Morgunblaðið - 09.12.1958, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.12.1958, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 9. des. 1958 MORGUNBLAÐIÐ Aðalfundur L.Í.O. telur nauð- synlegt oð leiðrétta starfs- grundvöll sjávarútvegsins Verði jboð ekki gert verður stöúvun um áramót EENTS og frá var skýrt í blaðinu sl. sunnudag, var aðalfundi L.í. Ú. frestað sl. laugardag til mánu- dags. — Fundurinn hófst svo að nýju kl. 3 í gærdag. í byrjun fund arins voru lesin tvö bréf frá sjávarútvegsmálaráðherra ‘varðandi hækkun lána úr Fisk- veiðasjóði vegna áhvílandi lána erlendis vegna skipakaupa, sem hækkuðu vegna yfirfærsiugjalds ins í vor. Hitt var um ákvörðun um greiðslu bóta úr Hlutatrygg- ingarsjóði vegna sumarsíldveið- anna. Þá reifaði Sverrir Júlíusson álit afurðasölu- og verðlagsnefna og fer það hér á eftir: 1) Tekin var til umræðu rekstr- aráætlun 60 rúmlesta vélbáts á línuveiðum í Faxaflóa á vetrar- vertíð 1959. Afli er miðaður við 5 ára meðaltal í Faxaflóaver- stöðvum. Áætlunin er gerð af Verðlagssráði L.Í.Ú. og vísað til nefndarinnar til umsagnar. Tap samkv. áætluninni nemur kr. 127.486.62, og er þá miðað við að kaupgjaldsvísitala sé 185 stig og núverandi fiskverð til skipta. Áætluninni fylgir greinargerð yfir tekju- og útgjaldaliði henn- ar. Nefndin fór yfir áætlunina lið fyrir lið, og leggur til, að hún verði lögð til grundvallar í vænt- anlegum umræðum við ríkis stjórnina um starfsgrundvöll fyr- ir bátaútveginn á komandi ári. Þó telur nefndin, að óhætt muni vera að hækka áætlað verð á lif- ur um ca. 20%. Framleiðsla hefir stöðvast eða legið við stöðvun hennar vegna verðbólgu og hás kaupgjalds 2) Framleiðsla sjávarafurða hefir stöðvast, eða legið við stöðv un hennar hvað eftir annað á und anf. árum vegna verðbólgu og hins háa kaupgjalds í iandinu, þar sem ekki hefur reynzt mögu- legt að fá svo hátt verð fyrir af- urðirnar á erlendum mörkuðum, miðað við skráð gengi, að það gæti borið uppi hinn háa fram- leiðslukostnað. Hefur því ríkis- valdið orðið að gera sérstakar ráðstafanir til þess að leysa þenn an vanda hverju sinni til þess að forðast stöðvun. Það er sameigin legt við flestar þessar ráðstafanir, að þær hafa aðeins leyst vandann til bráðabirgða og stundum ekki nema að nokkru leyti og þá að eins um skamman tíma. Síðasta bráðabirgðalausnin á vandamálum útflutningsfram- leiðslunnar var gerð með lögum um Útflutningssjóð o. fl. nr. 33 /1958. Með þeim ráðstöfunum urðu þó vissar greinar útflutnings- framleiðslnnar afskiptar, svo sem rökstutt var af L.Í.Ú., í bréfum til ríkisstjórnar og Alþingis frá 3. og 13. maí sl. Nú er komið í Ijós, að grund- völlur sá, sem gengið var út frá við þessa lagasetningu, hefur raskast mjög verulega, þar sem grunnkaup hjá verkafólki í landi hefur hækkað um 9—10% fram yfir það, sem lögin gera ráð fyr- ir og kaupgjaldsvísitala hefur auk þess hækkað um allt að 10% um- fram það, sem áætlað var. Fjölda margir kostnaðarliðir fylgja svo í kjölfarið. Þá hefur það álit komið fram hjá hagfræð- ingum, að búast megi við svo mikl um vixlhækkunum kaupgjalds og verðlags á komandi ári, að kaup- gjaldsvísitala verði komin upp í 250 til 270 stig síðari hluta árs- ins 1959, ef ekkert er að gert til þess að stöðva þassa þróun.Vegna hallareksturs bátaútvegsins á yfi- irstandandi ári og undanförnum árum telur fundurinn það útílok- að, að hægt verði að hefja róðra á komandi ári, nema tryggt sé, að útflutningsframleiðslunni verði bættur sá stóraukni tilkostn aður, sem orðinn er umfram það, sem gert var ráð fyrir, þegar lög- in um Útflutningssjóð o. fl. voru sett. Jafnframt verður að bæta úr þeim annmörkum, sem voru á lögunum varðandi vissar grein- ar útflutningsframleiðslunnar og síðast en ekki sízt að tryggja, að starfsgrundvöllur sá, sem nú verð ur lagður, endist að minnsta kosti allt árið 1959. Vegna hins ískyggilega átsands samþykkir fundurinn að fresta aðalfundinum og felur jafnframt stjórn og verðlagsráði L.Í.Ú. að vinna að því, að fá starfsgrund- völl fyrir útveginn á komandi ári í samræmi við það, sem hér er krafist. Takist það ekki, felur fundur- inn stjórn L.Í.Ú. að boða til fram- haldsaðalfundar fyrir næstkom- andi áramót, sem taki ákvörðun um, hverjar ráðstafanir skuli gera til þess að ná viðundndi starfsgrundvelli. Þá var lýst svohljóðandi tillögu frá Sigurði H. Egilssyni, sem fjall að hafði verið um í nefnd: „Aðalfundur L.Í.Ú., haldinn 3. de_s. 1958 ályktar að fela stjórn L.Í.Ú. að hefja nú þegar söfnun undirskrifta á sama hátt og árið 1955 hjá útvegsmönnum um, að þeir láti báta sína ekki hefja róðra um n.k. áramót, nema áður hafi verið samið um viðunandi rekstursgrundvöll að dómi stjórn- ar og verðlagsráðs L.Í.Ú.“. í framsöguræðu sinni hvatti Sverrir Júlíusson til eindreginnar samstöðu um þessi mál. Kvað hann oft hafa verið sá háttur á hafður, að vísa endanlegri ákvörð un um hliðstæða samninga, til stjórnar og Verðlagsráðs og jafn vel fulltrúaráðs L.Í.Ú., en vegna þeirrar óvissu, sem nú ríkti, teldi hann það nauðsynlegt, að aðal- fundurinn héldi þessu máli í höndum sínum eins og nefndin legði til. Miiklar umræður urðu um mál þessi og voru tillögurnar sam- þykktar samhljóða. Guðmundur Ingi Sóldögg, ný Ijóðabók Gudmundar Inga Kristjánssonar NÝLEGA er komin út ný ljóða- bók eftir Guðmund Inga Krist- jánsson, skáld og bónda á Kirkju- bóli í Vestur-ísafjarðarsýslu. Út- gefandi ljóðabókarinnar er Bóka- útgáfan Norðri. Mun það þykja sæta nokkrum tíðindum, er ný ljóðabók kemur frá Guðmundi Inga, sem fyrir löngu hefir skip- að sér á bekk meðal beztu ljóð- skálda þjóðarinnar. Ttuttugu ár eru liðin, síðan fyrsta ljóðabók hans, „Sólstafir", kom út. önnur ljóðabók hans var ,,Sólbráð“. Kom hún út fyrir 13 árum. Hin nýja Ijóðabók Guðmundar Inga heitir „Sóldögg“. Má því segja, að bjart sé yfir heitum Ijóðabóka hans. í Sóldögg eru um 50 kvæði. Nauðsynlegt að herjað verði á háhyrninginn I EINU blaðanna birtist um dag- inn greinarkorn, sem „sjómaður" hafði undirritað. Gerði hann að umtalsefni að leitað hafi verið til varnarliðsins til að herja á há- hyrningavöðurnar. Hefur þetta verið gert á hverri síldarvertíð hér við Faxaflóa nokkur undan- farin ár. Sjómenn og útgerðarmenn hafa kunnað að meta þetta, enda er okkur það fyllilega ljóst, sagði Sturlaugur Böðvarsson útgerðar- maður á Akranesi í gær í sím- tali við Mbl., að hefði varnar- liðið ekki brugðið svo skjótt við þessum vanda og árangurinn orð ið jafngóður og raun ber vitni, þá er öruggt mál, að reknetja- útgerðin við Faxaflóa væri öll i miklu smærri stíl, ef nokkur. Því hvaða útgerðarfyrirtæki hef- efni á því að missa í háhyrning- inn tugi reknetja í hverri lögn? Fyrrnefnd grein ber það aug- Ijóslega með sér, að „sjómaður" þessi er kominn í land og veit ekki við hvaða vandamál hér er að fást. Agnar Guðmundsson skipstjóri, hefur jafnan verið með í förinni þá er varnarliðið hefur sent flug- vél á vettvang, en það hefur það alltaf gert, er það hefur fengið um það boð frá okkur, sagði Sturlaugur. Sjómennirnir á bátunum þekkja bezt hve mikilvægt það er fyrir síldveiðar þessar, að geta haldið háhyrn- ingnum í skefjum. Má heita að það hafi tekizt síðan farið var að beita flugvélunum gegn hon- um. Þetta er kjarni málsins, sagði Sturlaugur. Það væri eðlilegra að færa varnarliðinu þakkir fyrir þennan skerf þess og Agnari Guð mundssyni fyrir mikilvægt starf í þágu sjávarútvegsins, en að ljá rúm fyrir barnaleg skrif um mik- ið hagsmunamál sjómanna og út- vegsmanna við Faxaflóa. Eins og fyrr yrkir Guðmundur mikið um sveitina sína, ræktun- arstörf, móður jörð, ástir, konur og drauma, fjárhúsailm, menn og málleysingja. Mikill fjöldi ljóðaunnenda mun fagna „Sóldögg", hinni nýju ljóðabók Guðmundar Inga. „Þegar skáld deyja“, smásagna- safn KOMIÐ er út hjá Isafoldarprent- smiðju nýtt smásagnasafn eftir Stefán Jónsson, er nefnist „Þegar skáld deyja“. Stefán Jónsson hef- ir þegar aflað sér mikilla vin- sælda fyrir barna- og unglinga- bækur sínar, en hann er einnig snjall smásagnahöfundur, og er þetta fimmta smásagnasafnið, sem ísafold gefur út eftir hann. í bókinni eru átta sögur, og bera þær heitin: Slys á heiðinni, Afi minn og ég, Frá vettvangi starfs- ins, Það eðla fljóð, Stefnt til manns, Vital, Maður skrifar bréf og Þegar skáld deyja. Fullveldisfagnaður ís- lendinga í Hamborg FÉLAG íslendinga í Hamborg minntist fullveldisins með fagn- aði að kvöldi hins 1. desember. Formaður félagsins, Björn Sv. Björnsson, bauð gesti velkomna. Benti hann á; í hversu miklu dálæti þessi dagur hefði verið hjá íslendingum erlendis í þau 40 ár, sem liðin væru frá full- veldi íslands. 1 lok ávarps síns bað formaður menn um að syngja þjóðsönginn og minnast fóstur- jarðarinnar á venjulegan hátt. Björn Þorsteinsson, sagnfræð- ingur, flutti aðalræðuna, hug- leiðingar um fullveldið og þá sér- stæðu baráttu, sem við hefðum háð fyrir því og útlendingar ættu svo erfitt með að skilja. Þá söng frú Nanna Egilsdóttir nokkur íslenzk þjóðlög og þýzk lög með íslenzkum texta. Undir- leikari var Haukur Guðlaugsson. Síðasta dagskráratriðið var flutningur á segulbandsupptöku úr hófi Stúdentafélags Reykja- víkur kvöldið áður. Fyrir ein- staka hjálpsemi Ríkisútvarpsins, Stúdentafélagsins og annarra velunnara félagsins, komst þessi nýlunda í framkvæmd og tókst svo vel sem raun varð á. Þá sýndi Stúdentaráð Háskóla ís- lands félaginu þá rausn, að senda því eintök af Stúdentablaði til dreifingar á fagnaðinum. Samkvæmt tillögu frá Árna Siemsen, aðalræðismanni íslands í Hamborg, var einróma sam- þýkkt að senda forseta íslands heillaóskir í tilefni af 40 ára af- mæli fullveldisins. Fyrsti formaður félagsins og aðalhvatamáður að stofnun þess, dr. Magnús Z. Sigurðsson, var staddur á fundinum, en hann hef- ur nú flutzt búferlum til íslands. Tilkynnti formaður, að stjórnin hefði ákveðið að gera dr. Magnús að heiðursfélaga á næsta aðal- fundi félagsins. Skemmtu menn sér síðan við söng ættjarðarlaga og hóflegt öl- teiti fram eftir nóttu. Fagnaðinn sóttu um 30—40 manns, þar af nokkrir skipverjar af Reykja- fossi. — Þ. E. STAKSl U1\1AR Beðið len^i eftir litlu Alþýðublaðið ræddi á sunnt*. daginn um verðbólguflóðið og er að vonum áhyggjufullt vegna þess, hvernig komið er undir for- ystu vinstri stjórnarinnar. Kemst I það m.a. þannig að orði: Alþýðusambandaþingið vildi stöðva dýrtíðarflóðið, en gerði sér naumast ljóst, hvað til þess þyrfti“. Þetta er vafalaust rétt. Hinir 350 fulltrúar á Alþýðusambands- þingi hafa vafalaust viljað stöðva dýrtíð og verðbólgu. En þing þeirra haíði þó ekkert jákvætt til lausnar vandamálanna að leggja. Þetta stóra þing fór heim án þess að benda á eitt einasta jákvætt úrræði í dýrtíðarmálun- um. Hafði þó stjórn landsins beð- ið í marga mánuði eftir áiiti þess. Mun aldrei hafa verið beðið jafn lengi eftir jafn litlu. „Stingur höfðinu í sand- inn eins og strútu*rinn“ Alþýðuflokksmenn kenna nú kommúnistum mjög um svik stjórnarinnar í efnahagsmálun- um. Kemst Alþýðublaðið að orði á þessa leið sl. sunnudag, er það ræðir þessi mál í forystugrein sinni: „Óheillaþróun dýrtíðarinnar ætti að vera Alþýðubandalaginu sama áhyggjuefnið og Alþýð<u- ftokknum. Þess vegna ber að harma það, að Alþýðublaðið skuli þurfa að deiia við Þjóðvilj- ann um þetta mál. En hjá þvi verður ekki komizt vegna af- stöðu eða réttara sagt stefnu- leysis Alþýðubandaiagsins. Það stingur höfðinu í sandinn eins og strúturinn. Alþýðuflokkurinn hlýtur hins vegar að gera sér grein fyrir staðreyndunum og breyta samkvæmt því. Og það er vinnustéttunum áreiðanlega meira virði en lýðskrum og blckk ingar. Lausn efnahagsmálanna kemur ekki til sögunnar eins og happdrættisvinningur. Hún fæst aðeins með fyrirhöfn ábyrgra manna“. Þetta sagði málgagn Alþýðu- flokksins sl. sunnudag. Flestir munu geta verið sammála því um það, að kommúnistar hagi sér svipað og strúturinn. En hve margir íslendingar mundu kveða upp þann dóm, að Alþýðuflokk- urinn hafi samið sig að hætti „ábyrgra manna“ með afstöðu sinni til efnahagsmálanna síðan hann gekk í vinstri stjórnina? Þeir verða áreiðanlega ekki margir. Jólasnjór á Akureyri AKUREYRI, 8. des. — Alhvít jörð er nú hér á Akureyri, en veður er milt, rétt við frostmark, svo að snjórinn, sem fellur, bróðnar fljótt. — Snjórinn á trjánum, ljósaskreytingar og annað jólaskraut víða um bæinn gerir það að verkum, að Akur- eyri er orðin mjög jólaleg. Ekki af baki dottinn Ilinir svokölluðu vinstri flokk- ar sögðu þjóðinni það allir, er þeir mynduðu stjórn sína, að þeir ættu fullt fangið af „nýjum leið- um“ og „varanleg'um úrræðum“ til lausnar dýrtíðarvandamálinu. Þeir hafa ekki sýnt framan í þessi úrræði ennþá. Alþýðuflokk- urinn hefur meira að segja ný- lokið flokksþingi sínu. í sam- þykktum þess um efnahagsmál örlar hvergi á neinni nýrri leið eða varanlegu úrræði. Væri ekki drengilegast fyrir málgagn Alþýðuflokksins að játa það hreinskilnislega, að flokk- ur þess er ekki ennþá af baki dottinn með trúna á „lýðskrumið og blekkingarnar“. Þrátt fyrir spekingssvipinn, sem Alþýðu- blaðið setur upp á sunnudaginn, þrátt fyrir tal þess um „fyrirhöfn ábyrgra manna“ í baráttunni gegn dýrtíðinni stendur þó flokk- ur þessi uppi jafnúrræðalaus og óábyrgur og jafnan áður siðan hann gekk í björg vinstri stefn- unnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.