Morgunblaðið - 09.12.1958, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.12.1958, Blaðsíða 22
22 MORGVIVBLADIB Þriðjudagur 9. des. 195. Hraðfrystihús Hnífsdælinga og fiskimjölsverksmiðja. ®------------------------------------------ Einmunatíð í Fljótsdal Jóhanna Björnsdóttir Víðidalstungu nírœð — Að vestan Framh. af bls 13 eða allt suður í Jökuldjúp og tek- ur þá róðurinn um tvo sólar- hringa. Er það einkum síðari hluta vetrar. Á haustin og fram eftir er aftur á móti sótt norður og austur fyrir Vestfjarðakjálk- ann. Bátarnir róa með 35 bjóð í róðri. Hásetahlutur var í fyrra frá ára- mótum og fram úr 25 þús. krónur. Nokkru hærri hluturvarhjá þeim er stunduðu netjaveiðar í vor. Talið barst í þessu sambandi að netjaveiðinni og kvað Jóakim nauðsynlegt að friða sum svæði fyrir netjaveiði, einkum þar sem fiskurinn er veiddur um hrygning artímann. Netin eru skaðræðis veiðarfæri á þeim slóðum. Sæmilega gengur að manna báta þeirra Hnífsdælinga og var engin ástæða til þess að kvarta yfir því. Mér fannst fallegt um að lit- ast í Hnífsdal. Þótt þar væru framkvæmdir örar og mikið um- leikis mátti sjá að kauptúnsbúar hafa auga fyrir snyrtilegri um- gengni. Það vill oft vera svo með unglinga á gelgjuskeiði að fötin fara þeim illa meðan þeir eru að vaxa upp úr þeim. Þannig er það einnig með marga vaxandi staði hér á landi. Þetta fannst mér þó ekki eiga við um Hnífsdal. Þar eru fötin jafnóðum löguð og unglingurinn vex. Ég vil ljúka þessu rabbi með því, að færa þeim þakkir er götu mína greiddu í Hnífsdal. Vil ég þar nefna þá Einar Steindórsson oddvita, Ingimar Finnbjörnsson verkstjóra og Jóakim Pálsson skipstjóra. Maður gæti ætlað að lítill stað- ur í naesta nágrenni við stóran bæ eins og Isafjorð mundi eiga erfitt uppdráttar og þaðan mundu menn leita til hins stærri. Hér á þetta ekki við. Hnífsdælingar una glaðir við sitt, enda eru þeir sjálfum sér nógir. vig. SKRIÐUKLAUSTRI, 5. des. — Álitlegur sumarauki hefir komið í Fljótsdal eins og annarsstaðar á landinu. Enn er autt um allar jarðir, nema efst í út-Héraðs- fjöllum, og jörð frostlaus. Jarð- vinnsla hefir því getað gengið fullum fetum, þar sem einhverj- um tækjum hefir verið á að skipa. En eins og víðar hefir skort varahluti í vélarnar hér eystra. Ræktunarsamband V- Héraðs hefir 2 jarðýtur, en aðeins önnur þeirra hefir gengið í allt sumar og haust. Hin komst fyrst í gang í ágúst og hefir gengið slitrótt síðan, þar sem verið er að basla með ónýt belti og fleira er orðið slitið um of. Verður því útkoman sú í Fljótsdal að nú í 2 ár hafa bændur þar ekki fengið nálægt því fuilnægt vinnupöntun um. En fyrirhugað var að gera öflugt átak í ræktunarmálunum einmitt þessi ár, enda á því hin mesta nauðsyn, því að enn eru túnin víða of lítil. Af almennum framkvæmdum er það helzt að segja, að sl. haust var byggð brú á Gilsá, sem skipt- ir Suður- og Norður-Múlasýslum og fellur innst í Löginn að aust- anverðu. Er þar með yfirstiginn einn versti farartálminn á leið- inni frá Hallormsstað og inn að Hrafnkelsstöðum. Um brúarsmíð ina sá Sigurður Jónsson. Eftir er svo að leggja fullkominn veg yfir svonefnda Ása, sem liggja innan við Hallormsstaðaskóg og innst í honum. Verður að þeirri vegagerð mikið hagræði, bæði fyrir Fljótsdælinga og alla þá sem ferðast vilja um ofanvert Héraðið. Mannfjöldi í Fljótsdal helzt nokkuð sá sami ár frá ári. Eru nú síðustu árin 225—226 íbúar í hreppnum. Nokkrir hafa flutzt burtu, en barnsfæðingar eru nokkrar og einstöku hafa flutzt í hreppinn. — J.P. Kirkjumót á Kirkjubæjar- klaustri SL. laugardag, 6. desember, hélt Kirkjukórasamband V-Skafta- fellsprófastsdæmis kóramót í samkomuhúsinu á Klaustri. Mótið hófst með ávarpi for- manns, Óskars Jónssonar í Vík, sem rakti í stuttu máli sögu sam- bandsins, en það varð 10 ára á þessu hausti. — Síðan sungu kór- arnir fjögur lög, hver með undir- leik Kjartans Jóhannessonar, söngkennara, en hann hefur und- anfarnar sjö vikur farið á milli sóknanna og æft kórana. Sóknarprestarnir í Ásum og Vík í Mýrdal, þeir séra Valgeir Helgason og séra Jónas Gíslason, fluttu ræður. Að lokum sungu kórarnir allir sameiginlega með undirleik Kjartans Jóhannessonar og Sig- urjóns Einarssonar í Mörk, org- anista í Prestsbakkakirkju. Þeim söng stjórnaði Óskar Jónsson, organisti Víkurkirkju. — Kóra- mótið var mjög fjölsótt og alls var söngfólkið 116 manns. Eftir samsönginn sátu allir kórarnir boð Kirkjukórs Prests- bakkasóknar. Þar var Kjartani Jóhannessyni sérstaklega þakkað starf hans í héraðinu og Vilhjálm ur Eyjólfsson á Hnausum flutti honum kvæði. — G. Br. VIÐIDALSTUNGA er eitt af elztu og þekktustu höfuðbólum landsins og á sér mjög merkilega sögu, Hennar er fýrst getið í Sturlungu og bjó þar þá Jón járn- búkur, sem var í norðurferð með Þorgilsi skarða. Á 14. öld bjó þar Gissur galli, sem varð yfir 100 ára, og síðar sonarsonur hans, Jón Hákonarson, sem æ mun minnzt verða fyrir það, að hann lét rita bæði Flateyjarbók og Vatnshyrnu. Um miðja 15. öld bjó þar Sólveig, dóttir Þorleifs í Auðbrekku og Vatnsfjarðar- Kristínar, en móðir Jóns lög- manns Sigmundarsonar, og eftir hann afkomendur hans í fjórar aldir. Merkastur þeirra var Páll lögmaður Vídalín, en síðastur þeirra ættmenna var nafni hans, Páll Vídalín alþingismaður, sem dó 1873, faðir Jóns Vídalíns kon- súls og frú -Kristinar Jacobson. Eftir dauða Páls alþingismanns bjuggu ýmsir leiguliðar í Víði- dalstungu um 30 ára skeið og hnignaði þá vegur þessa forna höfuðbóls, en 1904 fluttust þang- að hjónin Teitur Teitsson og Jó- hanna Björnsdóttir, sem höfðu keypt hálfa Víðidalstungueign, en þá fylgdu sjálfu höfuðbólinu níu jarðir aðrar auk heimahjá- leigu. Teitur var giidur bóndi og fjáraflamaður. Hann dó 1923 og bjó Jóhanna eftir það ekkja í um 20 ár, þangað til Óskar sonur hennar tók við jörð og búi, en hann hafði áður verið fyrir búi hjá móður sinni. Jóhanna í Víðidalstungu er 90 ára í dag,elzta manneskja í Berg- mannsætt hérlendis, að því er ég bezt veit, og er mér bæði ljúft og skylt að minnast þessarar ágætu frændkonu minnar á þess- um merkisdegi hennar. Hún fædd ist í Gröf í Víðidal 9. des. 1868 og bjuggu þar þá foreldrar henn- ar, en síðar mjög lengi á Marðar- mýri íVatnsdal. Björn faðir Jó- hönnu var annálaður snyrti- og reglumaður í búskap. Hann var sonur Guðmundar smiðs á Síðu og Ytri-Völlum, Guðmundsson- ar á Húki, en kona Guðmundar smiðs var Guðrún Sigfúsdóttir hreppstjóra Bergmanns. Björn á Marðarmýri og systkini hans urðu mjög langlíf, flest um og yfir nírætt, en þau voru Jónas í Svarðbæli, langafi séra Þor- steins fríkirkjuprests, Elínborg í Núpsdalstungu, amma dr. Björns heitins Björnssonar hagfræðings Reykjavíkurbæjar, Guðrún, amma mín, Jóhanna, ógift, Ólöf á Svertingsstöðum, amma Skúla Guðmundssonar alþingismanns, og Guðmundur smiður yngri, fað ir Ingimundar heitins ráðunauts. Kona Björns á Marðarmýri, móðir Jóhönnu í Víðidalstungu var Þorbjörg Helgadóttir frá Gröf, af ætt Sigurðar sterka í Ho'lti, en einn af bræðrum henn- ar var Sigurður, afi dr. Sigurðar Nordal. Jóhanna var næstelzt systkina sinna, þeirra er upp komust, en hin voru Guðmundur landlæknir, er var tveimur árum eldri, Jónas Bergmann smiður og bóndi á Marðarmýri, Ingibjörg, húsfreyja á Torfalæk, og tvíburarnir Elísa- bet, ráðskona hjá Guðmundi bróður sínum, og Halldóra hús- freyja á Geithömrum, sem varð áttræð fyrir nokkru. Hálfbróðir þeirra er .Sigurður Björnsson, brúaryfirsmiður. Þau Teitur og Jóhanna giftust 14. sept. 1893, bjuggu fyrst eitt ár á Gilá, síðar í Haga og á Ægissíðu, en fluttust að Víðidals- tungu 1904, eins og áður er sagt. Teitur var Teitsson, Teitssonar ríka Einarssonar í Kirkjuhvammi og síðari konu hans, Hólmfríðar Guðmundsdóttur frá Húki, og voru þau Víðidalstunguhjónin því þremenningar að frændsemi. Þau Teitur og Jóhanna eign- uðust þrettán börn og eru fjögur þeirra dáin: Guðmundur, Aðal- heiður, Ragnheiður og Aðal- steinn, en níu lifa, sem sé Þor- björn Leví, bóndi á Sporði, Anna, húsfreyja á Bakka í .Víðidal, Eggert Þórarinn, bóndi á Þorkels- hóli, Óskar Bergmann, bóndi í Víðitalstungu, Jóhann, bóndi á Refsteinsstöðum, Guðrún, hús- freyja í Bjarghúsum, og Þorvald- ur, Ingunn og Elisabet, öll bú- sett í Rykjavík. Ég kom fyrst að Víðidalstungu fyrir réttum 50 árum, á fyrstu ferð minni í skóla. Þar var þá óræktarlegt tún, sundurskorið af mýrarsundum, en snöggir hólar á milli, þar sem stóðu fjárhús- kofar eða rústir gamalla hjáleigu- kota. Nú er þetta orðið samfellt og fallegt túnflæmi. Þá var þar fornfálegur bær, sem verið hafði einn af stærstu sveitabæjum landsins á sinni tíð. Leifar hans brunnu fyrir nokkrum árum og er nú komið þar myndarlegt steinhús í staðinn. í öllu þessu umróti hefur húsfreyjan sjálf til- tölulega lítið breytzt, þrátt fyrir langan og erfiðan vinnudag, því að hún heldur sér með fádæmum vel, einkum andlega. Hún hefur þó oft orðið að leggja að sér um dagana, húsfreyja á mannmörgu heimili og 13 barna móðir, sem þar að auki var hölt á öðrum fæti frá æsku. Hún er að eðlisfari ró- lynd og æðrulaus, og mun svipa um það til föður síns, en slíkt fólk endist oft vel, andlega og lík amlega. Þegar Jóhanna var hálf- áttræð, kvæntist Óskar sonur hennar ágætri konu, Hallfríði Björnsdóttur, og lét hún þá bús- umsjá alla innan stokks í hendur tengdadóttur sinni, en nú byrjaði nýr og merkilegur þáttur í lífi gömlu konunnar. Hún hafði alla ævi verið mjög bókelsk kona og nú gat hún fylgt þeirri hneigð sinni í ró og næði. Hún tók að sér stjórnina á lestrarfélagi og bókasafni sveitarinnar, sem hafði verið í vanhirðu, og hóf það til nýrra þrifa. Hún hefur verið svo lánsöm að halda góðri sjón og sinnir enn bókavarðarstarfi sínu. Hún fékk fyrir nokkrum dögum heilmikla sendingu nýrra bóka, sem eru að koma á jólamarkað- inn, og hefur nú verið að velja úr þeim þær, sem hún vill kaupa til bókasafnsins. Það mun vera næsta fátítt, að níræð kona sýni slíkan áhuga og gegni með sóma slíku trúnaðar- starfi fyrir sveit sína sem gamla húsfreyjan í Víðidalstungu. Allir frændur hennar, nágrannar og vinir munu óska henni þess, að hún fái að halda sjón sinni og hafa ánægju af bókum sínum, það sem hún á eftir ólifað á inu forna og fræga óðali þeirra ágætu bókamanna og lærdómsmanna, Jóns Hákonarsonar og Páls lög- manns Vídalíns. P. V. G. Kolka. — Landhelgismálid Framh. af bls 6. vinna á okkar mál. Sem stendur er þó ekki ástæða til að örvænta. Hér var þrátt fyrir allt aðeins verið að fjalla um málsmeðferð. Þar varð ísland undir. En það sem raunverulega skiptir máli, er, hvað verður ákveðið á ráð- stefnunni, sem halda á, og við trúum því, að málstaður okk- ar sé slíkur, að hann hljóti að sigra. KAPITOLA hefur lifað á vörum íslenzkra lesenda sem spenn- andi og hugnæm skáklsaga. Fáar þýddar skáldsögur hafa átt meiri vinsældum að fagna, enda eru aðal- persónurnar minnisstæðar: Svarti Donald, Felli- bylur og ekki sízt Kapítóla sjálf. KAPÍTOLA er hin sinsæla skáldsaga kvenþjóðarinnar. SUNNUFELL.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.