Morgunblaðið - 20.11.1958, Blaðsíða 1
20 siður
ftfptttMa
45. árg’angmr.
266. tbl. — Fimmtudagur 20. nóvember 1958
Frentsmiðja Morgunblaðsins
Hafa sendiherrarnir legið
í Lúðvík og Hannibal?
Eysteinn og Lúðvik vörðust allra
sagna á Alþingi i gær
ekki aðra úr ríkisstj. héldur en
hæstv. fjmrh. E.t.v. hafa hinir
erlendu sendimenn leitað til
hans, og mundi ]»á ekki á honum
standa að skýra okkur frá því.
Hér er um einfaldar spurning-
ar að ræða, og efast ég ekki um,
að hæstv. ráðh. er ánægja að því
að láta hið rétta koma fram.
Ef þeir hafa hins vegar ekki
orðið fýrir þeirri ásókn, sem
Þjóðviljinn hér skýrir frá þá tek
ég fyllilega undir það, að ástæða
er til að þetta mál verði rannsak
að eins og Þjóðviljinn stingur
upp á, og vil ég ákora á ríkisstj.
að láta ekki ^Jragast deginum
lengur að hefja þá rannsókn.
Þeir Eysteinn Jónsson og Lúð-
vík Jóesfsson sátu báðir undir
ræðu Bjarna Benediktssonar og
fengust hvorugur til að svara þó
að forseti sameinaðs Alþingis
spyrði hvort enginn kveddi sér
hljóðs.
í dag eru liðin 100 ár frá fæð-
ingu sænsku skáldkónunnar
Selmu Lagerlöf
Nasser slœr eign sinni á Abboud
og Súdani
og Abboud, segja að byltingar-
innar hafi verið þörf, því að
Bandaríkjamenn hafi verið búnir
að ná tökum á cfnahagslífi lands'
ins.
★ ★ |
Kaíró-útvarpiS skýrði svo frá|
í kvöld, að Súdan-útvarpið hefði
farið hörðum orðum um „brezku
heimsveldissinnana", eins og kom
izt var að orði. Súdanir væru
búnir að þjást nógu lengi undan
Bretum, þeir mundu aldrei styðja
þá héðan í frá. Var boðuð hlut-
leysisstefna af hálfu Súdans. —
Túlkaði Kaíró-útvarpið valda-
töku Abboud, sem sigur fólksins,
heimsvaldasinnar mundu ekki
Iengur geta klofið samstöðu Ar-
abaþjóðanna, sem lyti giftu-
drjúgri forustu Arabíska sam-
bandslýðveldisins og Nassers.
Bulganin man sinn
fífil fegurri
LONDON, 19. nóv. — Frétta.
maður AFP fréttastofunnar í
Moskvu skýrði svo frá í gær, ai
Bulganin, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, hafi verið vikið frá
störfum sem formanni efnaliags-
málanefndar Stavropolshérðas
fyrir þá sök að hann hafi neitaS
að framkvæma samþykktir
flokksins í efnahagsmálum. —
Þetta hefir ekki verið opinber-
lega staðfest í Moskvu.
í ræðu, sem Krúsjeff hélt fyrir
nokkru, sagði hann Bulganin
fjandmann flokksins.
Minnka lieraflann
WASHINGTON, 19. nóv. —
McEIroy, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, skýrði svo frá i
dag, að frá 30. júni næsta ára
yrði herafli Bandaríkjanna
minnkaður um 71 þús. manns. Nú
eru 2,596,282 Bandaríkjamenn
undir vopnum.
Adenauer og de Caulle
hittast aftur
PARlS, 19. nóv. — Tilkynnt var
í dag, að de Gaulle mundi halda
til Þýzkalands síðari hluta mán-
aðarins og eiga fund með Aden-
auer kanslara hinn 26. þ. m. Er
hér um að ræða framhaldsvið-
ræður frá fundi þeirra í sveita-
Aflinn minnkaði ekkert
Á FUNDI sameinaðs Alþingis í
gær kvaddi Bjarni Benediktsson
sér hljóðs utan dagskrár og
mælti á þessa leið:
Ég kveð mér hljóðs vegna þess,
að í málgagni stærsta stjórnar-
flokksins er í morgun í aðalgrein
skýrt svo frá er ég skal nú
greina, með leyfi hæstv. forseta:
„Eins og Þjóðviljinn skýrði frá
s.l. sunnudag hafa sendiherrar
NATO-ríkjanna héx á landi haft
sig mjög í frammi undanfarna
daga og lagt fast að íslenzkum
stjórnmálamönnum að fallast á
tillögu Ólafs Thors um ráðherra-
fund Atlantshafsbandalagsins.
Meðal þeirra var brezki sendi-
herrann Mr. Gilchrist. Hafa sendi
herrarnir að sjálfsögðu fyrirmæli
stjórna sinna um að beita sér í
málinu“.
Og síðar í greininni segir:
„Væri vissulega ástæða fyrir
stjórnarvöldin til að rannsaka
nákvæmlega, hvernig því máli
er háttað". Og er þar vikið að
því sama, sem ég las hér upp.
Nú vildi ég skýra frá því, svo
enginn efi væri á því, að við
Sjálfstæðismenn höfðum ekki
orðið varir við þennan áhuga
hinna erlendu sendimanna. Enda
er það ekki nema að vonum, að
við verðum hans ekki varir því
að erlendir sendimenn hafa að
eðlilegum hætti fyrst og fremst
samband við ríkisstj.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem stjórnarblaðið hér skýrir
frá, hafa sendiherrarnir veitt
stjórninni, að því er ætla verð-
ur, slíkan aðgang í þessu máli,
að með ólíkindum er. Annars
mundi ekki frá þessu skýrt í blað
inu, allra sízt með þeim hætti,
sem gert er
Að vísu hefur ekkert annað
blað en Þjóðviljinn birt þessar
fregnir Þess vegna er það senni-
legast, að það sé hæstv sjútmrh.
og hæstv. félmrh., sem sendiherr-
arnir hafa leitað til, og vildi ég
því biðja hæstv. sjútmrh. um að
skýra þingheimi og þar með þjóð
inni frá því, sem í þessu hefur
gerzt.
Ef ekki hefur verið leitað til
hans, þá spyr ég hann hvaða
fregnir hann hafi af umleitunum
þessara manna til sinna sam-
starfsmanna. Nú sé ég að vísu
★--------------------------★
Fimmtudagur, 20. nóvember.
Efni blaðsins er m.a. :
Bls. 3: Viðskiptamálaráðherra neltar
að skýra frá ferðum Vilhjálms
Þórs. Frá umræðum á Alþingi.
— 6: Kosningabardaginn í Frakk-
landi. --- Bridge. ---
— t: Ræða Thor Thors við umræð-
urnar um afvopnunarmál á
Allslierjarþingi S.Þ.
— 9: Bókaþáttur: „Þrettán sögur“
Hagalíns (s-a-m).
— 10: Ritstjórnargreinin: Þögn Lúð-
víks og fjarstæður Þjóðviljans.
„Vonum að það verði drengur"
— sagði Tyrone Power (Utan
úr heimi).
— 11: í þrívíðum tíma hefur maður
yfirsýn yfir allt, sem maður
óskar sér og miklu meira. —
Spjallað við Halldór Jónasson.
— 12: Með herveldi slysast Bretar til
að sýna fram á fiskþurrð á ís-
landsmiðum, grein eftir Sigur-
jón Einarsson, skipstjóra.
— 18: Íþróttir.
+-----------—-------------jf
Abboud gegnir
þrem valdamestu
embættum landsins
KARTÚM, KAÍRÓ, LONDON 19.
nóv. — Ibrahim Abboud, foringi
súdenska hersins, sem stóð fyrir
byltingunni á mánudaginn, sór í
dag embættiseið sinn, ekki einn
heldur þrjá, því að hann mun setj
ast í þrjú valdamestu embætti
landsins: Forsætisráðherra, land
varnamálaráðherra og forseta-
embætti herforingjaráðsins. Lét
hann þess getið við þetta tæki-
færi, að herinn mundi ekki ætla
sér að fara með einræðisvöld „til
eilífðar".
★ ★
Það hefur borið til tíðinda, að
Nasser og Abboud hafa skipzt á
heillaóskum og láta þeir í ljósi
óskir um að sambúð ríkjanna
verði góð. Arabíska sambands-
lýðveldið varð fyrst til þess að
viðurkenna hina nýju stjórn
Súdan og fara egypzku blöðin lof
samlegum orðum um stjórnina
PARÍS, 19. nóv. — Josef
Strauss, varnarmálaráðherra V-
Þýzkalands, skýrði frá því í dag
á fundi þingmannasambands
Atlantshafsbandalagsríkjanna,
að V-Þjóðverjar mundu tvöfalda
herafla sinn fyrir árslok 1960.
Kvað hann 175 þús. menn nú
vera í V-þýzka hernum, en 1960
mundu þeir verða 350 þús. — í
kommúnistaherjum í A-Þýzka-
landi eru nú 727 þús. undir vopn-
um, bætti hann við.
Sagði Strauss, að efling V-
þýzka hersins mundi koma á jafn
vægi á hernaðarsviðinu í Þýzka-
landi, það væri öruggasta trygg-
ingin gegn kommúnískri árás —
í frásögu færandi
MIDDELBURG, S-Afríku, 19.
nóc. — Frú Sibanyoni ól í gær
þríbura. Þetta væri ekki í frá-
sögur færandi, ef hún hefði ekki
átt þríbura fyrir 9 árum og tví-
bura fyrir 11 árum. Hún er 38
ára gömul, gift afríkönskum bæj
arstarfsmanni hér. Frúin er því
orðin 8 barna móðir eftir að
hafa alið börn þrisvar.
— segja brezkir
togaraeigendur
KAUPMANNAHÖFN, 19. nóv. —
Einkaskeyti til Mbl. — Samtök
brezkra útgerðarmanna tilkynna,
að fiskveiðilandhelgisdeilan við
ísland hafi ekki valdið neinni afla
rýrnun brezkra togara þar í sept
ember og október. Segir enn-
að vera jafnsterkur Lagði hann
áherzlu á það, að uppbygging
Atlantshafsbandalagsins miðaði
nú vel að markinu — að vernd-
un friðarins. En ef til styrjaldar
kæmi, sagði Strauss, væri það
verkefni Dana og V-Þjóðverja
að gæta Rússa á Eystrasalti og
sjá um að hvorki ofan- né neðan-
sjávarskip kæmust þaðan út í
Atlantshaf né af hafi inn í
Eystrasalt.
París, 19. nóv.
ÞAÐ er haft fyrir satt, aS v-
þýzka stjórnin sé þess fýs-
andi að setja allan sjóher
sinn undir danska yfirstjórn
til þess að koma flota Atlants
hafsbandalagsins á þessu
svæði undir eina stjórn og
samhæfa hann.
Enn liggja ekki fyrir neinar
fremur að afli hafi farið minnk-
andi á flestum fiskimiðum
brezku togaranna síðustu tvö árin
og sé ástæðan einhverjar lífeðlis
fræðilegar breytingar í sjónum.
Fiskimiðin við ísland séu eina
undantekningin hvað þetta
snertir.
Enda þótt afli togaranna hafi
ekki minnkað enn sem komið er
— þá er ekki útséð um það
hvernig fer þegar vetrar og veð-
ur spillast jafnframt því, sem tog-
ararnir verði alltaf að verjast ís-
lenzkum varðbátum.
Geislavirkni
BRISBANE, 19. nóv. — Brezkur
vísindamaður lét svo um mælt í
dag, að eftir 50—60 ár mundi
geislavirkni andrúmsloftsins
verða orðin lífinu á jörðinni
hættuleg. Þá mundi aðalorku-
gjafi mannky.is vera orðinn
kjarnorka.
ákveðnar tillögur í þessu efni,
en gert er ráð fyrir að þær verði
brátt birtar. Mál þetta hefur bor-
ið á góma á fundum þingmanna-
sambands Atlantshafsbandalags-
ríkjanna og sat hermálanefnd
fundarins á rökstólunum í dag.
Skilaði hún áliti sínu, sem lagt
verður fyrir sameiginlegan fund
— og sennilega fjallað um það á
föstudaginn.
Talið er, að í alitinu hafi m. a.
setri de Gaulles 14. september
sl. Ekki hefur ueitt verið látið
uppi um dagskrá fundarins, en
hins vegar sagt, að viðskipti og
sameiginlegir hagsmunir beggja
landanna, svo og samstarf Vest-
urveldanna mundi fyrst og
fremst rætt. Fullvíst má og telja,
að leiðtogarnir ræði hið ískyggi-
lega ástand í friverzlunarmálun-
um. A. m. k. lét taismaður
Kristilega demókrataflokksins,
flokks Adenauers, svo um mælt,
þegar vitnaðist um fundinn, að
vonandi mundi fundurinn leiða
til betri horfa hvað stofnun fri-
verzlunarsvæðis viðkæmi. Ekk-
ert hefur enn verið látið uppi um
fundarstaðinn.
Hættaáferðum,
NEW YORK, 19. nóv. — Brezkl
aðstoðarutanríkisráðherrann, All
an Noble, lét svo um mælt í dag,
að Bretar hefðu ekki gefizt upp
á því að koma á fríverzlunar-
svæði í V-Evrópu. Sagði hann,
að ástæðulaust væri að óttast,
að fríverzlunin rækist á fyrir-
hugað markaðsbandalag ríkjanna
sex, en hætta væri á því, að mark
aðsbandalagið einangraðist frá
öðrum Evrópuríkjum vestan járn
tjalds, ef ekkert yrði að gert —
og slíkt mundi einungis gagna
kommúnistum, en stofna efna-
hagslifi V-Evrópu í bráðan voða.
verið hvatt til þess að efla her-
aflann við Eystrasalt, búa hann
betri vopnum, eldflaugum, með
tilliti til árásarhættunnar frá
kafbátum Rússa, sem nú hefðu
margir eldflaugar. Þá mun og
lögð áherzla á nauðsyn þess að
koma upp sameiginlegum fasta-
her bandalagsins, sem jafnan sé
tiltækur til þess að senda þáng-
að sem ástandið þykir ískyggi-
legt. Þessi her eigi að hafa hin
fullkomnustu vopn nútímans
undir höndum.
Jafnframt mun lagt til, að kaup
skipafloti bandalagsríkjanna
verði undir eftirliti einnar yfir-
stjórhar.
V-þýzki herinn tvöfald-
aður
Þýzki sjóherinn undir danska stjórn
Lagt til, að sameigmlegur fastaher
NATO verði stofnaður.
>