Morgunblaðið - 20.11.1958, Síða 18
18
MORCVTSBl AÐIÐ
Fimmtudagur 20. nðv. 1958
Samhandsráb /. S. /. á fundi
Frœgasti gítarleikari
heims heldur hér hljóm
leika
FUNDUR var haldinn í sam-
bandsráði ÍSÍ 14. og 15. nóv.
1958 í húsakynnum ÍSÍ, Grund-
arstíg 2A, Reykjavík.
Fundinn setti og stjórnaði for-
seti ÍSÍ, Ben. G. Waage, erf fund-
arritari var Hannes Þ. Sigurðs-
son, fundarritari ÍSÍ.
í upphafi fundarins minntist
forséti ÍSÍ nokkurra forvígis-
manna og velunnara íþrótta-
hreyfingarinnar er látist hafa frá
því að síðasti sambandsráðfund-
ur var haldinn, þ. e.:
Sighvats Sighvatssonar, for-
stjóra, er lézt 3. júlí sl.
Dr. Helga Tómassonar, skáta-
höfðingja, er lézt 24. júlí sl.
Sigurjóns Danivalssonar, for-
stjóra, er lézt 15. ágúst sl.
Erlendar Ó. Péturssonar, for- j
stjóra, formanns KR, er lézt 25.
ágúst sl.
Guðmundar H. Þorlákssonar,
húsameistara, er lézt 31. ágúst sl.
Torgeirs Andersen Ryst, sendi-
herra Norðmanna, er lézt 8.
sept. sl.
Fyrrv. forsetafrú Georgíu
Björnsson, er lézt 18. sept. sl.
Óskars Þórðarsonar, fyrrver-
andi íþróttalæknis, er lézt 24.
sept. sl.
Ólafs JohnsonS, stórkaup-
manns, er lézt 9. nóv. sl.
Að minningarorðum loknum
risu fundarmenn úr sætum sín-
um og heiðruðu minningu hinna
látnu vina og samherja.
Á fundinum voru fluttar
skýrslur framkvæmdastjórnar
ÍSÍ og sérsambandanna 6 (FRÍ,
GSf, HSÍ, KSÍ, SKÍ og SSÍ) og
þar voru tekin fyrir mörg mál.
Helztu gjörðir fundarins voru
þessar:
Skipting á Vá skatttekna ÍSf
milli sérsambandanna
Samþykkt var eftirfarandi til-
laga:
„Knattspyrnusamband fslands
kr. 2,000,00; Frjálsíþróttasam-
band fslands kr. 5,000,00; Skíða-
samband íslands kr. 2,800,00;
Sundsamband íslands kr. 2,300,-
00; Handknattleikssamband ís-
lands kr. 2,900,00 og Golfsam-
band fslands kr. 2,000,00.
Samtals kr. 17,000,00.
Nái % hluti skatttekjanna ekki
kr. 17,000,00 lækka framan-
greindir styrkir í sama hlutfalli".
Tilnefning ÍSf í íþróttanefnd
ríkisins
fiefndar lýkur í byrjun marz nk.
Starfstímabili núverandi íþrótta
1959. Var samþykkt að tilnefna
sem fulltrúa ÍSÍ í íþróttanefnd-
ina Gísla Ólafsson, ritara ÍSÍ, og
til vara Stefán Runólfsson, gjald-
kera ÍSÍ.
Starfstími nefndarinnar er 3
ár.
Staðfesting breytinga
á lögum SKÍ
Lagðar voru fyrir fundinn
nokkrar breytingar sem skíða-
þing hafði gert á lögum skíða-
sambandsins og voru þær sam-
þykktar.
Aðild ÍSÍ að Æskulýðsráði
íslands
Mikið var rætt um aðild ÍSÍ
að Æskulýðsráði fslands og að
umræðum loknum var eftirfar-
andi samþykkt:
„19. fundur sambandsráðs ÍSÍ
samþykkir aðild ÍSÍ að Æskulýðs
ráði íslands“.
Landhelgismálið
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt í því máli:
„19. fundur sambandsráðs ÍSÍ
tekur undir samþykkt fram-
kvæmdastjórnar ÍSÍ í landhelgis-
málinu og fagnar stækkun hinn-
ar islenzku fiskveiðilögsögu í 12
sjómílur um leið og sambands-
ráð fordæmir framkomu og of-
beldi Breta.
Jafnframt ályktar sambands-
ráð að íþróttaleg samskipti við
Breta séu ekki æskileg fyrr en
þeir hafi látið af ofbeldisverk-
um sínum gagnvart íslending-
um“.
fþróttakennaraskóli íslands
að Laugarvatni
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt:
„Fundur sambandsráðs ÍSÍ,
haldinn 15. nóv. 1958, samþykk-
ir að veita skólastjóra og skóla-
nefnd íþróttakennaraskóla fs-
lands, alla þá aðstoð sem ÍSÍ er
unnt að veita til þess að skólinn
megi eflast og í því sambandi
leyfir fundurinn sér að skora á
Alþingi það er nú situr, að veita
íþróttakennaraskóla fslands á
fjárlögum 1959, allt að kr. 300,-
000,00 til þess að reisa heima-
vistarhús".
★
Að lokum þakkaði forseti ÍSÍ
fundarmönnum fyrir komuna á
fundinn og störfin þar, óskaði
hann utanbæjarmönnum góðrar
heimferðar og sleit síðan fundi.
Á þessum 19. fundi sambands-
ráðs ÍSÍ mættu eftirtaldir menn:
Ur framkvæmdastjórn ÍSÍ: Ben.
G. Waage, Guðjón Einarsson,
Hannes Þ. Sigurðsson, Stefán
Runólfsson, Gísli . Ólafsson,
Gunnlaugur J. Briem, Axel Jóns-
son. Fulltrúi Vestfirðingafjórð-
ungs: Óðinn Geirdal, Akranesi.
Fulltrúi Norðlendingafjórðungs:
Einar Kristjánsson. Fulltrúi
Austfirðingafjórðungs: Þórarinn
Sveinsson, Eiðum. Fulltrúi Sunn-
lendingafjórðungs: Gísli Sigurðs-
son, Hafnarfirði. Fulltrúi Rvik-
ur: Jens Guðbjörnsson. Frá
Frjálsíþróttasambandi íslands:
Guðmundur Sigurjónsson og
Lárus Halldórsson. Frá Golfsam-
bandi fslands: Ólafur Gíslason.
Frá Handknattleikssambandi fs-
lands: Ásbjörn Sigurjónsson. Frá
Knattspyrnusambandi íslands:
Ragnar Lárusson. Frá Skíðasam-
bandi íslands: Hermann Stefáns-
son. Frá Sundsambandi fslands:
Ingvi Rafn Baldvinsson. Formað-
ur Ólympíunefndar íslands:
Bragi Kristjánsson. íþróttafull-
trúi ríkisins: Þorsteinn Einars-
son. Ritstjóri íþróttablaðsins:
Eysteinn Þorvaldsson, og fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ: Hermann
Guðmundsson.
Áður en sambandsráðsfundur
hófst fóru fulltrúar á fúndinum
til Bessastaða í boði forseta ís-
lands, hr. Ásgeirs Ásgeirssonar,
verndara ÍSÍ, og forsetafrúar,
Dóru Þórhallsdóttur.
Þar fengu fulltrúarnir alúðar-
viðtökur svo sem vænta mátti.
Aðstoð við Túnis?
TÚNIS, 19. nóv. — Haft er eftir
áreiðanlegum heimildum, að
undanfarna daga hafi bandarísk
skip flutt 2,300 lestir af hveiti
frá Bandaríkjunum til Túnis til
handa alsírskum flóttamönnum,
sem dveljast í Túnis.
Síðustu 7 mánuðina hafa
Bandaríkjamenn sent alsírskum
flóttamönnum í Túnis 8,000 lest-
ir af hveiti, 450 lestir af osti og
60 af þurrmjólk.
Burgiba, Túnisforseti ræddi í
daga við bandaríska sendimenn,
fulltrúa þeirrar stjórnardeildar í
Washington, -sem annast efna
hags- og tækniaðstoð við útlönd.
Hefur i 50 ár leikið
fyrir húsfylli víðs-
vegar um heim
í GÆRKVÖLDI hélt frægasti gí-
tarleikari heims, Andrés Segovia,
sína fyrstu hljómleika hér á landi.
Lék hann fyrir styrktarfélaga
Tónlistarfél. í Austurbæjarbíói. í
kvöld leikur listamaðurinn aftur
á vegum Tónlistarfélagsins og á
föstudaginn heldur hann hljóm-
leika fyrir almenning á sama
stað. Ekki getur orðið úr fleiri
hjómleikum að þessu sinni, þvi
hann fer af landi brott á laugar-
dagsmorgun.
I ár eru liðin 50 ár síðan Sego-
via lék í fyrsta skipti opinberlega,
þá 14 ára gamall. Þeir hljómleik-
ar voru í Granada á Spáni, ætt-
landi hans. Síðan hefur hann ferð
ast um og leikið í næstum öllum
löndum heims, hvárvetna við hús
fylli. Oft er aðsóknin svo mikil,
að forráðamenn hljómleikanna
freistast til að láta áheyrendur
sitja uppi á sviðinu. — Ég er
stundum eini maðurinn, sem
sæmilega fer um fyrir þrengsl-
um, sagði Segovia, þegar þetta
bar á góma í viðtali, sem hann
átti við fréttamenn í gær.
Á 2. hundrað hljómleikar á ári.
Andrés Sogovia er nú búsettur
í New York, og er hann vanur
að halda 45 hljómieika í Ameríku,
frá því fyrst í janúar og til maí-
loka ár hvert. En þá leggur hann
land undir fót, og áður en árið
er liðið, hefur hann venjulega
haldið 100—120 hljómleika víðs
vegar um heim. í vor fer hann
— Kvikmyndir
Framh. af hls. 9
nafninu sínu á þennan merkilega
seðil. — Þetta er allur minn leik-
listarferill, segir hún að lokum. —
Ég átti að vera með í myndinni,
sem Tyrone Power var að leika
í, þegar hann dó um daginn, en
myndatakan í Madrid dróst þang-
að til ég var að fara heim.
— Mundirðu vilja verða kvik-
myndaleikkona?
— Nei, ég hefi engan áhuga
fyrir því og sjálfsagt enga hæfi-
leika heldur. Ég held að það sé
ekkert sérlega skemmtilegt að
tönnlast á sömu setningunni
10—20 sinnum, með æpandi karla
allt í kringum sig. Leikararnir
áttu sannarlega ekki sjö dagana
sæla í Madrid. Það bogaði alltaf
af þeim svitinn. Annars fannst
mér reglulega gaman að þessu
ævintýri.
— Og hvað gerirðu núna, eftir
að þú ert hætt að vera kvik-
myndastjarna?
— Ég vinn hjá flugvélaafgreiðsl
unni á Keflavíkurflugvelli, er
„Ground stewardess“, eins og það
er kallað. Þú getur þýtt orðin
ef þú villt og kallað mig „jarð-
neska flugfreyju." Svo mikið er
víst, að ég verð að halda mig við
jörðina.
t. d. til Japan, Ástralíu, og Nýja
Sjálands. Hingað skrapp hann
frá Hamborg, en hann er á hljóm
leikaför um Þýzkaland um þessar
mundir. Var ísland eina landið í
Evrópu, sem hann hefur ekki
komið til með gítarinn sinn, en
hann sérstaklega smíðaður handa
honum í Miinchen árið 1936. —
Sogovia fór frá Spáni árið 1923,
til Parísar, og 10 árum síðar flutt
ist hann til Sviss. Þegar borgara-
styrjöldin skall á í heimalandi
hans, flutti hann til Uruguy í
Suður-Ameríku og 1943 til Bar da
ríkjanna. Hefur franskur blaða-
maður skrifað ævisögu hans, sem
þýdd hefur verið á mörg tungu-
mál.
Bach vantar aldrei á efnisskrána.
Á efnisskrá hljómleikanna í
Austurbæjarbíói eru m. a. fjögur
lög tileinkuð listamannmum, eft-
ir Torroba, Tansman, Castelnu-
ovo-Tedesco og Rodrico. Önnur
lög eru eftir Milan, Roncalli, Scar
latti, Granados og síðast en ekki
sízt Bach, sem aldrei vantar á
efnisskrána hjá Segovia. Lista-
maðurinn er mikill Bach-aðdá-
andi, segir að hann gnæfi yfir
alla aðra eins og Himalayafjöllin
yfir önnur fjöll.
Hljómleikar Segovia eru 10. tón
leikar Tónlistarfélagsins fyrir
styrktarfélaga á þessu ári. Ekki
er enn ákveðið hvenær næstu tón
leikar Tónlistarfélagsins verða,
en þá leikur Björn Ólafsson fiðlu-
leikari.
Ný bók eftir Björn
J. Blöndal
ÚT er komin ný bók, eftir skáld-
ið og bóndann Björn J. Blöndal.
Er þetta skáldsaga og nefnist-hún
„Örlaga þræðir". Hér er um að
ræða fyrstu skáldsögu Björns og
sagði hann í stuttu samtali við
Mbl., að hún gerðist í sveit. —
'Bókin er gefin út af Bókaútgáf-
unni Norðra. Hún er 227 blaðsíð-
ur.
Áður hafa komið út eftir Björn
J. Blöndal eftirtaldar bækur:
„Hamingjudagar" og „Að kvöldi
dags“, sem eru endurminningar
skáldsins. Báðar þessar bækur
vöktu mikla athygli, þegar þær
komu út og voru í hópi beztu
sölubóka. — 1953 gaf Björn út
bókina „Vinafundir", sem fjallar
Hjörn J. Blöndal
um átthagafræði og náttúrufræði,
enda er skáldið mikill náttúru-
skoðari og veiðimaður eins og sjá
má af næstu bók „Vatnamaður",
sem út kom fyrir tveimúr árum.
Bækur Björns J. Blöndals hafa
alltaf vakið athygli, þegar þær
hafa séð dagsins ljós og sérstak-
lega hefur hann fengið hrós fyrir
látlausan stíl og gott mál.
AKRANESI, 19. nóvember.—Tog
arinn Akurey kom í dag af Nýja
Fylkis-miðum með tæpar 300 lest
ir af karfa eftir 16 daga veiðiför.
Fengu þeir vonzkuveður vestur
um haf, en gott veður á miðunum
og á heimleiðinni. — O.