Morgunblaðið - 06.11.1958, Page 16
VEÐRIÐ
V-stinningskaldi með hvössum
éljum. Hitastig nálægt frostm.
254. tbl. — Fimmtudagur 6. nóvember 1958
PASTERNAKS-málið
Ræða Gunnars Gunnarssonar
á bls. 9.
„Sjöundi dagur i paradis" eftir Mugg
Nœstu íbúðarbyggingar í
hinu nýja Háaleitishverfi
Bæjarráðsmenn Sjálfstæðismanna
leggja fram byggingaráætlun
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á þriðjudaginn, lögðu Sjálf-
stæðismenn fram tillögu um
miklar byggingaframkvæmdir á
vegum Reykjavíkurbæjar í hinu
nýja íbúðarhverfi, Háaleitishverf
inu og miðast tillögur þessar við
það að hægt verði að hefja bygg-
ingaframkvæmdir næsta vor.
Þessi tillaga bæjarráðsmanna
Sjálfstæðismanna var ekki tekin
til endanlegrar afgreiðslu á þess-
um fundi bæjarráðs, en mun
væntanlega verða afgreidd til
bæjarstjórnar að loknum næsta
fundi ráðsins, sem trúlega mun
haldinn í lok þessarar viku.
Tillaga þessi er framkomin í
sambandi við áætlun bæjarins
um byggingarmál frá því í nóv-
embermán. 1955 og hljóðar svo:
í stað þess að byggðar verði
84 íbúðir í 7 fjölbýlishúsum við
Elliðavog eftir uppdráttum
Gunnlaugs Halldórssonar og Guð
mundar Kr. Kristinssonar og upp
dráttum Sigurjóns Sveinssonar,
verði byggðar 100 íbúðir í Háa-
leitishverfi að mestu samkvæmt
teikningum, er hlutu 1. og 2. verð
laun í hugmyndasamkeppni um
fjölbýlishús við Elliðavog. Stefnt
sé að því, að öllum teikningum
verði lokið fyrir næsta vor. Mið-
að verði við eftirtaldar íbúða-
stærðir:
60 3 herb. íbúðir
40 2 — —
Byggðar verði 70 íbúðir í
tveggja hæða húsum í Háaleitis-
hverfi, skv. framlögðum teikn-
ingum. Miðað verði við eftirtald-
ar íbúðastærðir:
28 3 herb. íbúðir
42 2 — —
Byggingarnar verði boðnar út,
þegar teikningum er lokið.
Bátur strandar í Engey
Fyrir jólin mun Helgafell senda á markaðinn fjórar, eða fimm nýjar málverkaprentanir eftir
málarana Mugg, Jón Stefánsson, Kjarval, Ásgrím Jónsson og Kristján Davíðsson. Ein þeirra
„Sjöundi dagur í paradís“ eftir Mugg (Guðmund heitinn Thorsteinsson) er nú komin á markað-
inn og verður til sölu í bókaverzlunum eftir daginn í dag. Þessi mynd Muggs er ein þeirra sem
prófessor Rieseby í Kaupmannahöfn gaf íslenzka ríkinu í sumar. Er hún talin ein bezta mynd
listamannsins ásamt altaristöflunni á Bessastöðum. Rieseby léði Helgafelli myndina til eftir-
prentunar í vor, áður en hún var send til íslands. Margar þeirra mynda, sem Helgafell hefur sent
á markaðinn, hafa verið sendar víða um heim og þykja þær sambærilegar við hið bezta sem
gert er I Evrópu. Myndin hér að ofan er af eftirprentun Helgafells á „Sjöunda degi í paradís.“
Sjálfstœðismenn óska jsess að Aljjingi
verði gefin skýrsla um landhelgismálið
Utanrikismálanefnd fæst ekki sett i
löglegt horf
ÁÐUR en gengið var til dagskrár
á Alþingi í gær kvaddi Bjarni
Benediktsson sér hljóðs og sagði:
— Herra forseti. Svo sem
kunnugt er, þá fór hæstvirtur
utanríkisráðherra á fund Sam-
einuðu þjóðanna, er þær varu
kallaðar saman í september, til
þess að vinna þar að landhelgis-
máli íslendinga. Hann er nú kom
inn hingað til lands fyrir all-
löngu og hefur á þeim degi, sem
Sameinuðu þjóðunum var hald-
inn til heiðurs, í ýtarlegu erindi,
er hann flutti um starf þeirra,
vikið að landhelgismálinu og
skýrt þar frá því, að ekki væru
horfur á, að tillaga íslands um
málið yrði afgreitt á sjálfu Alls-
herjarþinginu, mundi hljóta
stuðning. Hið sama kom fram í
erindi, sem hæstvirtur utanríkis-
ráðherra hélt í flokksfélagi sínu
í gærkvöldi, að því er Alþýðu-
blaðið segir frá í dag.
Það er skoðun margra þing-
manna, a. m. k. Sjálfstæðis-
manna, að vel færi á því og raun-
ar meira en það, að sjálfsagt sé,
að þetta mál og meðferð þess sé
rætt innan þingsins. Það voru
horfur á því fyrst eftir að hæst-
virtur utanríkisráðherra kom úr
ferð sinni, að hann myndi gefa
skýrslu um málið á fundi utan-
ríkismálanefndar. En síðan reynd
ist svo, að ekki hefur þótt kleift
að setja þá nefnd á laggirnar,
eins og lög standa til, og þeim
fundi, sem þar var boðaður til
þess að ráðherra gæfi skýrslu
sína, hefur nú verið frestað a.
m. k. um rúmar tvær vikur, og
að því er ég bezt veit, er enn
óráðið, hvenær sá fundur verði
haldinn.
Ég vildi því fara bess á leit
fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins,
að hæstvirtur utanríkisráðherra
gæfi þá skýrslu, sem hann hafði
fyrirhugað, annaðhvort á fundi í
sameinuðu þingi í almanna-
áheyrn, eða ef hentara þykir, að
skýrslugjöfin verði fyrir luktum
dyrum, en hvort heldur yrði
ákveðið, með þeim hætti, að þing
mönnum gæfist kostur á að ræða
málið og bera fram fyrirspurnir
og hreyfa athugasemdum út af
meðferð þess, ef atvik þykja
standa til.
Eins og sakir standa, mundum
við ekkert hafa við það að at-
huga, að fundurinn yrði haldinn
fyrir luktum dyrum, ef hæstvirt
ríkisstjórn eða utanríkisráðherra
kjósa það heldur, en við teljum,
Gamanleikur
LEIKFÉLAG Hafnarfjarðar
frumsýndi gamanleikinn „Gervi-
knapann" eftir John Chapman
sl. þriðjudagskvöld. Húsið var
þéttskipað og undirtektir áhorf-
enda með afbrigðum góðar.
Leikstjóri er Klemenz Jóns-
son, en aðalhlutverkin eru leikiri
af Steinunni- Bjarnadóttur, Guð-
jóni Einarssyni, Sigurði Kristins-
syni, Eiríki Jóhannssyni, Ragn-
ari Magnússyni og Kötlu Ólafs-
dóttur.
Næsta sýning verður á föstu-
dagskvöld.
• TAIPEI, 5. nóv. — í dag hófu
kommúnistar mikla skothríð á
eyjuna Kvemoj. Landavarnaráðu
neytið á Formósu tilkynnti, að
alls hefði verið skotið 5749 skot-
um í dag. Þá var og tilkynnt að
þjóðernissinnar hefðu eyðilagt
17 fallbyssur kommúnista á meg-
inlandinu.
að það megi ekki dragast, að til
slíks samráðs hæstvirts utanríkis
ráðherra við þingheim sé stofn-
að. —
ÞESS mun væntanlega aðeins
skammt að bíða að neyzlumjólk
Reykvíkinga verði öll d-fjörvi
bætt, en læknar hafa látið í ljósi
nauðsyn þessa yfir vetrarmán-
uðina og hefur málið verið á
döfinni frá því á árinu 1956. —
Þetta mun hafa í för með sér
lítillega hækkun á mjólkinni.
Á fundi heilbrigðisnefndar
bæjarins er haldinn var í fyrra-
dag, skýrði dr. Jón Sigurðsson
borgarlæknir frá tilraunum þeim
er gerðar hafa verið hér í bæn-
um með fjörvibætingu neyzlu-
mjólkur bæjarbúa. Hafði heil-
brigðisnefnd ákveðið að slíkar
tilraunir skyldu gerðar. Einnig
gerði borgarlæknir grein fyrir
bréfi frá forstjóra Mjólkursam-
sölunnar um mál þetta. Telur
Samsalan sig nú reiðubúna til
að framkvæma fjörvibætinguna
og setja í mjólkina fjörvið d3,
gegn því að mjólkurlítrinn
hækki við það um 2 aura.
Með tilliti til þessarar upp-
lýsinga Samsöluforstjórans, svo
og þess að fyrir liggja skýrslur
lækna um beinkröm í reykvísk-
um börnum, og einnig álitsgjörð
frá manneldisráði um þetta efni,
þá samþykkti heilbrigðisnefnd-
in að leggja eindregið til að öll
neyzlumjólk bæjarbúa verði
fjörvi bætt, allt að 1000 eining-
ar fjörvis í lítra.
Sem fvrr greinir er þess nú
að vænta að innan skamms verði
í GÆRMORGUN mátti sjá bát
strandaðan úti í Engey. Bátur
þessi heitir Faxafell, en hét áður
Freydís. Báturinn hafði strandað
í eyjunni í fyrrinótt og var einn
maður um borð er það gerðist.
Hafði hann kallað á hjálp úr
landi gegnum talstöð bátsins og
höfðu hafnsögumenn farið út á
hafnsögubáti og bjargað mann-
inum.
Nokkur kvika hafði verið við
bátinn, en björgun mannsins gekk
þó vel. Að því er blaðið frétti,
hafði maðurinn farið einn á bátn-
um út úr Reykjavíkurhöfn þeirra
erinda að snúa bátnum, en þá
bilaði vélin, en á \ var sunnan
strekkingur og rak bátinn upp
í eyjuna. Nokkru fyrir hádegi
var enn sendur hafnsögumaður á
á þessu byrjað í Mjólkursamsöl-
unni.
Beinkröm í börnum er mjög
algeng hér í Reykjavík og hefur
prófessor Niels P. Dungal og
einnig Katrín Thoroddsen, yfir-
læknir barnadeildar Heilsuvernd
arstöðvarinnar, bent á hve mik-
il og alvarleg brögð séu að þessu
hér hjá okkur.
Víða um heim þykir slík fjörvi
bætt mjólk sjálfsagður hlutur og
er hún sums staðar öll bætt
fjörvi en í öðrum löndum aðeins
hluti mjólkurinnar og er þá seld
við hærra verði til neytenda.
Að lokum er þess að geta að
bæjarráð hefur á fundi sínum
á þriðjudaginn var eindregið
stutt tillögu heilbrigðisnefndar-
innar og kom borgarlæknir sjálf-
ur á fundinn til að veita bæjar-
ráðsmönnum upplýsingar um
málið.
Dagskrá Alb'mgis
Á DAGSKRÁ sameinaðs Alþing-
is í dag verður rætt um hvort
leyfðar skuli tvær fyrirspurnir:
um endurheimt handrita í Dan-
mörku og um hafnargerðir o. fl.
Á dagskrá neðri deildar eru 2
mál. — Frumvarp til laga um
aldurshámark biskups er til 2.
umr. og frv. til laga um skemmt-
anaskattsviðauka er til 1. umr.
strandstaðinn og bjargaði hann
bátnum í land og fór með hann
upp í bátanaust.
Kauphækkun
togarasjómanna
BLAÐINU barst í gær eftirfar-
andi bréf frá Fél. ísl. botnvörpu-
skipaeigenda:
. í sambandi við fréttir dag-
blaðanna um kauphækkun tog-
arasjómanna, er rétt að benda á
eftirfarandi:
Sagt er að togarasjómenn hafi
fengið 22% kauphækkun. En sú
hækkun kemur aðeins á fasta-
kaup, ekki á aflahlut, sem er
svo til óbreyttur.
Aflahlutur nemur hins vegar
um og yfir helmingi launa tog-
arasjómanna. Er því raunveru-
leg hækkun á kaupi þeirra 9—.
11% eftir aflabrögðum.
Þá ber að benda á það, að
þegar samið var við togarasjó-
menn í júní sl. fengu þeir ein-
göngu lögboðnar hækkanir (þ. e.
5% auk lífeyrissjóðs), en síðan
hafa flest stéttarfélög önnur
fengið allmiklar kjarabætur um-
fram þær er lögboðnar voru.
Hálka eftir lítils-
háttar snjókomu
LÍTILSHÁTTAR snjókoma var
hér í bænum í gærkvöldi, en
skömmu áður frysti, svo skjótt
myndaðist ísing og hálka á göt-
um bæjarins. Gripu sumir til
snjókeðjanna vegna hálkunnar.
Nokkrir bílaárekstrar urðu vegna
hálkunnar, og á Miklubraut 5,
rann stór vörubíll í gegnum
steinsteyptan garð. Slys varð
ekki á fólki við þetta eða aðra
þá árekstra sem urðu í gær.
f KVÖLD kl. 8,30 hefst 2. er-
indi Sigurðar Líndal, stud. jur.
um „Hina nýju stétt“. Hann mun
í kvöld ræða um kaflana:
Eðli byltingarinnar.
Nýja stéttin.
Flokksríkið.
Neyzlumjólk bœjarbúa
verður nú fjörvi bœtt