hafa leitað eftir fyrirgreiðslu hjá bæjarfélaginu til starfrækslu frystihússins, en litlar eða engar undirtektir feng- ið. Væri þó eðlilegt að bæjarfé- lagið léti í té þá aðstoð, sem því er fært að veita þessu viðvíkj- andi, svo aumlega sem það er statt atvinnulega. Nú hefur heyrzt að nokkrir að- ilar, sem hafa tryggt sér hráefni tveggja togara til úrvinnslu, óski eftir að taka frystihúsið á leigu til tveggja ára til að byrja með. í venjulegu fiskári ætti afli tveggja togara að geta tryggt því nær fullkomin eðlileg afköst frystihússins. Er því hér um stór- kostlega atvinnu að ræða fyrir Kópavogsbúa. Lítið mun bera á milli með leigukjör á frystihúsinu, en aftur á móti mun útvegun fjár til nauð synlegra endurbóta ekki liggja laus fyrir. Hér er um % millj. kr. að ræða og eftir því sem bezt er vitað eru nægar tryggingar fyrir hendi. Hér er skylduverkefni, sem bæjarfélag Kópavogs þarf að leysa og má á engan hátt koma fyrir að bæjarfélagið láti þetta óathugað fara fram hjá sér, án þess að gera tilraun til að úr atvinnurekstrinum geti orðið. Það eru ekki margir sem geta tryggt nægilegt hráefni til rekstr- ar frystihússins hér í Kópavogi, og er því nauðsynlegt að bæjar- félagið geri það sem ó vantar að reksturinn hefjist sem fyrst. Heyrzt hefur, að ef umræddir samningar ta.kast ekki, muni eig- andi frystihússins athuga mögu- leika á því að selja úr frystihús- inu allar vélar og nota bygging- arnar til annarrar starfsemi, sem litla eða enga atvinnu veitti er nokkru næmi, og þa að öllum lík- indum ekki Kópavogsbúum. Væn bæjarfélaginu lítill sómi sýndur, ef forráðamenn þess, vegna andvaraleysis, létu leggja niður atvinnufyrirtæki, sem gæti greitt milljónir króna í vinnu- laun innan bæjarfélagsins. Von- andi kemur það ekki fyrir. J. G. — Happdrættið Framh. af bls. 8 35927 35966 35969 36069 36110 36135 36219 36230 36242 36244 36256 36317 36400 36401 36462 36508 36510 36529 36561 36578 36587 36641 36699 36748 36905 36949 36974 36983 37159 37234 37358 37374 3T411 37414 37440 37474 37541 37579 37699 37715 37716 37755 37763 37816 37858 37949 37953 37963 38054 38078 38085 38170 38248 38274 38289 38345 38390 38483 38486 38489 38537 38568 38573 38587 38607 38651 38670 38684 38697 38703 38797 38809 38858 38867 38909 38970 38998 39055 39095 39107 39144 39206 39253 39291 39306 39334 39382 39467 39550 39591 39604 39674 39685 39706 39831 39871 39888 39899 39933 39964 39993 40124 40183 40204 40271 40282 40323 40421 40435 40477 40501 40522 40557 40565 40581 40630 40657 40671 40714 40719 40774 40783 40794 40802 40877 40894 40896 40898 40960 41519 41593 41641 41677 41762 41774 41785 41843 41846 41896 41978 41986 42022 42044 42098 42110 42112 42166 42195 42236 42250 42263 42386 42525 42609 42650 42835 42839 42852 42857 42928 42940 42951 42956 42963 42978 42991 43037 43094 43114 43273 43475 43489 43491 43507 43522 43604 43608 43654 43659 43733 43792 43884 43900 43947 44096 44102 44107 44110 44177 44229 44291 44318 44342 44370 '44395 44475 44533 44591 44609 44668 44752 44831 44834 44836 44872 44897 44913 44934 44948 44951

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.