Morgunblaðið - 14.10.1958, Page 19
Þriðjudagur 14. okt. 1958
MOTtr.rWBL AÐIÐ
19
Frelsi á höfunum og verndun
fiskimiðanna tvennt ólíkt
segir fulltrúi Dana á þingi Evrópu
ráðsins
LUNDÚNUM, 13. okt. — í fyrra-
dag bar landhelgismál íslend-
inga á góma í ráðgjafanefnd
Evrópuþingsins, sem um þessar
mundir ■ er haldið í Strassborg.
Það var brezki fulitrúinn Mr.
Ormsby-Gore, aðstoðarutanrík-
isráðherra, sem fyrstur minntist
á þetta mál. Hann sagði m.a. að
niðurstöður alþjóðadómstólsins í
Nýir
Hlífarsamningar
VERKAMANNAFÉLAGIÐ Hlíf í
Hafnarfirði hélt almennan félags
fund s. 1. sunnudag.
Á fundinum voru lagðir fram
og skýrðir nýir kjarasamningar
sem gerðir hafa verið við atvinnu
rekendur. Voru samningarnir
samþykktir einróma.
Samkvæmt þessum nýju samn-
ingum hækkar kaup hafnfirzkra
verkamanna um 3,5% (hafði áð-
ur hækkað 6% hinn 25. júlí s.l.).
Ýmsar breytingar vora gerðar á
kaupgjaldsflokkum o. fl.
Gildistími samninganna er frá
19. okt. n. k. til 15. okt. 1959.
Fyrri kjarasamningar Vmf.
Hlífar og atvinnurekenda var
gerður 24. júlí s. 1. og var gildis-
tími hans til 1. júní 1959.
Á þessum félagsfundi Vmf.
Hlífar voru samþykktar eftirfar-
andi tillögur:
„í tilefni af skrifum og um-
ræðum um afnám kaupgjalds-
vísitölu og kaupbindingu, sam-
þykkir fundur í Vmf. Hlíf 12.
ok.t. 1958 eftirfarandi:
1. Þótt greiðsla á dýrtíðarupp-
bótum á laun samkvæmt kaup-
gjaldsvísitölu hafi ekki gefið al-
gerlega jákvæðan árangur, þar
sem sú hefur ætíð verið viðleitni
valdhafanna hverju sinni, að
falsa vísitöluna með niður-
greiðslu á vissum vöruflokkum,
þá hefur þetta kerfi, þó verið
eina vörn launþeganna gegn
skefjalausum kjararýrnunum
vegna hækkaðs vöruverðs.
Fyrir því telur fundurinn að
ekki komi til mála að verkalýðs-
hreyfingin fallist á afnám kaup-
gjaldsvísitölu, nema að upp verði
tekið annað kerfi sem á betri og
raunhæfari hátt tryggi launþeg-
um kaupuppbætur vegna hækk-
aðs vöruverðs.
2. Binding á kaupgjaldi er slík
árás á hagsmuni og frelsi verka-
lýðsins, að verkalýðshreyfingin
verður að bregðast hart á móti
og fyrirbyggja slíka fyrirætlun
með mætti samtakanna“.
„Fundur haldinn í Verkamanna
félaginu Hlíf, sunnudaginn 12.
okt. 1958 ítrekar fyrri samþykkt
Hlífar um fögnuð yfir útfærslu
á fiskveiðilandhelginni og for-
dæmingu á ofbeldisaðgerðum
Breta.
Telur fundurinn að eigi verði
hjá því komizt, ef Bretar halda
uppteknum hætti, að slíta við þá
stjórnmálasambandi og að ríkis-
stjórn fslands beri að kæra þá
tafarlaust fyrir SameinuSu þjóð-
unum fyrir vopnaða árás á vopn-
lausa smáþjóð.
Þá telur fundurinn að hin sví-
virðilega framkoma Breta gagn-
vart íslandi í landhelgismálinu
svo og að sú þjóð er tók að sér
hervernd landsins skuli ;áta slíka
árás og ógnun afskiptalausa,
sanni á svo ótvíræðan nátt, að
eigi verði um villzt, að ísland
eigi ekkert erindi í Atiantshafs-
bandalaginu og beri Albingi og
ríkisstjórn að vinna að úrsögn
íslands úr því.
Telur fundurinn að h:utverk
íslands á alþjóðavettvangi eigi
að vera það, að bera klæði á
vopn hinna stríðandi a'ðila og
bera sáttarorð milli þjóða".
Haag eftir deilu Breta og Norð
manna 1951 hefðu alls ekki ver-
ið á þá lund, að strandríki gætu
ákveðið fiskveiðilögsöguna upp
á sitt eindæmi. Þá sagði hann og,
að engar niðurstöður hefðu legið
fyrir eftir Genfarráðstefnuna.
Hann bætti við: Við erum þeirr-
ar skoðunar, að ekkert land hafi
rétt til einhliða útfærslu land-
helginnar í 12 sjómílur. Við Bret
ar viðurkennum það fyllilega,
hélt ráðherrann áfram, hve mjög
islendingar eru háðir fiskveiðum
ekki sízt til að auka útflutning
sinn og þar með halda lífskjörum
almennings í horfinu, en þær full
yrðingar íslendinga, að um rán-
yrkju sé að ræða á íslenzku mið-
unum, hafa ekki verið sannað-
ar. Við höfum nú, sagði ráðherr-
ann að lokum, boðið íslendingum
að ieggja deiluna fyrir Haagdóm
stólinn og ef íslendingar eru
sannfærðir um, að rétturinn sé
þeirra megin, getur ekkert hindr
að þá í því að taka þessu boði
okkar.
Daninn Per Federspiel tók
málstað íslands og benti á, að
vandamálið væri aðallega það,
Eisiar Jiilíus
Dagbjartsson
- mmning
EINAR Júlíus Dagbjartsson frá
Grund á Rauðasandi andaðist í
Stykkishólmi 3. okt. sl. og verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
í dag. Hann var aðeins 51 árs,
fæddur 8. 9. 1907. Hafði hann
kennt lasleika nokkur undanf.
ár og fyrir nokkru hafði hann
gengið undir höfuðskurðaðgerð
í Danmörku. Hafði hún að vísu
lánazt, en Einar aldrei borið sitt
barr síðan.
Ég kynntist Einari tvö und-
anfarin ár, sem hann átti heima
í Stykkishólmi og kemur sú
kynning mér til að rita þessi fá-
tæklegu þakkarorð nú að leiðar-
lokum. Einari var gott að kynn-
ast. Hann var hreinn og beinn,
sterkur í skoðunum og yfirhöfuð
andlega sterkur maður, enda
báru allir honum hið bezta orð,
sem umgengust hann. Hann
stundaði flesta vinnu jöfnum
höndum. Var góður smiður og
hverju verki vel borgið í hans
höndum. Glaðlyndur var hann og
hafði ánægju af að kryfja öll
mál til mergjar, hvort sem þau
voru efst á baugi nú eða löngu
nðnir atourðir. Hann átti marga
vini, sem minnast hans nú með
þakklæti og virðingu. Drengur
góður í þess orðs beztu merkingu
er nú kvaddur hinztu kveðju.
Guðsblessun fylgi honum.
— Á. H.
hve íslendingar væru háðir fisk
veiðum. Hann sagði, að frelsi á
höfunum og verndun fiskimið-
anna væru tveir ólíkir hlutir.
Þá benti hann á, að rússneskar
vörur streymdu nú til íslands,
vegna þess að Evrópuiönd, og þá
einkum Bretland, hafa lokað
mörkuðum sínum fyrir íslenzk
um afurðum. Þá sagði hann, að
NATO-ráðherrar hefðu ckki
fjallað um landhelgismálið með
nægi!/:gum dugnaði. Nauðsyn-
legt væri, að sem fyrst fengist
viðunandi lausn á þessu máli.
Rannveig Þorsteinsdóttir tók
Ioks til máls og þakkaði Feder-
spiel fyrir stuðninginn við mál-
stað íslands. Hún sagði, að ís-
lendingum hefði verið sá kost-
ur nauðugur, að færa landhelgi
sína í 12 mílur. Að lokum benti
hún á, að íslenzka þjóðin væri
einhuga í þessu mikilvæga hags-
munamáli sínu.
Finn Moe frá Noregi (sósíal-
isti) harmaði, að íslendingar
hefðu einhliða fært út landhelgi
sína, en kvaðst vel skilja sjónar-
mið þeirra.
- Útför páfa
Framh. af hls. 1
Loks var lesið æviágrip páfans,
en að því búnu var lík hans lagt
í kisturnar og þeim lokað. Sung-
inn var sálmurinn „Dies ire, dies
ille“ og 130. sálmur Davíðs, en
129. í kaþólskum sið, „De pro-
fundis....“ — „Úr djúpunum
ákalla ég þig, drottinn“. Því næst
var kistunni ýtt inn í grafstaðinn
og múrað fyrir.
Næst liggur fyrir að kjósa nýj-
an páfa og hefur kardínálasam-
kundan verið kölluð saman í Róm
25. þ. m.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 10
einungis góðar minningar frá
starfi mínu hér í Lilleström, ég
hefði ekkert á móti því að vera
hér áfram í nokkur ár.
— Og nú ætlið þér að hefja
liðið upp í Noregsmeistarasætið
áður en þér farið til íslands?
— Möguleikarnir eru fyrir
hendi, jafnvel miklir. Skeid, sem
við eigum nú við í úrslitaleikn-
um, lék við okkur fyrir nokkr-
um vikum. Þá skiidum við jafnir
0:0, en allir voru sammála um
að við hefðum átt að vinna sigur
að réttu lagi.
Þrifin, reglusöm og barngóð
STLJLKA
óskast á barnaheimilið Vestur-
borg. — Upplýsingum ekki
svarað í síma.
U nglinga
vantar til biaÖburííar í ettirtalin hverfi
Laugav. III Nesveg
Meðalholt Sörlaskjól
Hofteig Bráðrœðisholt
Seltjarnarnes (Skalabr.)
JHftrgiisstiiið&ifc
Aðalstræti 6 — Sími 22480.
Ég þakka hjartanlega alla þá vinsémd er mér var sýnd
á sjötugsafmæli mínu.
Tómas Tómasson.
Hjartanlega þakka ég öilum þeim er minntust mín á
75 ára afmæli mínu 7. þ.m.
Guðmundur Sigurðsson, Hvanneyri, Stokkseýri.
Hjartans þakkir til þeirra sem heiðruðu mig með heim-
sóknum, gjöfum og skeytum á 60 ára afmæli mínu 30.
september s.l.
Kjartan Magnússon, Torfastöðum, Fljótshlíð.
Hjartans þakkir og kveðjur færi ég vinum og vanda-
mönnum, sem glöddu mig á einn og annan hátt á 80 ára
afmælisdegi mínum 14. sept. s.l. og gerðu mér hann
ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Steinunn Sigurðardóttir, Syðri-Kvíhólma.
Mínar innilegustu þakkir færi ég börnum, tengdabörn-
um, barnabörnum og öllum vinum og kunningjum, sem
-gölddu mig með gjöfum, skeytum og margskonar hlýhug
á 70 ára afmæli mínu 9. þ.m. og gerðu mér daginn
ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Guðjónsdóttir, Miðstræti 4.
Lokað
vegna jarðarfarar Fr. Guðrúnar Jónassonar.
Verzlun
Gunnþórunna-r Halldórsdóttur & Co.
ANDRÉS RUNÓLFSSON fyrrverandi verzlunarmaður, lézt að heimili sínu, Vörðustíg 7, Hafnarfirði 12. okt. s.l. Elín Sigurgeirsdóttir, börn og tengdabörn.
Útför föður okkar GUÐMUNDAR EGILSSONAR húsasmíðameistara, er lézt 6. október fer fram frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 15. okt. og hefst kl. 2 e.h. Athöfninni verður út- varpað. Ingólfur B. Guðmundsson, Haraldur Guðmundsson, Ásta Guðmundsdóttir, Hákon Guðmundsson.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför konunnar minnar og móður okkar ÞORLEIFAR ásmundsdóttur Einar Skúlason og börn.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför föður míns og tengdaföður JÓNS BJARNASONAR frá Suðureyri. Ásta Jónsdóttir, Sveinn Guðmundsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og»vinarhug við andlát og jarðarför móður, tengdamóður og ömmu okkar GUÐBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR Herskólacamp 10. Sigríður Olafsdóttir, Jens Hallgrímsson, börn og tengdabörn.
Innilegar þakkir til allra er auðsýndu samúð, vinsemd og virðingu við andlát og útför konu minnar, móður okk- ar, tengdamóður ög ömmu SIGRlÐAR ANDERSDÓTTUR Einnig innilegar þakkir til systranna í Landakoti sem hjúruðu henni af frábærri alúð og kærleika. Guð blessi ykkur öll. Jón Jónsson, börn, tengdabörn, fóstursonur og barnabörn.