Morgunblaðið - 20.11.1958, Síða 13
Fimmtudagur 20. nóv. 1958
MORCl’NfíLAÐlÐ
13
Aðalheiður
Minning
ÞÓ nokkuð sé umliðið síðan að
Aðalheiður, vinkona mín, and-
aðist, langar mig til að gjalda
henni skuld mína, þó seint sé, og
minnast hennar að nokkru, þar
eð ég hef ekki séð það neins
staðar gert.
Hún var af góðu bergi brotin.
Foreldrar hennar voru Gísli Páls-
son prests í Víðivík og seinni
kona nans Margrét Einarsdóttir.
Var hún náskyld séra Bjarna
Jónssyni vígslubiskupi. Það stóðu
því að henni ágætar ættir.
Kornung gekk Aðalheiður í
kvennaskóla Akúteyrar og út-
skrifaðist þaðan með hárri eink-
unn.
Leiðir okkar Aðalheiðar lágu
sama árið til Kaupmannahafnar
í sama skóla. Ég kynntist fljót-
lega lyndiseikunnum hennar,
hún fór ekki dult með þær. Hún
var hrein og bein og föst fyrir,
þegar því var að skipta, þar var
enginn flysjungsháttur á ferðinni.
Císladóttir
Hún var falleg og gáfuleg stúlka,
greiðvikin og mátti ekkert aumt
sjá.
Eitthvað um tveim árum síðar
fór hún heim til Fáskrúðsfjarðar
og varð þar símastöðvarstjóri.
Nokkrum árum seinna, þegar
ég kom til Reykjavíkur, var Að-
alheiður ásamt móður sinni kom-
in til Hafnarfjarðar. Áttu þær
þar lítið og snoturt hús, var Að-
alheiður þá verzlunarstjóri fyrir
útbúi Braunsverzlunarinnar þar.
Þegar verzlunin hætti, fluttust
þær mæðgur til Reykjavíkur.
Stofnaði Aðalheiður verzlunina
„Valhöll" á Hverfisgötu með að-
stoð bróður síns, Páls Gíslasonar
í Kaupangi, hins kunna ágætis-
manns. Nokkru seinna keypti
Aðalheiður húsið nr. 8, við Loka-
stíg og bjuggu þær mægður þar
til dauðadags. Margrét andaðist
fáum árum á undan Aðalheiði, þá
tæplega 101 árs að aldri Var
Margrét sérlega heilsugóð fram
á síðasta árið, hafði næstum ó-
skerta sjón og heyrn, var fróð og
stálminnug. Annaðist Aðalheiður
hana í banalegunni með kost-
gæfni og dótturlegri umhyggju.
Sjálf gekk Aðalheiður ekki
heil til skógar. Frá unga aldri
gekk hún með ólæknandi sjúk-
dóm, skjaldkirtilssjúkdóm, sem
ágerðist með árunum, og var hún
ekki orðin annað en skugginn af
sjálfri sér. Hafði hún tvívegis
verið. skorin upp af frænda sín-
um, Mattíasi Einarssyni lækni.
En nokkrum dögum áður en hún
lézt, datt hún á hálku og brotnaði
illa, og varð það til að binda enda
á líf hennar. Líkamskraftarnir
megnuðu ekki að standa það af
sér.
Aðalheiður var ágætlega gefin
til munns og handa. Hún hafði
Cott húspláss
vantar fyrir skóvinnustofu. Tilboð send-
ist Mbl. merkt: „33 — 7314“ fyrir
laugardag.
Til sölu eða í skiptum
5 herb. íbúð í
Laugarneshverfi
íbúðin er múrhúðuð utan og inna. Eldhúsinnrétt-
ing og hreinlætistæki komin svo og málning að
nokkru. Stærð 138 ferm. Sér hitalögn. Hagstæð lán
geta fylgt. Skipti á 3ja til 5 herb. íbúð væru æskileg.
Forskalað timburhús kæmi til greina.
Málflutningsstofa
Ingj Ingimundarsson hdl.,
Vonarstræti 4, II. hæð, sími 24753.
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 5 — Laugaveg 89.
yndi af Ijóðum og margs konar
fróðleik og hafði mikla kimni-
gáfu, en allt var það græskulaust.
Hún var mikil sjálfstæðiskona,
og hygg ég, að ef heilsan hefði
leyft, myndi hún hafa staðið
framarlega í flokki þeirra
kvenna, sem börðust fyrir sjálf-
stæði landsins og jafnrétti kynj-
anna, því hún var vel máli farin,
og allt íslenzkt þótti henni bezt.
Hún var ævinlega glöð og hress
og æðraðist ekki yfir heilsuleysi
sínu eða öðrum eriiðleikum.
Með þessum orðum vil ég
þakka Aðalheiði fyrir órofa-
tryggð við mig og mitt heimili.
Svo bið ég guð að blessa hana.
Helga Þ. Smári.
4-5 herb. íbúð
ásamt húsgögnum óskast til leigu yfiir
tveggja mánaða tímabil frá 1. desember.
Góð leiga. — Upplýsingar í Norska
Sendiráðinu, sími: 13065-
Hér er frásögnin hressileg, lýsingar skorinorðar, kryddið ómengað!
„S/Ö 5KIP
og sín ögnin af hverju”
eftir SIGURÐ HARALS
Frásögn af ferðum Sigurðar með sjö skipum
um öll heimsins höf, til Asíu, Afríku, Ameríku,
Ástralíu og víða um Evrópu.
ék S, ák
Það er sjómaður sem segir frá á sjómannavísu
4^^ 4^
Áður hafa komið út eftir Sigurð þessar bækur: „Lazzarónar" (1932) „Emigrant- ar“ (1934) og „Nú er hann Tréfót- ur dauður" (1942). r- N Ý BÓK FRÁ ÍSAFOLD
t '■ — J