Morgunblaðið - 14.10.1958, Page 12
12
MORCUNBLAÐIb
Þriðjudagur 14. okt. 1958
Þorvaldur Guðmundsson
kennari og fyrrv. hreppstjóri 75 ára
ÞORVALDUR Guðmundsson
fæddist að Hnausum í Þingi, 13.
október 1883, sonur hjónanna
Guðbjargar Guðmundsdóttur og
Guðmundar Gíslasonar. Hann
ólst upp með foreldrum sinum
lengst af á Auðkúlu í Svinadal,
þar sem þau voru vinnuhjú sr.
Stefáns M. Jónssonar.
Hann stundaði nám í Flens-
borgarskóla11902—’04 og tók þar
gagnfræðapróf og síðan kennara-
próf. Barnakennslu stundaði
hann fyrst í Svínavatnshreppi,
en alls hefir hann verið kennari
yfir 50 ár. Lengst við barna- og
unglingaskólann á Sauðárkróki.
Árið 1909 hinn 5. maí kvænt-
ist þorvaldur Salóme Pálmadótt-
ur frá Ytri-Löngumýri, ágætri
konu. Eignuðust þau 4 börn, sem
öll eru á lífi og fulltíða fólk. Þau
heita: Svafar Dalmann, Þorvald-
ur, Ingibjörg og Guðbjörg. Eru
þau öll efnilegt fólk, öll gift og
eiga börn. — Salóme andaðist 21.
apríl 1957 eftir þunga legu.
Þorvaldur var bóndi í Ból-
staðarhlíðarhreppi 1910—’15 í
Þverárdal og á Mörk. Fluttist
vorið 1915 til Sauðárkróks og tók
strax til kennslustarfa, en ann-
aðist rekstur sjúkrahússins á
staðnum um 4ra ára skeið 1916—
’20. Síðan flutti hann að Brenni-
gerði í Borgarsveit og keypti þá
jörð. Bjó hann þar í 10 ár, en
stundaði alltaf kennslu með bú-
skapnum. Frá Brennigerði flutti
hann aftur á Sauðárkrók og þar
hefir hann alltaf átt sitt heimili
síðan. Kennarastarfið hefir hann
stundað sem aðalstarf. En hann
var hreppstjóri Sauðkræklinga
um 14 ára skeið. Lengi var hann
verkstjóri í Sláturhúsi Skagfirð-
inga og fleiri trúnaðarstörfum
hefir hann gegnt.
Þorvaldur Guðmundsson er
ágætlega greindur maður og hið
mesta prúðmenni. Alúðarmaður
mikill og gestrisinn svo af ber,
enda var konan þannig skapi far-
in, að hún vildi enga rausn spara.
Þorvaldur er hófsmaður um alla
hluti, stilltur i skapi, en nokkuð
hlédrægur, þó opinber störf hafi
mikið hlaðizt á hann. Hann er
fríður maður og mikill vexti og
nýtur almennra vinsælda og
trausts, sem aldrei hefir neinn
skuggi fallið á.
Hann hefir verið afburða góð-
ur kennari og er mjög laginn
til stjórnar, svo honum hefir tek-
izt mæta vel, að stjórna börnum
og unglingum og laða til sin álit
þeirra og traust.
Hreppstjórastarfið á Sauðár-
króki er mjög erfitt og umfangs-
mikið starf. Var Þorvaldur svo
vinsæll í því, að allir þar mimdu
kjósa, að hann hefði það enn. En
hann var ófáanlegur til, að hafa
það lengur á hendi sökum ann-
arra anna.
Þorvaldur hefir lengst af haft
góða heilsu, en er nú all mikið
farinn að þreytast svo sem eðli-
legt er, þar sem aldurinn er orð-
inn þetta hár. Ég þakka þessum
vini mínum fyrir margvíslegar
ánægjustundir óg óhvikula vin-
áttu. Ég óska honum á þessum
tímamótum til hamingju með
gæfusama ævi, og vona og óska,
að hann megi enn lengi lifa og
njóta ánægjulegra daga. Börnum
hans, tengdabörnum, barnabörn-
um og öllu frændfólki óska ég
gæfu og góðrar framtíðar.
Þessa dagana dvelur Þorvaldur
á Seifossi hjá dóttur sinni Ingi-
björgu.
Jón Pálmason.
Stúlka óskast strax
Naust
4-5 verkamenn
óskast í byggingarvinmi í Austurbænum.
Upplýsingar gefur ÞÓRÐUK JASONARSON, Há-
teigsvegi 18. Sími 16362.
3ja herbergja íbúð
nýtízku 3ja herb. íbúð á Grímsstaðarholti til sölu.
Upplýsingar gefur
JÓN P. EMILS hdl.
íbúða og húsasalan Bröttugötu 3a.
Símar 14620 og 19819.
Einbýlishús
XIL SÖLU
Höfum til sölu stórt einbýlishús á eftirsóttum stað í bæn-
um. Upplýsingar á skrifstofunni.
FASTEINGASALA & LÖGFRÆÐISTOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hrl.
Agnar Gúsafsson, hdl. Gísli G. Isleifsson hdl
Björn Pétursson: Fasteignasala.
Austurstræti 14, H. hæð.
Hlustað á útvarp
í ÞÆTTINUM Raddir skálda, las
Kristmann Guðmundsson upp
söguna Sagan um stúlkuna í
rauða kjóinum. Hann nefndi sög-
una frásögn, og gaf þar með í
skyn, að ef til vill væri hér um
sannan viðburð að ræða? Þetta er
kynjasaga og i meira :agi ótrú-
leg. En hún er meistaralega sam-
in og skáldið .es ákaflega vel.
Hann kann að lesa og hefur fal-
lega rödd.
Sama kvöld (4 okt.) var leik-
rit eftir John Brokensire Tukt-
húslimurinn, leikstjórí og þýð-
andi Valur Gíslason. Þetta var
hreinn og beinn gamanleikur
stuttur og meinlaus, og ekkert
nema gott um hann að segja. Það
er alltof lítið af skemmt'þáttum
í útvarpinu. En væntanlega má
vænta slíkra þátta nú í vetur.
★
I erindaflokknum Æskuslóðir
talaði útvarpsstjóri, Vilhjálmur
Þ. Gíslason, um Reykjavík. Vil-
hjálmur Gíslason er fæddur Reyk
víkingur, sonur Þoorsteins Gísla-
sonar skálds og ritstjóra. Var
erindi hans mjög skemmtilegt og
jafnframt fróðlegt. Hann gat þess
með réttu að Reykjavík er stað-
ur allra landsmanna, bæði er hún
i höfuðborgin og svo hafa tugir
þúsunda manna flutzt hingað á
siðustu áratugum. Innfaddir
Reykvíkingar eru í miklum minni
hluta í bænum ennþá. Það þykir
„góður siður“ að tala il.a um
Reykjavík, sums staðar í sveitum
landsins, en er illur og ljótnr sið-
ur. Reykjavík er fallegur, góður
og skemmtilegur bær og Reyk-
víkingar standa ekkj að baki öðr-
um Islendingum að háttprýði og
notalegri framkomu. Ræðumað- ■
ur sagði margar góðar og fróð-
legar ^ sögur frá gömlu Reykja-
vík. Ég þekki hana einnig nokk-
uð, því ég hef dvalið hér í yfir
50 ár. Stjórnmáladeilur voru þá
harðar engu síður en nú. Eitt
sinn kvaðst Vilhjálmur hafa ver-
ið ávitaður af kennara í barna-
skóla fyrir grein sem kom í Lög-
réttu! En faðir hans var ntstjcri
þess blaðs. — Þá þótti langt upp
á Öskjuhlíð og biskupinn fór ríð-
andi frá Laufási að Rauðará
★
Jónas Jónasson sá nú um þátt-
inn í stuttu máli. Jónas er nú kom
inn heim frá Danmörku enda var
þátturinn nú ágætur. Hann tal-
aði fyrst við Þorstein Einarsson,
íþróttafulltrúa, sem er fuglafræð
ingur mikill, og lætur ekkert
tækifæri ónotað til þess að athuga
fuglalíf landsins, einkum bjarg-
fugl. Var margt fróðlegt í þessu
samtali. Sjósvölur verpa í jarð-
holum í Vestmannaeyjum, en á
veturna eru þær lengst suður í
hafi. Hann talaði um Stórurð í
Látrabjaargi; þar sem þúsundir
fugla, margar tegundir verpa.
Fuglaveiði í björgum er nú að
leggjast niður. Hornstrendinga
telur hann hafa verið lengst
komna í þessu með allan útbún-
að, en Skagfirðinga einna frum-
stæðasta í Drangey. (Ég vil skjcta
því hér inn í, að einhverjir hljóta
enn að veiða langvíu og annan
svartfugl, svo oft fæst slíkur fugl
t. d. í Fiskhöllinni hér)..— Litið
kvað Þorsteinn nú vera um rjúpu
enda ætti svo að vera, samkvæmt
kenningu Finns Guðmundssonar
náttúrufræðings, en hann teiur að
rjúpur hverfi nær því alveg 9 —
10. hvert ár. Ætti því lágmark
að vera 1958—1959. Sennilegt tal-
ið að rjúpan drepist af einhverri
pest. Erni fækkar mjög og verð-
ur sennilega útrýmt með eitri
bráðlega. — Þá talaði Jónas Jón-
asson við Kristján Eldjárn þjóð-
rninjavörð. Nú er Þjóðminjasafn-
ið allt komið í röð og reglu í hinu
nýja og glæsilega húsi. Um 20
þúsundir manna skcða safnið ár-
lega og er það mikið. Margan
fróðleik fengu útvu.pshiustendur
af samtali pessuu.
★
'Séra Sveinn Víkingur talaði um
daginn og veginn og mæltist vel
Talaði hann í léttum tón og gam-
ansömum stundum, þótt bak við
væri alvara. Kvað hann menn
segja að konur væri forvitnan
en karlmenn og opinskárriáleynd
armál. Þa5 má vel vera að svo
sé, karlmenn eru drýgri og þykj-
ast búa yfir meiri speki og leynd
ardómum en þeir raunverulega
géra. Konur eru einlægari og láta
fleira fjúka. — Ræðumaður gat
um sláturtíðina, sem nú er að
ná hámarki enda ganga margir
með magapínu hér í Reykjavík
nú og víðar um .andið — ar þetta
að vísu kölluð umgangsveiki (og
ekkj vil ég kenna slátrinu um
það). — Þá talaði sér Sveinn um
kaupgjalcls-skrúfuna miklu, sem
nú þjakar þessa þjóð ásarnt með
fylgjandi, verðlags-skrúfu. Það
er vont og bagalegt, þegar neil
þjóðfélög hafa lausar skrúfur og
hlýtur að enda með skelfingu, ef
ekki er allt gert til þess að bæta
það böl. — Nú vilja allir fá lán,
helzt til langs tíma, því menn
gera ráð fyrir að ef krónan gildir
25 aura í dag geti svo farið að
hún gildi aðeins 5 aura eftir
nokkur ár, er að skuldaskilum
kemur. Þetta byggist á reynslu
og er eðlilegt. Menn hafa misst
traust á þeim, sem stjorna fjár-
málum þessa lands. Þessi síðasta
setning er frá mér, ekki úr ræðu
Sv. Vikings. Loks talaði séra Sv.
V. um smámyntina, 1—2—5 aura
peningana, taldi þá alveg óþarfa.
Það munar ekkert um svo litla
peninga. Þetta er alveg satt, en
hvað segja bændur um það? Þeir
vilja tæplega missa sinn eyri eða
tvíeyring. Hitt er annað mál að
vel mætti láta standa á tug, slá
af ef „vísi talan“, illræmda, segði
að væri undir hálfum tug, annars
bæta við. — Alþingi er nú skyld-
«gt til að finna einhver ráð til
þess að stöðva óhæfilegt fjármála
ástand og má treysta þv| til þess.
★
Séra Jón Thorarensen hefur
ur byrjað lestur útvarpssögu. Er
það hin kraftmikla saga hans
Útnesjamenn, sem mjög margir
hafa lesið.
Guðmundur Hagalin skáld,
varð sextugur 10. október og var
þess rækilega getið í blöðum og
útvarpi. Guðmundur er óumdeil-
anlega eítt af höfuðskáldum
landsins nú, var bráðþroska og
hefur ritað fleiri og betri bæk-
ur en flestir aðrir rithöfundar
vorir. Hann er enn í fullu fjöri
og verður það, vonandi lengi. Gils
Guðmundsson, rithöfundur, flutti
að kveldi afmælisdags Guðmund-
ar G. Hagalín ágætt erindi um
skáldið, var svo lesið úr ritverk-
um Guðmundar.
Að öðru, sem ég hlustaði á í
vikunni og atnyglisvert var, má
nefna Frá suðrænum eyjum, flntt
af Sigríði Thoriacius, Gerðar-
dómar í milliríkjadeiium og al-
þjóðadómstóllinn i Haag (Jón P.
Emils, lögfræðingur, fyrra er-
indi), fróðlegt vísindaerindi, og
Hlutverk kirkjusafnaðarins, er-
indi Esra Péturssonar læknis, þar
sem hann talaði um tómlæti safn-
aðanna, er kæmi fram í slælegri
kirkjusókn. Vildi gjarna sjá @r-
indi þetta á prenti.
Þorsteinn Jónsson.
Peningamenn .
Til sölu er vel tryggt skulda-
bréf að upphæð 35.000 kr. Til-
boð sendist Mbl., fyrir hádegi
á miðvikudag, merkt: „Hag-
kvæmt 25.0f" 1 — 7968“.
Starfsstúlka
óskast
á vöggustofuna Hlíðarenda, nú
þegar. — Lppiysmgar á staðn
um. —
KULDAÚLPUR
á börn og fullorðna.
☆
YTRABYRÐI
Verðandi h.f.
Tryggvagötu.
Iðnnám
Viljum ráða nokkra unga menn á aldrinum 18—22
ára til náms í málmsieypu. 4ra ára nám. Verka-
mannakjör.
Járnsteypan hf.
Ánanaustum — Sími 24406.
íbúðir til sölu
Vorum að fá til sölu í 3ja hæða húsi á góðum stað íbúðir,
sem eru 1 herbergi, 2 herbergi og 4 herbergi, auk eld-
húss, baðs, forstofu og annars tilheyrandi. íbúðirnar
eru seldar fokheldar með fullgerðri miðstöð, öll sam-
eign inni í húsinu múrhúðuð og húsið múrhúðað að utan.
Verðið mjög hagstætt.
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314.