Morgunblaðið - 20.11.1958, Síða 3

Morgunblaðið - 20.11.1958, Síða 3
Fimmtudagur 20. nóv. 195b M O R C V N B L 4 Ð 1 Ð 3 Viðskiptamálaráðherra neitar að skýra frá ferðum Vilhjálms Þórs Enn allf á huldu um lántökurnar A FUNDI sameinaðs þings í gær og hverrar skoðunar hver ein- var haldið áfram umræðum um fyrirspurn Magnúsar Jónssonar til ríkisstjórnarinnar um togara- kaup. Bjarni Benediktsson tók fyrst- ur til máls og sagði: Ég hafði kvatt mér hljóðs, þeg- ar þetta mál var hér síðast til umræðu fyrir réttum hálfum mánuði, en þá þurfti að slíta fundi, áður heldur en ég fengi orðið. Nú er því sumt í gleymsku fallið, sem þá var um rætt, en> þó eru nokkur atriði, sem ég vildi víkja að. Hið fyrsta er það, að sjávar- útvegsmálaráðherra skýrði þá frá, að aðalbankastjóra Seðla- hankans hefði verið falið að afla lána til þessara togarakaupa og hann hefði unnið að málinu þá undanfarið. Sjávarútvegsmálaráð herra bætti því við, að ef málið leystist ekki á næstu dögum, yrði að grípa til annarra úrræða. Hvar er Vilhjálmur? Nú vildi ég af þessu tilefni og þar sem hálfur mánuður er lið- inn frá fyrri hluta umræðanna, spyrja ráðherra, 'hvort nokkuð hafi gerzt í málinu síðan. Fjórtán dagar eru þó nokkur tími og þar sem seðlabankastjórinn mun hafa verið að vinna að málinu allan þennan tíma, að því er manni skilst, þá verður að búast við því, að máiið liggi nú eitt- hvað ijósara fyrir en það gerði. Ég vildi því biðja ráðherrann um að svara því afdráttarlaust, hvort lausn sé nú fengin á mál- inu. í>á vildi ég spyrja ráðherrann hvar aðalbankastjóri Seðlabank- ans hafi leitað fyrir sér um þess- ar lántökur. Það var svo að skilja orð ráðherrans á dögunum eins og bankastjórinn hefði fyrst og fremst verið í Vestur-Þyzkalandi, en auk þess skauzt það upp úr honum, að nokkrar umleitanir hefðu átt sér stað bæði í Hollandi og Belgíu. Um hitt gat ráðherrann ekki, að seðlabankastjórinn var ein- mitt, þegar hann gaf skýrslu sína, staddur í Bandaríkjunum og hafði farið pangað þeirra er- inda að leita ásjár utanríkisráð- herra Bandaríkjanna um enn nýja lánveitingu til íslands. Nú vildi ég spyrja hæstvirtan ráðherra: Hefur verið leitað eft- ir þessu láni á öllum þessum stöðum og e. t. v. fleiri stöðum á undanförnum vikum? Hvað víða hefur seðlabanka- stjórinn farið í lántökuerindum frá því, að hann hvarf fyrir all- mörgum vikum síðast brott frá íslandi? Hversu lengi hefur hann dval- izt i hverju landi og hvar er hann nú niður kominn? „Tlltekna landið" Þetta skiptir allt máli, til þess að átta sig á því, sem hér er um að ræða. Og þá vildi ég einnig spyrja ráðherrann: Hver eru þau önnur úrræði, sem hann telur, að komi til greina, ef málaleitanir aðalbanka stjórans takast ekki? Ráðherrann gat þess, að í „til- teknu landi“, sem hann nefndi ekki, væru einhverjir möguleik- ar til lántöku. Ég vildi spyrja ráðherrann: Hvert er það tiltekna land, sem ekki mátti nefna við síðustu um- ræðu, og eru þær ástæður, sem þá voru þess valdandi, að ráð- herrann tók til orða á svo dular- fullan hátt, nú fallnar niður? Hann gat þess einnig þá, að innan ríkisstjórnarinnar væri litið ólíkum augum á, hvar lán skyldi taka og nvar hagkvæmast væri að taka lánið. Ég tel nauð- synlegt, að hæstvirtur ráðherra skýri afdráttarlaust, í hverju þe^ai skoðanamunur er fólginn stakur ráðherra er, ekki sízt vegna þess, að ráðherrann beindi því til okkar Sjálfstæðis- manna, hvort við myndum verða með lántöku í þessu „tiltekna landi“, ef alger samstaða fengist um það. En samstaða milli hverra? Fyrst þarf ríkisstjórnin að gera upp sinn hug og skýra Al- þingi frá því, hvað þarna er á ferðum. Alþingi á að fá vitneskju um, hvert landið er og með hvaða kjörum hægt er að fá lán- ið, áður en hægt er að ætlast til þess, að alþingismenn svari því, hvort þeir geti haft „algera sam- stöðu“ við einhverja aðra. Ríkisstjórnin getur ekki vænzt „algerrar samstöðu" þingheims, meðan það eitt er vitað um afstöðu sjálfrar rík'isstjórnarinn- ar í málinu, að hún kunni að geta fengið eitthvert lán í ein- hverju „tilteknu landi“, sem ekki er nefnt, og það eitt er sagt um stefnu stjórnarinnar í mál- inu, að hún líti ólíkum augum á, hvar eigi að taka lánið og hvar hagkvæmast sé að taka það. öll þessi atriði er nauðsynlegt að fá upplýst til þess, að menn geti gert sér grein fyrir þeim atriðum, sem hér er um að ræða, og ég efast ekki um, að svo skilríkur maður sem sjávar- útvegsmálaráðherra er, hafi af því mikla ánægju að svara af- dráttarlaust þeim spurningum, sem ég hef hér borið fram. Ekki hægt að segja Lúðvík Jósefsson, sjávarút- vegsmálaráðherra varð fyrir svörum af hálfu ríkisstjórnarinn- ar. Kvaðst hann í fyrirspurnar- tíma fyrir hálfum mánuði hafa vikið að því, að það væri ein- kennilegur háttur hjá Sjálfstæð- ismönnum, að bera fram einstak- ar fyrirspurnir og spyrja svo og spyrja um óskyld efni í þeim umræðutíma, sem fyrirspurnun- um væri ætlaður. Nú síðast hefði 1. þm. Reykvíkinga spurt hvar aðalbankastjóri Seðlabankans hefði verið upp á síðkastið og hvar hann væri nú niðurkominn. Sæu allir, að ekki væri hægt að svara slíku. Kvað Lúðvík það ekki sitt, að svara því, hvar að- albankastjórinn væri niðurkom- inn, né hvað hann væri að gera. Hins vegar sagði hann það rétt, að aðalbankastjóri Seðlabankans hefði unnið að umræddum lán- útvegunum á vegum ríkisstjórn- arinnar, fyrst og fremst í Vestur- Þýzkalandi. Þá sagði hann, að það væri fullkominn misskilning- ur, að hann hefði rætt um það á dularfullan hátt, hvar hægt væri að fá lán. Hann hefði sagt, að ríkisstjórnin hefði tekið lán til minni skipanna tólf í Sovét- ríkjunum. Þegar smíði þeirra væri lokið væri hægt að fá tog- arana smíðaða í Austur-Þýzka- landi og hægt að fá lán í Sovét- ríkjunum með sömu kjörum og lánið til minni skipanna. Hann sagðist ennfremur hafa sagt, að ef ekki tækist að fá lán þar sem nú væri unnið að lánsútvegun, þá teldi hann rétt að taka lán í Sovétríkjunum og fá togarana smíðaða í Austur-Þýzkalandi. Hann kvaðst hafa spurt að því, hvort fulltrúar Sjálfstæðisflokks ins vildu styðja það, að tekið væri lán í Sovétríkjunum, en 1. þm. Reykvíkinga hefði ekki svar að því. Kvaðst Lúðvík að lokum vilja beina þeirri fyrirspurn til Bjarna Benediktssonar, hvort hann og flokkur hans vildu styðja þá leið, að tekið væri lán í Sovét j-íkjunum, en að öðru leyti kvaðst hann ekki sjá ástæðu til að elt- ast við spurningalista hv. þing- manns. Ný gerð togara Ásgeir Sigurðsson tók næstur til máls. Fór hann fyrst nokkrum orðum um nauðsyn þess, að end- urnýja togaraflotann, en beindi síðan nokkrum fyrirspurnum til sjávarútvegsmálaráðherra. í fyrsta lagi spurði hann, hvort nefnd sú, er skyldi vera ríkis- stjórninni til aðstoðar, væri enn að störfum. Þá spurði hann um stærð og gerð hinna nýju togara og hversu mikill stærðarmunur yrði á þeim og litlu skipunum, og hvort þeir gengju fyrir diesel- vélum eða brenndu lítt hreins- aðri olíu. Þá vék ræðumaður að nýrri gerð togara, sem íslenzkir fiski menn hefðu veitt athygli að komn ir væru á miðin. Væri það svo- kallaðir skuttogarar, en þar er varpan tekin inn um skut skips ins, en ekki á hliðinni eins ög tíðkast á eldri togurum. Sagði Ásgeir, að Sovétríkin væru kom in með slíka togara, en einnig Bretar og Þjóðverjar. Þarna mundi um að ræða skip framtíð- arinnar. Gat hann þess, að ís lenzkur maður hefði um nokkurt skeið starfað um borð í einum slíkum togara. Reynsla sú, er af þeim hefði fengizt, mundi talinn mjög góð, Spurði Ásgeir að lok- um, hvort nokkur hinna nýju togara yrði skuttogari. Þá varpaði Ásgeir Sigurðsson einnig fram þeirri fyrirspurn, hvort nokkuð hefði verið hugs- að fyrir því, að eitt hinna fimm- tán skipa yrði útbúið sem fiski leitarskip. Óvissa um rússneska lánið Bjarni Benediktsson kvað það leitt, að Lúðvík Jósefsson skyldi ekki treysta sér til að skýra frá ferðalagi aðalbankastjóra Seðla- bankans. Hann hefði talið spurn- inguna fráleita, en áður hefði hann sjálfur skýrt svo frá, að bankastjórinn ynni að lánsút- vegun á vegum ríkisstjórnarinn- ar. Þingheimi væri full nauð- syn að vita, hvar hann væri að lánaleitinni og hvernig hún gengi. Þá vék Bjarni Benediktsson að fyrirspurn Lúðvíks Jósefssonar til Sjálfstæðismanna. Kvað hann ekki hægt að taka afstöðu til þess máls, nema vitað væri að öðru leyti, hvað hefði gerzt í málinu. Hvaða leiðir hefðu verið reyndar til lánsútvegunar og hvernig þær hefðu reynzt. Það væri ný vitn- eskja fyrir alþingismenn, ef lán væri fáanlegt í Rússlandi með þeim kjörum, sem ráðherrann segði. En það væri nauðsynlegt, að frekari gögn lægju fyrir áð- ur en hægt væri að taka afstöðu til þess. Varpaði Bjarni fram þeirri fyrirspurn til þeirra tveggja ráðherra, sem voru stadd- ir í þingsalnum (sjávarútvegs- málaráðherra og fjármálaráð- herra) hvort þeir vildu skýra nánar frá þessu rússneska láns- tilboði. Alþingi ætti heimting á að fá um það fullkomna skýrslu. Fyrr væri ekki hægt að taka af- stöðu til þess. Mjög lærdómsríkt væri og að heyra, hvort ráðherr- unum tveim kæmi saman í skýrslugjöf sinni. Fyrst eftir að slík skýrsla væri gefin, yrði hægt að dæma um, hvort réttar ástæð- ur eða fordómar hefðu ráðið því, að ríkisstjórnin hefði hingað til ekki viljað taka rússneskt lán þessu skyni. # Að lokum wiinntist Bjarni á nauðsyn þess, að þingmönnum væri skýrt frá því, hvernig skip- in ættu að vera, eins og fram hefði komið í fyrirspurn 2. þm. Reykvíkinga. Einnig væri nauð- synlegt, að reynsla fengizt fyrir því hvernig þau skip væru, sem smíðuð hafa verið í Austur- Þýzkalandi áður en ákvörðun yrði tekin um meiri skipasmíðar í sömú stöðvum, og þar með lán- tökur, sem bundnar væru við skipasmíði þar. Ekki vegna fordóma Lúðvík Jósefsson sagði, að við hefðum þegar fengið reynslu af skipasmíðastöðinni í Austur- Þýzkalandi, við höfum fengið þaðan báta, sem hefðu reynzt mjög vel. Hann sagði að það væri ekki vegna fordóma, sem lánið hefði ekki þegar verið tekið í Sovétríkjunum, en það væri sín skoðun að taka bæri þetta lán og fá togarana smíðaða í Austur- Þýzkalandi, þegar smíði minni skipanna 12 væri lokið, ef pening arnir fengjust ekki annarsstaðar. Þá vék Lúðvík að fyrirspurn- um Ásgeirs Sigurðssonar. Kvað hann nefndina enn starfandi rík- isstjórninni til ráðuneytis. Skip- in yrðu milli 800 og 900 smálest- ir að stærð og botnvarpan tekin inn á hliðinni. Þetta yrðu diesel- togarar. Skuttogarar væru enn að verulegu leyti á tilraunastigi og hefðu togaraskipstjórar, sem kvaddir voru til ráðuneytis um þetta mál, lagt gegn því að þeir yrðu keyptir. Meðal þessara skip stjóra hefði verið hinn kunni afla maður Sæmundur Auðunsson. Að lokum skýrði Lúðvík svo frá, að fyrir nokkru hefði verið haf- in undirbúningur að því, að smíð- að yrði sérstakt fiskileitar- og fiskirannsóknarskip. Væri þeim undirbúningi langt komið. Ásgeir Sigurðsson þakkaði fyr- ir svörin. Kvað hann ánægjulegt að nefndin væri enn starfandi, því þá gæti hún skipt um skoð- un, en það væri alkunna að menn væru oft seinir til að aðhyllast nýjungar. Þá fór hann nokkrum orðum um, hve aðbúnaður á skut togurunum væri miklu mun betri en á eldri gerð togara. Á skuttogurum væru sjómennirnir í vari við að draga-inn vörpuna en eins og allir v'issu' sem til þekktu væri það mikið kulda- verk á venjulegum botnvörpung um og sjálfur hefði hann í æsku séð sjómenn missa fingur við það starf. 8T4KS1EIHAR til Morgunblaðsins Reykjavík, 18. 11. 1958. Hr. ritstjóri! AÐ gefnu tilefm bið ég yður að birta eftirfarandi: Faðir minn, Stefán B. Jóns- son, kaupmaður, kom hingað til lands, eftir 12 ára dvöl í Kanada, árið 1899, og hafði þá með sér mörg umboð fyrir alls konar vör- ur frá Kanada og Bandaríkjun- um, og hóf hann þegar sölu á þeim. Má þar nefna fyrstu hringprjónavélar, sem hingað fluttust (,,Dundas“), skilvindur (Alexandra), Patent-strokka, vagna, skerpivélar, kvarnir, girð ingavír, svo að eitthvað sé nefnt og ótal margt ar.nað, sem hann seldi til einstaklinga, félaga og kaupmanna um allt landið. Sam- anber t. d. verðlista prentaðan í tímaritinu „Hlín“ (sem hann gaf út 1901—5), nr. 1, 1. ár, 1. okt. 1901 (útg. í Rvík), bls. 71—80. Stundaði hann og rak umboðs- og heildverzlun undir sínu nafni stöðugt frá árinu 1899 til dauða- dags 1928 og lengst af hér í Reykjavík, með fullum réttind- um sem slíkur. Samkvæmt upplýsingum, er ég var að fá frá skrifstofu borgar- fógetans í Reykjavík, hefur Stefán B. Jónsson fengið borgara bréf hér hinn 18. júní 1901 (sem þá voru hin einu verzlunarleyfi, sem hér voru veitt og tóku til réttinda til allrar verzlunar, þ. e. smásölu sem heildsölu). Hins vegar mun faðir minn ekki hafa látið skrá firma sitt þá á firmaskrá þá, sem byrjað var á árið 1904, þar eð þess gerð- ist ekki þörf, samkvæmt lögum, þar sem um einstaklingsrekstur var að ræða. Virðingarfyllst, Þóra Marta Stefánsdóttir. Skorinorð áljktun um kjctrdæmamálið Alþýðuflokksfélag Reykjavík- ur hélt fund um kjördæmamálið í fyrrakvöld. Var þar samþykkt með samhljóða atkvæðum all skorinorð ályktun um málið. — Segir í henni á þessa leið: „Fundur haldinn í Alþýðuflokks* félagi Reykjavíkur þriðjudaginn 18. nóvember 1958 skorar á full- trúa félagsins á næsta flokks- þingi að beita sér fyrir því og fylgja fast eftir, að þar verði mótuð skýr og ótvíræð stefna flokksins varðandi breytingar í kjördæmaskipun landsins, með það fyrir augum, að sem mest- ur jöfnuður fáist um rétt is- lenzkra kjósenda til áhrifa á gang þjóðmála, og að sem fyllst- ur jöfnuður riki um þingmanna- tölu stjórnarflokkanna, miðað við atkvæðamagn þeirra. Sér- staklega bendir fundurinn á þá leiff að fækka kjördæmum og við hafa í þeim hiutfallskosniagar, ásamt nauðsynlegum uppbótar- sætum til jöfnunar. Jafnframt ályktar fundurinn að skora á þingmenn flokksins að kanna nú þegar möguleika fyrir samstöðu meiri hluta Alþingis á nauðsynlegum breytingum, til þess að ná fyrrgreindu marki“. Veltur á „festu“ for- ystunnar Þessi skorinorða ályktun Al- þýðuflokksfélags Reykjavíkur hlýtur aff vekja ánægju allra þeirra, sem vilja í einlægni beita sér fyrir heilbrigffri og réttlátri kjördæmaskipun í landinu. En eftir er nú að vita, hvernig for- ysta Alþýðuflokksmanna reynist í málinu. Mikið veltur á því að þeir komi fram af þeirri „festu“, sem flokksmenn þeirra í Reykja- vík ræða um í ályktun sinni. Blað kommúnista hefur einnig undanfarið rætt mikið um nauð- syn nýrrar og réttlátrar kjör- dæmaskipunar. Er vel farið að tveir núverandi stjórnarflokka skuli nú hafa fengiff slíkan á- huga fyrir breyttri kjördæma- skipun. Vonandi eru yfirlýsingar blaða þeirra ekki yfirborðshjal í þeim tilgangi einum að hræða Framsókn gömlu, sem alltaf fær sting i hjartastað þegar minnst 1 er á réttlæti í þessum málum. Afstaða Sjálfstæðisflokksins í kjördæmamálinu er ákveðin og hiklaus. Hann er hvenær sem er reiðubúinn til þess að ganga til samkomulags um réttláta og heið arlega kjördæmaskipun, sem trygffi grundvöll íslenzks lýð- ræðis og þingræffis. Á Sjálfstæð- ismönnum hefur aldrei staffiff í baráttunni fyrir þessu réttlætis- máli. 1. desember nálgast Hinn 1. desember nálgast. f dag er 20. nóvember. En ekkert liggur ennþá fyrir um úrræði vinstri stjórnarinnar í efnahags- málunum. Hinn 1 .des. hækkar kaupgjaldsvisitalan um 17 stig. Framsókn hefur ýmist haft uppi ráðagerðir um að fella þessa hækkun niffur með nýjum laga- boffurn eða að afla tekna til auk- inna niðurgreiðslna með nýjum og stórfelldum sköttum. Affrar leiffir eygir Eysteinn ekki. Um þær hefur hann verið að semja á víxl við Hanmibal og Gylfa. En báðir eru hræddir, dauð- hræddir en vilja þó allt til vinna til þess aff geta lafaff áfram i ríkisstjórn. Annan daginn vilja þeir fallast á nýja skatta, hinn daginn á niðurskurð vísitölunn- ar. Og timinn líður. Alþingi sit- ur, Alþýðusambandsþing nálg- ast — og vinstri stjórnin veit ekki sitt rjúkandi ráð!!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.