Morgunblaðið - 09.01.1959, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.01.1959, Blaðsíða 12
12 MORGVNRLAÐ1Ð Föstudagur 9. jan. 1959 Forseti Ferðafélags Islands — Geir G. Zoega hann hafi þekkt þá alia á land- inu, og svo mannglöggur, að af bar'. Allra manna var hann hóf- samastur í þessum ferðum við sjálfan sig og okkur, þar var hann líka okkar fyrirmynd. Ég veit að aðrir en ég verða til þess að þakka Geir G. Zoéga það frábæra starf hans í sam- göngumálum, að vega allt landið, eða því sem næst, á þessum skamma tíma, tæpum 40 árum. En ég veit ekki hvort öllum er ljósara en okkur sem unnum hjá honum, allir þeir erfiðleikar er sÓTtu á hann frá ýmsum hliðum. 1 fyrsta lagi fólkið sem þurfti GEI G. ZOEGA, fyrrum vega- málastjóri, lézt að heimili sínu, árla <iags hinn 4. þ. m., eftir all ®tranga sjúkdómslegu. Geir lauk prófi í bygginga- verkfræði frá Tækniskólanum í Kauj>mannahöfn árið 1911 og er þannig úr hópi hinna fyrstu ís- lenzku verkfræðinga. Hann hefur Mnnið óslitið að verkfræðistörfum hér á landi lengur en nokkur «nnar, eða í nærri hálfa öld og er fyrir löngu orðinn landskunn- •wr, fyrir hin fjölþættu störf sín. Kann var einn af 13 stofnend- um Verkfræðingafélags íslands <VFÍ) ári'ö 1912 og ótrauður og gegn félagsmaður til hinztu stundar. Tvisvar var hann for- »naður félagsins, 1916—1916 og aftur 1928—1930. Þá sat hann í stjórn félagsins 1920—1928, en átti auk þess sæti í f jölmörgum nefndum innan vébanda þess.^ ífér skal aðeins minnst á fátt eitt af störfum hans í þágu fé- lagsins. Hann var kjörinn full- trúd VFÍ í samvinnunefnd nor- rænna verkfræðinga í Reykjavík 1950, formaður unddrbúnings- rtefndar að 5. norræna verkfræð- ángamótinu, er haldið var í fyrsta sinn hér á landi árið 1956. Enn- fremur var hann fuUtrúi ís- lenzkra verkfræðinga í forsæti mótsins. f>á átti hann sæti í framkvæmdaráði húsnæðissjóðs féiagsins frá stofnun þess 28. febrúar 1951. Brautryðjandi i ÞEGAR ég á sunnudagsmorgun þann 4. p.m. frétti um andlát Geirs G. Zoega, fyrrv. vegamálá- stjóra, flugu ósjálfrátt um hug minn minningar frá ýmsum sam verustundum, sem ég var svo lánsamur að hafa átt með honum, einkum í sambandi við störf hans, þau er lutu að brunavarna- málum, en hann hafði á hendi yfirumsjón með þeim málum óslitið í um 30 ár, jafnhiiða öðr- um umfangsmiklum embættis- störfum Á Alþingi 1929 var gerður sá viðauki við brunamálalögin frá 1907, að skipaður skyldi sérstak- ur eftirlitsmaður með því að ákvæði laganna um skipulegar brunavarnir í kaupstöðum og kauptúnum væri framfylgt. En samkv. ýmsum heimildum frá þeim tíma er Ijóst, að brunavarn ir vona þá mjög í molum og víð- ast hvar alls engar. Geir Zoéga var falið þetta eftirlit, sem síðar hlaut nafnið Brunavarnaeftirlit ríkisins, að aukastarfi og hafði hann það einn á hendi fyrstu árin, en frá 1934 var ráðinn mað- ur í hið daglega eftirlit honum til aðsttíðar. Geir Zoéga hófst þegar handa af sínum alkunna dugnaði og stjórnsemi að vekja áhuga og framkvæmdarvilja bæja og sveitastjórna fyrir auknum brunavörnum. Miðaði málum þessum strax mjög í rétta átt, en viða urðu þó erfiðleikar í vegi, eins og oft vill verða þegar um brautryðjendastörf er að ræða. En með óbilandi atorku og dugn- aði tókst Zoéga að fá menn í lið með sér til þess að hrinda þess- um málum áleiðis. Honum var strax ljóst, að ekki var einhlítt að beita sektarákvæð um laga eða reglugerða ef út af veganna með, þráði þá, og að mörgu leyti átti rétt á þeim. í öðru lagi takmörkuð fjárveiting, jafnhliða hækkandi kaupi og í þriðja lagi sívaxandi vélakaup. Þetta skildum við verkstjórar hans ef til vill betur en fólkið. Einmitt í sambandi við þetta mætti vegamálastjóri oft gagn- rýni. Oft var hún ósanngjörn, því fáir vissu hvað Geir Zoéga vann marga stórsigra með persónuleik sínum og skapfestu í þessum mál- um. Ég vil enda þessar línur með innilegri samúðarkveðju til konu hans, barna og annarra vanda- manna. í virðingar- og þakklætisskyni fyrir frábær störf var hann kjör- inn heiðursfélagi VFÍ árið 1955. Eitt af einkennum Geirs G. Zoéga var, hve heill og óskiptur hann gekk að hverju starfi. Mér eru efst í minni, nokkrir fundir, er ég sat með honum í húsnæðis- málanefnd félagsins sl. sumar og haust, allt fram að þeim tíma, er hann lagðist banaleguna. Hann lét sér mjög annt um húsnæðis- mál félagsins og var á fundum þessum hinn gjörhuguli og lífs- reyndi maður. Eftir að hann lagðist, átti hann nokkrum sinn- um símtöl við framkvæmdastjóra félagsins, ýmist til þess að fylgj- ast með framgangi þessa máls, eða til að leggja eitthvað gott til málanna. Geir G. Zoéga var prúður í framkomu, hæverskur, jafn- geðja og farsæll í störfum. 1 þau 30 ár, sem kynni okkar stóðu, minnist ég ekki annars en að hann legði alltaf gott til manna og málefna og aldrei hnjóðsyrði til nokkurs manns. íslenzkir verkfræðingar munu lengi minnast hans með virðingu •og þakklæti. Fyrir hönd Verkfræðingafélags íslands, vil ég votta konu hans, frú Hólmfríði Zoéga, börnum þeirra og öðrum venzlamönnum innilega samúð. Jón Á. Bjarnason. brunavarnarmálum var brugðið — heldur vaeri væn- legra til árangurs að leiðbeina, fræða og byggja upp. Sjálfur lét hann ekkert tækifæri ónotað til þess að kynna sér fyrirkomulag þessara mála í nágrannalöndum sem og nýjungar á sviði bruna- varnatækja. Sótti hann í þessu skyni heim ýmsa forystumenn þessara mála á Norðurlöndum og sat ýmsar ráðstefnur er fjölluðu um þessi efni. Árið 1948 voru sett ný lög um brunavarnir og brunamál og síð- ar regiugerð um sama efni, hvort tveggja að mestu undirbúið og samið af Geir Zoega með hlið- sjón af sams konar löggjöf á hin- um Norðurlöndunum. Það var ekki ætlun mín með þessum fáu línum að rekja til hlítar þennan þátt í starfssögu Geirs Zoéga, heldur aðeins stikla á því helzta og um leið koma á framfæri persónulegum þökkum fyrir lærdómsríkt samstarf og kynni svo og þökk frá Bnmabóta féíagi íslands, sem jafnan hefir haft náið samstarf við Bruna- varnaeftirlit ríkisins og forstöðu mann þess Geir G. Zoéga. Árangur sá, er náðst hefir í brunavamamálunum í heild á tiltölulega skömmum tíma er ótrúlega mikill, en um þetta starf sem svo mörg önnur verður ekki sagt að því sé eða verði lokið — nýir tímar koma með ný verkefni — ný vandamál. Fyrir þann áfanga sem náðst hefir undir handleiðslu og fyrir brautryðjendastörf Geirs G. Zoéga, stendur þjóðin í mikilli þakkarskuld við þennan mæta og starfsama embættismann. Eiginkonu, börnum og öðru skyldfólki hins látna votta ég innilega samúð. Ásgeir Ólafsson. í DAG er til moldar borinn for- seti Ferðafélags íslands, Geir G. Zoéga. Hann andaðist að morgni sunnudagsins 4. þ. m. Ferðafélag Islands er orðið fjölmennt félag, vinsælt með landsmönnum og hefir unnið nyt- söm og þjóðholl störf. En það hefir á tiltölulega fáum árum sætt þungum áföllum. Á stuttum tíma hefir það átt á bak að sjá ekki færri en fimm ágætum forystumönnum sínum, þeim Steinþóri Sigurðssyni, Kristjáni Ó. Skagfjörð, Þorsteini Þorsteinssyni, Pálma Hannessyni og nú síðast forseta sínum, sem verið hafði rösk tuttugu ár. Geir G. Zoéga var kosinn for- seti F. í. árið 1937. Hafði hann þá verið varaforseti þess áður. Árið 1937 átti félagið aðeins 10 starfsár að baki; var enn ekki fjölmennt, né hafði orkað að af- kasta stórmiklum framkvæmd- um, enda þótt það hefði frá byrj- un átt á að skipa hinum mæt- ustu áhugamönnum um stefnu- mál þess og markmið. Þá átti félagið t. d. eitt sælu- hús í Hvítárnesi, sem það hafði látið reisa. Undir forystu Geirs G. Zoéga hefir F. í. tekið miklum vexti og afkastað miklu starfi. Nú á það 8 sæluhús í óbyggðum, og nú er það eitt af fjölmennustu félögum á landinu. Þrátt fyrir geysi umfangsmikil embættisstörf og erfið, og þrátt i fyrir fjölmörg trúnaðarstörf önn- ur, sem á hann hlóðust, veitti Geir F. í. forystu af miklum á- huga, dugnaði og farsæld. Hann var mikill ferðamaður. Þess kröfðust embættisstörf hans. Hann þekkti ísland betur en flestir aðrir bæði byggðir og fjallvegi. Hann sá og fann, hví- líkt gildi það hefir fyrir okkur íslendinga, að kynnast ættlandi okkar, hinni voldugu náttúru þess, fjölbreytni óendanlegri og fegurð. Uppdráttum af íslandi, sem orðið hafa frábærlega vinsælir, átti hann allra manna mestan þátt í að koma út. Þýðing vega- bóta, sem F. í. voru svo mikils virði inn á öræfin, skildi vega- málastjórinn og ljósar en flestir aðrir, og var þar betri en eng- inn. í skemmstu máli mótaðist stjórn hans öll af ljósum skiln- ingi og miklum áhuga á sérhverj- um þætti í starfsemi Ferðafé- lagsins — og af þeirri festu og trausti, sem einkenndi persónu þessa glæsilega manns. Ferðafélagið á mikilhæfum og ágætum forystumanni á bak að sjá. Við, sem áttum við hann í þess- um félagsskap nána samvinnu, finnum, hve þar er orðið skarð fyrir skildi. En í gegnum endurminningar þess samstarfs munum við ávallt ágætan leiðtoga og góðan dreng. Hallgr. Jónasson. — Dómarinn Framh. af bls. 8 og leikur hans skemmtilega „stíli séraður“, ef svo mætti segja. — Valur Gíslason leikur Arnold lög- fræðing, sem tekið hefur að sér mál Kristars, og er líka settur á geðveikrahæli vegna afskifta sinna af málinu. — Arnold vill í byrjun vinna skjólstæðingi sín- um það sem hægt er, en hann er ekki mikill persónuleiki og gugn- ar á málinu þegar á herðir. Bregð ur hann þá yfir kaldhæðni og kæruleysi, sem kemur hvað bezt í ljós í viðræðum hans við dóm- arann í síðasta þætti. Er leikur Vals í hlutverki þessu einkar góð ur. — Fröken Bernhard, skrif- stoíustúlku Róars réttarfulltrúa leikur Guðbjörg Þorbjarnardótt- ir. Er fröken Bernhard bergmál af húsbónda sínum og mjög í stíl við hann. Er gervi Guðbjargar prýðilegt og leikur hennar hnit- miðaður. — Rúrik Haraldsson leíkur ritstjóra blaðsins „Þjóð- dómsins", sem er málgagn gagn- rýningar á valdamenn þjóðarinn- ar. Ekki felli ég mig við þessa ritstjóra-týpu, finnst hann eitt- hvað öðru vísi en hann ætti að vera. Hygg ég að það sé báðum að kenna, höfundinum og leikar- anum. Hins vegar er aðstoðarrit- stjórinn, sem Indriði Waage leik- ur, réttur maður á réttum stað og bráðskemmtilegur í snjallri túlk. un Indriða. Þá er og Inga Þórð- ardóttir prýðileg í hlutverki frammistöðustúlkunnar. Róbert Arnfinnsson leikur Lonard geð- veikralæknir og Arndis Björns- dóttir gamla konu. Eru þetta lítil hlutverk og vel með þau farið. — í.árus Pálsson leikur Cunning dómara, hinn kaldrifjaða fant. Er leikur Lárusar góður en fram- sögn hans, að mér finnst, full til- breytingalítil. — Önnur hlutverk eru smærri og gefa ekki tilefni til umsagnar. Leiktjöld Lárusar Ingólfssonar eru hin prýðilegust. Helgi Hjörvar hefur þýtt leik- inn á gott og vandað mál. Höfundur leiksins og kona hans voru viðstödd frumsýning- una. Var leiknum ágætlega tekið og voru höfundur og leikarar og leik stjóri kallaðir fram hvað eftrr annað og þeir ákaft hylltir af Kunni vel með að tara með hið mikla, sem honum var veitt i vöggugjöf MEÐ GEIR G. ZOEGA er geng- inn fyrir ætternisstapa einn þeirra manna, sem var mest prýði embættisstéttar íslands um sína daga. Geir var af gamalli Reykja- vikurætt, fæddur hér og ól hér allan sinn starfsaldur. Bryndís móðir hans stendur mér frá æskudögum fyrir hugskotssjón- um sem glæsileg höfðingskona, og Geir rektor faðir hans var hugljúfur kennari og hæglátur en farsæll stjórnandi. Náin fjöl- skyldubönd tengdu þá frændur’ annars vegar við Benedikt Grön- dal skáld, einn viðfeðmasta and- ans mann íslendinga, og hins vegar Geir Zoéga útgerðarmann, er var ötulastur og eftirminnileg- astur athafnamaður í Reykjavík á síðari hluta nítjándu aldar og fram á hina tuttugustu. Geir vegamálastjóri óx því upp í umhverfi, sem um margt var óvenjulegt og fremra en þá gerð- ist. Hann bar þess merki alla ævi með þeim hætti, að honum var hvarvetna veitt athygli sem aðsópsmiklum en þó hóglátum fyrirmanni. Þegar litið er til stærðar lands- ins, fámennis og fátæktar, lengst af, nálgast að telja verði til kraftaverka hinar miklu vega- lagnir og brúargerðir hér á síð- ustu áratugum. Þar hafa margir átt drjúgan hlut að, en enginn þó drýgri en Geir vegamála- stjóri. Hann þurfti ekki einung- is að sjá um hinn verkfræðilega undirbúning heldur og að hafa yfirstjóm allra framkvæmda víðs vegar um land. Hefur þar oft orðið að láta lítið fé nægja til mikils. Hagsýni, árvekni og óbil- andi vinnuþrek voru forsendur þess, að svo vel tækist sem raun ber vitni. Geir var óþreytandi ferðamað- ur og þekkti öllum öðrum betur staðhætti um land allt. Hann var ríkisstjórn og Alþingi ómetanleg- ur ráðgjafi um fjárveitingar og framkvæmdir, vel metinn af sam- starfsmönnum og vinsæll af und- irmönnum sínum hvarvetna. Samhliða umfangsmiklum emb ættisstörfum tók Geir mikinn þátt í athafnalifi hér í bæ, bæði útgerð og iðnrekstri. Formaður Ferðafélags íslands var hann áratugum saman, á meðal odd- vita stéttar sinnar og í marg- háttuðum öðrum félagsskap, sem miðar að því að bæta bæjar- braginn. Geir hafði ánægju af mannfagnaði, naut sín þar ætíð vel og var sjálfur höfðingi heim að sækja, enda var gestrisni beggja, hans og frú Hólmfríðar við brugðið. Geir vegamálastjóri var þrctt- mikill gæfumaður, sem fékk að njóta sín í lífinu svo sem hæfj- leikar hans stóðu til. Ætt hans og umhverfi mótuðu hann, en heilladrýgst varð sjálfum honum og þjóðinni það, að hann kunni vel að fara með hið mikla, sem honum var veitt í vöggugjöf. Bjarni Benediktsson. Sigurðnr Grímssoa. Bandarikjamenn hafa gert nýja kvikmynd eftir Dagbók un»iu Franks. Vekur kvikmyndin mikla eftirtekt og þykir listavel gerð. Með aðalhlutverkið, Önnu, fer ung, bandarísk stúlka, óþekkt fram að þessu, að nafni MiIIie Perktns. Hér sést bnn vera að skrifa í dagbók sina. Jónas Magnússon, Hefir unnið að verkfræðistörfum hér á landi lengur en nokkur annar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.