Morgunblaðið - 09.12.1958, Blaðsíða 2
2
MORCUNItLAÐlÐ
íriðjudagur 9. des. 1958
Það er gömul trú, að jólasveinarnir komi til byggða síðustu
dagana fyrir jót, dveljist þar um hátíðina, en tínist síðan heim-
leiðis einn á dag. Sá síðasti á þrettánda. Myndin að ofan, sem
er af sýningarglugga Flugfélags Islands í Kaupmannahöfn,
sýnir jólasveinana ásamt þeirra gömlu íslenzku nöfnum. Síðau
gluggasýning þessi hófst, hefur yngri kynslóðin, sem átt hefur
leið um Vesterbrogade, fjölmennt fyrir framan skrifstofu fé-
lagsins til þess að skoða þessa gluggasýningu, sem þykir mjög
skemmtileg.
Mokafli hjá Keflavíkur-
bátum í fyrradag
Saltab hefir verib í alls 74,64/ t.
Tveir stýrimemi
ljúka frosk-
mannaprófi
TVEIR stýrimenn í þjónustu
Landhelgisgæzlunnar luku svo-
nefndu froskmannsprófi uppi í
Hvalfirði sl. laugardag. Stýri-
menn þessir, Þröstur Sigtryggs-
son og Sveinbjörn Finnsson, hafa
notið kennslu Guðmundar Guð-
jónssonar, og það var hann sem
brautskráði þá sem fullgilda
„froskmenn". Prófraunin var
meðal annars í því fólgin, að
kafa niður á 30 metra dýpi. Fóru
„froskmennirnir“ með Sæbjörgu
upp í Hvalfjörð til þess að ljúka
þar lokaprófrauninni.
Á hverju varðskipi er nú einn
froskmannabúningur, en Land-
helgisgæzlan vill stefna að því að
hafa á að skipa nægum fjölda
„froskmanna“, svo að á hverju
skipi sé að minnsta kosti einn
maður sem fyrir sér kann í köf-
un og vinnubrögðum frosk-
manna.
Karl Blomkvist
og Rasmus
NORÐRI hefur sent frá sér bók-
ina Karl Blomkvist og Rasmus.
Það er bók jafnt fyrir drengi og
stúlkur og skemmtilag fyrir alla
„á aldrinum 9—90 ára“, eins og
útgefendur komast að orði.
Þarna segir frá sumarleyfi Ieik-
félaganna Kalla, Andra og Evu
Lottu, og margvíslegum ævintýr-
um þeirra. En hápunktur sögunn-
ar er þegar Karl ræðst í að reyna
að koma upp um barnaræningja
er rænt hafa Rasmusi litla.
KEFLAVÍK, 8. des. — f gær var
tunnur; Keflavík hf. 2460 tunn-
ur; Jökull og Gerðabátar 2311
tunnur; Söltun hf. 1705 tunnur
og Hraðfrystistöðin í Keflavík
872 tunnur.
Erfitt að fá menn í skipavinnu
Hér í Keflavík hefir mikið ann-
ríki verið við höfnina að undan-
förnu, þar sem allmikið hefir
verið um skipakomur hér. Er
erfitt að fá menn hér í skipa-
vinnu, þar sem allir vinnufærir
menn eru hlaðnir störfum. Hefir
hvað eftir annað orðið að gefa
unglingum í Gagnfræðaskólan-
um frí frá námi, svo að hægt sé
að afgreiða þau skip, sem hér
koma. Þá hefir orðið að fá verka
menn úr nágrenninu og þau skip,
sem hingað hafa komið frá
Reykjavík, hafa orðið að taka
með sér verkamenn þaðan, svo
að afgreiðsla geti gengið greið-
lega.
Höfnin hér er talin vera með
verri höfnum á landinu, enda
hefir lítið verið gert fyrir hana
í þá átt að bæta úr því neyðar-
ástandi, sem hér hefir ríkt um
lenfri tíma. Um fáar hafnir munu
samt fara eins geysimikil verð-
mæti og um Keflavíkurhöfn. Má
t.d. nefna, að frá áramótum til
nóvemberloka hafa verið settar
hér á land 25,400 lestir af fiski.
Aðeins í nóvembermánuði sl. bár
ust hér á land 2200 lestir fiskjar
og mest af því síld.
Pækurnar um Karl Blomkvist
eftir Astrid Lindgren hafa víða
furið sigurför.
r
Agæt reknetja-
veiði um helgina
HAFNARFIRÐI: — Um helgina
lögðu flestir reknetjabátanna upp
í Grindavík, en þeir öfluðu allir
ágætlega eða yfirleitt frá 100
tunnum og sumir á þriðja hundr-
að. Á sunnudag komu þó hingað
fjórir bátar, sem voru með 720
tunnur, og var Fákur aflahæstur
með 240. 1 gærdag kom hingað
einn bátur með 100 tunnur, en
hinir lögðu upp í Grindavík. Allir
fóru bátarnir út aftur í gær, en
munu ekki hafa lagt netin, því að
kominn var austan stormur á mið-
unum, sem eru suður af Eldey, og
komu bátarnir hingað inn í gær-
kveldi. — Síld þeirra báta, sem
Iögðu upp í Grindavík, er ekíð
hingað inn í f jörð og er öll síldin
ýmist söltuð eða fryst. Hefur nú
verið saltað í «m 8200 tunnur
mokafli hjá reknetjabátunum
hér. Lönduðu 23 bátar 4180 tunn-
um síldar. Hæstir voru þeir Kóp-
ur með 367 tunnur, Heimir með
348 tunnur og Faxavík með 345
tunnur. í dag var afli ekki eins
mikill ,enda veður tekið að spill-
ast. Hér komu níu bátar með
samtals 1100 tunnur, og var Gunn
ar Hámundarson hæstur með tæp
ar 300 tunnur. Síldin veiðist suð-
ur í Grindavíkursjó og lönduðu
því flestir Keflavíkurbátar í
Grindavík.
í dag er útlit fyrir, að sjóveð-
ur verði ekki sem bezt. Er kom-
in norðaustan bræla, og um
fimmleytið heyrði ég í talstöðv-
um bátanna ,að þeir væru að
halda í höfn vegna slæmra veð-
urskilyrða.
Söltun hefir gengið allvel, og
er nú búið að salta hér í 14.641
tunnu, er skiptast þannig milli
söltunarstöðva — er hér átt við
uppsaltaðar tunnur: Gauksstaðir,
Garði 1423 tunnur; Karvel Ög-
mundsson, Njarðvíkum 340 tunn
ur; hjá söltunarstöðvum í Kefla-
vík: Geysir 1717 tunnur; Geir
goði 1805 tunnur; Röst hf 2008
hér. — G. E.
Stjórnarmyndun gengur
treglega í Finnlandi
Sukse/ainen athugar möguleika
á samstarfi flokkanna
HELSINGFORS, 8. des. — Nú
eru fimm dagar síðan stjórnar-
kreppan hófst í Finnlandi. —
Kekkonen forseti hefur beðið
forseta Ríkisdagsins, Sukselainen
prófessor, að kanna á hvaða for-
sendum unnt er að mynda nýja
meirihlutastjórn í landinu. Suk-
Dagskrá Alþingis
í DAG eru boðaðir fundir í báð-
um deildum Alþingis á venjuleg-
um tíma- Tvö mál eru á dagskrá
efri deildar.
1. Almannatryggingar, frv. —
1. umr.
2. Biskupskosning, frv. 2. umr.
Á dagskrá neðri deildar er eitt
mál: Dýralæknar, frv. — 2. umr-
selainen, sem er leiðtogi Bænda-
flokksins, kvaðst mundu ræða
við foringja hinna flokkanna og
svara forsetanum við fyrsta
tækifæri. Sennilegt er, að við-
ræðurnar milli stjórnmálaleiðtog
anna fari fram á morgun, þriðju-
dag. Sukselainen sagði, að for-
setinn hefði ekki með þessu beð-
ið sig um að mynda nýja stjórn.
Það virðist vera eitt erfiðasta
viðfangsefnið að gera sér grein
fyrir því, hvaða flokkar mundu
geta starfað að nýrri stjórn, eins
og stjórnmálum er nú háttað í
Finnlandi. í stjórn Fagerholms,
sem fór frá í síðustu viku, áttu
fimm af sjö flokkum fulltrúa.
Kommúnistar voru utan garðs,
svo og hluti jafnaðarmaima.
Sjávarafurðir, sem fluttar
hafa verið út héðan um höfnina
frá áramótum til nóvemberloka,
eru 27 þús. lestir. Aðflutningur
til Keflavíkurhafnar á sama tíma
er orðinn 120 þús. lestir, en mik-
ið af því er olía til Keflavíkur-
flugvallar.
Hér hafa fasta viðlegu 50—60
fiskibátar, en hingað koma hins
vegar í höfnina milli 70—80 bátar
hvern mánuð, er allir njóta ein-
hverrar þjónustu. Þar sem
bryggjupláss er lítið verður að
raða bátunum hverjum utan á
annan. Eru því að jafnaði mikil
þrengsli hér, og þá einkum er
stór flutningaskip liggja í höfn-
inni. Er því ekki að undra, þó að
keflvískum sjómönnum finnist
hið opinbera sýna lítinn sóma
þessari lélegu höfn þeirra, sem
annars er svo þýðingarmikil fyrir
þjóðarbúið sem raun ber vitni.
— Ingvar.
Er ný borgarastyrjöld
aÖ hefjast í Indonesíu ?
Sagt er, að uppreisnarmenn séu hœttir
að sigla með laufsegli — Cera banda-
lag við „hersveitir guðs’4
JAKARTA (Indónesíu), 8. des. — Fréttamenn segja, að uppreisn-
armenn á Súmötru, sem stjórnarherinn sigraði fyrr á þessu ári,
muni um miðjan þennan mánuð lýsa yfir myndun nýrrar stjórnar
á eyjunni og taka höndum saman við ofstækisfulla múhameðstrúar-
menn í baráttunni við stjórnina. — Frá Jakarta berast þær fregnir,
að uppreisnarmenn hafi haldið uppi skæruhernaði frá fjöllunum
og stundum verið allskeinuhættir.
5000 manna her
I liðsveitum ofstækisfullra
múhameðstrúarmanna, sem kalla
sig „hersveitir guðs“, eru um
5000 menn allvel vopnum búnir.
Þeir hafa barizt gegn stjórninni
síðan 1953. Aðaláhugamál þeirra
er að koma á fót nýrri stjórn fyr-
ir Indónesíu, sem byggir ein-
göngu á Kórarinum. — Eitt
stjórnarblaðið í Jakarta segir í
dag, að „hersveitir guðs“ og upp-
reisnarmenn hafi samið um að
slíðra sverðin og taka höndum
saman til að „kyrkja kommúnis-
mann í Indónesíu".
18 sveitaheiinili
fagna rafmagni
HELLU, 8. des. — Mikil ánægja
ríkir nú á 18 heimilum hér í sýsl-
unni, en það er sameiginlegt með
þeim öllum, að þar er sama fram
faramálinu fagnað: Þessir bæir
fengu allir rafmagn nú um helg-
ina. Er um að ræða 14 bæi í
Austur-Landeyjum og 4 býli í
V-Eyj af j allahreppi.
Allir bæir í A-Landeyjum að
tveim undanskyldum hafa nú
fengið rafmagn, en Vorsabær og
Leifsstaðir, sem eru x nokkra
km fjarlægð frá raflínunni hafa
ekki enn fengið rafmagn. Vart
mun öðru trúað en að það verði
leitt þangað heim, því ófært er
að skilja þessa tvo bæi eftir, þeg-
ar um er að ræða ekki meiri fjar-
lægð en 4—5 km. frá raflínunni.
Bæirnir fjórir í Eyjafjallahreppi
sem fengu nú rafmagn eru Borg-
areyrar, Bjarkarland, Dalsel og
Stinmóðarbær. Er rafmagnið þá
komið austur að Markarfljóti.
— Hj.
Hafnfirðingar!
VETRARHJÁLPIN í Hafnarfirði
hefur hafið starf sitt að þessu
sinni.
Það er álit stjórnar Vetrarhjálp
arinnar, að þörfin til að rétta
þeim, sem búa við skarðan hlut
af ýmsum ástæðum, hjálparhönd
nú fyrir jólin, sé lík og áður.
Bæjarbúar hafa undanfarin ár
haft á þessari starfsemi fullan
skilning og væntum vér, að svo
muni enn reynast, er til þeirra
verður leitað.
í fyrra safnaðist meðal bæjar-
búa samtals kr. 30.628,50, auk
fata, er gefin voru, en bæjarsjóð-
ur lagði fram til ráðstöfunar kr.
25.000.00. Var fé þessu og verð-
mæti útbýtt til 135 einstaklinga
og heimila í bænum.
Næstkomandi miðvikudags- og
fimmtudagskvöld munu skátar
fara um bæinn og taka á móti
loforðum og framlagi frá ykkur
góðir Hafnfirðingar. Væntir
nefndin þess, að þið takið þeim
vel og gerið för þeirra sem bezta
eins og jafnan áður, en eftir ár-
angrinum af söfnuninni fer það,
hvernig okkur tekst að hjálpa
þeim sem eiga við erfiðust kjör
að búa, og gera þeim svo, sem
í okkar valdi stendur, glatt í
geði á jólahátíðinni.
Stjórn Vetrarhjálparinnar veit
ir einnig gjöfum viðtöku, en hana
skipa: séra Garðar Þorsteinsson,
prófastur, séra Kristinn Stefáns-
son, Gestur Gamalíelsson, kirkju
garðsvörður, Guðjón Magnússon,
skósmiður og Guðjón Gunnars-
son, framfærslufulltrúi.
Sendu vopn?
Nasution herráðsforingi Indó-
nesíu sagði fyrir tveimur mán-
uðum, að Hollendingar á vest-
urhluta Nýju-Guineu hafi sent
„hersveitum guðs“ vopn. Eins og
kunnugt er, hefur Indónesíu-
stjórn gert tilkall til vesturhluta
Nýju Guineu.
— Sjálfstæðis-
flokkurinn
Framh. af bls. 1
ins og Sósíalistaflokksins um
kjördæmamálið áttu hvor í sínu
lagi fyrsta fund sinn með full-
trúum Sjálfstæðisflokksins síðd.
í gær.
Skýrslurnar um efnahagsmálln
dregnar fram
Þá hefur þingflokkur Sjálf-
stæðismanna óskað þess, að
hann fengi aðgang að þeim
skýrslum og álitsgerðum, sem
vinstri stjórnin lét erlenda og
innlenda sérfræðinga gera um
ástand efnahagsmálanna. En eins
og kunnugt er hefur ríkisstjórn-
in aldrei fengizt til þess að birta
Alþingi þessar skýrslur, hvað þá
heldur þjóðinni í heild. Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk þessi gögn
nú loks afhent síðdegis í gær.
Allir flokkar þingsins sátu á
löngum fundum síðdegis í gær.
Ekki unnizt tími til að útbúa
skýringar!!
í bréfi til Ólafs Thors frá for-
sætisráðuneytinu, er fylgdi
skýrslum ríkisstjórnarinnar um
efnahagsmálin, segir m. a. að
„ekki hefur unnizt tími til að út-
búa (slíkar) skýringar né undir-
búa skýrslurnar að öðru leyti til
prentunar".
Flestum mun þó finnast að
nægur tími hefði átt að vera til
þess!
Bréf forsætisráðuneytisins
Bréf forsætisráðuneytisins fer
hér á eftir í heild:
Forsætisráðuneytið.
Reykjavík, 8. desember 1958.
Hér með eru yður, herra flokks
formaður, sendar ýmsar hagfræði
legar skýrslur, er samdar hafa
verið á vegum ríkisstjórnarinnar
á undanförnum tveimur árum.
Eins og kunnugt er, hefur ríkis
stjórnin haft í hyggju að birta
opinberlega hinar þýðingarmestu
þessara skýrslna, og hefur leyfi
höfundanna fengizt til þess að
það mætti gera. Hins vegar er
þannig frá skýrslunum gengið, að
ríkisstjórnin hefur talið, að ekki
væri gagn að birtingu þeirra,
nema þeim fylgdu nokkrar skýr-
ingar. Ekki hefur unnizt tími til
að útbúa slíkar skýringar né und
irbúa skýrslurnar að öðru leyti
til prentunar. Skýrslurnar eru
því sendar yður í trausti þess, að
hvorki einstakar skýrslur í heild
né einstakir hlutar þeirra verði
birtir opinberlega að svo stöddu.
Með þessu bréfi fylgir skrá
um þær skýrslur, sem sendar
eru.
F. h. r.
Birgir Tliorlacius.
Til formanns Sjálfstæðisflokksins
herra alþingismanns
Ólafs Thors,
Reykjavík.