Morgunblaðið - 16.11.1958, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.11.1958, Blaðsíða 6
6 iu on cvwnr 4 niÐ Sunnudagur 16. nóv. 1958 Ætlaði að láta fólk gráta, en áhortendur hafa oftast hlegið að mér, segir Emilia Jónasdóttir i eftirfarandi viðtali Ó.... hérna.... afsakið, það var ekki neitt! Við erum stödd í Þjóðleikhús- inu, leikurinn er byrjaður, og allt í einu rís kona upp úti í sal og segir þessi orð. Hún virð- ist ætla að setjast aftur, en sér sig um hönd, sem betur fer.... þvi upp frá því færist fjör í leik- inn, og hláturinn kveður við. Konan er Emilia Jónasdóttir og leikritið er að sjálfsögðu „Sá hlær bezt....“ í hléinu bregð ég mér að tjalda baki. Það er verið að greiða Em- ilíu í hárgreiðslustofunni. — Ég Kann alveg prýðilega við Láru Partridge (kvenhetjuna í leikrit- inu), segir Emilía. Og ég kann líka vel við karlana mína (þá Lárus Pálsson, Indriða Waage, Róbert Arnfinnsson og Valdemar Helgason). — Finnst yður Lára ekki ofur- lítið brosleg? — Nei, alls ekki. Hún ætlar ekki að gera neitt illt af sér. Mér finnst þessar konur, sem ég túlka á leiksviðinu ekkert hl^gilegar. Aldrei kom það fyrir að mér væri hlátur í hug í Tengdamömmu, þó hláturinn kvæði alltaf við í saln- um. Mér finnst ekki síður ástæða til að taka gamanhlutverkin al- varlega. Safnar könnum í frístundum — Jú, ég á mér ýms önnur áhugamál, ekki síður en Lára Partridge. Hún hefur sína „stjörnuspeki“, og ég hefi t. d. könnusafnið mitt, á annað hundr- að könnur af ólíkustu gerðum. Sú elzta er tinkanna úr skipi, sem strandaði vestur á Strönd- um fyrir meira en hundrað ár- um. Komið þér bara heim til mín á morgun og þá skal ég sýna yður þær. Ég greip því tækifærið, til að fá að spjalla í ró og næði við Emilíu og barði að dyrum hjá henni á tilteknum tíma daginn eftir og hóf yfirheyrsluna: — Segir Lára Partridge ekki eitthvað á þessa leið í „Sá hlær bezt“: „Ég hefi aldrei gert hand- arvik. Ég er leikkona“. Það á lík- lega ekki við um yður? Emilía hló við. — Nei, ég hefi unnið margt um dagana. Byrj- a,ði með ömmu minni í fiski vest- ut á Dýrafirði, þegar ég var 5 ára gömul ,en ég man ekki eftir að hafa fengið kaup fyrr en ég var 8 ára. Þá fékk ég 8 aura á tímann, en amma fékk 15 aura. Já, ég hefi verið í síld, unnið á skrifstofu og í verzlun, safnað auglýsingum o. m. fl. Og jafn- hliða því hefi ég alltaf haldið heimili. Enda er það svo, að lífið er bezti skólinn. Ég hefi unnið með mörgu og margvís- legu fólki, og unnið úr því aft- ur, eftir að ég fór að leika. Það hefur komið sér vel, því ég hefi leikið mörg hlutverk um dagana. Hvað mörg? Það veit ég ækki, þó skömm sé frá að segja, en þau eru ýfir 100 í allt. Þegar ég var lítil, og sá pabba og mömmu leika í harmleiknum „Sigríði Eyjafjarðarsól“ á Dýra- firði árið 1909, þá sagði ég: „Ég ætla mér að verða leikkona, þeg- ar ég er orðin stór og láta fólkið gráta“. Þó hefur það oftast orðið svo, að áhorfendur hafa hlegið að mér. En ég hefi heyrt grátið líka. Eftirlætishlutverkið mitt? Yður finnst það eflaust skrítið, en það er ekki gamanhlutverk. Það er .Þórdís í Hlíð í leikritinu „Maður og kona“. Það hef ég leikið bæði hér oð norður á Ak- ureyri. Óleikið óskahlutverk? Ja, ég veit ekki hvort ég fæ nokkum tíma tækifæri til að leika það. Það ej Nilla í Jeppa á Fjalli. — Það þarf sjálfsagt meira til að verða leikkona ,en að ákveða — Hvar byrjuðuð þér? — Ég lék fyrsta hlutverk mitt á Akureyri árið 1927 undir stjórn Haralds Björnssonar, sem þá var nýkominm utan frá námi. Það var í leikritinu „Ambrosíus“. Á Akureyri lék ég í sjö ár, áður en ég flutti til Reykjavíkur. Hér var ég svo í 10 ár og hafði þau ein afskipti af leiklistinni, að ég setti á svið fyrir barnastúkurnar. Gamanleikararnir köstuðu upp af taugaóstyrk Árið 1941 vann ég í brauðbúð. Þá hringdi Indriði Waage til mín og spurði hvort ég vildi koma og tala við sig og Emil Thor- mætir manni finnst á augabragði. En þetta á ekki aðeins við í leik- húsunum. Flestir verða varir við þetta í starfi sínu. Ég minnist þess t. d. þegar ég í 8 ár safnaði auglýsingum fyrir ýmiss tímarit, þá fann ég hvernig sambandið var milli mín og auglýsendanna um leið og símanum var lyft. — Suma dagana gekk mér ákaflega vel, ég fékk margar auglýsingar, en aðra illa. Fólk er svo misjafn- lega upplagt. Ég fæ að fletta albúmi, sem tvær dætur Emiliu og barnabörn hennar fimm nafa límt inn í myndir af henni í ýmsum hlut- verkum og leikdóma um hana. Emilía Jónasdottir, leikkona, með hluta af könnusafni sínu. oddsen. Ég þekkti Indriða aðeins í sjón og spurði til hvers. Hann sagði mér að búa mig ofurlítið undir að gráta og hlæja og kannski að syngja. Ég fór svo með atriði úr Þórdísi í Hlíð fyrir þá, og söng eina vísu, hún var nú víst ekki sérlega vel valin, byrj- ar svona: „Þó ég þrítug og þrem árum betur“. Að lokum sagði Indriði, hvort ekki væri rétt að láta mig lesa upp úr revíunni „Nú er það svart“, sem þeir voru með á prjónunum. En Emil svar- aði og því gleymi ég aldrei: „Það er alveg óþarfi að prófa þessa konu betur. Fáðu henni handrit- ið“. Þar með var ég búin að fá aðalhlutverkið í revíunni. Ég man það, að þegar ég hljóp upp Amtmannsstígin, sat kökkur í hálsinum á mér, svo glöð var ég. Á frumsýningunni þurfti svo að ýta mér inn á sviðið. Ég og hann Alfreð minn Andrésson stóðum hlið við hlið og köstuðum upp að tjaldabaki, svo taugaóstyrk vorum við. Já, maginn, það er nú meiri stjórnarbyltingin sem hann gerir stundum fyrir frum- sýningar. Ég er alltaf taugaóstyrk fyrir hverja sýningu, en svo gleymist það eftir að byrjað er. Ég signi mig alltaf áður en ég fer inn og mér er kunnugt um að það gera fleiri leikarar. Það er ekkert sem styrkir menn bet- ur en bænin, og oft er þörf á að biðja. Maður kvíðir alltaf fyr- ir því, sem er ókunnugt. Ekki dugar að slá öllu upp í kæru- leysi. Allir eru misjafnlega upplagðir — Jú, sýningarnar eru mis- jafnar. Um leið og tjaldið fer frá, finnur leikarinn hvort hann hefur fólkið með sér. Stundum dregur það mann niður, eins og maður sé með grjótpoka á bak- inu. Sýningin £ gærkvöldi var mjög góð. Eftir að ég kom heim hringdi hingað ókunnugur mað- ur, til að segja mér hvað sér hefði þótt gaman. Slíkt kemur oft fyrir og það er ákaflega upp- örvandi fyrir leikarann. Mest bar á slíkum upphringingum eftir sýningar á „Gimbli“ og „Tengda tendamömmuhlutverkið verið eins og skapað handa henni vegna þess að hún hafi æfingu í erjum við tengdasyni. Bara að vera með Við tökum aftur upp þráðinn. — Já, síðan þeir tóku mig í „Nú er það svart“, hefi ég alltaf ver- ið með. Mér er alveg sama hvort hlutverkin, sem ég fæ, eru stór eða lítil, bara ef ég fæ að vera með. Það er undarleg baktería, Framhald á bis. 16. I i I 1 I SKAK i I i Það er furðulegt hve oft og um hve ólík hlutverk leikdómararn- ir hafa sagt: „Hlutverkið er eins og skapað fyrir Emilíu Jónas- dóttur". Þetta er sagt um múlatta konuna í leikritinu „1 deiglunni", eskimóakonuna í „Landinu gleymda", Gróu á Leiti, Magða- lenu í Æðikollinum, móður Jóns Hreggviðssonar, tengdamömmu o. m. fl. Það skal tekið fram að I 20. Hf2 Hab8 Emilía segist eiga tvo indæla Dfl Dd7 23. tengdasyni, svo að ekki hefur I Ha6 Dc7 25. Rgl (Undirbýr BANDARIKJAMENN sendu nú aftur sveit til Olypíuskákmótsins, en þeir höfðu ekki verið með tvö síðastliðin mót í Amsterdam og Moskvu. Þó sveitin væri með 4 stórmeistara innanborðs, þá tefldi alþjóðlegi meistarinn Lom- bardy bezt af þeim félögum og fékk í kringum 67% vinninga. Hér kemur svo skák eftir þenn- an unga meistara. Hvítt: Blau, Sviss Svart: Lombardy, U.S.A. Sikileyjar-vörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5f (Blau teflir þetta afbrigði gjarn- an, en það gefur hvítum litlar vonir um að halda frumkvæðinu þegar fram í sækir) 3. .... Rc6 (Eðlilegast er Bd7, en Lombardy sækist ekki eftir mannakaupum) 4. 0-0 Bd7 5. c3 a6 6. Ba4 b5 7. Bc2 (í fljótu bragði virðist svartur hafa unnið tvo leiki með því að hrekja biskupinn til c2, en hvítur hefir í staðinn mögu- leika á að veikja peðastöðu svarts á drottningarvæng) 7. ... . g6 8. d4 Bg7 9. Be3 cxd4 10. Rxd4(?) (Eftir þennan leik hefur hvítur gefið frá sér alla möguleika á frumkvæði. Betra var því 10. cxd4 og hafa vald á miðborðinu í lengstu lög) 10. .... Rf6 11. h3 0-0 12. f4 (Eðlilegra var Rbd2) 12........ e5 13. Rf3 De7 14. fxe5 dxe5 15. b4 (Hvítur á nú þegar í erf- iðleikum og reynir nú að ná fót- festu á drottningarvæng, en hann hefur vanrækt Rbl og hon- um hefnist fyrir það áður en lýk- ur) 15......Ilfd8 16. Bc5 De8 17. Del Be6 18. Rbd2 (Loks- ins) 18.......h6 19. a4 Rh5 (Nú er stundin runnin upp, og svartur byrjar af fullum krafti með aðgerðir sínar á kóngsvæng) 21. Kh2 Rf4 22. axb5 axb5 24. að hrekja Rf4 með h3 en hann kemur þeirri hugmynd ekki í framkvæmd) 25. Bf8t (Losar sig við sterkan biskup fyrir lélegan) 26. Bxf8 Kxf8 27. Rb3Bc4 28. Dcl(?) (Betra var Del) ABCDEFGH ABCDEFGH 28..... Rxb4! (Einkennandi fyrir vel teflda skák er loka leik- flétta) 29. Da3 (Vitaskuld ekki 29. cxb4 vegna Bxb3 og Dcl er valdlaus) 29....Bxb3 30. Dxb4f Kg7 31. Dxb3 (Ann ars Rd3) 31.....Dc5! (Einn meginn þátturinn í „fléttunni". Ef 31. Hfl þá Hd2 og helpress- ar hvítan) 32. Hxf4 (Eini möguleikinn) 32......... exf4 33. Rf3 Hbc8! (Lombardy not- færir sér til hins ýtrasta hve R og B hvíts eru illa staðsettir, en þessa erfiðleika hvíts hefur hann séð fyrir þegar hann byrjað; að flétta) 34. Bbl (Meiri mögu- leika gaf 34. Da2 en hvergi nærri fullnægjandi) 34........ Dxc3 35. Dxb5 Hdl (Hvítur lendir nú í mátneti) 36. Ba2 Dal! (Ekki 36..... Dcl vegna 37. Hxg6f! og hvítur fær að minnsta kosti þráskák) 37. De5f (Gálgafrestur) 37....... Dxe5 38. Rex5 Hccl og hvítur gaf þar sem mát verður ekki umflúið. IRJóh. úr skrifar daggega iífinu ] á unga aldri að láta fólk gráta. mömmu“. Já, andrúmsloftið, sem Húsið fyrst, húsgögnin síðar. IYRIR nokkrum dögum sá ég í einu dagblaðanna áskorun til iðnaðarmanna, listafólks og ann- aria bæjarbúa, um að fara nú að gefa húsgagnasamstæður og ann- að þess háttar í væntanlegt ráð hús, „sem aðeins er til á papírn- n“, eins og það er orðað ofar greininni. Er þarna verið að skora á fólk að kaupa og velja húsgögn í hús, sem ekki er enn vitað hvernig verður. Væri nú ekki skynsamlegra að láta fyrst ljúka við teikningu hússins og koma því upp, þannig að séð verði hvers konar húsgögn þurfi í það, hvaða tegund fer bezt, hvaða litir o. s. frv. Með fullri virðingu fyrir smekk hugsanlegra gefenda, efast ég stórlega um að það sé heppileg aðferð, að láta marga ólíka aðila velja innan- stokksmuni í óbyggð hús. Hitt er annað mál, að ekki er nema gott eitt um það að segja, ef einstaklingar eða félagasam- tök vilja hafa tímann fyrir sér og safna fé þangað til stundin er komin til að skreyta ráðhúsið að innan og búa það húsgögn- um, og leggja þá fram fé til kaupa á ákveðnum hlutum, sem valdir verði í samræmi við byggingar- stíl — og í samræmi hver við annan. Gripir geta verið fallegir í sjálfu sér, þó þeir njóti sín eng an veginn í röngu umhverfi. og séu beinlínis tii óþurftar, þar sem þeir eru ekki í samræmi við annað. Um 1000 bréf á viku. VELVAKANDA barst um dag- inn bréf frá sjómanni, sem er óánægður með sjómannaþátt- inn í útvarpinu, eða réttara sagt með það hve seint sum lögin og kveðjurnar, sem honum eru send ar, koma til skila. Segist hann stundum hafa fengið kveðjur að heiman eftir að hann var attur kominn heim, en aðrar hafi aldrei komið. Velvaktndi hringdi í því tilefni til Guinunar Erlendsdóttur og spurði hr.na, hve maigar beiðnir um ákveðin lög henni bærust í viku hverri. Guðrún sagði, að yfir vetrar- mánuðina fengi hún í hendur 300 —500 bréf á viku, og í hverju þeirra væri kveðja til einhvers ástvinar og beiðni um að honum væri sent ákveðið lag. Meðan síld arvertíðin stendur yfir, fjölgar bréfunum, þá verða þau um 1000 á viku. Hvað á hún nú að gera? Hún getur í mesta lagi komið um 100 kveðjum til skila á viku, þ. e. a. s. ef margar fylgja sama lagi. Það, sem hún hefur tekið til bragðs er þetta: Hún reynir að leika helzt þau lög, sem flestir biðja um. Með því kemur hún fleiri kveðjum til skiia, en ef aðeins ein fylgir hverju lagi. Auk þess reynir hún að taka eitthvað af kveðjum, sem hafa beðið lengi, jafnvel þó beðið sé um lag, sem ekki er mjög vinsælt. Með því fæst meiri tilbreytni í þáttinn. En auðvitað þýðir ekki að taka alltaf elztu kveðjurnar, því þá yrði hún mörgum mánuðum á eftir tímanum og jafnvel árum, þegar til lengdar lætur. Þá gæti hún verið að skila kveðju til sjó- manns, sem íyrir löngu er kom- inn í land, eða til konu, sem er löngu skilin við sjómanninn sinn o s. frv. Afleiðingin af þessu bréfaflóði er sú, að um það bil helmingur- inn af kveðjunum sem berast komast ekki til skila, og sumar verða seinbúnar. En kann nokkur betra ráð?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.