Morgunblaðið - 29.11.1958, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.11.1958, Blaðsíða 14
14 M o R c v v p ra n 1 Ð Laugardagur 29. nðv. 1958 Hendríkka Jóna Hend riksdóttir — Minning Övissa um stjórnarmynd- un í Finnlandi Stjórn Fagerholms situr þar til riý verður mynduð „Sælir eru dánir, þeir sem í Drottni deyja upp frá þessu. Já, segir Andinn, þeir skulu fá hvíld frá erfiði sínu, því að verk þeirra fylgja þeim“. I DAG er til grafar borin ein af mætustu konum Hafnarfjarðar, Hendrikka J. Hendriksdóttir. Henna, — en svo var hún oft- íst nefnd af frændum og vinum — var fædd í Hendriks-húsi (Strandgötu 17) Hafnarfirði, hinn 7. maí 1900 og var heimili hennar þar, unz hún h. 19. þ. m. var kvödd heim til Guðs. Fertug hafði hún verið að heiman eitt einasta sinn næturlangt; var ásamt móður sinni veðurteppt í Reykjavík. Faðir Hendrikku var Hendrik Jóhannesson Hansen, sonur Jó- hannesar Hansen kaupmanns á Básendum og Kristínar Jónsdótt- ur, systur Jóns skipstjóra frá Hraunprýði. En móðir hennar var Jónína Jónsdóttir, bróður- dóttir Kristínar frá Hraunprýði. Hendrik var mörg ár skipstjóri á hinni svonefndu skútuöld, og var hann bæði fengsæll og far- sæll í því starfi. Hendrikka bar það með sér að hún var af styrk- um stofni komin, enda var líf hennar og starf vafið ljóma feg- urstu kvenlegra dyggða. Hinn 26. desember 1922 giftist Hendrikka eftirlifandi manni sín- um, Ólafi Runólfssyni, kaup- manni og bónda, frá Fossi í Mýr- dal. Börn þeirra hjóna voru dæt- ur þrjár, og dó hin yngsta þeirra skömmu eftir fæðingu. Hinar tvær eru: Sigríður hjúkrunar- kona, gift Alfred Anderson iðn- aðarmanni, og Guðný, gift Dani- val Finnbogasyni bifvélavirkja. Hendrikka Jónína Hendriks- dóttir var væn kona og virðuleg húsmóðir, En það, sem oss nú þykir þó mest um vert er, að hún var sannkristinn kona. Hún trúði á Jesúm Krist, játaði sig vera sáluhólpna fyrir þá náð, sem henni var fyrirbúin í friðþægj- and dauða Krists og upprisu. Og þessi trú stóðst í lífi hennar hið mikla próf mótlætis og rauna, því þrátt fyrir þungbæran sjúk- dóm í full tólf ár, var hugur hennar og hjarta stöðugt í Guði. Hvort sem Hendrika dvaldist í sjúkrahúsinu eða á heimili sínu, var hún síauðug í verki Drottins. Hin frelsandi trú hennar bar stöðugt sýnilega ávexti í bæn og þakkargjörð. Guð gefi eiginmanni hennar, dætrum, barnabörnum og öðrum ættingjum og vinum náð til að líkja eftir trú hennar. Nú.hefir þú Hendrikka, fengið hvíld frá erfiði þínu, og vissulega munu verk þín fyrir trúna, er þú áttir, fylgja þér. Vér samfé^ lagssystkini þín í Heimatrúboði leikmanna, minnumst þín með virðingu og þakklæti. Megi það trúartraust og þolgæði, er þú sýndir vera oss hvatning til að hafa stöðugt vaxandi áhuga í lífi og starfi. Sigurður Vigfússon. GENF, 28. nðv. — Itússar lögSu í dag frarn tillögu á ráðstefnunni FjallaSi til'agan um eftirlitskerfi — og er samkv. fréttastofufregn- um endurtekning á fyrri tillögum Kússa. HELSINGFORS, 28. nóv. — Eins og nú standa sakir virðist hættan á langvarandi stjórnarkreppu í Finnlandi ekki yfirvofandi, því að Fagerholm og stjórn hans munu sennilega sitja að völdum þar til ný stjórn hefur verið mynduð, eða grundvöllur stjórn- arstarfsins lagfærður. Hófust við ræður stjórnarfolkkanna í dag og mun þeim verða haldið áfram eftir helgi. Fagerholm skýrði frá því í morgun, að hann mundi ekki biðj ast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt, nema Bændaflokkurinn tíl- kynnti sér formlega, að hann mundi hætta stuðn- ingi sínum við stjórnina og ráðherrar flokksins gengju úr henni. Af hálfu bændafl. var það upplýst, að heimild sú, er ráð- herrar hans hlutu frá flokknum í gær um að þeir mættu ganga úr stjórninni fæli ekki í sér, að þeir jrrðu að segja af sér. Var jafnframt kunngert, að Bænda- flokksmenn sæju því ekkert til fyrirstöðu, að ráðherar flokksins sætu í stjórn þar til viðræðum stjórnarflokkanna um framhalds stjórnarsamstarf lyki. Fagerholm lét hafa það eftir sér í dag, að stjórnarkreppa virt- ist ekki yfirvofandi. Bændaflokk urinn vildi greinilega reyna að styrkja stjórnina og halda áfram stjórnarsamstarfi áður en öll von yrði gefin upp. Síðari fregnir: Eftir fund í þing mannaflokki Bændaflokksins í kvöld var tilkynnt, að Bænda. flokksmenn væru þeirrar skoð- unar, að stjórn Fagerholms gæti ekki uppfyllt skyldur sínar. Við- unandi úrbót mundi ekki fást með skipulagsbreytingu, nauðsyn bæri til stofnunar nýrrar stjórnar. Nú er því með öllu óljóst, hvaða stefnu málin taka, en heyrzt hef- ur, að í ráði sé atf fara þá leið, að stjórnarandstaða sósíalista taki sæti Bændaflokksþingmanna í stjórninni. Vitað er, að mikið hefur verið rætt um þetta, en hingað til hefur stjómarandstað - an talið alla annmarka á slíkri lausn. ' • Vopn til Nýju Guineu HAAG, 28. nóv. — Hollendingar hafa nú ákveðið að flytja mikið magn nýtízku vopna til hollenzku Nýju Guineu vegna þess að Indó- nesía hefur fengið mikið af vopna sendingum frá Rússum að uindan- förnu. —■ „Kristilegt stúdentahlað44 MBL. hefur borizt „Kristilegt stúdentablað", 23, árg., en það kemur út 1. desember ár hvert. Af greinum í blaðinu má nefna: „Ef sáðland þarfnast sólar“ eftir M. R., „Kristin trú og þarfir þjóðféíagsins" eftir séra Jóhann Hannesson á Þingvöllum. „Ann- að hvort — eða“ eftir Þóri Guð- bergsson stud. theol., „Mennta- maðurinn og Biblían" eftir Bene- dikt Arnkelsson cand. theol., „Kristniboð" eftir Felix Ólafsson kristniboða, „Þrír Kínverjar" eftir Asbjörn Aavik á Formósu, „Hugvekja læknastúdents" eftir Reyni Valdimarsson stud. med. „Um afturhvarfið“ eftir Erling utnem, „Dwight Lyman Moody, prédikari af Guðs náð“, eftir Ólaf Ólafsson kristniboða, „Dvöl í landi Alpanna" eftir Frank Halldórsson stud. theol. Loks eru fréttir af starfi Kristilegs stúd- entafélags og ýmsir fróðleiksmol- ar. Blaðið er prýtt fjölda mynda og hið vandaðasta að öllum frá- gangi. Það er 29 lesmálssíður í stóru broti og kostar 10 krónur. . ’ Lesið meistaralega sagðar ævisögur hinna vígðu meistara. Lesið um LAUNHELGAR EGYTALANDS, MUSTERIÐ 1 DELFl, REGLUNA OG KENNINGAR HENNAR. VÍGÐIR HEISTARiVR H ijjj m ■■ ■ .iÉÍ si' Si .WMM EFTIR EDDVARD SCHURÉ Þessi stórmerka bók er áreiðanlega fær um að beina huga lesandans í hamingjuátt. Björn Magnússon prófessor þýddi bókina. Bókin er 436 blaðsíður. Verð kr. 198.00. BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR i H ■ i ■■ livi! M Síðasti dagur i Frakkar — Kápur — S kyrtur Ullarefni — Kápuefni — Skyrtuefni Vattfóður — Regnfatnaður og margi fleira Allt ú hálfvirði Laugaveg 22. Ingangur frá Klapparstíg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.