Morgunblaðið - 25.10.1958, Side 16
V EÐRIÐ
Vaxandi SA-átt. Rigning.
Avarp forseta íslands
á degi S.Þ. Sjá bls. 9.
244. tbi. — Laugardagur 25. október 1958
Engin slökkvitœki til í
kauptúninu og húsið
brann til ösku
í FYRRAKVÖLD stóðu íbúarnir
i Þórshöfn frammi fyrir miklum
vanda. Eldur kom upp í íbúðar-
húsi, en þó ótrúlegt megi virðast
eru engin slökkvitæki til þar í
kauptúninu, sem telur um 500
manns. — Húsið brann því til
ösku og misstu þar með heimili
sitt hjón með þrjú börn, Þor-
grímur Kjartansson, útgerðar-
maður og fjölskylda hans.
Það var um klukkan 8 í fyrra-
kvöld, sem þess varð vart að eld-
ur var í rishæð hússins, sem
var einlyft á kjallara, byggt úr
timbri, en múrhúðað.
Eldurinn var óðar kominn um
alla rishæðina. Strekkingur af
suð-vestri æsti eldinn. Ekkert til-
tækilegt áhald í kauptúninu, ann
að en vatnsfötur voru til þess að
snúast gegn hinum eyðandi eldi,
sem brátt hafði lagt allt húsið
undir sig og stóð það í björtu
báli innan stundar. Ekki mun
hafa tekizt að bjarga öllum inn-
anstokksmunum úr heimili Þor-
gríms Kjartansson. Um það bil
tveim stundum síðar, var húsið
hrunið að grunni, og þar með
að ösku orðið íbúðarhús, sem þó
ekki var eldra en 4—5 ára. Er
tjón Þorgríms mjög tilfinnanlegt,
en húsið mun hafa verið vá-
tryggt, svo og innanstokksmunir.
Tengdaforeldrar Þorgríms,
Karl Daníelsson og kona hans,
hafa skotið skjólshúsi yfir fjöl-
sk.yldu hans.
í símtali við Þórshöfn í gær,
var þannig komist að orði við
Mbl., að brunar þar gerðust nú
æði tíðir og væri enn í fersku
minni Þórshafnarbúa, er kaup-
félagið þar brann í fyrravetur. —
Það hefur mikið verið talað um
nauðsyn þess að fá hingað slökkvi
tæki, en ekki hefur enn tekizt að
þoka því máli lengra áleiðis, en
að ræða um það.
Klukkunni
seinkað
NÚ kveðjum við ísl. sumartíma.
í dag gengur vetur í garð. Það
er regla að aðfaranótt fyrsta
sunnudags í vetri, skuli klukk-
unni seinkað um 1 klukkustund.
Er þetta gert þannig að klukk-
an 2 i nótt, skulu þeir sem þá
eru vakandi, færa klukkuna aft-
ur á eitt. — Þeir sem fara að sofa
fyrir þennan tíma, ættu ekki að
gleyma að færa klukkuna áður
en þeir fara að sofa.
Barnaverndar-
dagurinn í dag
ÞAÐ er í dag sem barnaverndar-
félögin víðs vegar um landið
efna til fjáröflunar með merkja-
sölu og einnig sölu barnabókar-
innar „Sólhvörf", sem Sigurður
Gunnarsson skólastjóri á Húsa-
vík hefur tekið saman.
Starfsemi barnaverndarfélag-
anna er í vexti, enda er mark-
mið þeirra göfugt og verkefnin
margvísleg. Er ekki að efa að
margir munu í dag bera merki
félaganna og styrkja þau á þann
hátt. —■
Ókeypis skólavi' t á veg-
um Norrœna télagsins
FYRIR atbeina Norræna félags-
ins fá 20 íslenzkir unglingar
ókeypis skólavist á norrænum
lýðháskólanum í vetur. Að þessu
sinni fá 8 unglingar skólavist í
Noregi, 1 í Danmörku, 3 í Finn-
landi og 8 í Svíþjóð. Flestir ung-
linganna fóru utan í byrjun októ
bermánaðar með ms. Gullfossi.
Eftirtaldir unglingar fá skóla-
vist í vetur: í Danmörku: Hlíf
Arnþórsdóttir Jensen, Eskifiiði.
í Finnlandi: Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, Stykkishólmi, Helga Jóns-
dóttir, Samkomugerði, Eyjafirði,
Árshátíð Sjálf-
stæðisfélaganna
i Árnessýslu
ÁRSHÁTÍÐ Sjálfstæðisfélag-
anna í Árnessýslu verður haldin
í Selfossbíói í kvöld og hefst
kl. 9. Ræður flytja alþingismenn
irnir: Ingólfur Jónsson og Sig-
urður Ó. Ólafsson.
Fjölbreytt skemmtiatriði ann-
ast: Brynjólfur Jóhannesson,
Jón Sigurbjörnsson, Emilia Jón-
asdóttir og Skúli Halldórsson. Að
síðustu verður stiginn dans.
Halla Jónsdóttir, Samkomugerði,
Eyjafirði. f Noregi: Álfhildur
Jónsdóttir, Víðivöllum, Fnjóska-
dal, Arnbjörg Pálsdóttir, Reykja
vík, Björk Sigurðardpttir,
Reykjavík, Dagfríður Óskarsdótt-
ir, Reykjavík, Helga Aspelund
ísafirgi, Þórunn Jónsdóttir, ísa-
firði, Sólveig Guðbjartsdóttir,
Akureyri, Ragnar Karlsson,
Reykjavík. f Svíþjóð: Guðrún L.
Kristinsdóttir, Reykjavík, Birgir
Guðmannsson, Hafnarfirði, Krist
veig Baldursdóttir, Reykjavík,
Guðrún Guðmundsdóttir, Rcykja
vík, Jóhanna S. Einarsdóttir,
Reykjavík, Björg Helgadóttir,
Akureyri, Sigríður Jónsdóttir,
Reykjavík, Ragnheiður ísaksdótt-
ir, Reykjavík.
Hreinn Benediktsson
DR. Hreinn Benediktsson hefur
verið skipaður prófessor í mál-
fræði við heimspekideild Há-
skóla íslands frá 1. okt. og mun
aðallega kenna forngermönsk
mál og íslenzka málsögu. Þessu
embætti hefur próf. Alexander
Jóhannesson gegnt í rúm 40 ár.
Hreinn Benediktsson er fædd-
ur á Stöðvarfirði árið 1928, son-
ur Benedikts Guttormssonar,
bankafulltrúa og Fríðu Aust-
mann. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri ár-
ið 1946, og kenndi þar veturinn
eftir.
Þá hélt han» til framhalds-
náms til Osló og lagði stund á
samanburðarmálfræði. í Osló eru
Ríkksstailsmenn iulltrúar Fram-
sóknor i Bnnaðarþingi
Dr. Hreinn Benediktsson
prófessor við Háskólann
ákaflega góðir kennslukraftar í
þessari grein, að því er dr.
Hreinn tjáði fréttamanni blaðs-
ins, er hann átti tal við hann í
gær. Aðalkennarar hans voru
Karl Borgström og Karl Mar-
strander, og var hann ákaflega
ánægður með tilsögn þeirra. Eft-
ir þriggja ára nám í Osló, dvald-
ist dr. Hreinn í París í hálft ann-
að ár, en þar vann hann aðallega
að ritgerð um „Brottfall sér-
hljóða í oskísku og umbrísku".
Við Parísarháskóla eru framúr-
skarandi prófessorar í þeirri
grein t.d. próf. Emile Benveneste
og próf. Michel Lejuné. 1954
lauk hann svo meistaraprófi við
Oslóarháskóla, lagði fram fyrr-
nefnda ritgerð og hafði latínu
sem sérgrein. Árið eftir var dr.
Hreinn sendikennari í íslenzku
við háskólann í Bergen og Osló,
en það var í fyrsta skipti sem
föst kennsla var í íslenzku þar.
Frá 1955 til 1957 var dr. Hreinn
í Þýzkalandi, í Freiburg og Kiel
og lagði aðallega stund á forn-
germönsk mál, var hjá próf.
Hans Kuhn og naut leiðbeininga
hans. Þar fór hann að búa sig
undir doktorsritgerðina, um „Sér
hljóðakerfi íslenzkrar tungu til
forna og þróun þess“, en doktors-
prófi lauk hann síðastliðið vor
eftir árs nám við Harward há-
skóla í Bandaríkjunum. Við Har
ward háskóla kveður hann starfa
færustu málfræðinga, serri nú eru
uppi, og brautryðjendur á sviði
hljóðfræði, bæði almennrar og
sögulegrar. Og nú hefur Hreinn
verið skipaður prófessor við Há-
skóla íslands, eins og áður er
sagt.
— Það er mér mikil ánægja og
tilhlökkunarefni að koma hér að
háskólanum, þar sem ég hef
stefnt að því takmarki um
margra ára skeið, sagði dr.
Hreinn að lokum.
Vöruskiptajöfn-
uðnrinn liagstæð-
ur í sept.
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐURINN í
septembermánuði sl. var hag-
stæður um 11,6 millj. kr. Út voru
fluttar vörur fyrir 129,9 millj.
og inn vörur fyrir 118,3 millj.
kr. Eftir liðna 9 mánuði ársins
er vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 219,4 millj. kr. Út
hafa verið fluttar vörur á því
tímabili fyrir 758,2 millj. kr. og
inn fyrir 977,6 millj. kr.
ÞAÐ er mikið talað um búnað-
arþingskosningarnar, hvar sem
maður kemur, sagði bóndi einn
austan úr Holtum, er leit inn á
ritstjórn Mbl. í gærdag. Sem
kunnugt er fer fram kjör fimm
fulltrúa Búnaðarsambands Suð-
urlands og jafnmarga til vara á
morgun, sunnudag. Verður kosið
Söiigskemmlun
Guðrúnar
Tómasdóttur
í GÆR hélt hin unga og upp-
rennandi söngkona Guðrún Tóm-
asdóttir söngskemmtun í Gamla
bíói fyrir fullu húsi áheyrenda.
Hún söng m. a. lagaflokkinn
Frauenliebe und Leben eftir
Schuman svo að áheyrendur hrif-
ust mjög, spænsk þjóðlög eftir
de Falla og ýmis fleiri íslenzk og
útlend sönglög. Áheyrendur fögn
uðu mjög hinni ungu söngkonu og
henni barst mikið af blómum frá
vinum og velunnurum. Undir-
leikari var Fritz Weisshappel.
Hjól sendils tekið
í GÆRKVÖLDI var í óleyfi tek-
ið reiðhjól i portinu bak við hús
Morgunblaðsins, en reiðhjól
þetta hafði sendill blaðsins feng-
ið að láni, þar eð hans hjól hafði
bilað.
Þetta gerðist milli klukkan 8
og 8,30. Hér með er skorað á
þann, sem tók hjólið, að skila
því aftur á sama stað, til þess
að sendillinn, sem er 14 ára
drengur, biði ekki fjárhagslegt
tjón af þessu.
Bœndur í Holtum kvíð-
andi vegna garnaveiki
MYKJUNESI, 24. okt. — Garna-
veiki hefur gert vart við sig í fé
á einum bæ í Holtunum og er
það að Skammbeinsstöðum. Hef-
ur komið í ljós að ein kind var
veik. Var veikin komin á hátt
stig er kindinni var slátrað fyrir
nokkrum dögum.
Geta má þess að þessi kind,
sem var 4 vetra, hafði verið bólu-
sett með Keldna-bóluefni þegar
hún var lamb.
Á þessum bæ hefur garnaveiki
orðið vart í nautgripum nokkur
undanfarin ár.
Við fregn þessa hefur að sjálf-
sögðu slegið óhug á Holta-bænd-
ur. Fjárstofn þeirra, eftir fjár-
skiptin er nú orðinn sex vetra.
Þegar lömbin voru flutt inn í
héraðið úr V-Skaftafellssýslu
voru þau ekki bólusett við garna-
veiki.
Fyrir fjárskiptin, var garna-
veikin mjög skæð á þessu svæði
öllu. Hefur alla tíð síðan borið
meira og minna á garnaveiki í
kúm og ekki tekizt að ráða niður-
lögum veikinnar í þeim.
Ótti bænda er vissulega ekki
ástæðulaus og sú hætta er yfir-
vofandi að á næstu árum beri á
garnaveiki í elzta fénu.
— Magnús.
í öllum búnaðarfélögunum á fé-
lagssvæðinu, en það nær yfir
Áinessýslu, Rangárvallasýslu og
Vestur-Skaftafellssýslu svo og
Vestmannaeyjar.
Bóndinn úr Holtunum sagði,
að það hefði vakið allra athygli
að efstu menn á lista Framsókn-
arflokksins eru báðir embættis-
menn ríkisins.
— Við höfum verið að segja
það svona okkar í milli, að þeir
ættu sem slíkir miklu fremur
heima á þingi opinberra starfs-
manna, en á búnaðarþingi, sagði
bóndinn.
Þá er það vitað, að mikil
óánægja er út af þessari skipan
meðal framsóknar-bænda. Svo
mögnuð er óánægjan að þeir
munu æði margir þeirrar skoð-
unnar, að það geri ekki mikið
til þó Framsókn riði ekki feitum
hesti frá kosningum þessum.
Það má mikið vera ef hægt er
að bjóða framsóknarbændum
þetta ofan á annað, sem á undan
er farið. En úrslit kosninganna
leiða í Ijós hversu langt er mögu-
legt að teyma þá.
Ótrúlegt er annað en að bænd-
ur muni, að Bjarni á Laugar-
vatni, sem er í stjórn Stéttarsam-
bands bænda, taldi að bjargráð
ríkisstjórnarinnar væru ekki svo
afleit fyrir bændur!!
Ekki hafa framsóknar-bændur
farið í launkofa með að fram-
bj óðendur Sjálfstæðismanna séu
allir með tölu bændur er njóti
virðingar og vinsælda og séu
gegnir fulltrúar sunnlenzkra
bænda á búnaðarþingi.
Varðarkaffi
Valhöll í dag
STJÓRN Landsmálafélagsins Varðar hefur ákveðið, að Varð-
arkaffið hefjist að nýju að loknu sumarhléi og verður fyrsta
Varðarkaffi að þessu sinni í Valhöll í dag klukkan 3—5 sd.
Fyrir þá Varðarfélaga og annað Sjálfstæðisfólk, sem ekki
hefur átt þess kost að mæta við Varðarkaffi fram til þessa, skal
þetta tekið fram.
Fyrir tæpum tveimur árum tók stjórn Varðar upp þá ný-
breytni í félagsstarfinu að gefa Varðarfélögum og öðru Sjálf-
stæðisfólki kost á því að koma saman á laugardögum til síð-
degiskaffidrykkju í félagsheimili Sjálfstæðismanna, Valhöll.
Tilgangurinn með þesaari starfuemi er að gefa mönnum
tækifæri til þess að hittast til nánari kynna og viðræðna um
sameiginleg áhugamál.
Varðarkaffið cr nú orðinn vinsæll liíhir i félagsstarfi Varðar
og vill stjórn félagsins eindregið hvetja Varðarfélaga og annað
Sjálfstæðisfólk til að mæta.
Einhverjir af forustumönnum Sjálfstæðisflokksins munu
mæta við Varðarkaffi hverju sinni.