Morgunblaðið - 08.01.1959, Qupperneq 19
Fimmtudagur 8. Jan. 1959
19
MORGUISBLAÐIÐ
Bretar almermt hataöir á Kúbu
fyrir vopnasölur til Batista
INNILEGAR ÞAKKIR flyt ég ykkur öll-
um, ættfólki mínu, starfsmönnum og vinum,
Sendiherra þeirra i Havana skamm
sýnn svo furðu sætir
HAVANA og London, 7. jan.
(Reuter) — Her Fidels Cast-
ros hefur ákveðið að sýna
opinberlega nýjustu skrið-
drekana, sem stjórn Batista
fékk frá Bretum í nóvember
sl. En vopnasölur Breta til
hins kúbanska einræðisherra,
allt fram á síðustu stund,
hafa vakið óhemju gremju
tneðal Kúbu-búa.
Vegna þessa er sýnt að
staða Breta gagnvart hinni
nýju stjórn eyjarinnar veik-
ist mjög. Er jafnvel útlit fyrir
að Kúba setji algert bann við
allri verzlun við Breta.
Er nú mjög um það rætt að
Bretar hafi verið furðulega
skammsýnir, er þeir héldu áfram
að selja einræðisherranum Bat-
ista vopn, jafnvel eftir að öllum
Rústirnar —
Framhald af bls. 1
kom í atvinnulíf Vesturlanda
hefui dregið úr iðnaði borgarinn
ar og munu nú um 50 þúsund
svertingjar vera atvinnulausir í
borginni.
Þó herma fregnir frá Leopold-
vilie að hin svonefnda Abako-
hreyfing standi að baki óeirðun-
um. Hún var upphaflega einskon-
ar átthagahreyfing eins þjóð-
flokksins, en er nú orðinn öflug
pólitísk hreyfing og hafa forustu
menn hennar komið fram með
kröfur um að Kongó verði sjálf-
stætt og óháð ríki.
í dag bárust fregnir um minni
háttar átök milli svertingja og
lögreglu í þorpinu Kasangulu sem
er skammt frá Leopoldville og í
Kimuenza, aðsetri háskólans í
Kongó. f gær börðust hópar svert
ingja innbyrðis í Thysville, sem
er um 200 km suðvestur af Leo-
poldville.
Fallhlífaherlið er á verði á I
strætum höfuðborgarmnar Leo-
poldville meðan unnið er að því
að koma aftur á röð og reglu.
★ ★ ★
London, 7. jan. (Reuter). •—
Stórblaðið Times í London, sagði
í dag, að fregnirnar af kynþátta-
óeirðunum í Leopoldville myndu
berast eins og eldur í sinu um
gervalla Afríku og þykja stórtíð-
indi.
Atburðir þessir hafa komið Ev-
rópumönnum á óvart, vegna þess
að álitið hefur verið að Kongó
væri tryggasta og rólegasta lands
svæðið í Afríku. Hafa mjög
litlar fregnir borizt þaðan af þjóð
frelsishreyfingu svertingja, sem
þó breiðist út um alla álfuna.
Afríkanskir þjóðernissinnar
munu hins vegar mjög fagna at-
burðunum, því að þeir sanna,
að svertingjar í gervallri hinni
svörtu álfu munu ekki þola stjórn
málaleg yfirráð hvítra manna.
Skiptir þar ekki máli, þótt hinir
hvítu heiti þeim bættum lífskjör-
um og félagslegum umbótum.
Times segir að sérstakar að-
stæður hafi að vísu stuðlað að,
óeirðunum í Leopoldville. Er þar j
fyrst að nefna atvinnuleysi, en
í öðru lagi, að á ur.danförnum
árum hefur nokkrum sinnum
komið til óeirða í borginni Brazza
ville í frönsku Afríku, en milli I
þessara tveggja skilur aðeins
Kongó-fljótið.
Blaðið segir, að Belgíumenn
þurfi ekki að verða miður sín
vegna þessara atburða. Þeir verði
aðeins að skilja, að ástandið í ný-
lerr,u þeirra sé hið sama og i ný-
leiiuum annarra hýlenduþjóða.
mönnum með sæmilega greind
átti að vera ljóst, að hann hafði
beðið ósigur.
Hefði verið ólíkt skynsamlegra
hjá Bretum að fylgja fordæmi
Bandaríkjamanna, sem hættu
vopnasölum til Batista í apríl sl.
Hinn 19. nóvember sl. skýrði Sel-
wyn Lloyd, utanríkisráðherra
Breta frá áliti sínu á Kúbu-mál-
unum. Hann dró þar mjög úr
sigurmöguleikum Castros og það
var ekki fyrr en 15. desember
sem Allan Noble, varautanríkis-
ráðherra Breta, skýrði neðri mál-
stofunni frá að frekari vopnasölu
til Batista yrði frestað. Noble
sagði þó við það tækifæri, að eng
in rök bentu til að Castro, upp-
reisnarforingi, nyti stuðnings
nema á takmörkuðu svæði á aust
urhluta Kúbu. En rúmlega hálf-
um mánuði seinna reis gervöll
þjóðin upp gegn Batista og
Castro er þjóðhetja á eyjunni.
Böndin berast nú mjög að sendi
ráði Breta í Havana, einkum þó
sendiherra þeirra, Mr. Fordham.
Virðist sýnt að í skýrslum sínum
hafi hann annaðhvort eða bæði
verið á bandi Batista eða svo
furðu skammsýnn og úr tengsl-
um við daglegt líf á eyjunni, að
engu tali tekur.
★
Hefur brezki rithöfundurinn
Graham Green nú skýrt opinber-
lega frá þvi, að hann hafi í einka-
heimsókn til Kúbu í október sl.
komizt að því að uppreisnarher
Castros réð yfir nær allri Kúbu
og að stjórn Batista hafi verið
dæmd til dauða. Kveðst Greene
hafa bent Fordham sendiherra
mjög ákveðið á þessa staðreynd,
en ekkert var farið eftir ábend-
ingum hans.
Graham Greene vinnur nú að
því að skrifa nýja skáldsögu, sem
hann ætlar að kalla „Our man
in Havana“ (Okkar maður í
Havana). Mun hann þar ræða
háðslega um upplýsingaþjónustu
Breta. Er Fordham sendiherra
þegar kallaður 'almennt í háði:
„Our man in Havana".
De Gaulle verður
forseti — Debré
forsætisráðherra
MEÐ deginum í dag, 8. janú-
ar, tekur de Gaulle við em-
bætti sem fyrsti forseti hins
fimmta franska lýðveldis. —
Samtímis verður mynduð
fyrsta ríkisstjórn lýðveldisins
undir forsæti Michel Debré,
eins af helztu foringjum Lýð-
veldisfylkingarinnar.
í fregnum frá París í gær
segir að vaxandi óánægju
gæti meðal almennings í
Frakklandi vegna hinnar
ströngu sparnaðaráætlunar
þeirra de Gaulles og Pinays,
Ejármálaráðherra. Verkalýðs-
félögin hafa lýst yfir andúð
sinni á lífskjaraskerðingunni,
en þó er ekki búizt við nein-
um verkföllum fyrst um sinn.
ÆT ■
Atta tonn
AKRANES, 7. jan. — Fyrsti bát-
urinn sem í róður fór á vertíð-
inni, Sigurvon, kom með 8 tonna
afla í kvöld og hafði skipið feng-
ið gott sjóveður. Um helmingur
aflans var þorskur, hitt ýsa og lít-
ilsháttar af smálúðu. í kvöld
munu róa héðan 6—7 bátar.
■— Oddur.
Moskoviis ‘59 ósknsl
nú þegar, leyfi fyrir Moskwitz kemur einnig til
greina. Tilboð sendist afgreiðslu Morgunblaðsins
fyrir ki. 6 á föstudagskvöid merkt: „Moskwitz 1959“.
Minniingarsjóður
Soffiu Gublaugsdóttur
Minningarspjöld afgreidd í hannyrðaverzluninni
Refli Aðalstr. 12 og bókaverzlun Olivers Steins
í Hafnarfirði.
U nglinga
vantar til bfaðburðar í eftirtalin hverfi
Bráðræðisholt
Efstasund
Lindargata
Aðalstræti 6 — Sími 22480.
er sýndu mér vinsemd á SEXTUGSAF-
MÆLI MÍNU 26. DES. S.L. og glöddu mig
og fjölskyldu mína með heimsóknum, stór-
gjöfum og góðum kveðjum.
Óska ég ykkur öllum góðs árs, heilla og
blessunaa*.
Akureyri 3. jan. 1959
Valgarður Stefánsson
Oddeyrargötu 28.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum og kveðjum, á sjötugsafmæli mínu
þann 1.1. 1959.
Guð blessi ykkur öllum nýja árið.
Bjarnfríður Ásmundsdóttir, Akranesi.
Císli Einarsson héraðsdóinslög ma Aur. WkmWi
Málflulniugsskrifstofa. HRINOUNUM
Laugavegi 20B. — Sími 19631.
C/’ TJ HAFNAfi*T* 4
5 0 fl 0 0 0$ fi 0 tt'Si' 0 0 *"0 * 0}
Eiginkona mín
SIGUREY SIGURÐARDÓTTIR
Hjallavegi 27,
sem andaðíst 3. janúar verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkjunni föstudaginn 9. janúar kl. 10,30. Athöfninni
verður útvarpað. Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim
er vildu minnast hennar er bent á Slysavarnarfélag ís-
lands.
'"nur Nielsson.
Dóttir mín
ÞÓREY ÞORLEIFSDÓTTIR
andaðist í Landsspítalanum miðvikudaginn 7. janúar.
Ragnheiður Bjarnadóttir, Bókhlöðustíg 2.
Maðurinn minn, faðir og tengdafaðir
SIGURÐUR KR. HJALTESTED
bakarameistari, andaðist 7. janúar.
Rannveig Hjaltested,
Margrét og Úlrieh Richter.
Móðir mín
KRISTfN JÓHANNSDÓTTIR
fyrrum húsfreyja að Fagradal á Hólsfjöllum, anúaöist
í Landsspítalanum í gær.
F.h. okkar systkinanna.
Gunnar Jóhannesson.
Jarðarför mannsins míns
SIGMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
frá Fíflholtum,
sem andaðist 2. janúar s.I. fer fram frá Keflavíkurkirkju
laugardaginn 10. þ.m. og hefst með bæn að heimili hans
Ásabraut 5 kl. 1 e.h. Blóm afþökkuð.
Soffía Kristjánsdóttir.
ÓLAFUR J. GUÐLAUGSSON
fyrrum veitingamaður Grettisgötu 94,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni föstudaginn 9. jan-
úar kl. 1,30. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á
minningarsjóð Soffíu Guðlaugsdóttur, leikkonu.
IFyrir hönd aðstandenda.
Ingibjörg Jónsdóttir og börn.