Morgunblaðið - 13.01.1959, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.01.1959, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 13. jan. 1959 MORSUNBLAÐIÐ 11 AKUREYRARBRÉF Annáll ársins 1958 eftir Vigni Gubmunásson f STUTTUM annál ársins, sem leið, er að sjálfsögðu ekki hægt að gera nema fáum atburðum skil og engum nema að litlu leyti. Ég mun freista þess að tína fram nokkur atriði er varða atvinnulíf, stjórnmál (bæjarmál fyrst og fremst), almenn tíðindi, íþróttir, slysfarir og nokkur mannslát. Ég vil í upphafi benda á að þetta geta ekki orðið annað en annálsbtfot. Ég vil geta stuttlega þróunar atvinnumálanna hér í bænum. Þar ber hæst starfsemi Útgerð- arfélags Akureyringa, sem var komið á nokkurn veginn fastan grundvöll á árinu. Að sönnu er ó- kunnugt um afkomu þess, en vonir standa til að hún hafi batn- að. Ber þar fyrst og fremst til það, að aflabrögð togaranna hafa verið með bezta móti á árinu og svo hitt að nú er hraðfrystihús félagsins tekið til starfa af full- um krafti. Bygging hraðfrysti- hússins hafði verið á döfinni um nokkurt árabil, en þó lögð mikil áherzla á að hraða henni. Þrátt fyrir þetta tafðist hún um nokk- urt skeið og var það eitt af frægð arverkum fyrverandi ríkisstjórn ar og getuleysis þingmanna stað arins. En nú er þetta hins vegar allt á framfarabraut að því er menn vona. Samfara aukinni út- gerð batnar hagur annarra at- vinnugreina á staðnum. Það fær- ist líf í iðnað og verzlun, þótt innflutningsörðugleikar og hrá- efnaskortur hafi látið nokkuð á sér bera. í heild verður ekki annað sagt, en að atvinnulíf Ak- ureyringa hafi verið allgott á I liðnu ári. Stjórnmál. Á sviði stjórnmálanna ber bæj- arstjórnarkosningarnar í janúar hæst og hinn mikli sigur Sjálf- stæðisflokksins í þeim. Þeir bættu við sig nýjum bæjarfulltrúa og eiga nú 5 af 11. Atkvæðamagn flokksins jókst að miklum mun eða um 500 og er nú 1631. Mál- efnabarátta flokksins var mjög sterk. Hann átti í harðri bar- áttu við alla hina flokkana, sem sameinuðust gegn honum undir einni málefnayfirlýsingu. Auk þess sömdu þeir um bæjarstjóra- efni sameiginlega, bæjarstjóra- efni Sjálfstæðismanna var Jónas G. Rafnar fyrrum alþingsmaður. Eitt þeira mála. sem andstæðing- arnir reyndu að klekkja á Sjálf- stæðisflokknum með voru fjár- hagsörðugleikar Útgerðarfélags- ins, en sá draugur snerist til ásóknar á þá sjálfa. Meðal þeira framfaramála, sem Sjálfstæðismenn hétu að beita sér fyrir, má nefna stækkun drátt- arbrautar, byggingu elliheimils, endurbætur á Krossanesverk- smiðjunni, athugun á hitaveitu í bænum, aukningu á vatnsveitu- kerfinu o. m. fl. Að öllum þessum málum hefur verið unnið meira og minna og mörg þeirra þegar framkvæmd eða langt á veg komin. í febrúar kaus bæjarstjórnin nýjan bæjarstjóra, Magnús E. Guðjónsson með 6 atkv., Jónas G. Rafnar fékk 5 atkvæði. í marz fluttu Sjálfstæðismenn í bæj«rstjórn tillögu um að skora á Alþingi að samþykkja frv. Gunnars Thoroddsens borgar- stjóra um að bæjarfélögin fái hluta af söluskattinum. Var hún samþykkt með 8 atkv. gegn 1. í maí samþykkti bæjarstjórn með 6 atkv. gegn 4, að bærinn tæki að sér rekstur Útgerðarfé- lags Akureyringa h.f. með tiltekn um skilyrðum. í ágúst var elliheimilinu val- inn staður í landi Fjórðungs- sjúkrahússins. í nóvember var samningur gerður um framkvæmd um upp- setningu heilmjölsvinnslutækja í Krossanesverksmiðju og fram- kvæmdir hafnar. í árslok var að mestu lokið við aukningu vatnsveitukerfisins. Almenn tíðindi. Janúar: Guðmundur Jörunds- son útgerðarmaður selur togar- ann Jörund útgerðarfélaginu Þórólfi Mostrarskegg í Stykkis- hólmi. Febrúar: Vélaverkstæði brenn- ur að Auðbrekku í Hörgárdal. Brunnu þar fólksbíll og jeppi, ásamt dýrmætum tækjum. Marz: Harðbakur kemur til Akureyrar til tundurdufl, er hann hafði fengið í vörpuna. Björg- unar- og varsðskipið Albert, sá um eyðileggingu þess. Smásíldveiðar hefjaet á Akur- eyrarpolli og gengu veiðar fram í apríl. Var aflinn lagður upp í Krossanessverksmiðj u. Vatnsskömmtun tekin upp í bænum sakir vatnsskorts. Bif- reiðanámskeið til meiraprófs. Þátttakendur 27. Apríl: Fjölmennur hluthafa- fundur í U. A. óskar eftir að Ak- ureyrarbær taki við rekstri fé- lagsins. Skákþingi Akureyrar lýkur og varð Guðmundur Eiðsson skák- meistari Akureyrar 1958. Sett á stofn ný úra- og skart- gripaverzlun í bænum. Maí: Ólöf Elíasdóttir á Hóli í Staðarbyggð varð 100 ára 5. maí. Hinn 2. maí liðin 20 ár frá fyrsta farþegaflugi Flugfélags fslands milli Akureyrar og Reykjavíkur. Guðmundur Karl Pétursson yf- irlæknir heiðraður með því að afhjúpað er af honum brjóstlík- an í Fjórðungssjúkrahúsinu. 48 gagnfræðingar útskrifast úr Gagnfræðaskóla Akureyrar. Júní: 52 stúdentar útskrifast frá Menntaskólanum á Akureyri. Steini Steinsen fyrrv. bæjar- stjóra haldið fjölmennt kveðju- samsæti. Karlakórinn Aalesunds Mand- sangsforening heimsækir Akur- eyri og færir með sér verðmæt- ar gjafir. 36 námsmeyjar ljúka prófi frá Húsmæðraskólanum á Lauga- landi. Júlí: Fulltúar vinabæja Akur- eyrar á Norðurlöndum heim- sækja Akureyringa og dveljast hér dagana 18.—24. júlí. Ný sjúkraflugvél kemur til bæjarins. Ágúst: Ferðafélag Akureyrar hefur byggingu sæluhúss í Herðu breiðarlindum. Húsið gert fok- helt. Kexverksmiðjan Lórelei flytur í nýtt húsnæði á Gleráreyrum. Héraðsmót Sjálfstæðismanna haldin víðs vegar í Eyjafjarðar- sýslu. Aðalræðumenn alþingis- mennirnir Bjarni Benediktsson og Magnús Jónsson. Október: 100 ára afmæli Bægis árkirkju minnzt með hátíðaguðs þjónustu á staðnum. Örlygur Sigurðsson heldur mál verkasýningu á Akureyri á veg- um fyrirtækjanna Valbjarkar hf. og Bókabúðar Rikku. Nóvember: Geislalækningatæki sett upp í Fórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Desember: Skákkeppni 100 manna á Akureyri og í Eyjafjarð arsýslu lýkur með sigri Akur- eyringa 30 vinningar gegn 20. Lokið sumarlöngum fram- kvæmdum við Vatnsveitu Akur- eyrar og vatni er nemur helm- ingsaukningu hleypt á vatnskerfi bæjarins. Frækileg björgun skipsmanns á bv. Kaldbak. Magnús Lórenz- son kastar sér fyrir borð eftir félaga sínum. Nýtt skip, Sigurður Bjarnason, kemur til bæjarins, eign Súlur hf. (Leó Sigurðsson o. fl.) Listir og félagastarfsemi. Janúar: Leikfélag Akureyrar sýnir „Tannhvassa tengda- mömmu", Leikstjóri Guðmundur Gunnarsson, en með gestahlut- verk fór Emilxa Jónasdóttir. Febrúar: Kvenféíag Akureyrar kirkju minnist 20 ára afmælis síns með hófi í kapellu kirkj- unnar. Afmælishljómleikar Geysis í til efni 35 ára afmælis söngfélagsins. Marz: Leikfélag Akureýrar frumsýnir „Ást og ofurefli (Jú- piter hlær)“ eftir A. J. Cronin. Leikstjóri Ragnhildur Steingríms dóttir. Bridgefélag Akureyrar lýkur keppni í meistaraflokki. Sveit Karls Friðriksson sigurvegari. Maí: Tónlistarfélag Akureyrar gengst fyrir tónlistarviku í til- efni 15 ára afmælis síns. Leikfélag Akureyrar frumsýn- ir „Afbrýðissama eiginkonu". — Leikstjóri Jóhann Ögmundsson. Stofnað Matthíasarfélag á Ak- ureyri og er hlutverk þess, að stofna minjasafns um þjóðskáld- ið Matthías Jochumsson. Formað ur kjörinn Marteinn Sigurðsson. Júní: Þjöðleikhúsið heimsækir Akureyri með leikinn „Horft af brúnni“. Október: Leikfélag Akureyrar frumsýnir sjónleikinn „Gasljós“. Leikstjóri Guðmundur Gunnars- son. Stofnað félag lamaðra og fatl- aðra með 50 stofendum. Form. Emil Andersen. Nóvember: Helgileikurinn „Bartimeus blindi“ sýndur í Ak- ureyrarkirkju og _ Möðruvalla- kirkju. Leikstjóri Ágúst Kvaran. Á árinu heimsóttu þau Árni Jónson og Guðrún Tómasdóttir Akureyri og héldu hér söng- skemmanir. Svo og sendi útvarp- ið og menntamálaráð listafólk hingað. Slysfarir. Marz: Sviplegt flugslys verð- ur á Öxnadalsheiði, er lítil flug- Frh. á bls. 13. Frá sundmelstaramóti íslands, sem haldið var á Akureyri í júní. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðismanna á Akureyri, aðalfulltrúar og varafulltrúar. Frá vinstri, i fremri röð: Gísli Jónsson, Jón G. Sólnes, Jónas G. Rafnar, Helgi Pálsson og Árni Jónsson. Aftari röð: Ragnar Steinbergsson, Gunnar K. Kristjánsson, Bjarni Sveinsson, Jón H. Þórvaldsson og Árni Böðvarsson. Hér sjást þrír af togurum Útgerðarfélags Akureyringa, sem fært hafa mikla björg í bú á sl. ári. Fnnfremur má sjá togarann Jörund, sem nú hefur verið seldur til Stykkishólms.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.