Morgunblaðið - 08.01.1959, Síða 6

Morgunblaðið - 08.01.1959, Síða 6
6 MORCV\nr. 4niÐ Fimmtudagur 8. jan. 1959 Michel Debré myndar fyrsfu ríkisstjórn fimmta lýðveldisins Með jbv/ er gengið framhjá öfgamann- inum Jacques Soustelle í DAG, 8. janúar, tekur de Gaulle við forsetaembætti í Frakklandi. Við það losnar embsetti forsætis- ráðherra og mynda verður nýja ríkisstjórn, — fyrstu stjórn fimmta franska lýðveldisins. Að undanförnu hafa Frakkar verið að geta sér til um hverjum de Gaulle fæli stjórnarmyndun. Hafa ýmsir verið nefndír, en mörgum þótt eðlilegast að við st j órnartaumum tæki J acques Sou stelle kunnasti foringi Lýðveldis- fylkingarinnar, sem vann stór- sigur í þingkosningunum. Fyrir nokkrum dögum ákvað de Gaulle hins vegar að fela öðr- um foringja Lýðveldisfylkingar- innar stjórnarmyndun. Það er Michel Debré, sem verið hefur dómsmálaráðherra að undan- förnu. Með því er gengið framhjá Soustelle. En til þess liggja eðli- legar ástæður. Soustelle er öfga- seggur, sem aðrir flokkar óttuð- ust og fannst erfitt að starfa með. Og ef til vill er de Gaulle sjálfur hræddur við að þessi óstýriláti harðjaxl kunni að skyggja á hann. Þótt meira hafi borið á Sou- stelle í kosningabaráttunni og hvarvetna á opinberum vettvangi má vera að hinn væntanlegi for- sætisráðherra, Michel Debré, hafi ekki verið minni áhrifamaður í Lýðveldisfylkingunni. Hann hef- ur í meira en áratug verið einn traustasti stuðningsmaður de Gaulles í Frakklandi. ★ Michel Debré er nú 46 ára. Harn er sonur eins frægasta lyf- læknis Frakklands prófessors Koberts Debré, sem enn er á lífi og starfandi, 76 ára að aldri. Mic- hel stundaði lögfræðinám við Sorbonne háskóla og hefur æ síð- an haft orð á sér fyrir lærdóm í þeirri grein. Hann hefur starfað sem málflytjandi í Paris. Hann er kvæntur og á fjóra syni. í síðustu heimsstyrjöld gegndi hann herþjónustu í frönsku véla- herdeildunum en var handtekinn af Þjóðverjum. Hann slapp úr fangabúðum nazista og gekk í frönsku neðanjarðarhreyfinguna. Síðan komst hann til Lundúna og starfaði með de Gaulle bæði í London og Alsír eftir að Norð- ur Afríka var frelsuð. Eftir frelsun Frakklands sneri Michel Debré heim með de Gaulle og fékk sæti sem undir- ráðherra í fyrstu stjórn hans. Var honum falið að gera rann- sóknir og tillögur til úrbóta á stjórnarfarskerfi Frakklands. Vann hann það starf í samráði við de Gaulle. Árið 1948 var Debré kjörinn þingmaður til öld- ungadeildarinnar og hefur verið það síðan. Kjördæmi hans er um- hverfis borgina Tours í Leirudal, skammt suður af París. ★ Debré hefur öll þessi ár haldið tryggð við de Gaulle. Hann hefur verið fjandmaður Evrópumark- aðs þar til fyrir rúmu ári að hann snerist til fylgis við hann. Hann hefur prédikað það sýknt og heilagt, að Frakkland flyti sofandi að feigðarósi og aðeins einn maður, de Gaulle, gæti bjargað því. Þegar öngþveiti skall yfir Frakkland síðastliðið vor voru það þeir þrír félagarnir, Soustelle, Debré og Chaban-Del- mas sem unnu nótt sem nýtan dag að því að greiða götu de Gaulles til valdatöku í Frakk- landi. Þeir voru styrkir, jafnvel ósvífnir samningamenn og hót- uðu stjórnmálamönnum blóðugri borgarastyrjöld ef de Gaulle væru ekki afhent völdin. Þegar de Gaulle svo komst til valda, skipaði hann Michel Debré dómsmálaráðherra. Hann fól hon um sem hálærðum lögfræðingi að sjá um samningu á uppkasti að nýrri stjórnarskrá. Hann bað hann um að hraða verkinu. Helztu eiginleikar Degrés, hraði og viljakraftur komu nú í ljós og stjórnarskrárfrumvarpið var til- búið í tæka tíð. Þvínæst tók Debré til við að skipuleggja Lýðveldisfylkinguna. sem vann sigur í þingkosningun. um í nóvember. Þótt meira hafi borið á Soustelle í kosningabar- áttunni á vegum Lýðveldisfylk- ingarinnar átti Debré ríkari þátt í skipulagningu hins nýja flokks. ★ Síðustu daga hefur Michel Debré undirbúið stjórnarmynd- un. Það var von de Gaulles, að allir flokkar nema kommúnistar sameinuðust um fyrstu ríkis- stjórn fimmta lýðveldisins. En stjórnarmyndunin hefur ekki gengið eins vel og bezt hefði orð- ið á kosið. Það er nú Ijóst, að Jafnaðar- menn undir forystu Guy Mollet ganga úr stjórninni. Meginorsök þess er efnahagsmálaaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Jafnaðarmenn hafa mótmælt þeim aðgerðum að lækka gengi frankans um 17,5%. Eins og vitað var hafa verðhækk. anir fylgt gengislækkuninni og de Gaulle hefur lýst því yfir, að almenningur verði nokkuð að herða mittisólina meðan efna- hagsmálin eru að komast í jafn- vægi og þar til framleiðslan hef- ur aukizt.Þjóðin getur ekki lifað um efni fram, en efnahagsmála- aðgerðir stjórnarinnar munu þeg ar nokkur tími líður stuðla að aukinni framleiðslu og auknum útflutningi. Verkalýðssamtökin eru orðin tortryggin í garð de Gaulles vegna hinnar skyndilegu gengis- lækkunar, sem þau hafa alla tíð staðið gegn. Þeim vaxa mjög í augum verðhækkanirnar á al- mennum neyzluvörum, er leiða af gengislækkuninni, svo sem 12 franka hækkun á rauðvíni, 3 franka hækkun á hveitibrauði og 4 franka hækkun á mjólk. Þá hækka sykur, hrísgrjón, svína- feiti, ávaxtamauk og súkkulað um 10—15%. Einföld símtöl og póstgjöld hækka um 5 franka og benzínið hækkar um 3 franka. Gegn þessu ætlar de Gaulle aðeins að hækka lægstu launin um 5%. Hann dregur enga dul krafizt þess fyrst hann var ekki gerður forsætisráðherra, að fá embætti innanríkisráðherra, en aðrir samstarfsflokkar hafna því gersamlega að þessi öfgamaður sem blés eld að glæðum Alsír- byltingarinnar fái þannig yfiráð frönsku lögreglunnar. í stað þess hefur honum verið boðið embætti menntamálaráðherra. Því hefur Saustelle hafnað og virðist því allt benda til að hann verði utan- veltu. (Nú síðast hefur þó komið upp orðrómur um að nýtt embætti verði stofrlað fyrir hann svonefnt f ramkvæmdaráðuney ti). Þegar de Gaulle valdi Michel Debré sem nýjan forsætisráð- herra vildi hann hneigja Lýðveld isfylkinguna til frjálslyndrar stefnu miðflokks. Lýðveldisfylk- ingin hefur ekki enn fengið fast- mótaða stjórnmálastefnu en inni- heldur bæði vinstrisinnuð og hægrisinnuð öfl. Með valdi De- brés reynir de Gaulle að fara bil beggja en við það vaknar sú hættan að Soustelle kljúfi sig út úr flokknum. ♦ * BRIDCE ♦ * AV Michel Debré myndar stjórn í dag. á það, að lífskjörin verða þrengri en áður og er fyrsti stjórnmála- maðurinn sem þorir að segja þjóð inni sannleikann um efnahags- ástandið og framkvæma læknis- aðgerðir. Hann er líka í betri að- stöðu en aðrir stjórnmálamenn, þar sem nú er endanlega frá því gengið að franksa ríkisstjórnin verður sterkari en nokkru sinni fyrr. En líklega eiga miklar deil- ur eftir að rísa út af þessum að- gerðum og sést þá hve styrk stjórnin er í raun og veru. Jafnaðarmenn hafa ákveðið að vera í stjórnarandstöðu. Auk þess sem fyrrnefnt deilumál er risið upp milli þeirra og gaullista, mun Mollet foringi flokksins telja það eðlilegra, þar sem Jafn aðarmannaflokkurinn tapaði í þingkosningunum. Hann mun ætla að það sé þjóðinni hollara að Jafnaðarflokkurinn verði á- byrgur stjórnarandstöðuflokkur, fremur en að kommúnistar einir standi á móti stjórninni. Búizt er við að Couve de Mur- ville verði áfram utanríkisráð- herra, Pierre Guillaumat her- málaráðherra og Emile Pelletier innanríkisráðherra. Viðkvæmasta málið við þessa stjórnarmyndun er hvað á að gera við Jacques Soustelle. Fyrst gekk de Gaulle framhjá honum, er hann fól Debré stjórnarmynd- un, og er Soustelle vafalaust særður vegna þess. Síðan hefur hörð deila staðið í nokkra daga um stöðu hans. Soustelle hefur HID árlega Reykjavíkurmeist- aramót í tvímenning fer að þessu sinni fram n. k. sunnudag, mánu- dag og þriðjudag. Rétt til að taka þátt í keppni þessari hafa alls 48 pör frá bridgefélögunum í Reykjavík, þ. e. Bridgefélagi Reykjavíkur, Bridgefél. kvenna og Tafl- og Bridgeklúbbnum. — Keppnin fer fram í Skátaheim- ilinu við Snorrabraut og hefst eins og áður er sagt n. k. sunnu- dag kl. 1,30. Er búizt við mjög spennandi og tvísýnni keppni. Núverandi Reykjavíkurmeistarar eru þeir Guðjón Tómasson og Róbert Sigmundsson, sem hafa náð mjög jöfnum og góðum árangri í tvímenningskeppnum. Hér kemur spil, sem sýnir hve nauðsynlegt er fyrir sagn- hafa að gera sér strax í upphafi grein fyrir styrkleika andstæð- inganna og spila síðan eftir því. Vestur Norður Austur Suður 1 hjarta pass pass dobl pass 1 spaði pass 2 grönd pass 3 grönd pass pass pass * K 8 5 4 2 V 7 6 * 10 5 2 * K 10 2 AÁG7 ♦ 10 9 6 ♦ DG 10 93 N V 8 2 ♦ A 9 6 V A ♦ 8 4 3 *85 S AG9743 A D 3 V A K 5 4 * K D G T * A D 6 Vestur lét út hjartadrottningu. Mjög sennilegt er, eftir sögnum að dæma, að Vestur hafi báða ásana sem úti eru og geti því gert hjartað gott, áður en sagn- hafanum tekst að fá 9 slagi. Ein leið er þó til, sem sjálfsagt er að reyna, en hún er þessi: Drepa hjartadrottninguna, láta síðan út spaða þrist. Ef Vestur gefur þá er drepið með kóngi og tigli spil- skrifar úr daglega lifinu Óliðleg afgreiðsla. I KONA nokkur kom að máli við J Velvakanda fyrir nokkrum, dögum og tjáði honum vandræði sín. Hún kvaðst ekki með nokkry móti fá keypt minna magn af skyri í mjólkurbúðinni, sem hún verzlar við, en 250 gr. Hún á ung barn, sem borðar 50 gr. af skyri á dag, en vill ekkj gefa því gam- alt skyr. Þess vegna hefur hún farið fram á það, að fá 100 gr. skammt hverju sinni. Við það er ekki komandi, kvörtunum hennar er svarað þannig, að hún geti þá bara verzlað einhvers staðar ann- ars staðar. Það er auðvitað eng- in lausn á málinu, þar sem langt er í næstu mjólkurbúð, og konan verður að eyðileggja rúmlega helminginn af skyrskammtinum sínum. Varla trúi ég því, að afgreiðslu stúlkum í sumum mjólkurbúðum sé heimilt að ákveða hve mikið viðskiptavinirnir verði að kaupa af vörunni, þegar aðrar reglur virðast gilda í öðrum búðum sama fyrirtækis. Og sjálfsagt væri fyrirtækinu greiði gerður með því að láta það vita, ef af- greiðslufólk þess tekur upp slíka afgreiðsluhætti. Slíkt fólk vill enginn' hafa í þjónustu sinni. í öðrum mjólkurbúðum bæjarins er liðleg afgreiðsla og afgreiðslu- fólk, sem er til sóma fyrir fyrir- tækið, en því miður er ein og ein afgreiðslustúlka innan um, sem ekki á heima á slíkum stað. Súkkulað. Borgfirðingur skrifar: „XTAK það misheyrn min, að frú » Sigríður Björnsdóttir segði súkkulað, en ekki súkkulaði, í hinu einkar hugðnæma útvarps- erindi sínu á annan í nýári, þar sem hún sagði frá jólum í sveit fyrir og um aldamót? Ég vona að svo hafi ekki verið. Ég var um sama leyti að alast upp í Borg- arfirði, og þar heyrði ég aldrei talað um súkkulaði (það hefði verið alltof hrá danska fyrir sveitafólkið) heldur ávallt súkku lað. Og nógu leiðinlegt er orðið þó að því sé gefin þessi íslenzka mynd (beygð eins og spað, hlað, svað), en ekki hin, sem enga hlið- stæðu á í málinu. Hugsanlegt er að vísu að frú Sigríður hafi þá fyrst lært þessa sómasaml. mynd orðsins, er hún fluttist suður í Borgarfjörð, en hitt er þó senni- legra að hún hafi numið hana í bernsku á sínu góðfræga heim- ili norður í Skagafirði. Hér syðra heyri ég aldrei annað en afskræm ismyndina og hana nota blaða- menn og rithöfundar sér til sæmd ar. Hvernig væri það, að þeir tækju nú þessa merku konu sér til fyrirmyndar?" Eftir þessa ákæru á hendur iþeim, sem í blöðin skrifa, væri kannski ekki úr vegi, að benda á grein í Morgunblaðinu 31. des. sl., þar sem hvað eftir annað er minnzt á súkkulað. Sú grein fjall aði um verksmiðjúiðnaðinn í land inu, og var eftir framkvæmda stjóra Félags ísl. iðnrekenda. Ef þau samtök hafa tekið upp orð- myndina súkkulað, ætti það að vera drjúgt á metaskálunum. að og fást þannig 9 slagir. Drepi Vestur aftur á. móti með spaða ás þá fást 4 slagir á spaða af því að spaðinn er jafnt skiptur hjá andstæðingunum og spilið vinnst þannig, án þess að nokk- ur slagur fáist á tigul. Sýnir þetta spil, að ekki er rétt að gefast upp fyrr en allar leiðir hafa verið reyndar. Taka hlut á þurru landi SVO bar við í sjávarþorpi einu hér sunnanlands, um aldamótm síðustu, að menr nokkrir rædd- ust við. Einn þeirra var Norð- lendingur. Þarna var talað um at- vinnuhætti sunnanlands og norð- an. En Norðlendingurinn var sá eini, er þekkti hvernig högum var háttað norðanlands. Og meðal annars sagði Norð- lendingurinn frá starfsemi tengda föður síns, er búsettur var í kaup túni norðanlands. Hann var at- hafnamaður og vegnaði vel. En sérkennilegt var það við tengda- föðurinn, að hann hafði aldrei verið viðriðinn sjávarútveg, því til þess væri hann of hygginn. Um þetta voru þeir sammála tengdafegðarnir. „Svo er margt sinnið sem skinnið", var einhvern tíma sagt, Þá hefir verið sagt, að menn séu misjafnlega hneigðir fyrir sjó, og satt er það. En um aldaraðir hefur það þó verið nauðsyn er knúð hef ur menn til að stunda sjó, sú nauðsyn að draga fram lífið. Öll- um er kunnugt, hver breyting hefur á urðið við komu vél- knúnu skipanna. Nú bera menn yfirleitt meira frá borði en áð- ur, hlutir hafa hækkað, hver fiskr ur er fiskvirði, sem áður var, þótt krónan falli í verði. Allir vita hvernig ástandið er, þeir sem í stríðinu standa, segja átsandið geigvænlegt. En hver er orsökin? Hún er flestum kunn, þótt fátt sé um talað. Þetta á sér djúpar rætur. Það hefur ekki komið „með því arn- ana tunglinu", heldur verið að búa um sig í aldarfjórðung. Eða síðan gjaldeyrishöftin voru lög- fest „með annað að yfirvarpi". Þeir sem að þeirri löggjöf stóðu munu hafa verið sama sinnis og Norðlendingur sá, er fyrr var get ið: verið of hyggnir til þess að stunda sjó eða gera út fiski- skip. Og síðastliðinn aldarfjórðung hefir svo það gerzt, er fyrr á ár- um var kallað: „að taka hlut á þurru landi“. Nú berast þær fréttir af Suð- urnesjum, að þriðjungur báta- flotans komist ekki á veiðar næstu vertíð, vegna manneklu. Eina lausnin þar á virðist sú, að Færeyingar fáist, en um það mun þó engin vissa. En myndi það ekki örva ís- lendinga til sjósóknar, ef þeir fengju hlut sinn greiddan í er- lendri mynt? Um vetrarsólhvörf 1958. Einar Runólfsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.